Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. febrúar 2011. Útgáfa 139a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um skráningu og mat fasteigna
2001 nr. 6 6. febrúar
Upphaflega l. 94/1976. Tóku gildi 23. júlí 1976. Endurútgefin, sbr. 17. gr. l. 47/2000, sem l. 6/2001. Breytt með l. 61/2001 (tóku gildi 13. júní 2001), l. 139/2004 (tóku gildi 1. jan. 2005), l. 50/2006 (tóku gildi 1. júlí 2006), l. 178/2006 (tóku gildi 1. jan. 2007), l. 165/2007 (tóku gildi 1. jan. 2008), l. 83/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema 22. gr. sem tók gildi 20. júní 2008), l. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008), l. 98/2009 (tóku gildi 1. okt. 2009 nema 69. og 70. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2010), l. 77/2010 (tóku gildi 1. júlí 2010), l. 160/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011) og l. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011).
I. kafli. Markmið, skilgreiningar og söfnun skráningaratriða.
1. gr. [[Þjóðskrá Íslands] 1) fer með yfirstjórn fasteignaskráningar samkvæmt lögum þessum og rekstur gagna- og upplýsingakerfis er nefnist fasteignaskrá á tölvutæku formi.
Í fasteignaskrá skal skrá allar fasteignir í landinu. Kjarni fasteignaskrár eru upplýsingar um lönd og lóðir og hnitsett afmörkun þeirra, mannvirki við þau skeytt og réttindi þeim viðkomandi. Fasteignaskrá er grundvöllur þinglýsingabókar fasteigna, mats fasteigna og húsaskrár Þjóðskrár og þannig úr garði gerð að hún nýtist sem stoðgagn í landupplýsingakerfum. Saga breytinga á skráningu fasteignar skal varðveitt í fasteignaskrá.] 2)
1)L. 77/2010, 5. gr. 2)L. 83/2008, 1. gr.
2. gr. Hverja fasteign skal meta til verðs eftir því sem næst verður komist á hverjum tíma og nánar er kveðið á um í lögum þessum.
3. gr. Fasteign samkvæmt lögum þessum er afmarkaður hluti lands, ásamt lífrænum og ólífrænum hlutum þess, réttindum sem því fylgja og þeim mannvirkjum sem varanlega eru við landið skeytt.
Fasteignir, hluta þeirra og einstök mannvirki skal skrá sem sérstakar eindir í [fasteignaskrá] 1) svo sem hér segir:
a. land, þ.e. hver sá skiki lands sem vegna sérgreinds eignar- eða afnotaréttar, hagnýtingar, auðkenna eða landamerkja getur talist sjálfstæð eind,
b. mannvirki sem gert hefur verið í landi eða á eða verið við það tengt,
c. séreignarhlutar í fjöleignarhúsum samkvæmt lögum um fjöleignarhús,
d. hlutar mannvirkja ef um sérstaka notkun þeirra er að ræða,
e. ræktun,
f. hlunnindi,
g. önnur réttindi tengd fasteignum.
Ráðherra getur með reglugerð ákveðið nánari skráningu samkvæmt framansögðu og að skrá skuli fleiri eindir fasteigna en þær sem taldar eru í 2. mgr.
1)L. 83/2008, 21. gr.
4. gr. Skráning skv. 1. gr. á fasteignum skv. 3. gr. skal fela í sér nýjustu upplýsingar, sem á hverjum tíma eru tiltækar og fasteignina varða, auk nauðsynlegra greinitalna hverrar fasteignar. Setja skal í reglugerð ákvæði um söfnun og skráningu upplýsingaatriða svo og um helstu skrár gefnar út á grundvelli þeirra.
5. gr. Upplýsingar skv. 4. gr. skulu skráðar og skráningu þeirra breytt þegar landsstærðir breytast, notkun lands breytist, svo sem við gerð lóðarsamnings eða úthlutun lóðar, en ella á byggingartíma mannvirkis, þegar mannvirki er tekið í notkun og loks þegar mannvirki er breytt eða eytt.
Upplýsingar skulu einnig skráðar við eignaskipti eða breytingu á notkun eignar svo og umráðum eignar, sbr. 22. gr. Heimilt er að setja í reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd þessarar greinar, þar á meðal um hve oft fasteignir skuli skoðaðar af [Þjóðskrá Íslands]. 1)
1)L. 77/2010, 5. gr.
6. gr. Skráningaraðila er heimilt að höfðu samráði við viðkomandi stjórnvöld að takmarka söfnun og skráningu upplýsinga um einstakar eignir eða tegundir eigna séu eignir þess eðlis að slík upplýsingasöfnun er erfið og/eða þjónar ekki opinberum hagsmunum.
[Þjóðskrá Íslands] 1) ber að annast gerð og samræmingu hvers konar greinitalnakerfa sem notuð eru um fasteignir við skráningu þeirra, þar með talin gerð staðgreinitölukerfis (matrikel) sem taki til landsins alls. Heimilt er að skylda fasteignaeigendur til að sjá um auðkenningu fasteigna samkvæmt greinitalnakerfi [Þjóðskrár Íslands]. 1)
1)L. 77/2010, 5. gr.
II. kafli. Skipulag og stjórn.
7. gr. Gerð og viðhald þeirrar skráningar, sem um ræðir í lögum þessum, annast sérstök ríkisstofnun sem nefnist [Þjóðskrá Íslands]. 1) Stofnunin starfar á ábyrgð [innanríkisráðuneytisins] 2) og undir umsjón þess.
Ráðherra hefur heimild til að fela öðrum opinberum aðilum, þ.m.t. einstökum sveitarfélögum eða samstarfsstofnunum þeirra, skráningu fasteigna samkvæmt lögum þessum, eða einstaka þætti hennar, ef slík breyting þykir hagkvæm.
Þrátt fyrir ákvæði 29. gr. er ráðherra heimilt að fela einstökum sveitarfélögum eða samstarfsstofnunum þeirra að annast tiltekin störf til undirbúnings að mati fasteigna skv. V. kafla laga þessara. Í því tilviki skal gætt ákvæða 19. gr. laga þessara, eftir því sem við getur átt.
1)L. 77/2010, 5. gr. 2)L. 162/2010, 166. gr.
8. gr. [Þjóðskrá Íslands] 1) starfar undir stjórn forstjóra sem ráðherra skipar til fimm ára í senn. Forstjóri ræður starfsfólk og kaupir sérfræðilega aðstoð eftir því sem nauðsyn ber til og heimildir fjárlaga hverju sinni segja til um.
1)L. 77/2010, 5. gr.
9. gr. [Ráðherra skipar þrjá menn í stjórn [Þjóðskrár Íslands]. 1) Skal einn tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, einn af Samtökum fjármálafyrirtækja og einn skipaður án tilnefningar. Skal stjórnin skipuð til fjögurra ára.
Stjórn [Þjóðskrár Íslands] 1) mótar starf og innra skipulag stofnunarinnar og hefur eftirlit með starfsemi hennar. Stjórnin gerir tillögur að gjaldskrá stofnunarinnar sem síðan skal staðfest af ráðherra. Við ákvörðun gjaldskrár skal taka mið af kostnaði einstakra rekstrarþátta sem skulu aðgreindir í bókhaldi. Gjaldskrá skal endurskoðuð árlega.] 2)
1)L. 77/2010, 5. gr. 2)L. 83/2008, 2. gr.
III. kafli. [Fasteignaskrá.]1)
1)L. 83/2008, 11. gr.
10. gr. [Fasteignaskrá] 1) skal mynduð af stofnhluta, mannvirkjahluta, [matshluta] 2) og þinglýsingarhluta er geyma eftirfarandi:
1. [Í stofnhluta eru heiti, auðkenni og hnitsett afmörkun fasteigna sem birt skal í fasteignaskrá á myndrænan hátt.] 2)
2. Í mannvirkjahluta eru byggingarfræðileg atriði um fasteignir og notkun þeirra eða einstaka hluta þeirra eftir því sem við á.
3. Í [matshluta] 2) eru matsgögn ásamt fasteigna- og brunabótamati.
4. Í þinglýsingarhluta eru þinglýstir eigendur og eignarhlutur þeirra skráðir ásamt þinglýstum veðböndum, kvöðum og öðru er þinglýsingabók heldur.
Um þinglýsingarhluta [fasteignaskrár] 1) og upplýsingar er hann geymir fer eftir ákvæðum þinglýsingalaga.
[Ráðherra] 3) er heimilt með reglugerð að setja nánari fyrirmæli um gerð og efni [fasteignaskrár]. 1)
1)L. 83/2008, 21. gr. 2)L. 83/2008, 3. gr. 3)L. 98/2009, 57. gr.
11. gr. [Þær upplýsingar sem sveitarfélög forskrá í stofnhluta fasteignaskrár taka gildi þegar [Þjóðskrá Íslands] 1) hefur staðfest þær eða eftir atvikum þinglýsingarstjóri.
Heimilt er [Þjóðskrá Íslands] 1) að fela sveitarfélögum að fullskrá upplýsingar í fasteignaskrá.] 2)
1)L. 77/2010, 5. gr. 2)L. 83/2008, 4. gr.
12. gr. [[Allar fasteignir skulu bera fast auðkenni, fasteignanúmer, sem [Þjóðskrá Íslands] 1) úthlutar. Númerið er hlaupandi raðtala og felur ekki í sér aðrar upplýsingar.] 2)
Auk fasteignanúmers ber hver fasteign heiti samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar eða samkvæmt lögum um bæjanöfn o.fl.
Ráðherra er heimilt að setja nánari reglur um heiti fasteigna, annarra en þeirra sem falla undir lög um bæjanöfn o.fl.] 3)
1)L. 77/2010, 5. gr. 2)L. 83/2008, 5. gr. 3)L. 139/2004, 1. gr.
13. gr. … 1)
1)L. 139/2004, 2. gr.
14. gr. [Umsókn um stofnun fasteignar í fasteignaskrá skal leggja fram í viðkomandi sveitarfélagi. Stofnun fasteignar getur verið grundvölluð á samruna fasteigna eða skiptingu fasteignar, svo sem fjöleignar eða fjöleignarhúss, sbr. 15. gr. Umsókn skal undirrituð af eiganda eða eigendum upprunafasteignar og þar skal eftirfarandi koma fram:
a. fasteignanúmer þeirra fasteigna sem ný fasteign er mynduð af, sé um samruna að ræða,
b. fasteignanúmer þeirrar fasteignar sem skipta skal, sé um slíkt að ræða,
c. afmörkun fasteignar á hnitsettum uppdrætti sem staðfestur hefur verið af skipulagsyfirvöldum, sé um skiptingu eða samruna lands að ræða,
d. auðkenni sameignarlands, sé um það að ræða.
Ef óskað er eftir að breyta fyrirliggjandi upplýsingum um fasteign skal eigandi sækja um breytingu á skráningarupplýsingum um fasteign í fasteignaskrá hjá viðkomandi sveitarfélagi.] 1)
1)L. 83/2008, 6. gr.
15. gr. [Við myndun fasteignar í fjöleignarhúsi eða fjöleign skal skrá auðkenni hverrar fasteignar á grundvelli umsóknar um stofnun fasteignar í fasteignaskrá, sbr. 14. gr.
Fasteignir í fjöleign skulu skilgreindar með hlutfallstölu. Fasteignir í fjöleignarhúsum skulu afmarkaðar á grunnteikningum og skráningartöflu húss. Um skráningu fasteigna í fjöleignarhúsum fer samkvæmt lögum um fjöleignarhús.] 1)
Ráðherra er heimilt að setja nánari reglur um skráningu fasteigna.
1)L. 83/2008, 7. gr.
16. gr. Sveitarstjórn skal tilkynna [Þjóðskrá Íslands] 1) um breytingar á heiti fasteignar. … 2)
… 2)
Í [fasteignaskrá] 3) skal halda ferilskrá yfir breytingar á fasteignum þar sem fyrri heiti og auðkenni og tengsl þeirra við gildandi heiti og auðkenni eru varðveitt.
1)L. 77/2010, 5. gr. 2)L. 83/2008, 8. gr. 3)L. 83/2008, 21. gr.
17. gr. … 1)
Áður en heimild er veitt til veðsetningar eða mannvirkjagerðar á leigulóð eða landi í eigu sveitarfélags skal sveitarstjórn hlutast til um að fasteign verði skráð [í fasteignaskrá]. 1)
Áður en heimild er veitt til mannvirkjagerðar á eignarlóð skal sveitarstjórn hlutast til um að fasteign verði skráð með þinglýsingu stofnskjals.
1)L. 83/2008, 9. gr.
18. gr. [Um þróun fasteignaskráningar og fasteignaskrár skal [Þjóðskrá Íslands] 1) hafa samráð við skráningarstjórnvöld og helstu hagsmunaaðila.] 2)
1)L. 77/2010, 5. gr. 2)L. 83/2008, 10. gr.
IV. kafli. Framkvæmd fasteignaskráningar.
19. gr. Viðkomandi sveitarstjórn er ábyrg fyrir að [Þjóðskrá Íslands] 1) berist upplýsingar um lönd og lóðir og breytingar á þeim, svo og um öll mannvirki, sem gerð eru í umdæmum þeirra hvers um sig, og um breytingar á þeim og eyðingu þeirra. [Í þeim tilvikum sem Mannvirkjastofnun getur út byggingarleyfi ber stofnunin ábyrgð á tilkynningum til Þjóðskrár Íslands samkvæmt þessari grein.] 2)
Sveitarstjórn skal að jafnaði fela byggingarfulltrúa viðkomandi sveitarfélags upplýsingagjöf um fyrrgreind atriði. Þar sem byggingarfulltrúar eru ekki starfandi skal sveitarstjórn fela upplýsingagjöfina öðrum aðila í hendur að fengnu samþykki [Þjóðskrár Íslands]. 1) Eigendum fasteigna er skylt að veita þær upplýsingar um fasteignir sem um er beðið.
[Þjóðskrá Íslands] 1) kveður á um form, efni og tímasetningu þessarar upplýsingagjafar. Byggingarfulltrúar eða aðrir, sem sveitarstjórn hefur falið upplýsingagjöf skv. 2. mgr., eru ábyrgir fyrir að upplýsingar séu efnislega réttar.
Sveitarstjórn getur lagt fyrir þá aðila, sem leggja teikningar og önnur gögn fyrir byggingarnefnd, að skila þeim einnig í því formi sem [Þjóðskrá Íslands] 1) ákveður.
[Þjóðskrá Íslands] 1) getur leyst sveitarstjórnir undan ábyrgð skv. 1. mgr. á upplýsingasöfnun um einstakar tegundir fasteigna og lagt hana á aðra aðila, enda er opinberum stofnunum, sem slíkum upplýsingum safna á sínu verksviði, skylt að leggja [Þjóðskrá Íslands] 1) til þær upplýsingar.
[Þjóðskrá Íslands] 1) sendir hverju sveitarfélagi árlega samkvæmt nánari ákvörðun í reglugerð skrá með nægum upplýsingum um fasteignir til að gengið verði úr skugga um að aðilar skv. 2. mgr. hafi fullnægt upplýsingaskyldu sinni.
[Þjóðskrá Íslands] 1) skal hafa eftirlit með því að sveitarfélög sinni upplýsingaskyldu sinni. Í því skyni skal stofnunin halda skrár er sýni hve margar fasteiginir eru metnar í einstökum sveitarfélögum á ári hverju.
[Þjóðskrá Íslands] 1) skal árlega senda skýrslu um matsstörf í einstökum sveitarfélögum til [ráðuneytisins] 3) og [velferðarráðuneytis]. 4)
1)L. 77/2010, 5. gr. 2)L. 160/2010, 65. gr. 3)L. 162/2010, 166. gr. 4)L. 162/2010, 23. gr.
20. gr. [Þjóðskrá Íslands] 1) ber að hafa frumkvæði að samræmingu á gagnasöfnun um atriði, sem snerta fasteignir, og koma í veg fyrir tvíverknað í því efni.
1)L. 77/2010, 5. gr.
21. gr. [[Þjóðskrá Íslands] 1) getur, hvenær sem hún] 2) telur þörf á, látið endurskoða upplýsingar sem fyrir liggja um einstakar fasteignir, einstakar tegundir fasteigna eða fasteignir á tilteknum svæðum.
Slík endurskoðun skal jafnan fara fram ef sýnt er að upplýsingar í [fasteignaskrá] 3) gefa ekki rétta lýsingu á fasteign eða fasteignum sem um ræðir.
Eigandi fasteignar eða annar aðili, sem telur sig eiga hagsmuna að gæta í lýsingu fasteignar eða mati, getur krafist endurskoðunar skv. 1. mgr. Séu þessir hagsmunir að mati stofnunarinnar svo miklir að réttlæti endurskoðun skal sú endurskoðun fara fram svo fljótt sem við verður komið.
Breyting á [fasteignaskrá], 3) hvernig sem til hennar er stofnað, skal tilkynnt skráðum eiganda fasteignar bréflega strax og slík breyting hefur verið gerð.
1)L. 77/2010, 5. gr. 2)L. 83/2008, 12. gr. 3)L. 83/2008, 21. gr.
22. gr. [Skráður eigandi fasteignar er sá sem hefur þinglýsta eignarheimild hverju sinni. Sé fasteign ekki skráð í þinglýsingarhluta fasteignaskrár er fyrrverandi eigandi ábyrgur fyrir tilkynningu til [Þjóðskrár Íslands] 1) um breytingar á eignaryfirráðum yfir skráðri eign sinni.] 2)
[Þjóðskrá Íslands] 1) kveður á um form og efni slíkra tilkynninga og er eigendum skylt að veita allar þær upplýsingar sem um er beðið.
[Þinglýsingarstjórum] 2) er við þinglýsingu afsala skylt að ganga úr skugga um að tilkynningarskyldu hafi verið fullnægt og hlutast til um gerð tilkynningar og sendingu ef þess gerist þörf. Fasteignasölum er einnig skylt í starfi sínu að stuðla að gerð slíkra tilkynninga og sendingu. [Þjóðskrá Íslands] 1) er heimill aðgangur að skattframtölum til að sannreyna upplýsingar um fasteignir eða afla þeirra.
[Þjóðskrá Íslands] 1) er heimilt að undirbúa og gefa út staðlaðar gerðir afsala, kaupsamninga og leigusamninga um fasteignir og fasteignaréttindi þar sem samrit viðkomandi skjals er sjálfkrafa fullnægjandi tilkynning til [stofnunarinnar]. 2)
1)L. 77/2010, 5. gr. 2)L. 83/2008, 13. gr.
23. gr. [Þjóðskrá Íslands] 1) ber að safna gögnum eftir föngum og vinna úr þeim yfirlitsupplýsingar um gangverð fasteigna við kaup og sölu og breytingar á því. Eftir því sem við verður komið skulu niðurstöður þessara rannsókna birtar almenningi jafnóðum.
1)L. 77/2010, 5. gr.
24. gr. [[Þjóðskrá Íslands] 1) er heimilt að vinna úr og láta í té upplýsingar úr [fasteignaskrá] 2) gegn gjaldi sem rennur til stofnunarinnar samkvæmt gjaldskrá sem [ráðherra] 3) staðfestir, [sbr. 2. mgr. 9. gr.] 4)] 5)
[Í gjaldskrá skal m.a. kveða á um:
a. gjald sveitarfélaga fyrir afnot af fasteignamati og kerfi til álagningar fasteignaskatta og fasteignagjalda; skal gjaldið nema tilteknu hlutfalli af heildarfasteignamati í sveitarfélagi 31. desember ár hvert,
b. gjald vátryggingafélaga fyrir afnot af brunabótamati og kerfi því viðkomandi; skal gjaldið nema tilteknu hlutfalli af brunabótamati allra húseigna sem eru tryggðar hjá vátryggingafélagi í lok hvers mánaðar,
c. gjald fyrir vélrænar fyrirspurnir úr þinglýsingabók,
d. gjald fyrir skráningu nýrrar fasteignar í fasteignaskrá.] 4)
1)L. 77/2010, 5. gr. 2)L. 83/2008, 21. gr. 3)L. 98/2009, 57. gr. 4)L. 83/2008, 14. gr. 5)L. 165/2007, 1. gr.
25. gr. Opinberir aðilar, ríkisstofnanir, ríkisfyrirtæki, sveitarfélög og allar stofnanir þeirra skulu í öllum viðskiptum og í hvers konar verðmætisviðmiðunum nota upplýsingar [fasteignaskrár] 1) sem grundvöll viðskipta sinna eftir því sem við getur átt.
1)L. 83/2008, 21. gr.
V. kafli. Fasteignamat og framkvæmd þess.
26. gr. Eftirtaldar eignir eru undanþegnar fasteignamati:
1. Vegir, götur og torg í eign ríkisins eða sveitarfélaga, sem ætluð eru almenningi til umferðar án endurgjalds, ásamt tilheyrandi landsvæðum og mannvirkjum í þágu samgangna, svo sem brúm, ljósastólpum, götuvitum, umferðarskiltum, vegvísum, gjaldmælum og biðskýlum.
2. Hvers konar svæði í eign ríkis eða sveitarfélaga, sem ætluð eru til fegrunar í þágu almennings og til umferðar eða dvalar án endurgjalds.
3. Rafveitur, þar á meðal línur til flutnings raforku ásamt burðarstólpum og spennistöðvum. Meta skal eftir venjulegum reglum hús, sem reist eru yfir aflstöðvar og spennistöðvar, og þær lóðir er þau standa á.
4. Vatnsveitur, þar á meðal brunnar, geymar og dælubúnaður. Skólpveitur, þar á meðal skólpleiðslur og hreinsibrunnar.
5. Uppfyllingar og dýpkanir til hafnarbóta ásamt bryggjum og hafnargörðum, ef höfn er eign hafnarsjóðs, samkvæmt hafnalögum nr. 23/1994, eða ríkis og sveitarfélaga. Land á hafnarsvæði, sem ekki er í beinum tengslum við hafnargerðina, er ekki undanþegið mati né heldur dráttarbrautir, þurrkvíar eða önnur slík mannvirki, þótt í eign framangreindra aðila sé.
6. Flugbrautir flugvalla í eign opinberra aðila ásamt brautarljósum og öðrum búnaði flugbrauta, svo sem aðflugs- og lendingartækjum, og enn fremur þau landsvæði umhverfis flugbrautir, sem eru ónýtanleg vegna flugumferðar.
7. Lönd, er í samræmi við gildandi reglur hafa verið ákveðin greftrunarstaðir manna, ásamt mannvirkjum, sem eru í beinum tengslum við það markmið.
8. Fjarskiptavirki í eign opinberra aðila, en meta skal þó eftir venjulegum reglum hús, sem reist eru yfir fjarskiptavirki, svo og lóðir eða lönd, sem fjarskiptavirki eða hús yfir þau standa á.
9. Vitar.
10. Ráðherra getur í reglugerð undanþegið ákveðnar fasteignir eða tegundir fasteigna fasteignamati.
27. gr. [Skráð matsverð fasteignar skal vera gangverð umreiknað til staðgreiðslu, miðað við heimila og mögulega nýtingu á hverjum tíma, sem ætla má að eignin hefði í kaupum og sölum í febrúarmánuði næst á undan matsgerð, enda taki hún gildi á tímabilinu 31. desember til loka febrúarmánaðar. Taki matsgerð gildi á tímabilinu 1. mars til 30. desember skal miða við febrúarmánuð þar næst á undan matsgerð, sbr. 32. gr. a.
Sé gangverð fasteignar ekki þekkt skal matsverð ákveðið eftir bestu fáanlegri vitneskju um gangverð sambærilegra fasteigna með hliðsjón af tekjum af þeim, kostnaði við gerð mannvirkja, aldri þeirra, legu eignar með tilliti til samgangna, nýtingarmöguleikum, hlunnindum, jarðvegsgerð, gróðurfari, náttúrufegurð og öðrum þeim atriðum sem kunna að hafa áhrif á gangverð eignarinnar.] 1)
Bújarðir skulu metnar miðað við notkun þeirra til búskapar á meðan þær eru nýttar þannig.
Ráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um mat fasteigna.
1)L. 83/2008, 15. gr.
28. gr. Við ákvörðun matsverðs skv. 27. gr. skal eftir föngum finna tölfræðilega fylgni gangverðs við ýmsar staðreyndir um seldar eignir, svo sem stærð, gerð, búnað, stað o.s.frv., og sennilegt gangverð ákvarðað með útreikningum á grundvelli þeirra vísbendinga.
Huglægu, órökstuddu mati skal ekki beitt nema engra annarra kosta sé völ um ákvörðun matsverðs.
Ákvæði skulu sett í reglugerð um aðferð við útreikning staðgreiðsluvirðis miðað við mismunandi greiðslukjör við kaup og sölu.
29. gr. [Þjóðskrá Íslands] 1) annast mat fasteigna samkvæmt lögum þessum.
[Þjóðskrá Íslands] 1) skal leitast við að tryggja samræmingu í matsstörfum og samræmingu upplýsinga sem máli skipta við framkvæmd mats. Þá er [Þjóðskrá Íslands] 1) heimil útvegun sérfræðilegrar aðstoðar við mat eigna eftir því sem þörf krefur.
[Þjóðskrá Íslands] 1) er heimilt að fengnu samþykki ráðherra að ráða trúnaðarmenn í einstökum kjördæmum, er annist mat og/eða skoðun fasteigna. Ef til kemur skal í reglugerð setja nánari ákvæði um ráðningu og starfssvið trúnaðarmanna.
1)L. 77/2010, 5. gr.
30. gr. [Þjóðskrá Íslands] 1) skal hlutast til um að allar nýjar eða breyttar eignir, sem upplýsingar berast um skv. 19. gr., skuli metnar frummati innan tveggja mánaða frá því að upplýsingar um þær bárust [Þjóðskrá Íslands] 1) nema sérstakar ástæður hamli.
[Þjóðskrá Íslands] 1) er heimilt að höfðu samráði við hlutaðeigandi stjórnvöld að meta ásláttarmati eignir sem eru þess eðlis að venjulegt mat er erfitt og/eða þjónar ekki opinberum hagsmunum.
[Nýtt matsverð skal þegar skrá í [fasteignaskrá] 2) og gildir það með þeim almennu breytingum sem á því geta orðið eða þar til því er hrundið með nýju mati.] 3)
1)L. 77/2010, 5. gr. 2)L. 83/2008, 21. gr. 3)L. 139/2004, 3. gr.
31. gr. Aðili, sem verulega hagsmuni getur átt í matsverði eignar og sættir sig ekki við skráð mat skv. 29. og 30. gr., getur krafist nýs úrskurðar [Þjóðskrár Íslands] 1) um matið. Krafa um endurmat skal vera skrifleg og studd rökum og nauðsynlegum gögnum.
[[Þjóðskrá Íslands] 1) getur að eigin frumkvæði endurmetið einstakar eignir í því skyni að tryggja samræmt mat hliðstæðra eigna.
[Ákvæði 13., 14. og 18. gr. stjórnsýslulaga gilda ekki við meðferð mála samkvæmt þessari grein og 30. gr. laga þessara. Eiganda skal tilkynnt um nýtt eða breytt fasteignamat. Sætti eigandi sig ekki við ákvörðun fasteignamats getur hann gert skriflega og rökstudda kröfu um endurupptöku málsins innan eins mánaðar frá tilkynningu ákvörðunar.] 2)] 3)
Nýtt matsverð skal þegar skráð í [fasteignaskrá] 4) og gildir með þeim almennu breytingum sem á því geta orðið, sbr. 32. gr., þar til því er hrundið með nýju mati eða yfirmati.
Ráðherra getur með reglugerð ákveðið að sá sem krefst endurmats beri kostnað af því mati ef krafan er bersýnilega tilefnislaus.
1)L. 77/2010, 5. gr. 2)L. 83/2008, 16. gr. 3)L. 61/2001, 1. gr. 4)L. 83/2008, 21. gr.
32. gr. [Þjóðskrá Íslands] 1) er heimilt, sé þess krafist af hálfu [ráðuneytisins] 2) eða sveitarfélags, að taka til endurmats einstakar tegundir eigna eða eignir í tilteknum hverfum, sveitarfélögum eða landshlutum, með gildistöku frá þeim tíma sem [Þjóðskrá Íslands] 1) ákveður, ef [hún telur] 3) matsverð ekki í samræmi við gangverð eins og til er ætlast samkvæmt lögum þessum. [Málsmeðferð samkvæmt þessari grein og endurmat einstakra eigna skal fara eftir 31. gr. laganna.] 4)
1)L. 77/2010, 5. gr. 2)L. 162/2010, 166. gr. 3)L. 83/2008, 20. gr. 4)L. 61/2001, 2. gr.
[32. gr. a. [Þjóðskrá Íslands] 1) skal endurmeta skráð matsverð allra fasteigna 31. maí ár hvert. Skal það verð talið fasteignamatsverð frá og með 31. desember þess árs til jafnlengdar næsta árs nema sérstök matsgerð komi til. Frestur eiganda til athugasemda skal vera mánuður frá tilkynningu ákvörðunar. Matsgerðir framkvæmdar á tímabilinu júní til desember skulu taka bæði til skráðs matsverðs og fyrirhugaðs matsverðs.
[Þjóðskrá Íslands] 1) ber eigi síðar en í júnímánuði ár hvert að gera hverju sveitarfélagi og hverjum eiganda grein fyrir niðurstöðum endurmats skv. 1. mgr. sem tekur gildi í viðkomandi sveitarfélagi næsta 31. desember.] 2)
1)L. 77/2010, 5. gr. 2)L. 83/2008, 17. gr.
33. gr. Yfirmat fasteigna annast yfirfasteignamatsnefnd fyrir landið allt.
Nefndina skipar [ráðherra] 1) þremur mönnum og þremur til vara úr hópi tíu manna, sem Hæstiréttur tilnefnir. Skipunartími nefndarinnar skal vera frá 15. maí til jafnlengdar að þremur árum liðnum.
Kostnaður við yfirmat greiðist úr ríkissjóði. Yfirfasteignamatsnefnd getur þó gert eiganda fasteignar að greiða kostnað vegna tilefnislausrar kæru til nefndarinnar.
1)L. 98/2009, 57. gr.
34. gr. Hagsmunaaðilar … 1) geta kært niðurstöðu endurmats … 1) til yfirfasteignamatsnefndar. Kæra skal vera skrifleg og studd rökum og nauðsynlegum gögnum. Um meðferð máls fyrir nefndinni, framlagningu gagna eða málflutning fer eftir ákvörðun nefndarinnar.
Nefndin skal úrskurða slíkt mál innan þriggja mánaða frá kæru nema sérstök heimild fyrir frestun sé veitt af hálfu ráðuneytisins. Niðurstaða kærumáls skal þegar tilkynnt aðila þess og nýtt matsverð þegar skráð í [fasteignaskrá]. 2)
Úrskurður yfirfasteignamatsnefndar er fullnaðarúrskurður.
1)L. 83/2008, 18. gr. 2)L. 83/2008, 21. gr.
35. gr. … 1)
1)L. 83/2008, 19. gr.
36. gr. Ráðherra getur með reglugerð 1) sett nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara. Áður en slík reglugerð er sett skal um hana leitað umsagnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
1)Rg. 406/1978, sbr. 95/1986 og 458/1998 (um fasteignaskráningu og fasteignamat).
37. gr. [Brot gegn ákvæðum laga þessara varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.] 1)
1)L. 88/2008, 234. gr.
[Ákvæði til bráðabirgða.
I. Til þess að standa straum af kostnaði Fasteignamats ríkisins við að halda og þróa Landskrá fasteigna skulu húseigendur greiða til þess sérstakt umsýslugjald á árunum 2005 og 2006. Skal gjald þetta nema 0,1‰ (prómilli) af brunabótamati hverrar húseignar. Skal vátryggingafélag innheimta gjaldið samhliða innheimtu brunatryggingariðgjalda og skila umsýslugjaldi til Fasteignamats ríkisins eigi síðar en 45 dögum eftir gjalddaga.] 1)
1)L. 139/2004, 4. gr.
[II. Til þess að standa straum af kostnaði Fasteignamats ríkisins við að halda og þróa Landskrá fasteigna skulu húseigendur greiða til þess sérstakt umsýslugjald á árinu 2007. Skal gjald þetta nema 0,1‰ (prómilli) af brunabótamati hverrar húseignar. Skal vátryggingafélag innheimta gjaldið samhliða innheimtu brunatryggingariðgjalda og skila því til Fasteignamats ríkisins eigi síðar en 45 dögum eftir gjalddaga.] 1)
1)L. 178/2006, 1. gr.
[III. Eftirgreindir aðilar skulu á árinu 2008 greiða Fasteignamati ríkisins gjald fyrir afnot af mati stofnunarinnar:
a. Sveitarfélög skulu greiða fasteignamatsgjald fyrir afnot af fasteignamati og kerfi til álagningar fasteignaskatta og fasteignagjalda. Skal gjald þetta nema [0,006%] 1) af heildarfasteignamati í sveitarfélaginu 31. desember 2008.
b. Húseigendur skulu greiða brunabótamatsgjald vegna notkunar brunabótamats til vátrygginga og annarra trygginga í þágu húseigenda. Skal gjald þetta nema 0,0037% af brunabótamati hverrar húseignar. Skal vátryggingafélag innheimta gjaldið samhliða innheimtu brunatryggingariðgjalda og skila því til Fasteignamats ríkisins eigi síðar en 45 dögum eftir gjalddaga.] 2)
1)L. 83/2008, 22. gr. 2)L. 165/2007, 2. gr.