Ársskýrslur ráðherra 2017
(1811238)
Fjárlaganefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
23.01.2019 | 37. fundur fjárlaganefndar | Ársskýrslur ráðherra 2017 Til fundarins komu Guðrún Ögmundsdóttir, Álfrún Tryggvardóttir, Ástríður Jónasdóttir og Þröstur Freyr Gylfason frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Þau kynntu og fóru yfir ársskýrslu fjármála- og efnahagsráðherra og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni hennar. Einnig var rætt um ýmsa möguleika á að breyta formi og efni slíkra skýrslna. |
21.01.2019 | 36. fundur fjárlaganefndar | Ársskýrslur ráðherra 2017 Til fundarins komu Ragnhildur Hjaltadóttir, Ingilín Kristmannsdóttir og Arnheiður Ingjaldsdóttir frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Þær kynntu og fóru yfir ársskýrslu ráðherra og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni hennar. |
17.01.2019 | 35. fundur fjárlaganefndar | Ársskýrslur ráðherra 2017 Til fundarins komu Inga Birna Einarsdóttir Sigríður Jónsdóttir og Bjarnheiður Gautadóttir frá félagsmálaráðuneytinu. Kl. 14:05. Ólafur Darri Andrason, Dagný Brynjólfsdóttir, Sigríður Jónsdóttir og Ásthildur Knútsdóttir frá heilbrigðisráðuneytinu. Gestirnir fóru yfir ársskýrslu ráðherra vegna rekstrarársins 2017 og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni þeirra. |
16.01.2019 | 34. fundur fjárlaganefndar | Ársskýrslur ráðherra 2017 Til fundarins komu Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, Ásta Magnúsdóttir, Auður Björg Árnadóttir og Þórunn Jóna Hauksdóttir frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Kl. 10:41. Sigríður Á. Anderssen dómsmálaráðherra, Pétur U. Fenger og Halla Björg Þórhallsdóttir frá dómsmálaráðuneytinu. Gestirnir kynntu og fóru yfir ársskýrslu ráðherra og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni þeirra. |
15.01.2019 | 33. fundur fjárlaganefndar | Ársskýrslur ráðherra 2017 Til fundarins komu Sturla Sigurjónsson, Gísli Magnússon og Ingunn S. Þórarinsdóttir frá utanríkisráðuneytinu. Kl. 14:00. Ragnhildur Arnljótsdóttir, Ágúst Geir Ágústsson, Óðinn Helgi Jónsson, Heiður M. Björnsdóttir og Sif Guðjónsdóttir frá forsætisráðuneytinu. Gestirnir kynntu ársskýrslur ráðherra fyrir árið 2017 og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni þeirra. |
06.12.2018 | 28. fundur fjárlaganefndar | Ársskýrslur ráðherra 2017 Til fundarins kom Guðrún Gísladóttir frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Hún kynnti árskýrslur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra og svaraði spurningum um efni þeirra. |
29.11.2018 | 24. fundur fjárlaganefndar | Ársskýrslur ráðherra 2017 Til fundarins komu Sigríður Auður Arnardóttir, Reynir Jónasson, Björn H. Barkarson og Stefán Guðmundsson frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Þau kynntu ársskýrslu umhverfis- og auðlindaráðherra og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni hennar. |