Ferill 231. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 255 — 231. mál.
Skýrsla
forsætisráðherra um framkvæmd ályktana Alþingis frá árinu 2025.
Skýrsla þessi er lögð fram í samræmi við fyrirmæli 8. mgr. 45. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991. Markmið hennar er að veita Alþingi yfirsýn yfir eftirfylgni framkvæmdarvaldsins með ályktunum þingsins. Til umfjöllunar er framkvæmd þeirra ályktana Alþingis frá árinu 2025 sem kalla á viðbrögð ráðherra eða ríkisstjórnar. Þá er hér einnig að finna yfirlit yfir framkvæmd mála frá árunum 2022–2024, bæði þingsályktana og annarra málefna sem þingið hefur vísað til ríkisstjórnar eða einstakra ráðherra. Undanskilin eru þau málefni þar sem lög kveða á um að haga skuli skýrslugjöf til þingsins á annan hátt. Forsætisráðuneytið aflaði upplýsinga um framkvæmd og stöðu mála frá öllum ráðuneytum í september og október 2026.
Í skýrslu þessari er þannig fjallað um samtals 79 þingmál, sem sum hver varða fleiri en eitt ráðuneyti. Fjöldi þingsályktana á hverju ári sem kalla á viðbrögð ráðherra eða ríkisstjórnar, auk málefna sem þingið vísar þangað í nefndaráliti, sveiflast talsvert eftir árum. Á árinu 2025 eru þetta samtals 14 mál, allt þingsályktanir. Árið 2024 voru málin 15, 14 ályktanir og 1 nefndarálit. Á árinu 2023 voru málin 19 talsins, allt þingsályktanir. Að lokum voru á árinu 2022 31 þingmál, 28 þingsályktanir en 3 nefndarálit.
| Ár |
Framkvæmd lokið |
Framkvæmd hafin |
Framkvæmd ekki hafin |
Samtals |
| 2025 |
8 |
6 |
0 |
14 |
| 2024 |
6 |
9 |
0 |
15 |
| 2023 |
4 |
15 |
0 |
19 |
| 2022 |
25 |
6 |
0 |
31 |
| Samtals |
43 |
36 |
0 |
79 |
Jafnframt er nokkur munur á fjölda þingmála eftir ráðuneytum. Utanríkisráðuneytið hefur á sinni könnu langflest málin, 39 talsins, eða um helming þeirra. Það skýrist af því að stór hluti málanna eru staðfestingar á ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar sem gerðar eru í formi þingsályktana. Slíkar ályktanir eru reglubundinn þáttur í þinglegri meðferð EES- mála og fela í sér afléttingu á stjórnskipulegum fyrirvara við ákvörðun sem kallar á lagabreytingar á Íslandi. Þær hafa því nokkra sérstöðu miðað við aðrar ályktanir.
Öll ráðuneytin koma í einhverjum mæli að framkvæmd þingsályktana þótt ekki sé víst að þau séu með framkvæmd á hendi á hverju ári. Hér á eftir verður gerð grein fyrir tölfræði um þessi atriði, sem endurspeglar flokkun bæði eftir árum og eftir ráðuneytum, sbr. töflur 2–5.
Þingmálin sem hér eru til umfjöllunar eru flokkuð eftir stöðu hvers verkefnis. Greint er á milli verkefna þar sem framkvæmd er lokið, verkefna þar sem framkvæmd er hafin og svo verkefna þar sem framkvæmd er ekki hafin. Þetta er skýrt í tilfellum þeirra verkefna sem annað hvort er búið að ljúka framkvæmd við eða framkvæmd ekki hafin. Í öðrum tilfellum, þar sem framkvæmd er hafin en ekki lokið, geta verkefnin verið mismunandi langt komin. Aftar í skýrslunni er gerð nánari grein fyrir þessu.
| Ráðuneyti |
Framkvæmd lokið |
Framkvæmd hafin |
Framkvæmd ekki hafin |
Samtals |
| FOR |
0 |
0 |
0 |
0 |
| ATRN |
0 |
0 |
0 |
0 |
| DMR |
0 |
0 |
0 |
0 |
| FRN |
0 |
0 |
0 |
0 |
| FJR |
2 |
0 |
0 |
2 |
| HRN |
0 |
2 |
0 |
2 |
| IRN |
0 |
1 |
0 |
1 |
| MNH |
0 |
0 |
0 |
0 |
| MRN |
0 |
0 |
0 |
0 |
| URN |
0 |
1 |
0 |
1 |
| UTN |
6 |
2 |
0 |
8 |
| Samtals |
8 |
6 |
0 |
14 |
| Ráðuneyti |
Framkvæmd lokið |
Framkvæmd hafin |
Framkvæmd ekki hafin |
Samtals |
| FOR |
0 |
0 |
0 |
0 |
| ATRN |
0 |
1 |
0 |
1 |
| DMR |
0 |
0 |
0 |
0 |
| FRN |
0 |
3 |
0 |
3 |
| FJR |
2 |
0 |
0 |
2 |
| HRN |
0 |
0 |
0 |
0 |
| IRN |
0 |
0 |
0 |
0 |
| MNH |
0 |
2 |
0 |
2 |
| MRN |
0 |
0 |
0 |
0 |
| URN |
0 |
0 |
0 |
0 |
| UTN |
4 |
3 |
0 |
7 |
| Samtals |
6 |
9 |
0 |
15 |
| Ráðuneyti |
Framkvæmd lokið |
Framkvæmd hafin |
Framkvæmd ekki hafin |
Samtals |
| FOR |
0 |
0 |
0 |
0 |
| ATRN |
0 |
2 |
0 |
2 |
| DMR |
0 |
0 |
0 |
0 |
| FRN |
1 |
2 |
0 |
3 |
| FJR |
1 |
0 |
0 |
1 |
| HRN |
0 |
1 |
0 |
1 |
| IRN |
0 |
1 |
0 |
1 |
| MNH |
0 |
4 |
0 |
4 |
| MRN |
0 |
1 |
0 |
1 |
| URN |
0 |
0 |
0 |
0 |
| UTN |
2 |
4 |
0 |
6 |
| Samtals |
4 |
15 |
0 |
19 |
| Ráðuneyti |
Framkvæmd lokið |
Framkvæmd hafin |
Framkvæmd ekki hafin |
Samtals |
| FOR |
1 |
2 |
0 |
3 |
| ATRN |
0 |
0 |
0 |
0 |
| DMR |
1 |
0 |
0 |
1 |
| FRN |
1 |
0 |
0 |
1 |
| FJR |
3 |
0 |
0 |
3 |
| HRN |
1 |
1 |
0 |
2 |
| IRN |
0 |
1 |
0 |
1 |
| MNH |
0 |
1 |
0 |
1 |
| MRN |
0 |
0 |
0 |
0 |
| URN |
1 |
0 |
0 |
1 |
| UTN |
17 |
1 |
0 |
18 |
| Samtals |
25 |
6 |
0 |
31 |
Ef litið er til utanríkisráðuneytisins sérstaklega á árunum fjórum sem eru til skoðunar sést að þingsályktanir sem eru til staðfestingar á ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar eru 20 af 39 eða um helmingur þeirra ályktana sem heyra undir utanríkisráðuneytið. Hlutfall þessara 20 EES-ályktana af heildarfjölda allra 79 þingsályktana á þessu tímabili er því fjórðungur eða 25% allra mála.
| Ár |
Staðfestingar vegna EES |
Aðrar þingsályktanir UTN |
Samtals |
| 2025 |
3 |
5 |
8 |
| 2024 |
2 |
5 |
7 |
| 2023 |
3 |
3 |
6 |
| 2022 |
12 |
6 |
18 |
| Samtals |
20 |
19 |
39 |
Að síðustu er rétt að gera grein fyrir stöðu, fjölda og framgangi mála í öllum ráðuneytum á umræddu árabili en framgangur mála hefur almennt verið góður. Af þeim 79 málum sem hér eru til umfjöllunar er framkvæmd þegar lokið í 43 málum, eða í um 54% tilvika, og í 36 málum er framkvæmd hafin, sem gerir 46%. Framkvæmd er því ýmist hafin eða henni lokið í öllum málum tímabilsins. Hér á eftir er gerð nánari grein fyrir framgangi einstakra mála eftir árum og ráðuneytum.
Framkvæmd ályktana Alþingis frá árinu 2025.
Fjármála- og efnahagsráðuneyti.
Þingsályktun 11/156 um fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030.
14. júlí 2025, þskj. 871 á 156. lögþ.
Þingsályktun um fjármálaáætlun er lögð fram ár hvert í samræmi við 5. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015. Áætlunin er lögð til grundvallar við gerð frumvarps til fjárlaga.
Þingsályktun 10/156 um fjármálastefnu fyrir árin 2026–2030.
5. júlí 2025, þskj. 835 á 156. lögþ.
Þingsályktun um fjármálastefnu er lögð fram í samræmi við 4. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015, sem kveður á um að eftir að ríkisstjórn er mynduð skuli hún móta fjármálastefnu sem ráðherra leggur fram á Alþingi í formi tillögu til þingsályktunar. Fjármálaáætlun og fjárlagafrumvarp byggja í meginatriðum á fjármálastefnu.
Heilbrigðisráðuneyti.
Þingsályktun 8/156 um
aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis fyrir árin 2025–2029.
19. maí 2025, þskj. 522 á 156. lögþ.
Þingsályktunartillaga heilbrigðisráðherra um aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis fyrir árin 2025–2029 var samþykkt á Alþingi þann 19. maí 2025. Með ályktuninni ályktaði Alþingi að hrinda í framkvæmd sex aðgerðum ásamt því að ná tilgreindum 24 markmiðum og 75 verkefnum.
Þingsályktunartillagan um aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis byggir á skýrslu þverfaglegs starfshóps heilbrigðisráðuneytis, matvælaráðuneytis og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis sem skipaður var í desember 2022 og birti tillögur að fimm ára aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis á Íslandi í janúar 2024. Starfshópurinn vann einnig drög að þingsályktunartillögu sem birt var til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda og í framhaldi af því lögð fyrir Alþingi.
Áætlunin nær til áranna 2025–2029 og inniheldur sex aðgerðir sem fela í sér 24 markmið og 75 verkefni sem nauðsynlegt er að hrinda í framkvæmd. Verkefnunum er forgangsraðað og kostnaður af framkvæmd þeirra metinn. Starfshópurinn gefur út árlegar framvinduskýrslur sem innihalda staðlaðar upplýsingar um stöðu verkefna aðgerðaáætlunar og mat á árangri einstakra aðgerða og áætlunar í heild.
Þingsályktun 9/156 um aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum fyrir árin 2025–2029.
2. júní 2025, þskj. 611 á 156. lögþ.
Með ályktuninni ályktaði Alþingi að hrinda í framkvæmd 15 aðgerðum í krabbameinsmálum, í samræmi við krabbameinsáætlun til ársins 2030.
Þingsályktunartillagan um aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum byggir á skýrslu starfshóps heilbrigðisráðuneytis um krabbameinsmál sem skipaður var í janúar 2024 og skilaði tillögu að aðgerðaáætlun til heilbrigðisráðherra í júní 2024. Í kjölfarið voru unnin drög að þingsályktunartillögu í heilbrigðisráðuneytinu sem birt voru til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda og í framhaldi af því lögð fyrir Alþingi.
Aðgerðaáætlunin nær yfir fimm ára tímabil og inniheldur 15 aðgerðir sem falla undir sex markmið. Verkefnunum hefur verið forgangsraðað og kostnaður af framkvæmd þeirra áætlaður. Einni aðgerð er lokið, fimm eru í undirbúningi, tvær eru í gangi og aðrar ekki hafnar. Í desember 2025 skipaði heilbrigðisráðherra sérstakt Krabbameinsráð, samstarfsvettvang um veitingu krabbameinsþjónustu á Íslandi sem er ætlað að tryggja framgang áætlunarinnar.
Innviðaráðuneyti.
Þingsályktun 1/157 um borgarstefnu fyrir árin 2025–2040.
22. október 2025, þskj. 244 á 157. lögþ.
Þingsályktun um borgarstefnu byggir á aðgerð C.4 Borgarstefna í stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022–2036. Í stefnunni felst annars vegar að styrkja höfuðborgarhlutverk Reykjavíkur, höfuðborgarsvæðið og borgarsvæðið í heild í alþjóðlegri samkeppni borga og hins vegar að festa Akureyri í sessi sem svæðisborg og skilgreina og efla hlutverk hennar og borgarsvæði. Markmið borgarstefnu er að styrkja stöðu Íslands í harðnandi alþjóðlegri samkeppni um fólk og fyrirtæki og stuðla að samspili þéttbýlis og dreifbýlis til uppbyggingar sjálfbærra byggðarlaga. Stefnan markar tímamót í byggðastefnu stjórnvalda en þetta er í fyrsta skipti sem samþykkt er heildstæð stefna um borgir og borgarsvæði á Íslandi og þróun þeirra.
Með samþykkt borgarstefnu var innviðaráðherra falið að koma á formlegum samstarfsvettvangi ríkisins og borgarsvæðanna sem stuðli að því að markmiðum borgarstefnu verði náð. Á þeim vettvangi verði inntak borgarstefnu þróað þannig að þær áherslur sem þar eru settar fram leiði til beinna skilgreindra aðgerða og/eða samþættingar við aðgerðir í fyrirliggjandi áætlunum hins opinbera, bæði ríkis og sveitarfélaga, og styðji þannig við að markmiðum verði náð.
Samkvæmt ákvörðun ráðherra mynda borgarstjóri í Reykjavík, bæjarstjóri á Akureyri og innviðaráðherra hinn formlega samráðsvettvang sem mun funda a.m.k. árlega. Undir samráðsvettvangi um borgarstefnu hefur innviðaráðherra skipað framkvæmdahóp sem í eiga sæti fulltrúar fjármála- og efnahagsráðuneytisins, forsætisráðuneytisins, Akureyrarbæjar, Reykjavíkurborgar, Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, auk fulltrúa innviðaráðherra, sem er jafnframt verkefnisstjóri og formaður hópsins. Framkvæmdahópnum hefur verið falið að móta fáar en vel skilgreindar aðgerðir í samræmi við þá framtíðarsýn sem birtist í borgarstefnu og forgangsröðun hins formlega samráðsvettvangs um stefnuna. Framkvæmdahópur borgarstefnu hóf störf í janúar og hefur forgangsraðað mótun aðgerða sem gætu verið settar fram í nýrri byggðaáætlun. Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2027–2041 verður lögð fram á Alþingi haustið 2026 og þar er finna eftirfarandi aðgerðir skv. tillögu framkvæmdahóps um borgarstefnu:
. Almenningssamgöngur til og frá borgarsvæðum. Markmið aðgerðarinnar er að auka aðgengi að borgarsvæðunum og miðlægri þjónustu með áherslu á samþættingu mismunandi samgöngumáta. Vegagerðin verði framkvæmdaraðili í samstarfi við landshlutasamtök á svæðinu o.fl.
. Þróunaráætlanir fyrir borgarsvæði. Markmiðið er að þróa borgarsvæðin þannig að þau virki sem heildstæð svæði þegar kemur að atvinnusókn, búsetu og samgöngum. Unnar verði þróunaráætlanir fyrir borgarsvæðin þar sem ólíkar sviðsmyndir varðandi þróun þeirra verða rýndar og helstu áskoranir skilgreindar, sbr. nefndarálit meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis við tillögu til þingsályktunar um borgarstefnu. Framkvæmdaraðilar verði Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og á Norðurlandi eystra hins vegar í samstarfi við sveitarfélög og landshlutasamtök á hvoru svæði.
. Alþjóðleg samkeppnishæfni. Borgarsvæðin verði þátttakendur í alþjóðlegu samanburðarmati á samkeppnishæfni svæða. Mismunandi samkeppnislistar verði greindir og mat lagt á hvern þeirra yrði gagnlegast að komast á til að ná þeim árangri sem stefnt er að. Tilgangurinn er að koma borgarsvæðunum á kortið og laða að eftirsóttan mannauð, fyrirtæki og fjárfestingar, ásamt því að draga fram hvað þarf til að efla samkeppnishæfni borgarsvæðanna og landsins alls. Framkvæmdaraðili verði Íslandsstofa í samstarfi við sveitarfélög á svæðinu og landshlutasamtök þeirra.
Aðgerðirnar hafa verið mótaðar og skilgreindar í samstarfi við framangreinda aðila og er þegar hafinn undirbúningur fyrir framkvæmd þeirra.
Framkvæmdahópurinn hefur einnig átt fundi með forsætisráðuneytinu vegna atvinnustefnu og tengingu borgarstefnu við hana. Borgarsvæðin gegna lykilhlutverki í uppbyggingu mannauðs, þekkingar og færni fyrir atvinnulífið og í að efla vísindi og nýsköpun sem drifkrafta verðmætasköpunar, sem eru forgangsverkefni atvinnustefnu og ríma vel við lykilviðfangsefni borgarstefnu.
Loks má nefna að í apríl sl. var undirritaður nýr menningarsamningur milli Akureyrarbæjar og ríkisins og var samningurinn tengdur beint við þá stefnu að Akureyri verði formlega svæðisborg á Íslandi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti.
Þingsályktun 3/157 um framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár fyrir árin 2025–2029.
10. nóvember 2025, þskj. 306 á 157. lögþ.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra leggur fram þingsályktunartillögu um framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár til fimm ára. Þingsályktunartillagan er lögð fram í kjölfar tillagna Náttúrufræðistofnunar um minjar sem ástæða þykir til að setja á framkvæmdaáætlun. Náttúrufræðistofnun ber samkvæmt lögum að leggja slíkar tillögur fram svo unnt sé að byggja upp skipulegt net verndarsvæða til að stuðla að því að verndarmarkmið 2. og 3. gr. laga um náttúruvernd náist. Verndarmarkmiðin ná annars vegar til vistgerða, vistkerfa og tegunda og hins vegar til jarðminja, vatnasvæða, landslags og víðerna.
Svæðin á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár fyrir árin 2025–2029 eru Goðdalur, Hengladalir, Húsey og Eyjasel, Lauffellsmýrar, Oddauppsprettur og Lambeyraruppsprettur og Reykjanes-Þorlákshver. Svæðin hafa öll hátt verndargildi. Þar er til dæmis að finna fágæta jarðhitalæki, víðáttumiklar mýrar sem gegna hlutverki í baráttunni við loftslagsbreytingar, staðbundnar fisktegundir, og einnig leita fuglategundir á válista þar athvarfs. Unnið er að friðlýsingu þessara svæða í samræmi við þingsályktun.
Utanríkisráðuneyti.
Þingsályktun 2/156 um fullgildingu bókunar um breytingu á fríverslunarsamningi milli
EFTA-ríkjanna og Chile.
17. mars 2025, þskj. 192 á 156. lögþ.
Ísland tilkynnti vörsluaðila fríverslunarsamnings EFTA-ríkjanna og Chile þann 25. júní 2025 um lok innlends fullgildingarferlis bókunar um breytingu á fríverslunarsamningi ríkjanna. Beðið er eftir að Chile fullgildi breytinguna fyrir sitt leyti en í kjölfar þess mun uppfærður fríverslunarsamningur taka gildi milli Íslands og Chile.
Þingsályktun 3/156 um fullgildingu samnings um viðskipti og efnahagslega samvinnu milli EFTA-ríkjanna og Lýðveldisins Indlands.
17. mars 2025, þskj. 193 á 156. lögþ.
Ísland tilkynnti vörsluaðila fríverslunarsamnings EFTA-ríkjanna og Indlands þann 2. júní 2025 um lok innlends fullgildingarferlis samningsins. Samningurinn tók gildi milli Íslands og Indlands þann 1. október 2025.
Þingsályktun 4/156 um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 167/2024 um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og bókun 37 (sem inniheldur skrána sem kveðið er á um í 101. gr.) við EES-samninginn og nr. 181/2024 um breytingu á bókun 31 um samvinnu á sérstökum sviðum utan marka fjórþætta frelsisins og bókun 37 sem inniheldur skrána sem kveðið er á um í 101. gr. við EES-samninginn.
24. mars 2025, þskj. 249 á 156. lögþ.
Ísland tilkynnti um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða, sbr. 103. gr. EES-samningsins, vegna ákvörðunar nr. 167/2024 hinn 4. nóvember 2025 og öðlaðist ákvörðunin gildi 1. ágúst 2026. Jafnframt tilkynnti Ísland um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða vegna ákvörðunar nr. 181/2024 hinn 1. júlí 2026 og öðlaðist ákvörðunin gildi 2. júlí 2026.
Þingsályktun 5/156 um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 317/2023 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun), nr. 145/2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og nr. 170/2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og XII. viðauka (Frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn.
14. maí 2025, þskj. 495 á 156. lögþ.
Ísland og Noregur hafa ekki enn tilkynnt um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða vegna ákvörðunar nr. 317/2023 og hefur ákvörðunin því ekki öðlast gildi. Ísland tilkynnti um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða, sbr. 103. gr. EES-samningsins, vegna ákvörðunar nr. 145/2024 hinn 12. júní 2025 og öðlaðist ákvörðunin gildi 1. ágúst 2025. Ísland tilkynnti um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða vegna ákvörðunar nr. 170/2024 hinn 12. júní 2025 og öðlaðist ákvörðunin gildi 1. ágúst 2025.
Þingsályktun 6/156 um framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2024 (með menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti).
14. maí 2025, þskj. 496 á 156. lögþ.
Alþingi skoraði með ályktuninni á ríkisstjórnina að vinna að framkvæmd tveggja ályktana Vestnorræna ráðsins sem samþykktar voru á ársfundi ráðsins 27.–28. ágúst 2024. Lúta þær annars vegar að því að styrkja samstarf Færeyja, Grænlands og Íslands hvað varðar málstefnu og máltækni (nr. 1/2024) og hins vegar að samstarfi vestnorrænu landanna um notkun gervigreindar og varðveislu og eflingu vestnorrænna tungumála (nr. 2/2024).
Hvað fyrri ályktunina varðar var staða smærri tungumála á norræna málsvæðinu kortlögð í formennskutíð Íslands í Norrænu ráðherranefndinni árið 2023. Skýrslan var gefin út í febrúar 2024 og ber heitið ,,Language Technology for Less-Resourced Languages in the Nordics.“ Málinu hefur verið fylgt eftir síðan. Óformlegum vettvangi aðila var komið á fót af hópnum sem skrifaði skýrsluna. Samanstendur hann einkum af fulltrúum úr háskólum og stofnunum sem vinna að þessum málum. Í þessu sambandi má einnig benda á verkefnið Borealium sem snýst um máltækni fyrir örtungumál Norðurlandanna. Þau eru mun fleiri en íslenska, grænlenska (sem eru fleiri tungumál) og færeyska. Vefgátt fyrir máltækniverkfæri norrænu örtungumálanna má finna á slóðinni borealium.org/is/.
Hvað seinni ályktunina varðar, undirritaði menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra í febrúar 2025 viljayfirlýsingu við menningarstofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, um að alþjóðlegum samstarfsvettvangi verði komið á fót sem muni stuðla að fjölbreytni á sviði menningar og tungumála í gervigreind. Margt í því getur komið smærri tungumálum á vestnorræna svæðinu til góða. Þá er komið inn á þetta atriði í aðgerðaáætlun stjórnvalda um gervigreind 2025–2027.
Þingsályktun 7/156 um fullgildingu fríverslunarsamnings milli
EFTA-ríkjanna og Konungsríkisins Taílands.
15. maí 2025, þskj. 500 á 156. lögþ.
Ísland tilkynnti vörsluaðila fríverslunarsamnings EFTA-ríkjanna og Taílands þann 3. júlí 2025 um lok innlends fullgildingarferlis samningsins. Beðið er eftir að Taíland fullgildi samninginn fyrir sitt leyti en í kjölfar þess mun samningurinn taka gildi milli Íslands og Taílands.
Þingsályktun 2/157 um fullgildingu uppfærðs fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Úkraínu, samnings um efnahagslega samvinnu milli EFTA-ríkjanna og Malasíu og fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Lýðveldisins Kósovós.
3. nóvember 2025, þskj. 268 á 157. lögþ.
Ísland tilkynnti vörsluaðila fríverslunarsamnings EFTA-ríkjanna og Úkraínu þann 27. janúar 2026 um lok innlends fullgildingarferlis samningsins. Ísland tilkynnti vörsluaðila samnings um efnahagslega samvinnu milli EFTA-ríkjanna og Malasíu þann 27. janúar 2026 um lok innlends fullgildingarferlis samningsins. Ísland tilkynnti vörsluaðila fríverslunarsamnings EFTA-ríkjanna og Kósovó um lok innlends fullgildingarferlis samningsins þann 27. janúar 2026. Beðið er eftir því að öll þessi ríki fullgildi samningana fyrir sitt leyti en í kjölfar þess munu þeir taka gildi milli viðkomandi ríkis og Íslands.
Þingsályktun 4/157 um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 71/2024, nr. 70/2025 og nr. 118/2025 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.
24. nóvember 2025, þskj. 402 á 157. lögþ.
Ísland og Noregur hafa ekki enn tilkynnt um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða vegna ákvörðunar nr. 71/2024 og hefur ákvörðunin því ekki öðlast gildi. Ísland hefur ekki enn tilkynnt um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða vegna ákvörðunar nr. 70/2025 og hefur ákvörðunin því ekki öðlast gildi. Ísland tilkynnti um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða, sbr. 103. gr. EES-samningsins, vegna ákvörðunar nr. 118/2025 hinn 9. desember 2025 og öðlaðist ákvörðunin gildi 1. maí 2026.
Framkvæmd ályktana Alþingis frá árinu 2024.
Atvinnuvegaráðuneyti.
Þingsályktun 18/154 um ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til ársins 2030.
21. júní 2024, þskj. 1995 á 154. lögþ.
Með stjórnartillögunni var ályktað að fela ríkisstjórninni að vinna að framkvæmd ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til ársins 2030. Ferðaþjónusta er ein af meginstoðum íslensks efnahagslífs. Fjöldi erlendra ferðamanna hefur að undanförnu verið fremur stöðugur og spár gera ráð fyrir hóflegum vexti á næstu árum. Ferðaþjónustan stendur áfram frammi fyrir áskorunum en felur jafnframt í sér tækifæri til að stuðla að aukinni hagsæld og jákvæðri byggðaþróun.
Markmið tillögunnar er að íslensk ferðaþjónusta verði leiðandi í sjálfbærri þróun á grunni jafnvægis á milli efnahags-, umhverfis- og samfélagslegra þátta. Rekin verði arðsöm og samkeppnishæf ferðaþjónusta sem starfi í sátt við bæði land og þjóð. Ferðaþjónustan stuðli að bættum lífskjörum og hagsæld á Íslandi og verði ein af grundvallarstoðum íslensks efnahagslífs. Meginmarkmið ferðamálastefnu er að tryggja framtíðarsýn ferðaþjónustu til lengri tíma. Stutt verði við sjálfbærni í ferðaþjónustu á öllum sviðum. Íslensk ferðaþjónusta verði þekkt fyrir gæði og einstaka upplifun.
Með ferðamálastefnunni fylgir aðgerðaáætlun með 43 aðgerðum. Af þeim er átta lokið, 19 í vinnslu og 16 ekki farnar af stað. Stefnan var unnin í menningar- og viðskiptaráðuneytinu en málefni ferðaþjónustu færðust yfir til atvinnuvegaráðuneytis í mars 2025, þar sem nú er unnið að endurskoðun aðgerðaáætlunar og forgangsröðun verkefna.
Félags- og húsnæðismálaráðuneyti.
Þingsályktun 9/154 um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin
2024–2027.
20. mars 2024, þskj. 1297 á 154. lögþ.
Þingsályktunartillaga um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024–2027 var samþykkt á 154. löggjafarþingi en skv. lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018, ber að leggja fram framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks á fjögurra ára fresti.
Sumarið 2022 samþykkti ríkisstjórn Íslands að hefja vinnu við gerð landsáætlunar um innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og tók framkvæmdaáætlunin mið af þeirri ákvörðun. Framkvæmdaáætlunin byggist á þeirri framtíðarsýn og þeim meginreglum sem fram koma í samningum og er henni ætlað að fela í sér skýra framtíðarsýn, kortlagningu, greiningu og mat á kostum í þjónustu og þróun réttinda fatlaðs fólks til að stuðla að farsælli innleiðingu samningsins. Landsáætlun felur í sér safn 60 aðgerða sem skipt er í eftirfarandi flokka: A. Vitundarvakning og fræðsla, B. Aðgengi, C. Sjálfstætt líf, D. Menntun og atvinna, E. Þróun þjónustu, F. Lögfesting. Aðgerðirnar eru á ábyrgð níu ráðuneyta.
Verkefnastjórn, undir forystu félags- og húsnæðismálaráðuneytis, er ætlað að fylgjast með framvindu áætlunarinnar. Í verkefnastjórn eiga sæti fulltrúar dómsmálaráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis, forsætisráðuneytis, fötlunarfræði í Háskóla Íslands, Geðhjálpar, heilbrigðisráðuneytis, innviðaráðuneytis, landssamtakanna Þroskahjálpar, mennta- og barnamálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og ÖBÍ réttindasamtaka. Í árslok 2025 voru 32 aðgerðir af 60 hafnar eða í undirbúningi og níu aðgerðum var lokið. Aðrar aðgerðir eru á áætlun áranna 2026–2027 og því ekki hafnar.
Þingsályktun 16/154 um landsskipulagsstefnu fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028.
16. maí 2024, þskj. 1724 á 154. lögþ.
Þingsályktunartillaga um landsskipulagsstefnu fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028 var samþykkt á Alþingi vorið 2024. Tillagan var lögð fram af þáverandi innviðaráðherra. Var þetta í annað sinn sem landsskipulagsstefna var samþykkt en hún leysti af hólmi Landsskipulagsstefnu 2015–2026 sem tók gildi árið 2016, þá fyrsta heildstæða stefna um skipulagsmál á landsvísu. Landsskipulagsstefna felur í sér samræmda stefnu ríkisins í skipulagsmálum fyrir landið í heild og tekur til landsins alls og haf- og strandsvæða. Í þingsályktun um landsskipulagsstefnu eru sett fram þrjú markmið stjórnvalda í skipulagsmálum: um vernd umhverfis og náttúru, velsæld samfélags og samkeppnishæft atvinnulíf. Undir hverju markmiði koma fram áherslur ásamt tilmælum um hvernig beri að framfylgja stefnunni, sem ýmist eiga við um skipulag á miðhálendi, í dreifbýli, í þéttbýli og á haf- og strandsvæðum.
Landsskipulagsstefnu er fyrst og fremst framfylgt með skipulagsgerð sveitarfélaga, sem skulu samkvæmt skipulagslögum byggja á stefnunni við gerð skipulagsáætlana. Auk þess er sett fram aðgerðaáætlun þar sem lagðar eru fram 20 aðgerðir sem tengdar eru áherslum stefnunnar og er ætlað að ná fram markmiðum hennar. Aðgerðirnar miða einkum að því að gera skipulagsgerð sveitarfélaga skilvirkari með bættu aðgengi að grunngögnum og leiðbeiningum, tryggja heildarhagsmuni við gerð skipulagsáætlana sveitarfélaga og stuðla að sjálfbærri þróun þar sem tekið er mið af mögulegum áhrifum loftslagsbreytinga á samfélög og innviði. Í árslok 2025 voru átta aðgerðir af 20 hafnar og einni aðgerð lokið. Aðrar aðgerðir eru í undirbúningi eða þær ekki hafnar.
Þingsályktun 21/154 um húsnæðisstefnu fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028.
22. júní 2024, þskj. 2101 á 154. lögþ.
Þingsályktunartillaga um húsnæðisstefnu fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028 var samþykkt á Alþingi sumarið 2024. Var það í fyrsta sinn sem sett hafði verið fram heildstæð langtímastefna í húsnæðismálum á landsvísu.
Húsnæðisstefnan byggist á eftirfarandi framtíðarsýn: „Stöðugleiki ríki á húsnæðismarkaði þar sem fjölbreytt framboð íbúða mætir þörf í jafnvægi við umhverfið. Öllum er tryggt öruggt og gott húsnæði í blandaðri byggð og húsnæðiskostnaður þeirra er viðráðanlegur.“ Markmið húsnæðisstefnu eru fjórþætt: jafnvægi á húsnæðismarkaði, skilvirkari stjórnsýsla og gæði íbúða í jafnvægi við umhverfið, húsnæðisöryggi og jafnrétti landsmanna í húsnæðismálum og að framboð íbúða stuðli að virkum vinnumarkaði um land allt. Vinna stendur nú yfir við endurskoðun húsnæðisstefnu. Í því sambandi hefur ríkisstjórnin sett fram margvíslegar aðgerðir í tveimur húsnæðispökkum sem kynntir voru 29. október 2025 og 28. apríl 2026.
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.
Málstefna íslensks táknmáls 2024−2027 og aðgerðaáætlun.
20. mars 2024, þskj. 1298 á 154. lögþ.
Tillaga til þingsályktunar um málstefnu íslensks táknmáls 2024–2027 og aðgerðaáætlun byggir á tillögum starfshóps sem mennta- og menningarmálaráðherra skipaði í janúar 2020. Starfshópinn skipuðu fulltrúar Málnefndar um íslenskt táknmál, Félags heyrnarlausra og Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra, með víðtæku samstarfi við sérfræðinga í málaflokknum. Meginstoðir málstefnunnar eru máltaka barna, rannsóknir og varðveisla, jákvætt viðhorf, fjölgun umdæma íslensks táknmáls, lagaumhverfi og máltækni. Í meðfylgjandi töflu má sjá framgang aðgerðaáætlunar málstefnunnar:
| Aðgerðir | Staða | |
| A1 | Snemmtæk íhlutun fyrir börn og fjölskyldur | Framkvæmd hafin |
| A2 | Samþætting þjónustu í þágu farsældar táknmálsbarna | Framkvæmd hafin |
| A3 | Markvisst eftirlit með námi og kennslu táknmálsbarna í leik-, grunn- og framhaldsskólum | Framkvæmd ekki hafin |
| A4 | Endurskoðun aðalnámskrár til að styrkja stöðu íslensks táknmáls | Framkvæmd ekki hafin |
| A5 | Nám í kennslufræði táknmáls við Háskóla Íslands | Framkvæmd hafin |
| A6 | Upplýsingar og gjaldfrjáls ráðgjöf um máltöku | Framkvæmd hafin |
| A7 | Gjaldfrjálsa ráðgjöf fyrir leik- og grunnskóla | Framkvæmd hafin |
| A8 | Markviss aðlögun táknmálsbarna að táknmálssamfélagi | Framkvæmd hafin |
| A9 | Færnimat í íslensku táknmáli á grundvelli evrópskra staðla | Framkvæmd ekki hafin |
| A10 | Táknmálstalandi nemendur í leik-, grunn- og framhaldsskólum njóti náms og kennslu við hæfi | Framkvæmd hafin |
| A11 | Fræðsluefni um íslenskt táknmál | Framkvæmd hafin |
| A12 | Menningarsjóðir aðgengilegir vegna útgáfu táknmálsefnis | Framkvæmd hafin |
| A13 | Almenningur hafi aðgengi að táknmálsnámi hjá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra | Framkvæmd hafin |
| B1 | Verkefnaáætlun fyrir málheild um íslenskt táknmál | Framkvæmd hafin |
| B2 | Rannsóknir á íslensku táknmáli og miðlun þeirra | Framkvæmd hafin |
| B3 | Aðgengi að upptökum á SignWiki | Framkvæmd hafin |
| C1 | Upplýsingar og viðburðir á íslensku táknmáli | Framkvæmd hafin |
| C2 | Foreldrar táknmálsbarna fái faglega ráðgjöf og fræðslu um íslenskt táknmál | Framkvæmd hafin |
| C3 | Upplýsingar um réttindi tengd íslensku táknmáli verði aðgengilegar á vefjum | Framkvæmd hafin |
| C4 | Reglulegir viðburðir um íslenskt táknmál | Framkvæmd hafin |
| C5 | Fræðsla um íslenskt táknmál og sögu og menningu þess hluti af námsefni grunnskólabarna | Framkvæmd hafin |
| C6 | Jákvætt viðhorf til íslensks táknmáls til stuðnings stefnuaðgerðum stjórnvalda | Framkvæmd ekki hafin |
| C7 | Dagur íslenska táknmálsins 11. febrúar | Framkvæmd hafin |
| D1 | Þýðingar úr íslensku yfir á íslenskt táknmál og öfugt | Framkvæmd hafin |
| D2 | Endurmenntun táknmálstúlka verði tryggð og sérhæfing | Framkvæmd ekki hafin |
| D3 | Táknmálstalandi fólk hafi möguleika á að birta eigin sögur eða annað listrænt efni | Framkvæmd hafin |
| D4 | Aukið aðgengi efnis og fræðslu á íslensku táknmáli | Framkvæmd hafin |
| E1 | Endurskoðun laga um Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra | Framkvæmd ekki hafin |
| E2 | Lög um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls metin í samræmi við málstefnu | Framkvæmd ekki hafin |
| F1 | Þróun umhverfis til fjarnáms og fjarkennslu íslensks táknmáls | Framkvæmd hafin |
| F2 | Áframhaldandi söfnun málfanga | Framkvæmd hafin |
| F3 | Táknmálstalandi fólk menntað og þjálfað í tækni sem notuð er til að byggja upp málheild íslensks táknmáls | Framkvæmd ekki hafin |
Aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu fyrir árin 2024−2026,
8. maí 2024, þskj. 1664 á 154. lögþ.
Þingsályktun um aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu fyrir árin 2024–2026 var afrakstur af vinnu ráðherranefndar um íslenska tungu sem komið var á fót að tillögu forsætisráðherra í nóvember 2022. Breytingar á skipan Stjórnarráðsins höfðu gert það að verkum að málefni íslenskrar tungu voru dreifð á nokkur ráðuneyti og nauðsynlegt þótti að samhæfa aðgerðir stjórnvalda á þessu sviði. Í ráðherranefndinni sátu, auk forsætisráðherra, menningar- og viðskiptaráðherra, mennta- og barnamálaráðherra, félags- og vinnumarkaðsráðherra og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Ráðherranefndin starfar ekki lengur.
Þingsályktunin samanstendur af 22 aðgerðum sem féllu á ábyrgðarsvið fjögurra ráðuneyta auk einnar stofnunar. Eftir breytingu á skipan ráðuneyta bera tvö ráðuneyti, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti og mennta- og barnamálaráðuneyti, nú ábyrgð á öllum aðgerðum nema einni. Ábyrgð á aðgerð 11 er hjá Árnastofnun.
| Aðgerðir | Staða |
| 1. Þekkingaröflun og ráðgjöf | Framkvæmd hafin |
| 2. Starfstengt íslenskunám fyrir innflytjendur samhliða vinnu | Framkvæmd hafin |
| 3. Bætt gæði íslenskukennslu fyrir innflytjendur | Framkvæmd hafin |
| 4. Virkjun Samevrópska tungumálarammans | Framkvæmd hafin |
| 5. Fjarnám í íslensku á BA-stigi | Framkvæmd hafin |
| 6. Sameiginlegt fjarnám í íslensku sem öðru máli | Framkvæmd lokið |
| 7. Háskólabrú fyrir innflytjendur | Framkvæmd lokið |
| 8. Viðhorf til íslensku | Framkvæmd hafin |
| 9. Mikilvægi lista og menningar | Framkvæmd hafin |
| 10. Aukin talsetning og textun á íslensku | Framkvæmd hafin |
| 11. Íslenskugátt | Framkvæmd hafin |
| 12. Öflug skólasöfn | Framkvæmd hafin |
| 13. Vefgátt fyrir rafræn námsgögn | Framkvæmd hafin |
| 14. Samræmt verklag um móttöku, kennslu og þjónustu | Framkvæmd hafin |
| 15. Efling íslenskuhæfni starfsfólks í leik- og grunnskólum og frístundastarfi | Framkvæmd hafin |
| 16. Samþætting íslensku og erlendra móðurmála á fagtengdum grunnnámskeiðum starfsfólks í heilbrigðis-, félags- og umönnunargreinum | Framkvæmd hafin |
| 17. Framtíð máltækni | Framkvæmd hafin |
| 18. Íslenska handa öllum | Framkvæmd ekki hafin |
| 19. Íslenska er sjálfsagt mál | Framkvæmd hafin |
| 20. Starfsþróun og hæfni þeirra sem kenna íslensku sem annað mál | Framkvæmd hafin |
| 21. Fræðsla um máltöku og málþroska barna | Framkvæmd hafin |
| 22. Fræðsla og ráðgjöf handa innflytjendum þegar börn þeirra hefja skólagöngu í íslenskum skólum | Framkvæmd hafin |
Utanríkisráðuneyti.
Stefna um stuðning Íslands við Úkraínu 2024–2028.
29. apríl 2024, þskj. 1601 á 154. lögþ.
Þingsályktunartillagan var lögð fram af utanríkisráðherra og samþykkt með breiðum stuðningi Alþingis 29. apríl 2024. Samkvæmt ályktuninni leggja stjórnvöld áherslu á fimm þætti í stefnu um stuðning við Úkraínu: 1) Öflugt tvíhliða samstarf og samskipti við stjórnvöld, þjóðþing, stofnanir, félagasamtök og atvinnulíf. 2) Virka þátttöku í alþjóðlegu samstarfi og málafylgju sem styðji við örugga, sjálfstæða, fullvalda og lýðræðislega Úkraínu í samræmi við vilja íbúa landsins, auk friðarferlis forseta Úkraínu og ábyrgðarskyldu Rússlands vegna áhrifa stríðsins. 3) Stuðning við varnarbaráttu Úkraínu til að tryggja öryggi borgara og mikilvægra innviða. 4) Mannúðaraðstoð við íbúa Úkraínu og vernd óbreyttra borgara í átökum. 5) Viðhald grunnþjónustu og efnahags Úkraínu meðan á átökum stendur og stuðning við endurreisn og uppbyggingu eftir að þeim lýkur.
Tvíhliða samstarf og diplómatísk samskipti Íslands og Úkraínu hafa styrkst á undanförnum misserum. Hinn 31. maí 2024 undirrituðu þáverandi forsætisráðherra og Volodómír Selenskí, forseti Úkraínu, tvíhliða samning um stuðning Íslands við Úkraínu í samræmi við þingsályktun Alþingis. Úkraínuforseti heimsótti Ísland í október 2024 þar sem hann átti fund með þáverandi forsætisráðherra og utanríkisráðherra og sótti forseta Íslands heim á Bessastaði. Þá fundaði hann með utanríkismálanefnd og ávarpaði Norðurlandaráðsþing. Meðan á heimsókninni stóð var fjórði leiðtogafundur Norðurlandanna og Úkraínu haldinn á Þingvöllum. Þann 9. september 2026 funduðu utanríkisráðherra og Úkraínuforseti í Keflavík. Síðar í sama mánuði áttu utanríkisráðherra og Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu, fund í Reykjavík. Sybiha átti að auki fund með utanríkismálanefnd Alþingis.
Fyrsta embættisferð utanríkisráðherra var heimsókn til Úkraínu í janúar 2025 þar sem samstaða Íslands með Úkraínu og áframhaldandi stuðningur var áréttaður. Forsætisráðherra heimsótti Kænugarð í febrúar 2025 þar sem haldinn var leiðtogafundur í tilefni þess að þrjú ár voru liðin frá allsherjarinnrás Rússlands og aftur í febrúar 2026 í hópi leiðtoga Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Forseti Alþingis heimsótti Úkraínu í mars 2026 og tók þátt í viðburðum til minningar um fórnarlömb grimmdarverka rússneska innrásarhersins í Bútsja. Fyrsti varaforseti Alþingis heimsótti jafnframt Úkraínu í ágúst 2026 og átti þar fund með úkraínskum starfsbróður sínum. Formaður utanríkismálanefndar Alþingis heimsótti Úkraínu í febrúar 2026 þegar fjögur ár voru liðin frá allsherjarinnrás Rússlands. Þá hafa bæði forsætisráðherra og utanríkisráðherra fundað reglulega með úkraínskum ráðamönnum á fjölþjóðlegum vettvangi, einkum í ranni ríkjahóps til stuðnings Úkraínu (e. Coalition of the Willing) og í hópi Norðurlanda og Eystrasaltsríkja.
Sendiráð Íslands í Varsjá sinnir sendiráðsstörfum gagnvart Úkraínu. Sendiherra og staðgengill sendiherra ferðast reglulega til Úkraínu, sinna tengslum við þarlend stjórnvöld og taka þátt í viðburðum og pólitísku samstarfi í hópi samstarfsríkja Úkraínu.
Íslensk stjórnvöld sinna virkri málafylgju til stuðnings Úkraínu, ýmist með eigin málflutningi eða í samstarfi við önnur ríki, oftast með Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum. Rík áhersla er lögð á málflutning á vettvangi alþjóðastofnana, svo sem hjá Sameinuðu þjóðunum, Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, Evrópuráðinu og Atlantshafsbandalaginu. Hefur Ísland átt aðild að fjölda yfirlýsinga síðustu fjögur ár þar sem undirstrikuð er samstaða með Úkraínu og áréttaður staðfastur stuðningur við varnarbaráttu landsins. Í sameiginlegri yfirlýsingu leiðtoga Norðurlandanna, Eystrasaltsíkjanna og Úkraínu þann 23. ágúst 2026 kemur m.a. fram að NB8-ríkin styðji við Úkraínu svo lengi sem þörf er á og árásir Rússa á almenna borgara og borgaralega innviði harðlega fordæmdar. Einnig er stuðningi lýst yfir við hertar þvingunaraðgerðir gagnvart Rússlandi. Stuðningur Íslands við Úkraínu er undirstrikaður með innleiðingu allra þvingunaraðgerða ESB gagnvart Rússlandi vegna innrásarstríðsins.
Í samræmi við fyrrnefnda stefnu, sem samþykkt var með breiðum stuðningi Alþingis, hefur Ísland lagt áherslu á viðvarandi og fyrirsjáanlegan stuðning við Úkraínu sem hefur farið stigvaxandi. Heildarframlög íslenskra stjórnvalda vegna Úkraínu á tímabilinu 2024–2028 taka sömuleiðis mið af stuðningi annarra ríkja Norðurlandanna. Heildarstuðningur Íslands frá 24. febrúar 2022 til september 2026 nemur samtals 20,4 milljörðum króna. Varnartengdur stuðningur nemur 11,9 milljörðum króna og mannúðar- og efnahagsstuðningur 8,5 milljörðum króna. Þannig nam heildarstuðningur 2,2 milljörðum króna árið 2022, 3,5 milljörðum króna árið 2023, 3,7 milljörðum króna árið 2024 og 6,0 milljörðum króna árið 2025. Áætlanir gera ráð fyrir að á yfirstandandi ári muni stuðningurinn nema 6,1 milljarði króna sem skiptist í 2,5 milljarða króna vegna mannúðar- og efnahagsstuðnings og 3,6 milljarða króna vegna varnartengds stuðnings. Framangreindur stuðningur er innan ramma fjárlaga.
Hvað mannúðar- og efnahagsstuðning varðar er tekið mið af þingsályktun um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands fyrir árin 2024–2028, nr. 5/154, og þörfum og áherslum úkraínskra stjórnvalda. Lögð er áhersla á vel skilgreind málefnasvið og samstarfsaðila til að hámarka áhrif framlaganna og þarfir hverju sinni. Málefnasvið sem Ísland hefur reynslu af og þekkingu eru sett í forgang og sérstaklega litið til grunnþarfa, styrkingar félagslegra og borgaralegra innviða, þar á meðal á sviði menntamála, orkuöryggis og orkuskipta, lýðræðis og bættra stjórnarhátta, mannréttinda og kynjajafnréttis, einkum verkefna sem styðja við markmið ályktunar Sameinuðu þjóðanna um konur, frið og öryggi. Hefur þessu verið framfylgt að mestu í samstarfi við Alþjóðabankann og stofnanir Sameinuðu þjóðanna, einkum áherslustofnanir, þ.e. mannfjöldasjóð SÞ (UNFPA) og Barnahjálp SÞ (UNICEF). Sökum linnulausra árása Rússlands á orkuinnviði í Úkraínu hefur stuðningur við orkumál farið vaxandi á milli ára en hann hefur að mestu farið í gegnum sérstakan orkusjóð fyrir Úkraínu (e. Ukraine Energy Support Fund) og þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (UNDP). Íslensk stjórnvöld juku jafnframt stuðning við kvennasamtök í Úkraínu á árinu 2026 og fer sá stuðningur um sérstakan friðar- og mannúðarsjóð (WPHF). Haustið 2025 hófu stjórnvöld samstarf við Emblu Medical og samtökin Future for Ukraine um veitingu stoðtækja og tengdrar þjónustu, sem og við Römpum upp sem vinnur að byggingu aðgengisrampa í samstarfi við borgaryfirvöld í Lviv, Úkraínu.
Ísland styður dyggilega við Úkraínu með varnartengdum stuðningi á grundvelli þingsályktunar Alþingis. Líkt og þar kemur fram er þunginn í varnartengdum stuðningi framlög í fjölþjóðlega sjóði sem kaupa hergögn og birgðir og tvíhliða verkefni sem grundvallast á beiðnum úkraínskra stjórnvalda, t.d. kaup á færanlegu sjúkrahúsi. Einn helsti vettvangur samstarfs um varnartengdan stuðning hefur verið hópur rúmlega fimmtíu ríkja, Ukraine Defence Contact Group (UDCG), sem undir forystu Bretlands og Þýskalands hefur unnið ötullega að því að útvega hergögn, þjálfun og margvíslegan búnað. Ísland hefur tekið virkan þátt í starfi ríkjahópsins. Má þar nefna að Ísland leiðir ásamt Litáen undirhóp um sprengjuleit og -eyðingu samkvæmt óskum og þörfum úkraínskra stjórnvalda. Ísland hefur ennfremur sinnt þjálfun í sprengjuleit- og eyðingu fyrir Úkraínumenn í samvinnu við Norðurlönd í Litáen og þjálfun úkraínskra bráðaliða í Bretlandi. Ísland hefur í hópi bandalagsríkja einnig, í samræmi við brýnar þarfir og óskir Úkraínu, veitt framlög í samstarfsverkefni Atlantshafsbandalagsins og Bandaríkjanna (e. Prioritised Ukraine Requirements List – PURL) sem snýr að því að sameinast um kaup á varnartengdum búnaði sem einungis Bandaríkin geta útvegað.
Þann 14. nóvember 2022 ályktaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna að Rússland beri ábyrgð á allsherjarinnrásinni í Úkraínu og hafi með því brotið alþjóðalög. Jafnframt var ályktað að komið yrði á fót alþjóðlegu ábyrgðarkerfi og var samstaða um að ábyrgð Rússlands á innrásinni væri lykilatriði ef tryggja ætti réttlæti og varanlegan frið í Úkraínu. Kjarninn í ábyrgðarskyldunni er að Rússar bæti það umfangsmikla tjón sem þeir hafa valdið í Úkraínu. Ísland hefur tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi á þessu sviði. Í samræmi við þetta var sett á stofn tjónaskrá vegna Úkraínu á leiðtogafundi Evrópuráðsins í Reykjavík í maí 2023. Þar eru skrásettar tjónakröfur vegna innrásar Rússa í Úkraínu og nema þær nú um 190 þúsund. Einnig var komið á fót alþjóðlegri kröfunefnd vegna Úkraínu sem mun hafa það hlutverk að fjalla um hinar skrásettu kröfur og ákveða fjárhæð bóta.
Samningaviðræður um stofnun kröfunefndarinnar fóru fram á vettvangi Evrópuráðsins á árinu 2025. Á ríkjaráðstefnu sem haldin var í Haag, Hollandi, þann 16. desember 2025 var samningurinn undirritaður og fulltrúar ríkja sem tóku þátt í samningaviðræðunum lýstu stuðningi við ferlið. Ísland var meðal 40 ríkja og ESB til að undirrita samninginn við það tækifæri. Ísland fullgilti samninginn 28. apríl 2026 og var meðal fyrstu ríkja til að gera slíkt. Alls hafa níu ríki og ESB fullgilt samninginn, en 25 ríki þarf til að samningurinn öðlist gildi. Þá hefur á vettvangi Evrópuráðsins verið unnið að stofnun sérstaks dómstóls þar sem þeir sem bera ábyrgð á glæpum gegn friði í Úkraínu verði dregnir til ábyrgðar. Ísland var meðal fyrstu ríkja til að staðfesta þátttöku í dómstólnum sem staðsettur verður í Haag.
Uppfærður fríverslunarsamningur EFTA-ríkjanna og Úkraínu var undirritaður 8. apríl 2025. Tillaga til þingsályktunar um fullgildingu samningsins var samþykkt á 157. löggjafarþingi og samningurinn í kjölfarið fullgiltur af Íslands hálfu.
Úkraínsk stjórnvöld skilgreina menningarmál sem hluta af þjóðaröryggi og hafa óskað eftir stuðningi Íslands, m.a. við varðveislu menningarminja. Undir lok árs 2025 ákváðu utanríkisráðuneytið og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið að vinna saman að því að efla menningarsamstarf Íslands og Úkraínu. Áhersla hefur verið lögð á tvíhliða verkefni sem tengja saman listafólk, söfn og menningarstofnanir á Íslandi og í Úkraínu og eru þau ýmist í undirbúningi eða hefur verið ýtt úr vör. Þeirra á meðal eru sýning Listasafns Íslands á úkraínskum íkonum frá Þjóðlistasafni Úkraínu, sýning úkraínska listahópsins Open Group á Nýlistasafninu í tengslum við Listahátíð 2026, þátttaka úkraínsks listafólks í sýningunni Í skugga átaka í Listasafninu á Akureyri, kynning á úkraínskum bókmenntum í samvinnu við Bókmenntaborgina Reykjavík og sýning Steinunnar Þórarinsdóttur í Kænugarði.
Ákvarðanir nr. 185/2023 um breytingu á IX. viðauka og nr. 240/2023 um breytingu á XI. viðauka við EES-samninginn (Fjármálaþjónusta o.fl.).
30. apríl 2024, þskj. 1609 á 154. lögþ.
Ísland tilkynnti um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða, sbr. 104. gr. EES-samningsins, hinn 12. júní 2024 vegna ákvörðunar nr. 185/2023 og tók ákvörðunin gildi 1. ágúst 2024. Ísland tilkynnti um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða vegna ákvörðunar nr. 240/2023 hinn 12. júní 2024. Noregur hefur ekki aflétt stjórnskipulegum fyrirvara og hefur ákvörðunin því ekki öðlast gildi.
Þingsályktun 14/154 um framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2023.
30. apríl 2024, þskj. 1613 á 154. lögþ.
Alþingi skoraði með ályktuninni á ríkisstjórnina að vinna að framkvæmd fjögurra ályktana Vestnorræna ráðsins sem samþykktar voru á ársfundi ráðsins 29.–30. ágúst 2023. Ályktanirnar eru ólíkar og tengjast málefnasviðum margra ráðuneyta og einhverjar þeirra kunna að krefjast samstarfs fleiri aðila.
Í fyrstu ályktuninni, nr. 1/2023, eru leiðtogar ríkisstjórna og þjóðþinga landanna þriggja hvattir til að útbúa heildræna áætlun um það hvernig vestnorrænu löndin geta unnið saman og staðið vörð um hafið sem matarkistu okkar og þannig komið í veg fyrir að auðlindir fari til spillis og um leið tryggt fæðuöryggi. Ríkisstjórnir Vestur-Norðurlandanna eru þar hvattar til að bregðast við mengun, tryggja að norðurskautið verði áfram lágspennusvæði og vernda líffræðilegan fjölbreytileika og vistkerfi hafsins. Í annarri ályktuninni, nr. 2/2023, eru ríkisstjórnir landanna hvattar til að kanna möguleika á að koma á sameiginlegum vestnorrænum næringarráðleggingum. Hér á landi hefur vinna við vestnorrænar næringarráðleggingar ekki farið af stað en heilbrigðisráðuneytið og embætti Landlæknis taka þátt í samstarfi um norrænar næringarráðleggingar á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. Í þriðju ályktuninni, nr. 3/2023, eru vestnorrænir umhverfisráðherrar hvattir til að halda fund og skiptast á reynslu og hugmyndum um hvernig löndin geti dregið úr matarsóun og aukið matvælaöryggi á Vestur-Norðurlöndum. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið liti það jákvæðum augum ef matarsóun yrði rædd á fundi vestnorrænu umhverfisráðherranna en enn hefur þó ekki orðið af slíkum fundi.
Í fjórðu og síðustu ályktuninni, nr. 4/2023, eru stjórnvöld hvött til að kanna möguleika á auknu samstarfi í tengslum við lýðskóla (d. efterskole) og athuga hvort nemendur slíkra skóla geti sótt styrk til uppihalds á meðan á slíku námi stendur. Með lýðskóla er þar átt við skólastig fyrir nemendur á aldrinum 14–18 ára. Á Grænlandi og í Færeyjum er algengt að ungt fólk á aldrinum 14–18 ára sæki lýðskóla. Samkvæmt íslenskum lögum um lýðskóla, nr. 65/2019, skulu nemendur við lýðskóla á Íslandi hafa náð 18 ára aldri er þeir hefja slíkt nám og er því að mati mennta- og barnamálaráðuneytisins ekki hægt að auka samstarf um þetta skólastig á meðan það er skilgreint svo ólíkt milli landa.
Utanríkisráðuneytið hefur umsýslu með framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins og mun halda áfram að safna upplýsingum um gang mála hjá fagráðuneytum sem að málunum koma og upplýsa Vestnorræna ráðið um hvort og hvað hefur verið gert vegna þeirra.
Þingsályktanir frá 2024 þar sem framkvæmd telst lokið og umfjöllun er óbreytt frá síðustu skýrslu.
– Þingsályktun 20/154 um fjármálaáætlun fyrir árin 2025–2029, 22. júní 2024, 154. lögþ.
– Nefndarálit með frávísunartillögu um frumvarp til laga um kílómetragjald á ökutæki, 12. nóvember 2024, 155. lögþ.
Utanríkisráðuneyti.
– Fiskveiðiviðræður milli Íslands og Grænlands varðandi aðgang til makrílveiða á Norðaustur-Atlantshafi á árinu 2024, 16. maí 2024, 154. lögþ.
– Staðfesting rammasamkomulags milli Íslands og Grænlands um verndun loðnustofnsins og stjórnun veiða úr honum, 21. júní 2024, 154. lögþ.
– Staðfesting ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingar á IX. viðauka við EES-samninginn (Fjármálaþjónusta o.fl.), 14. nóvember 2024, 155. lögþ.
– Fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Moldóvu, 13. febrúar 2024, 154. lögþ.
Yfirlit yfir framkvæmd ályktana Alþingis frá árinu 2023.
Atvinnuvegaráðuneyti.
Þingsályktun 20/153 um matvælastefnu til ársins 2040.
31. maí 2023, þskj. 1913 á 153. lögþ.
Með stjórnartillögunni var ályktað að unnið yrði samkvæmt matvælastefnu til ársins 2040. Matvælastefna Íslands verði leiðandi í ákvarðanatöku til að stuðla að aukinni verðmætasköpun í matvælaframleiðslu hér á landi, tryggja fæðu- og matvælaöryggi og auka velferð fólks í sátt við umhverfi og náttúru. Matvælastefnunni er ætlað að vera leiðarstef fyrir matvælaframleiðslu í landinu og þar með talið þá stefnumótun sem undir hana fellur. Stefnan verður höfð til hliðsjónar við stefnumótun í landbúnaði, sjávarútvegi og fiskeldi.
Á Íslandi er framleitt mikið magn matvæla og er framleiðslan mikilvæg með tilliti til allra lykilhagstærða svo sem landsframleiðslu, útflutningsverðmæta og fjölda starfa. Fá samfélög sem við berum okkur saman við eru jafn efnahagslega háð matvælaframleiðslu. Ísland er ríkt af auðlindum sem gerir landið að samkeppnishæfum matvælaframleiðanda innanlands sem og á alþjóðamörkuðum. Forsendur eru fyrir hendi að til byggja velsæld þjóðarinnar áfram á sjálfbærri nýtingu auðlinda, m.a. til matvælaframleiðslu, og jafnframt að þróa áfram nýjar framleiðslugreinar á þeim grunni.
Matvælastefnan sem hér var mörkuð nær til ársins 2040. Horft var til helstu áskorana og tækifæra í matvælaframleiðslu. Þegar drög matvælastefnunnar lágu fyrir var haldið matvælaþing sem opið var öllum áhugasömum og sýnt í opnu streymi. Þar voru fengnir aðilar úr öllum áttum til að ræða og gagnrýna stefnuna í heild sinni auk þess sem opið var fyrir spurningar. Umræður og athugasemdir frá matvælaþingi voru hafðar að leiðarljósi við lokafrágang matvælastefnu. Í stefnunni kemur fram metnaðarfull framtíðarsýn. Til þess að sú framtíðarsýn verði að veruleika verður lögð áhersla á sjálfbærni matvælaframleiðslu, samfélag, fæðuöryggi, matvælaöryggi, þarfir neytenda og rannsóknir, nýsköpun og menntun.
Stefnunni fylgir aðgerðaáætlun og er hún samantekt úr stefnumótun sem undir hana fellur, ásamt aðgerðum sem ná til þeirra málaflokka sem eru á ábyrgð ráðuneytisins. Í aðgerðaáætluninni eru settar fram fimm aðgerðir sem liggja þvert á aðrar undirstefnur og er þeim ýmist lokið eða langt á veg komnar.
Þingsályktun 21/153 um landbúnaðarstefnu til ársins 2040.
1. júní 2023, þskj. 1930 á 153. lögþ.
Með samþykkt stjórnartillögunnar var ályktað að unnið yrði eftir heildstæðri landbúnaðarstefnu fyrir Ísland til ársins 2040. Meginmarkmið landbúnaðarstefnunnar er að efla og styðja íslenskan landbúnað og styrkja stoðir hans til framtíðar með sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Framleiðsla landbúnaðarafurða varðar samfélagið allt og er stefnunni ætlað að skapa sterkar stoðir fyrir innlenda landbúnaðarframleiðslu til framtíðar, til hagsbóta fyrir samfélagið í heild. Landbúnaðarstefnan byggist á þremur lykilbreytum sem talið er að muni hafa mikil áhrif á þróun landbúnaðar á komandi árum, þ.e. 1) landnýtingu, 2) loftslagsmálum og umhverfisvernd og 3) tækni og nýsköpun. Þessar þrjár breytur setja sterkan svip á þau tíu áhersluatriði sem dregin eru fram í tillögunni. Í tillögunni er sett fram metnaðarfull framtíðarsýn sem snertir umgjörð landbúnaðar í heild sinni og tekur til umhverfis, samfélags og samkeppnishæfni þess starfsvettvangs sem framleiðsla landbúnaðarafurða er.
Í stefnunni kemur fram að gerð verði aðgerðaáætlun til fimm ára í kjölfar samþykktar þingsályktunartillögunnar. Aðgerðaáætlun landbúnaðarstefnu til fimm ára var gefin út þann 24. september 2024. Áætluninni er ætlað að ná yfir þau verkefni landbúnaðarstefnunnar sem eru á forræði atvinnuvegaráðuneytisins (áður matvælaráðuneytisins) og verða í forgangi á tímabilinu. Aðgerðirnar eru ekki settar fram í forgangsröðun heldur er uppröðun aðgerðanna í samræmi við uppbyggingu landbúnaðarstefnunnar sjálfrar. Við gerð aðgerðaáætlunarinnar var lögð áhersla á að setja fram afmarkaðar og tímasettar aðgerðir sem raunhæft má telja að komist í framkvæmd á því tímabili sem áætlunin nær yfir. Tillögur að nýjum aðgerðum verða teknar til frekari skoðunar við endurskoðun áætlunarinnar. Í aðgerðaáætluninni eru settar fram 28 aðgerðir og þar af er þremur aðgerðum lokið og 21 aðgerð í framkvæmd eða í undirbúningi.
Félags- og húsnæðismálaráðuneyti.
Þingsályktun 13/153 um aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2023–2027.
10. maí 2023, þskj. 1761 á 153. lögþ.
Þingsályktunartillaga um aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2023– 2027 var lögð fram af þáverandi félags- og vinnumarkaðsráðherra og byggist á stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og viljayfirlýsingu félags- og vinnumarkaðsráðherra, heilbrigðisráðherra, fjármálaráðherra, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landssambands eldri borgara um að auka samstarf varðandi málefni eldra fólks. Þverfaglegt samstarf félags- og heilbrigðisþjónustu er grundvallaratriði til að ná fram samlegðaráhrifum fagþekkingar á hvoru sviði fyrir sig og tryggja þannig betri þjónustu við stækkandi þjóðfélagshóp, m.a. með samþættingu á þjónustu, forvörnum, heilsueflingu og aukinni virkni. Aðgerðaáætlunin innifelur alls 19 aðgerðir sem skipt er í fimm þætti, hverjum með sínum undirverkefnum. Þættirnir eru: Samþætting, virkni, upplýsing, þróun og heimili. Vinna er hafin við 11 aðgerðir og fimm er lokið. Verkefnastjórn, skipuð af þáverandi félags- og vinnumarkaðsráðherra og heilbrigðisráðherra, hefur umsjón með framkvæmd og innleiðingu aðgerðaáætlunarinnar.
Þingsályktun 16/153 um framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2022.
23. maí 2023, þskj. 1841 á 153. lögþ.
Utanríkisráðuneytið hefur umsýslu með framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins með því að safna upplýsingum um gang mála hjá fagráðuneytum sem að málinu koma og upplýsa Vestnorræna ráðið um hvort og hvað hefur verið gert vegna þeirra. Í þessu tilviki er um að ræða framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins um ungt fólk á Vestur-Norðurlöndum, um útlistun og samanburð á áætlunum og fyrirkomulagi vestnorrænu landanna í náttúrutengdri ferðaþjónustu og aðgengi að náttúru og um vestnorrænt samstarf á sviði jafnréttis. Áfram verður unnið að málunum.
Heilbrigðisráðuneyti.
Þingsályktun 19/153 um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023–2027.
31. maí 2023, þskj. 1912 á 153. lögþ.
Þingsályktunartillaga heilbrigðisráðherra um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum fyrir árin 2023–2027 var samþykkt á Alþingi þann 31. maí 2023. Með ályktuninni ályktaði Alþingi að hrinda í framkvæmd 27 aðgerðum í geðheilbrigðismálum, í samræmi við þingsályktun um stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030, nr. 26/152, og að gert yrði ráð fyrir framkvæmdinni við gerð fjárlaga hvers árs.
Þingsályktunartillagan um aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum byggist á vinnu samráðshóps helstu hagaðila í geðheilbrigðismálum á landsvísu sem heilbrigðisráðherra skipaði í febrúar 2022. Samráðshópurinn vann drög að aðgerðaáætluninni sem birt voru til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda og í framhaldi af því lögð fyrir Alþingi sem þingsályktunartillaga.
Aðgerðum áætlunarinnar er lýst með tilliti til tilgangs, ábyrgðar á framkvæmd, samstarfsaðilum og áætluðum samfélagsáhrifum. Aðgerðaáætlunin samanstendur af 27 aðgerðum; þremur er lokið, 13 aðgerðir eru hafnar, sjö aðgerðir eru komnar vel á veg og fjórar aðgerðir eru ekki hafnar.
Innviðaráðuneyti.
Þingsályktun 2/154 um um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024–2038 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028.
5. desember 2023, þskj. 686 á 154. lögþ.
Stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024–2038 ásamt aðgerðaáætlun til fimm ára var samþykkt á Alþingi þann 5. desember 2023. Stjórnartillagan var sett fram eftir víðtækt samráð við íbúa, sveitarstjórnir og aðra hagsmunaaðila um allt land og er áhersla einkum lögð á tvö meginmarkmið. Fyrra markmiðið er að sveitarfélög á Íslandi verði öflug og sjálfbær og ýti undir lýðræðislega virkni íbúa. Seinna markmiðið er að sjálfstjórn og ábyrgð sveitarfélaga verði virt og tryggð verði sem jöfnust réttindi og aðgengi íbúa að þjónustu. Skilgreindar hafa verið áherslur við hvort meginmarkmið um sig sem leiða til skilgreindra aðgerða eða til samþættingar við aðgerðir í öðrum opinberum áætlunum.
Aðgerðaáætlun stefnunnar hefur að geyma 18 aðgerðir á sviði fjármála, þjónustu, lýðræðis og stafrænnar umbreytingar. Helstu nýmæli frá fyrri áætlun felast í því að innan hennar eru aðgerðir á ábyrgð annarra ráðuneyta í þágu ungra barna, fólks með fötlun og umhverfis. Rétt eins og í fyrri áætlun ber Samband íslenskra sveitarfélaga einnig ábyrgð á nokkrum aðgerðum, m.a. um lýðræðisvirkni, stafræna umbreytingu og fagteymi vegna eineltis, kynferðislegrar áreitni og kynbundins ofbeldis í garð kjörinna fulltrúa.
Framkvæmd tveggja aðgerða er ekki hafin. Aðgerð 14 um fjölmenningu í starfsliði sveitarfélaga hefur verið á bið meðan unnið var að stefnumótun í málefnum innflytjenda en þar eru aðgerðir sem tala beint inn í aðgerð 14 eins og hún er skilgreind. Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026–2029 verður endurflutt haustið 2026. Tekin verður ákvörðun um næstu skref þegar Alþingi hefur tekið afstöðu til tillögunnar. Þá hefur aðgerð 17 um ábyrgðarskiptingu og samfellda þjónustu verið á bið en margt hefur áunnist í að skýra verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga sl. misseri, m.a. í tengslum við börn með fjölþættan vanda og uppbyggingu hjúkrunarheimila. Þá hefur staðið yfir greining á verkefnum í skýrslunni Gráu svæðin í velferðarþjónustunni sem Samband íslenskra sveitarfélaga gaf út árið 2016. Verkefnunum í skýrslunni verður skipt í þrjá hópa; verkefni sem eru ekki lengur á gráu svæði, verkefni sem þegar er unnið að því að eyða óvissu um og loks verkefni sem þarf að koma í farveg. Þegar greining á skýrslunni liggur fyrir og vitað er hvaða verkefnum á eftir að koma í farveg verður skipaður stýrihópur sem mun hafa það hlutverk að forgangsraða þeim verkefnum og móta um þau aðgerðaáætlun, í samræmi við lýsingu aðgerðarinnar. Ráðgert er að hægt verði að hefja þá vinnu veturinn 2026–2027.
Framkvæmd tveggja aðgerða er lokið. Aðgerð 5 um endurskoðun regluverks um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga lauk með samþykkt nýrra heildarlaga um sjóðinn á Alþingi í júlí 2025. Markmið með nýju lögunum eru að bæta gæði jöfnunar, einfalda útreikninga og skipulag sjóðsins og tryggja að sjóðurinn fylgi þróun sveitarfélagagerðar. Þá er vinnu við aðgerð 7 um kortlagningu á aðgerðum sveitarfélaga á sviði umhverfis- og loftslagsmála lokið. Þegar er hafin vinna hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga sem byggir á niðurstöðum kortlagningarinnar og má vænta þess að aðgerðinni verði framhaldið í uppfærðri mynd í endurskoðaðri stefnu ríkisins í málefnum sveitarfélaga.
Framkvæmd annarra aðgerða er hafin og er vinna við nokkrar þeirra langt komin. Sem dæmi má nefna frumvarp til nýrra sveitarstjórnarlaga sem innviðaráðherra mælti fyrir í mars 2026. Ekki náðist að ljúka afgreiðslu frumvarpsins fyrir þinglok en frumvarpið var endurflutt í september 2026. Fjórar aðgerðir tengjast frumvarpinu, fyrst og fremst aðgerð 2 um endurskoðun sveitarstjórnarlaga en einnig aðgerð 4 um endurskoðun fjármálaviðmiða sveitarfélaga, aðgerð 6 um feril kostnaðarmats lagafrumvarpa og annarrar stefnumótunar þegar kostnaður gæti fallið á sveitarfélögin og aðgerð 12 um lágmarksþjónustu sveitarfélaga. Unnið er að endurskoðun tekjustofna sveitarfélaga sbr. aðgerð 3, m.a. með frumvarpi um breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem lagt verður fram á Alþingi snemma árs 2027. Með frumvarpinu verða lagðar til viðeigandi breytingar á lögum með það að markmiði að tryggja nærsamfélagi sanngjarnari hlutdeild en nú er í ávinningi vegna raforkuframleiðslu. Framkvæmd aðgerðar 1 um mótun viðmiða um sjálfbæra þróun sveitarfélaga á sviði fjármála, umhverfis og samfélags er komin vel á veg. Starfshópur innviðaráðherra sem er skipaður fulltrúum hans, fjármála- og efnahagsráðuneytis, umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytis, auk þriggja fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur unnið drög að viðmiðum sem voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda í október 2026, ásamt reiknilíkani fyrir sveitarfélög þar sem þau geta mátað sig við viðmiðin sem gefa til kynna hvort þau hafi nauðsynlegar forsendur til að þróast með sjálfbærum hætti til lengri tíma. Unnið hefur verið að aðgerð 18 um vellíðan ungra barna og barnafjölskyldna innan aðgerðahóps forsætisráðuneytisins um tæklun umönnunarbilsins frá fæðingarorlofi til leikskóla. Aðgerðahópurinn skilaði skýrslu sinni í desember 2025 með tillögu að tímasettri áætlun um brúun umönnunarbilsins en ekki hefur verið tekin ákvörðun um næstu skref. Þá er hafin framkvæmd á flestum þeim aðgerðum sem Samband íslenskra sveitarfélaga ber ábyrgð á, s.s. aðgerð 8 um aukna lýðræðisþátttöku, aðgerð 9 um mótun fagteymis vegna kynferðislegrar og kynbundinnar áreitni, aðgerð 13 um þróun þjónustu sveitarfélaga og aðgerð 16 um stafræna umbreytingu sveitarfélaga.
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.
Þingsályktun 12/153 um tónlistarstefnu fyrir árin 2023–2030.
3. maí 2023, þskj. 1684 á 153. lögþ.
Tillaga til þingsályktunar um tónlistarstefnu fyrir árin 2023–2030 byggist á tillögum starfshóps sem ráðherra menningarmála skipaði 1. desember 2020 og skilaði skýrslu sinni vorið 2021. Hlutverk starfshópsins var að rýna umhverfi tónlistargeirans á Íslandi, skoða hvernig stuðnings- og sjóðakerfi tónlistar væri best skipulagt, leggja drög að tónlistarstefnu og skilgreina hlutverk og ramma tónlistarmiðstöðvar, sem ráðgert var að setja á laggirnar.
Skýrsla starfshópsins fól m.a. í sér drög að tónlistarstefnu og upplegg fyrir nýjan tónlistarsjóð. Á grunni þeirrar skýrslu var unnið að frekari mótun tónlistarstefnu með aðkomu hagaðila og annarra aðila tengdum menningu og listum. Við mótun stefnunnar var hliðsjón höfð af öðrum tengdum stefnum og sérstaklega menningarsókn sem er aðgerðaáætlun um listir og menningu til ársins 2030.
Í tónlistarstefnunni var lögð fram aðgerðaáætlun í 32 liðum og hefur henni verið hrint í framkvæmd. Vel flestar aðgerðirnar eru vel á veg komnar og ber þar hæst stofnun Tónlistarmiðstöðvar og sameiningu tónlistarsjóðs, hljóðritasjóðs og útflutningssjóðs íslenskrar tónlistar í einn deildaskiptan tónlistarsjóð sem styrkir fjölbreyttari verkefni en áður var. Endurskoðun aðalnámskrár tónlistarskólanna er í vinnslu og tónlistarráð hefur verið skipað til að vera stjórnvöldum innan handar í málefnum tónlistar og taka þátt í mótun stefnu Tónlistarmiðstöðvar. Aðgerðir tengdar stuðningi við útflutning íslenskrar tónlistar fara fram í gegnum tónlistarsjóð og Tónlistarmiðstöð hefur umsýslu með því verkefni.
Þingsályktun 14/153 um myndlistarstefnu til 2030.
23. maí 2023, þskj. 1762 á 153. lögþ.
Þingsályktun um myndlistarstefnu til 2030 var samþykkt á Alþingi 10. maí 2023. Þingsályktunin og útgefin stefna byggir á vinnu verkefnahóps með fulltrúum stjórnvalda og myndlistarlífs, stofnana- og stuðningskerfis, félagasamtaka og atvinnulífs myndlistar sem var falið að móta heildstæða stefnu um málefni myndlistar á Íslandi til ársins 2030.
Í myndlistarstefnunni eru lögð til fjögur meginmarkmið og 18 aðgerðir til að ná meginmarkmiðum stefnunnar. Í meðfylgjandi töflu má sjá framgang aðgerða myndlistarstefnu:
| Aðgerð myndlistarstefnu | Staða |
| 1. Sterk staða myndlistar | Framkvæmd lokið |
| 2. Myndlistarkennsla | Framkvæmd hafin |
| 3. Aukið aðgengi að Listasafni Íslands | Framkvæmd ekki hafin |
| 4. Aukið samstarf um rannsóknir | Framkvæmd hafin |
| 5. Greining á stöðu Listasafns Íslands | Framkvæmd lokið |
| 6. Stofnun Myndlistarmiðstöðvar | Framkvæmd lokið |
| 7. Myndlistarráð verði gert sýnilegra og staða þess styrkt | Framkvæmd lokið |
| 8. Myndlistarsjóður verði efldur | Framkvæmd lokið |
| 9. List í opinberu rými – breytt skipulag og framkvæmd | Framkvæmd hafin |
| 10. Hagvísar | Framkvæmd ekki hafin |
| 11. Skattaumhverfi myndlistar | Framkvæmd hafin |
| 12. Endurskoðuð skilgreining á myndlist í tollalögum | Framkvæmd hafin |
| 13. Endurgreiðslukerfi vegna þátttöku í alþjóðlegum kaupstefnum | Framkvæmd hafin |
| 14. Könnun á mögulegum hvötum til listaverkakaupa fyrirtækja | Framkvæmd hafin |
| 15. Markviss alþjóðleg kynning og þátttaka | Framkvæmd lokið |
| 16. Samstarf og þátttaka í erlendu samstarfi á sviði myndlistar | Framkvæmd lokið |
| 17. Gestavinnustofur | Framkvæmd hafin |
| 18. Höfundaréttarmál | Framkvæmd hafin |
Þingsályktun 15/153 um aðgerðaáætlun um eflingu barnamenningar fyrir árin 2024–2028.
23. maí 2023, þskj. 1840 á 153. lögþ.
Meginmarkmið aðgerðaáætlunarinnar um eflingu barnamenningar var að auka samhæfingu hlutaðeigandi aðila, efla stefnumótun á sviði barnamenningar og samþætta hana við starfsemi opinberra menningarstofnana og -sjóða. Þeir leggi reglulega áherslu á barnamenningu við úthlutanir og hvetji þannig samfélag listafólks til nýsköpunar á þessum vettvangi. Áhersla er jafnframt lögð á aukið framboð lista, menningar og listfræðslu fyrir börn og ungmenni og lagt til að starfsemi barnamenningarverkefnisins List fyrir alla og Barnamenningarsjóðs Íslands verði fest í sessi.
Verkefnið List fyrir alla hefur undanfarinn áratug sinnt því meginhlutverki að miðla listkynningum og menningarverkefnum í skólum landsins, gjarnan í samstarfi við opinberar menningarstofnanir. Listheimsóknir eru þannig orðnar sjálfsagður hluti skólastarfs á meðan skólaskylda varir og reglulegir listviðburðir hluti af daglegu lífi barna og ungmenna.
Barnamenningarsjóður Íslands er nú varanlegur sjóður sem nýtur framlaga af fjárlögum. Meginhlutverk Barnamenningarsjóðs Íslands er að styrkja menningarverkefni fyrir börn og ungmenni, einkum verkefni listamanna, list- og menningartengdra stofnana, félagasamtaka og annarra sem sinna lista- og menningarstarfi í samræmi við opinbera menningarstefnu. Þingsályktunin lagði til að sett yrði á fót Miðstöð barnamenningar sem hafi yfirumsjón með starfsemi barnamenningarverkefnisins List fyrir alla og Barnamenningarsjóðs Íslands, en leitað er annarra leiða til að leysa það verkefni.
Barnamenningarsjóður heyrir undir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið og skipaði ráðherra stjórn Barnamenningarsjóðs. Reglur um starfsemi sjóðsins hafa verið settar og birtar í Stjórnartíðindum. Rannís annast umsýslu og vörslu sjóðsins og úthlutað er úr honum árlega. Framlag til sjóðsins nam um 100 m.kr. árið 2026.
Ekki hefur tekist að tryggja fjármögnun fyrir stofnun Miðstöðvar barnamenningar en leitað er leiða til að fylgja eftir því hlutverki sem miðstöðinni er ætlað samkvæmt þingsályktuninni. Unnið er að stefnumótun í málaflokknum og að því að tryggja barnamenningarverkefnið List fyrir alla áfram í sessi á vegum menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins.
Þingsályktun 17/153 um aðgerðaáætlun í málefnum hönnunar og arkitektúrs fyrir árin 2023–2026.
30. maí 2023, þskj. 1893 á 153. lögþ.
Þingsályktun um aðgerðaáætlun í málefnum hönnunar og arkitektúrs fyrir árin 2023–2026 var samþykkt á Alþingi í lok maí 2023. Unnið er að framgangi alls 14 aðgerða áætlunarinnar.
Í meðfylgjandi töflu má sjá yfirlit yfir stöðu aðgerðanna:
| Aðgerð | Staða | Ábyrgð |
| 1. Efling Hönnunarsjóðs | Framkvæmd hafin | MNH |
| 2. Skilgreining mælikvarða og miðlun virðisauka hönnunar | Framkvæmd hafin | MNH |
| 3. Virkjun hönnunardrifinnar nýsköpunar | Framkvæmd hafin | MNH |
| 4. Lög um málefni hönnunar og arkitektúrs | Framkvæmd ekki hafin | MNH |
| 5. Aukning hlutar hönnuða í úthlutun listamannalauna | Framkvæmd lokið | MNH |
| 6. Samfélagsleg nýting hönnunardrifinnar nýsköpunar | Framkvæmd lokið | MNH |
| 7. Aukið vægi hönnunar í útboðum og samkeppnum | Framkvæmd hafin | Ríkiskaup |
| 8. Heildstæð stefnumótun í mannvirkjagerð | Framkvæmd hafin | IRN |
| 9. Miðlægur rannsóknavettvangur fyrir innviði | Framkvæmd hafin | IRN |
| 10. Aukið framboð náms og endurmenntunar í hönnunargreinum | Framkvæmd hafin | MNH |
| 11. Verndun, miðlun og rannsóknir á menningararfi íslensks arkitektúrs | Framkvæmd lokið | MNH |
| 12. Safnafræðsla í Hönnunarsafni Íslands | Framkvæmd lokið | MNH |
| 13. Fræðsla um höfundarétt og hönnunarvernd | Framkvæmd hafin | MNH |
| 14. Þátttaka í Feneyjatvíæringnum í arkitektúr | Framkvæmd lokið | MNH |
Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Þingsályktun 4/154 um framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar 2023–2027.
11. desember 2023, þskj. 723 á 154. lögþ.
Mennta- og barnamálaráðherra skal leggja fyrir Alþingi framkvæmdaáætlun til fjögurra ára í senn að loknum sveitarstjórnarkosningum sbr. 5. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002. Þingsályktun um framkvæmdaáætlun í barnavernd 2023–2027 er byggð á markmiðum barnaverndarlaga sem eru að tryggja börnum viðunandi uppeldisskilyrði og veita börnum sem búa við óviðunandi aðstæður og börnum sem stofna heilsu sinni og þroska í hættu nauðsynlega aðstoð.
Í framkvæmdaáætluninni er lögð áhersla á mannréttindi, þátttöku barna og að hver og ein aðgerð taki mið af þeim fjölbreytta hópi barna og fjölskyldna sem barnavernd þjónustar. Þá miða aðgerðir framkvæmdaáætlunarinnar að umfangsmiklum úrbótum í þjónustu við börn og fjölskyldur til að mynda með því að samhæfa verklag fyrir barnaverndarþjónustu á Íslandi og styrkja meðferðarúrræði barnaverndar.
Áhersla er lögð á tíu aðgerðir og eru margar af þeim nú þegar hafnar, komnar vel á veg eða þeim lokið. Í því samhengi er vert að nefna að vinna við heildarendurskoðun barnaverndarlaga er á lokametrum og stefnt er að framlagningu frumvarps á komandi haustþingi. Þá er verklag vegna móttöku og þjónustu við fylgdarlaus börn tilbúið og hefur verið birt.
Utanríkisráðuneyti.
Þingsályktun 8/153 um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 69/2021 og nr. 70/2021 um breytingar á XIX. viðauka við EES-samninginn (Neytendavernd) og nr. 270/2022 um breytingu á XXII. viðauka við EES-samninginn (Félagaréttur).
8. mars 2023, þskj. 1276 á 153. lögþ.
Ísland tilkynnti um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða, sbr. 103. gr. EES-samningsins, vegna ákvarðana nr. 69/2021 og nr. 70/2021 hinn 1. febrúar 2024. Ákvarðanirnar öðluðust gildi 1. apríl 2024. Stefnt er að tilkynningu um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða vegna ákvörðunar nr. 270/2022 eins fljótt og auðið er.
Þingsályktun 11/153 um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 59/2021 um breytingu á XI. viðauka (Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið) við EES-samninginn, nr. 145/2022 og nr. 329/2022 um breytingar á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn, nr. 333/2022 um breytingu á X. viðauka (Almenn þjónusta) við EES-samninginn og nr. 337/2022 um breytingu á XI. viðauka (Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið) og bókun 37 (sem inniheldur skrána sem kveðið er á um í 101. gr.) við EES-samninginn.
3. maí 2023, þskj. 1683 á 153. lögþ.
Ísland tilkynnti um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða, sbr. 103. gr. EES-samningsins, vegna ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 59/2021 hinn 1. febrúar 2024 og öðlaðist hún gildi 1. apríl 2024.
Ísland tilkynnti um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða, sbr. 103. gr. EES-samningsins, vegna ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 145/2022 hinn 15. júní 2023 og öðlaðist hún gildi 1. ágúst 2023.
Ísland tilkynnti um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða, sbr. 103. gr. EES-samningsins, vegna ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 329/2022 hinn 26. maí 2023 og öðlaðist hún gildi 1. október 2024.
Ísland tilkynnti um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða, sbr. 103. gr. EES-samningsins, vegna ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 337/2022 hinn 21. maí 2024 og öðlaðist hún gildi 1. maí 2025.
Stefnt er að tilkynningu um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða vegna ákvörðunar nr. 333/2022 eins fljótt og auðið er.
Þingsályktun 1/154 um afstöðu Íslands vegna átaka fyrir botni Miðjarðarhafs.
9. nóvember 2023, þskj. 522 á 154. lögþ.
Þingsályktunartillagan var lögð fram af utanríkismálanefnd Alþingis en tilefnið var hryðjuverkaárás Hamas-samtakanna á Ísrael 7. október 2023 og viðbrögð Ísraelsríkis við henni.
Vopnahlé tók gildi á Gaza í október 2025. Öllum gíslum Hamas-samtakanna hefur verið sleppt úr haldi og mannúðaraðstoð til Gaza hefur aukist en er þó langt frá því að uppfylla þarfirnar. Frá því að hernaðaraðgerðir Ísraels á Gaza hófust í október 2023 hefur mannfall í röðum óbreyttra palestínskra borgara í aðgerðum Ísraelshers verið mikið, en talið er að hátt í 250 þúsund manns hafi annað hvort slasast eða verið drepin. Gríðarleg eyðilegging á innviðum hefur orðið á Gaza og mikil og viðvarandi neyð skapast.
Í samræmi við ályktun Alþingis hefur Ísland ítrekað kallað eftir óheftu aðgengi neyðaraðstoðar og annarra nauðþurfta og undantekningalausri virðingu við alþjóðalög. Þá hefur verið margítrekuð sú krafa að Hamas léti alla gísla sína lausa og legði niður vopn. Utanríkisráðherra hefur markvisst beitt rödd Íslands í þessa veru og hefur Ísland átt aðild að fjölda yfirlýsinga þessa efnis í hópi líkt þenkjandi ríkja. Ísland studdi til að mynda ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 2803 um að hrinda friðaráætluninni fyrir Gaza í framkvæmd, sem og New York-yfirlýsinguna þar sem meðal annars er kallað eftir varanlegu vopnahléi á Gaza, tafarlausu mannúðaraðgengi, umsvifalausri frelsun gísla og stuðningi við mannúðarstarf til að koma í veg fyrir hungursneyð og enduruppbyggingu svæðisins eftir að vopnahléi hefur verið komið á. Ísland hlaut kosningu í mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna í október 2024 og tók þar sæti til þriggja ára frá 1. janúar 2025. Á þeim vettvangi hefur Ísland einnig haldið aðalatriðum ályktunarinnar á lofti, þ. á m. í árlegum ávörpum utanríkisráðherra og reglubundnum ávörpum Íslands í ráðinu.
Í ályktun Alþingis var áréttuð skýr krafa um að alþjóðalögum sé fylgt og brot rannsökuð til hlítar og hafa stjórnvöld fylgt þessu ákalli eftir. Í febrúar 2025 skilaði Ísland skriflegri greinargerð til Alþjóðadómstólsins í Haag í ráðgefandi álitsmáli sem allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna beindi til dómstólsins um lagalegar skyldur Ísraels til að tryggja viðveru og starfsemi Sameinuðu þjóðanna, annarra alþjóðastofnana og þriðju ríkja á og í tengslum við hernumin svæði Palestínu. Þá ákváðu stjórnvöld jafnframt að Ísland gerist meðalgönguaðili að máli Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum vegna meintra brota á hópmorðssáttmálanum í átökunum á Gaza. Yfirlýsing þess efnis var afhent dómstólnum 11. mars 2026 og var unnin í samstarfi utanríkisráðuneytisins við tvo af helstu fræðimönnum Íslands á sviði þjóðaréttar, dr. Þórdísi Ingadóttur prófessor við Háskólann í Reykjavík og dr. Kára Hólmar Ragnarsson dósent við Háskóla Íslands. Tilgangur málflutnings Íslands er að koma á framfæri lögfræðilegri afstöðu Íslands til þess hvernig túlka skuli hernaðaraðgerðir í vopnuðum átökum í samhengi hópmorðssáttmálans. Einnig er lögð áhersla á að sérstakt mið verði að taka af áhrifum á konur og börn í því samhengi. Yfirlýsingunni verður fylgt eftir með ítarlegri greinargerð á síðari stigum málsins.
Í ályktuninni var ríkisstjórninni jafnframt falið að beita sér fyrir viðbótarframlagi til mannúðaraðstoðar. Í því skyni hafa íslensk stjórnvöld á undanförnum árum verulega aukið stuðning sinn við verkefni stofnana Sameinuðu þjóðanna í Palestínu á sviði mannúðaraðstoðar. Helst má þar nefna stuðning við Palestínuflóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna (UNRWA), en framlög til hennar á tímabilinu 2025–2026 nema 588,3 milljónum króna. Á sama tímabili hafa íslensk stjórnvöld veitt 160 milljónum króna til Samhæfingarskrifstofu aðgerða Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum (OCHA) og 60 milljónum króna til Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP). Aðrar stofnanir sem fengu stuðning á sama tímabili voru m.a. Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) og tvenn palestínsk félagasamtök, Women's Center for Legal Aid and Counselling (WCLAC) og Palestinian Medical Relief Society (PMRS), sem starfa að heilbrigðismálum og jafnréttismálum.
Auk framlaga til mannúðaraðstoðar hafa íslensk stjórnvöld einnig veitt stuðning til enduruppbyggingar í Palestínu, einna helst á Gaza, ásamt stuðningi við heimastjórn Palestínu. Í lok árs 2025 hófu íslensk stjórnvöld stuðning við heimastjórn Palestínu í gegnum Palestínusjóð Alþjóðabankans (e. Palestinian Fund for Reconstruction and Development, PFRD), með samningi til þriggja ára með árlegu framlagi sem nemur 200 milljónum króna. Er þetta liður í stuðningi íslenskra stjórnvalda við tveggja ríkja lausnina og virkri þátttöku í ríkjabandalagi þess efnis (e. Global Alliance for the Implementation of the Two-State Solution). Árið 2024 gerðu íslensk stjórnvöld samning við innviðasjóð Alþjóðabankans fyrir Palestínu fyrir tímabilið 2024–2028 með árlegu framlagi sem nemur um 50 milljónir króna og snýr að uppbyggingu grunninnviða á Vesturbakkanum. Í september 2026 hófu íslensk stjórnvöld stuðning við enduruppbyggingarsjóð Sameinuðu þjóðanna fyrir Palestínu (e. UN Horizon Fund) með 100 milljón króna framlagi sem nýtist til snemmbúinna enduruppbyggingarverkefna á vegum undirstofnana SÞ á Gaza. Framangreindur stuðningur er innan ramma fjárlaga.
Þingsályktun 5/154 um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands fyrir árin 2024–2028.
15. desember 2023, þskj. 811 á 154. lögþ.
Þingsályktunartillagan var lögð fram af utanríkisráðherra í samræmi við lög nr. 121/2008 um alþjóðlega þróunarsamvinnu þar sem kveðið er á um að ráðherra skuli leggja fram stefnu í málaflokknum á fimm ára fresti ásamt aðgerðaáætlun til tveggja ára í senn. Utanríkisráðuneytið hefur því starfað á grundvelli stefnunnar frá 1. janúar 2024. Við framkvæmdina hefur verið byggt á aðgerðaáætlun 2024–2025 ásamt því sem unnið hefur verið að því að koma nýjum og skerptum áherslum í framkvæmd. Í stefnunni er lögð sérstök áhersla á stuðning við fjóra málaflokka; mannréttindi og jafnrétti kynjanna, mannauð og grunnstoðir samfélaga, loftslagsmál og náttúruauðlindir auk mannúðaraðstoðar og starfs í þágu stöðugleika og friðar. Mannréttindi og jafnrétti kynjanna annars vegar og loftslags- og umhverfismál hins vegar eru jafnframt þverlæg málefni sem tekið er tillit til í öllu starfi. Ísland starfar með fjölbreyttum aðilum við framkvæmd stefnunnar, þ.e. tvíhliða samstarfslöndum, fjölþjóðlegum stofnunum, félagasamtökum, GRÓ Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu, aðilum atvinnulífs og fræðasamfélaginu. Með alþjóðlegri þróunarsamvinnu leggja íslensk stjórnvöld sitt af mörkum í baráttunni gegn fátækt og fyrir bættum lífsskilyrðum í fátækustu löndum heims og er hún mikilvægur þáttur í að Ísland uppfylli pólitískar, lagalegar og siðferðilegar skyldur sínar sem ábyrg þjóð í samfélagi þjóðanna.
Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 er gert ráð fyrir að framlög til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu verði 16,7 milljarðar króna, samanborið við 16,4 milljarða króna árið 2026. Þetta er jafnframt í samræmi við þróun undanfarinna ára, þar sem framlög Íslands til þróunarsamvinnu hafa hækkað að nafnvirði á sama tíma og mörg önnur OECD-ríki hafa dregið úr framlögum sínum til þróunaraðstoðar. Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu fyrir 2027 nema framlögin um 0,30% af vergum þjóðartekjum og um 0,33% þegar tekið er tillit til framlaga sem gert er ráð fyrir að renni til þróunarsamvinnu undir öðrum málaflokkum. Í þingsályktuninni var gert ráð fyrir að hlutfallið yrði 0,43% árið 2027. Þótt hlutfall framlaga verði því lægra árið 2027 en gert var ráð fyrir í stefnunni hafa framlög aukist að nafnvirði og áfram verður unnið að markmiðum stefnunnar með hliðsjón af fjárhagslegum forsendum hverju sinni. Ákvörðun um umfang framlaga er tekin við gerð fjármálaáætlunar og fjárlaga með hliðsjón af þróun heimsmála og fjárhagslegum forsendum hverju sinni og er fjárveiting síðan samþykkt af Alþingi.
Utanríkisráðherra mun á 158. löggjafarþingi gera grein fyrir framkvæmd stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2024–2028, þar á meðal aðgerðaáætlunar 2024–2025, og leggja fram aðgerðaáætlun fyrir árin 2026–2028.
Þingsályktanir frá 2023 þar sem framkvæmd telst lokið og umfjöllun er óbreytt frá síðustu skýrslu.
– Þingsályktun 10/153 um aukið aðgengi að hjálpartækjum fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, 23. mars 2023, 153. lögþ.
Fjármála- og efnahagsráðuneyti.
– Þingsályktun 23/153 um fjármálaáætlun fyrir árin 2024–2028, 9. júní 2023, 153. lögþ.
Utanríkisráðuneyti.
– Þingsályktun 18/153 um kaup á færanlegu neyðarsjúkrahúsi fyrir Úkraínu, 31. maí 2023, þskj. 1911, 153. lögþ.
– Þingsályktun 3/154 um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 190/2022 frá 10. júní 2022 um breytingu á XI. viðauka (Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið), nr. 191/2022 frá 10. júní 2022 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi), nr. 17/2023 frá 3. febrúar 2023 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og nr. 50/2023 frá 17. mars 2023 um breytingu á V. viðauka (Frjáls för launþega) og VIII. viðauka (Staðfesturéttur) við EES-samninginn, 5. desember 2023, þskj. 383, 154. lögþ.
Yfirlit yfir framkvæmd ályktana Alþingis frá árinu 2022.
Forsætisráðuneyti.
Þingsályktun 20/152 um minnisvarða um eldgosið á Heimaey.
13. júní 2022, þskj. 1227 á 152. lögþ.
Þingsályktunartillagan var lögð fram af forsætisráðherra og mælti fyrir um að forsætisráðherra yrði falið að skipa nefnd til að undirbúa kaup á minnisvarða í tilefni þess að á árinu 2023 yrðu 50 ár liðin frá Heimaeyjargosinu. Tillagan var samþykkt á Alþingi í júní 2022 og í kjölfarið skipuð undirbúningsnefnd með tveimur fulltrúum skv. tillögu bæjarstjórnar Vestmannaeyjabæjar, tveimur tilnefndum af Alþingi og einum án tilnefningar, sem jafnframt gegndi formennsku í nefndinni. Tekin var ákvörðun um að ráðast í gerð minnisvarða á grundvelli hugmyndar listamannsins Ólafs Elíassonar.
Verkið hefur nú verið sett upp og var það afhjúpað við athöfn í mars 2026. Samhliða uppsetningu listaverksins hefur verið unnið að uppbyggingu aðkomu og gönguleiða á svæðinu. Framkvæmdir við bílastæði og göngustíg frá bílastæði að listaverkinu eru langt komnar. Fyrirliggjandi hönnun gerir ráð fyrir að stígurinn að listaverkinu verði aflíðandi og bæti þannig aðgengi að því. Hönnun göngustígs frá listaverkinu að fyrirliggjandi vegi/slóða í átt að Eldfelli er jafnframt á lokastigi. Hringlaga gönguleiðin á Eldfell, sem er órjúfanlegur hluti af heildarhugmynd listaverksins, er enn í hönnun. Um er að ræða umfangsmikla framkvæmd þar sem stígurinn verður að stórum hluta tröppulagður vegna halla og aðstæðna á fjallinu. Verkfræðingar vinna nú að útfærslu á tæknilegum lausnum, meðal annars varðandi undirstöður. Framkvæmd verkefnisins í heild er því vel á veg komin. Sjálft listaverkið er komið upp og framkvæmdir við bílastæði og aðkomustíg á lokastigi en áfram unnið að fullnaðarhönnun og undirbúningi gönguleiðarinnar um Eldfell.
Nefndarálit með frávísunartillögu um tillögu til þingsályktunar um tímasetta aðgerðaáætlun um einföldun regluverks.
14. júní 2022, þskj. 1292 á 152. lögþ.
Þingsályktunartillagan mælti fyrir um að forsætisráðherra væri falið að hafa forgöngu um að ríkisstjórnin gerði tímasetta aðgerðaáætlun um einföldun regluverks og að við vinnuna yrði miðað við að uppfylla að minnsta kosti markmið stöðuskýrslu ráðgjafarnefndar um opinberar eftirlitsreglur um einföldun gildandi regluverks frá september 2014 og sértækar jafnt sem almennar aðgerðir útlistaðar og tímasettar.
Í nefndaráliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar sagði að í tillögunni fælist að aðgerðaáætlun forsætisráðherra yrði kynnt á vorþingi 2022. Það myndi ekki nást. Meiri hlutinn tæki undir að einfalda þyrfti regluverk en teldi aftur á móti ekki æskilegt að slíkar aðgerðir og gerð áætlana byggðist á stöðuskýrslu sem gerð var fyrir tæplega átta árum. Margt hafði breyst innan íslensks stjórnkerfis og þyrftu slíkar aðgerðir að grundvallast á nýjustu gögnum og upplýsingum sem völ er á. Meiri hlutinn lagði því til að tillögunni yrði vísað til ríkisstjórnarinnar og henni falið að gera úttekt á nauðsyn þess að regluverk yrði einfaldað. Ekki hefur upp á síðkastið verið ráðist í skipulegt átak í þessu efni þvert á ráðuneyti. Við undirbúning lagasetningar er þetta markmið þó ætíð haft í huga. Rétt er að geta þess að forræði á vönduðum löggjafarháttum er nú hjá dómsmálaráðherra.
Atvinnuvegaráðuneytið fer með framkvæmd laga nr. 27/1999, um opinberar eftirlitsreglur, en upphaflega var sú löggjöf á forræði forsætisráðuneytis. Í byrjun aldarinnar var einföldunarstarf í Stjórnarráðinu á köflum tengt þeirri löggjöf og sérstakri ráðgjafarnefnd sem þar var gert ráð fyrir. Með tilkomu samráðsgáttar stjórnvalda og aukinna krafna og gátlista við gerða lagafrumvarpa og reglugerða, m.a. um nauðsyn og tilgang, hefur almennt dregið úr vægi laga nr. 27/1999. Víða er í almennri stefnumótun kveðið á um einföldun regluverks á tilgreindum sviðum (samanber til hliðsjónar orkustefnu, nýsköpunarstefnu, ferðamálastefnu, loftslagsstefnu og matvælastefnu).
Í atvinnustefnu Íslands, sem unnin var undir forystu forsætisráðuneytisins og kom út í apríl 2026, fjallar ein af fimm almennum stefnuáherslum um einföldun regluverks. Þá er einnig að finna sérstaka aðgerð forsætisráðuneytisins í aðgerðaáætlun atvinnustefnu fyrir árin 2026–2027 sem snýr að kerfisbundinni einföldun regluverks fyrir íslenskt atvinnulíf.
Dómsmálaráðuneyti.
Þingsályktun 21/152 um aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks fyrir árin 2022–2025.
13. júní 2022, þskj. 1228 á 152. lögþ.
Þingsályktun um aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks fyrir árin 2022–2025 rann sitt skeið á enda í lok árs 2025. Aðgerðir innan aðgerðaáætlunarinnar stuðluðu að margþættum réttarbótum í málaflokknum. Sem dæmi má nefna að hatursorðræða á grundvelli kyneinkenna var gerð refsiverð með breytingum á 233. gr. a í almennum hegningarlögum. Þá gekk í gildi reglugerð um blóðskimanir í því skyni að undirbúa afnám banns við blóðgjöf karla sem stunda kynlíf með öðrum körlum. Langflestum aðgerðum innan aðgerðaáætlunarinnar var lokið í lok ársins. Unnið var að nýrri aðgerðaáætlun í málefnum hinsegin fólks á árinu 2025. Sú aðgerðaáætlun tekur til áranna 2026–2029.
Félags- og húsnæðismálaráðuneyti.
Þingsályktun 29/152 um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2022
–
2025.
16. júní 2022, þskj. 1364 á 152. lögþ.
Framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2022–2025 var samþykkt á Alþingi í júní árið 2022 og gilti fyrir árin 2022–2025 en hún var lögð fram á Alþingi af félags- og vinnumarkaðsráðherra í samræmi við 7. gr. laga um málefni innflytjenda, nr. 116/2012. Í áætluninni voru 34 aðgerðir og var gerð grein fyrir framgangi áætlunarinnar og stöðu í málefnum innflytjenda í skýrslu félags- og húsnæðismálaráðherra til Alþingis „Staða og þróun í málefnum innflytjenda 2022–2025“ sem lögð var fram samhliða tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026–2029 á 157. löggjafarþingi.
Heilbrigðisráðuneyti.
Þingsályktun 26/152 um stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030.
15. júní 2022, þskj. 1382 á 152. lögþ.
Þingsályktunartillaga heilbrigðisráðherra um stefnu í geðheilbrigðismálum til ársins 2030 var samþykkt á Alþingi þann 15. júní 2022. Tillögunni er ætlað að styrkja stefnumótun á sviðinu og tekur mið af ályktunum Alþingis um heilbrigðisstefnu og lýðheilsustefnu og er í henni lögð áhersla á grunngildi sem hvetja til einstaklingsmiðaðrar heilbrigðisþjónustu og stuðning við heilsueflingu á öllum æviskeiðum. Efni þingsályktunarinnar skiptist í fjóra áhersluþætti og er ítarlega fjallað um hvern og einn þeirra í greinargerð.
Til að hrinda stefnunni í framkvæmd verða gerðar áætlanir um aðgerðir til fimm ára í senn í samráði við helstu hagsmunaaðila.
Innviðaráðuneyti.
Þingsályktun 27/152 um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022–2036.
15. júní 2022, þskj. 1383 á 152. lögþ.
Í samræmi við lög um byggðaáætlun og sóknaráætlanir, nr. 69/2015, lagði innviðaráðherra fram á Alþingi stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2022–2036 sem samþykkt var einróma í júní 2022. Í henni er sett fram aðgerðaáætlun fyrir árin 2022–2026 þar sem skilgreindar eru 44 aðgerðir. Öll ráðuneyti hafa beina aðkomu að aðgerðaáætluninni þar sem þau bera ábyrgð á minnst einni aðgerð hvert. Framkvæmdin gengur vel og allar aðgerðir eru hafnar, og 18 aðgerðum þegar lokið. Á vef innviðaráðuneytis er að finna upplýsingar um stöðu allra aðgerðanna.
Í desember 2025 lagði innviðaráðherra skýrslu fyrir Alþingi um framkvæmd byggðaáætlunar fyrir árin 2022–2025. Þar er upplýst um framvindu allra 44 aðgerða áætlunarinnar.
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.
Þingsályktun 22/152 um framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2021.
13. júní 2022, þskj. 1229 á 152. lögþ.
Í þingsályktun Alþingis um framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2021 er skorað á ríkisstjórnina að vinna að framkvæmd tveggja ályktana Vestnorræna ráðsins sem samþykktar voru á ársfundi ráðsins 1. september 2021, um aukið vestnorrænt samstarf á vettvangi umhverfis- og loftslagsmála (nr. 1/2021) og um samstarf vestnorrænna háskóla um fjarkennslu (nr. 2/2021). Í ályktun Vestnorræna ráðsins nr. 2/2021 hvetja menntamálaráðherrar Íslands, Grænlands og Færeyja til aukins samstarfs landanna þriggja um háskólamenntun með hjálp fjarkennslu. Tækniþróun, bætt fjarskipti og aukin reynsla af fjarkennslu hefur undanfarin ár gjörbreytt möguleikum íbúa strjálbýlla svæða til að sækja sér fjölbreytta háskólamenntun. Fjarnám getur haft jákvæð áhrif á þroska einstaklinga, búsetu í heimabyggð og þannig á heilbrigði samfélaga á norðurslóðum. Með það í huga er hvatt til þess að menntamálaráðherrar landanna þriggja skoði möguleika á að innleiða fjarnám í samstarfi háskóla í löndunum þremur.
Í ljósi lögbundins sjálfstæðis háskóla samkvæmt lögum um háskóla, nr. 63/2006, koma stjórnvöld ekki með beinum hætti að ákvörðunum íslenskra háskóla um framboð fjarnáms í Grænlandi og Færeyjum, sbr. 3. mgr. 2. gr. laganna. Hlutverk stjórnvalda er að styðja við eflingu háskólanáms, sem getur m.a. falið í sér eflingu á alþjóðlegu starfi háskóla í samstarfi við aðra erlenda háskóla.
Með gildistöku reglna um fjárframlög til háskóla, nr. 755/2024, var komið á fót nýju og árangurstengdu fyrirkomulagi við fjármögnun háskóla. Fyrirkomulagið getur stutt við markmið ályktunar Vestnorræna ráðsins nr. 2/2021. Fjárveitingar til kennslu og rannsókna ráðast meðal annars af því hvernig háskólar sinna byggðahlutverki með framboði staðnáms á landsbyggðinni. Þá er sérstaklega gert ráð fyrir eflingu fjarnáms um allt land í samræmi við áherslur í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og markmið gildandi fjármálaáætlunar.
Utanríkisráðuneyti.
Nefndarálit með frávísunartillögu um tillögu til þingsályktunar um vistmorð (sameiginleg með dómsmálaráðuneyti og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti).
15. júní 2022 þskj. 1330 á 152. lögþ.
Utanríkisráðuneyti hefur falið sendiskrifstofum að fylgjast með framvindu og umfjöllun um málefnið, m.a. mögulegum undirbúningi löggjafar eða stefnumörkunar í líkt þenkjandi samstarfsríkjum, auk umfjöllunar hjá alþjóðastofnunum og í fjölþjóðasamstarfi. Belgía setti vistmorð, þröngt skilgreint, í hegningarlög árið 2024, en er svo vitað sé eina ríkið sem tekið hefur slíkt skref nýlega þótt virk umræða sé um málið í fleiri ríkjum, þar með talið í Evrópu. Einnig er vitað til þess að Úkraína, sem lengi hefur haft ákvæði í hegningarlögum sem svipar til vistmorðs, hafi undanfarið rannsakað eyðileggingu Kakhovka-stíflunnar af hálfu Rússa 2023, á grundvelli þess ákvæðis. Auk þess kemur málefnið til umfjöllunar eftir atvikum í samráði norrænna utanríkisráðuneyta. Á vettvangi aðildarríkjaþings Alþjóðlega sakamáladómstólsins hefur Vanúatú lagt fram formlega breytingartillögu til að skilgreina vistmorð sem alþjóðaglæp. Efnisleg rýni og umfjöllun tillögunnar er enn ekki hafin meðal undirstofnana aðildarríkjaþingsins. Hefur því ekki verið tilefni til frekara samráðs innan stjórnkerfisins að svo stöddu. Áfram verður fylgst með málinu.
Þingsályktun 4/153 um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 396/2021 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál), nr. 398/2021 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og XX. viðauka (Umhverfismál), nr. 49/2022 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun), nr. 77/2022 um breytingu á X. viðauka (Almenn þjónusta) og XIII. viðauka (Flutningastarfsemi), og nr. 78/2022 og nr. 155/2022 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn.
6. desember 2022, þskj. 724 á 153. lögþ.
Ísland tilkynnti um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða, sbr. 103. gr. EES-samningsins, vegna ákvörðunar nr. 77/2022 hinn 16. júní 2023 og öðlaðist ákvörðunin gildi 1. ágúst 2023. Ísland tilkynnti um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða, sbr. 103. gr. EES-samningsins, vegna ákvörðunar nr. 396/2021 hinn 1. febrúar 2024. Öðlaðist ákvörðunin gildi 1. apríl 2024. Ísland tilkynnti um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða, sbr. 103. gr. EES-samningsins, vegna ákvarðana nr. 398/2021, nr. 78/2022 og nr. 155/2022 hinn 1. febrúar 2024. Öðluðust ákvarðanirnar gildi 1. apríl 2024. Ísland tilkynnti um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða, sbr. 103. gr. EES-samningsins, hinn 1. febrúar 2024, vegna ákvörðunar nr. 49/2022 og öðlaðist ákvörðunin gildi 1. apríl 2024.
Þingsályktun 2/153 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 6/2022 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn.
9. nóvember 2022, þskj. 471 á 153. lögþ.
Ísland tilkynnti um uppfyllingu stjórnskipulegra skilyrða, sbr. 103. gr. EES-samningsins, vegna ákvörðunar nr. 6/2022 hinn 10. mars 2026 og öðlaðist ákvörðunin gildi 11. mars 2026.
Þingsályktanir frá 2022 þar sem framkvæmd telst lokið og
umfjöllun er óbreytt frá síðustu skýrslu.
Forsætisráðuneyti.
– Þingsályktun 6/152 um breytta skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, 27. janúar 2022, þskj. 386 á 152. lögþ.
Fjármála- og efnahagsráðuneyti.
– Nefndarálit með frávísunartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um vexti og verðtryggingu og húsaleigulögum (aðgerðir til að sporna við áhrifum verðbólgu á húsnæðislán og húsaleigu), 13. júní 2022, þskj. 1262 á 152. lögþ.
– Þingsályktun 23/152 um fjármálaáætlun fyrir árin 2023–2027, 14. júní 2022, þskj. 1271 á 152. lögþ.
– Þingsályktun 10/152 um fjármálastefnu fyrir árin 2022–2026, 23. febrúar 2022, þskj. 564 á 152. lögþ.
Heilbrigðisráðuneyti.
– Þingsályktun 25/152 um mótun stefnu í aðdraganda aðgerðaáætlunar í heilbrigðisþjónustu við aldraða til ársins 2030, 15. júní 2022, þskj. 1381 á 152. lögþ.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti.
– Þingsályktun 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, 15. júní 2022, þskj. 1299 á 152. lögþ.
Utanríkisráðuneyti.
– Þingsályktun 1/153 um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 53/2021, nr. 54/2021, nr. 385/2021 og nr. 146/2022 um breytingar á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn. 9. nóvember 2022, þskj. 470 á 153. lögþ.
– Þingsályktun 17/152 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 171/2021 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.
– 30. maí 2022, þskj. 1097 á 152. lögþ.
– Þingsályktun 9/152 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 214/2020 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn. 8. febrúar 2022, þskj. 472 á 152. lögþ.
– Þingsályktun 15/152 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 215/2021 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn. 30. maí 2022, þskj. 1095 á 152. lögþ.
– Þingsályktun 10/152 um fjármálastefnu fyrir árin 2022–2026. 23. febrúar 2022, þskj. 564 á 152. lögþ.
– Þingsályktun 14/152 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 22/2020 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn. 30. maí 2022, þskj. 1094 á 152. lögþ.
– Þingsályktun 16/152 um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 274/2021 um breytingu á XI. viðauka (Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið) og bókun 37 (sem inniheldur skrána sem kveðið er á um í 101. gr.) við EES-samninginn og nr. 275/2021 um breytingu á XI. viðauka (Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið) við EES-samninginn. 30. maí 2022, þskj. 1096 á 152. lögþ.
– Þingsályktun 12/152 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 383/2021 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn. 28. apríl 2022, þskj. 953 á 152. lögþ.
– Þingsályktun 7/152 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 50/2021 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn. 8. febrúar 2022, þskj. 470 á 152. lögþ.
– Þingsályktun 18/152 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 76/2022 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn. 30. maí 2022, þskj. 1098 á 152. lögþ.
– Þingsályktun 8/152 um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 31/2022 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn (lífræn framleiðsla). 8. febrúar 2022, þskj. 471 á 152. lögþ.
– Þingsályktun 11/152 um fullgildingu fríverslunarsamnings Íslands, Konungsríkisins Noregs og Furstadæmisins Liechtenstein og Sameinaða konungsríkisins Stóra-Bretlands og Norður-Írlands. 7. mars 2022, þskj. 633 á 152. lögþ.
– Þingsályktun 13/152 um staðfestingu samninga Íslands við Noreg annars vegar og Danmörku fyrir hönd Færeyja hins vegar um afmörkun landgrunnsins handan 200 sjómílna á svæðinu milli Færeyja, Íslands, meginlands Noregs og Jan Mayen (Síldarsmugan). 30. maí 2022, þskj. 1093 á 152. lögþ.
– Þingsályktun 19/152 um staðfestingu viðbótarsamninga við Norður-Atlantshafssamninginn um aðild Lýðveldisins Finnlands og Konungsríkisins Svíþjóðar. 7. júní 2022, þskj. 1177 á 152. lögþ.
– Þingsályktun 3/153 um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 138/2022 og nr. 249/2022 um breytingar á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og nr. 151/2022 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og bókun 37 (sem inniheldur skrána sem kveðið er á um í 101. gr.) við EES-samninginn. 6. desember 2022, þskj. 723 á 153. lögþ.
– Þingsályktun 5/153 um staðfestingu rammasamnings um fiskveiðar milli ríkisstjórnar Íslands og landsstjórnar Færeyja og samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu árið 2023. 15. desember 2022, þskj. 849 á 153. lögþ.