Lagasafn. Íslensk lög 12. apríl 2024. Útgáfa 154b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald
2007 nr. 85 29. mars
Ferill málsins á Alþingi.
Frumvarp til laga.
Tóku gildi 1. júlí 2007. Breytt með: L. 136/2009 (tóku gildi 1. jan. 2010). L. 18/2010 (tóku gildi 1. júlí 2010). L. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011). L. 77/2011 (tóku gildi 29. júní 2011). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 59/2013 (tóku gildi 1. júlí 2013). L. 51/2014 (tóku gildi 31. maí 2014 nema 3. og 4. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2015). L. 113/2014 (tóku gildi 28. nóv. 2014). L. 67/2016 (tóku gildi 1. jan. 2017; um lagaskil sjá brbákv. I og II). L. 90/2018 (tóku gildi 15. júlí 2018; EES-samningurinn: XI. viðauki reglugerð 2016/679). L. 83/2019 (tóku gildi 6. júlí 2019). L. 90/2021 (tóku gildi 8. júlí 2021).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við
menningar- og viðskiptaráðherra eða
menningar- og viðskiptaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna
hér.
I. kafli.
Gildissvið, markmið og skilgreiningar.
1. gr.
Gildissvið og yfirstjórn.
[Ráðherra]
1) fer með yfirstjórn mála samkvæmt lögum þessum.
Lög þessi taka til:
a. sölu á gistingu,
b. sölu og veitingar hvers kyns veitinga í atvinnuskyni á veitingastöðum og gististöðum og öðrum stöðum, svo sem samkomusölum eða um borð í skipum,
c. tækifærisleyfa vegna skemmtanahalds,
d. útleigu samkomusala í atvinnuskyni.
Lög þessi taka þó hvorki til framleiðslu og dreifingar matvæla, sbr. lög um matvæli, né hollustuhátta, sbr. lög um hollustuhætti og mengunarvarnir. Um veitingu og neyslu áfengis, að öðru leyti en kveðið er á um í lögum þessum, fer eftir ákvæðum áfengislaga.
1)L. 126/2011, 467. gr.
2. gr.
Markmið.
Markmið laga þessara er að tryggja allsherjarreglu í starfsemi veitinga- og gististaða og við skemmtanahald og stuðla að stöðugleika í rekstri, sem og að starfsemi falli að skipulagi viðkomandi sveitarfélags hverju sinni.
3. gr.
Flokkun gististaða.
Gististaðir eru staðir þar sem boðin er gisting [að hámarki í 30 daga samfleytt í senn]
1) gegn endurgjaldi, svo sem á hótelum, gistiheimilum, í gistiskálum, íbúðum og sumarhúsum, með eða án veitinga. [Heimagisting er gisting gegn endurgjaldi á lögheimili einstaklings eða í einni annarri fasteign sem hann hefur til persónulegra nota og er í hans eigu. Fjöldi útleigðra daga í báðum eignum samanlagt skal ekki fara yfir 90 daga á hverju almanaksári eða samanlagðar tekjur af leigu eignanna skulu ekki nema hærri fjárhæð en kveðið er á um í 3. tölul.
4. gr. laga um virðisaukaskatt, nr. 50/1988.]
1)
Heimilt er að gera mismunandi kröfur til starfsemi í rekstrarleyfi samkvæmt lögum þessum og haga gjaldtöku vegna þess eftir tegund og flokkun gististaða.
Flokkun gististaða er sem hér segir:
Flokkur I: |
Heimagisting. |
Flokkur II: |
Gististaður án veitinga. |
Flokkur III: |
Gististaður með veitingum en þó ekki áfengisveitingum. |
Flokkur IV: |
[Gististaður með áfengisveitingum.]1) |
Í reglugerð er heimilt að kveða nánar á um einstakar tegundir gististaða, flokkun þeirra og búnað.
1)L. 67/2016, 1. gr.
4. gr.
Flokkun veitingastaða.
Veitingastaðir eru staðir þar sem eitthvað af eftirfarandi á við:
a. Framreiddur er matur og/eða drykkur sem boðinn er viðskiptavinum í atvinnuskyni, til neyslu á staðnum, þar með taldir skemmtistaðir þar sem fram fer reglubundið skemmtanahald og samkomusalir sem leigðir eru í atvinnuskyni.
b. Framreiddur er og boðinn til sölu, í atvinnuskyni, matur sem ekki er til neyslu á staðnum, enda er sú starfsemi meginstarfsemi staðarins.
Heimilt er að gera mismunandi kröfur til starfsemi í rekstrarleyfi samkvæmt lögum þessum og haga gjaldtöku þess eftir tegund og flokkun veitingastaða.
Veitingastaðir flokkast með eftirfarandi hætti:
Flokkur I: |
Staðir án áfengisveitinga. |
Flokkur II: |
[Umfangslitlir áfengisveitingastaðir þar sem starfsemin er ekki til þess fallin að valda ónæði í nágrenninu, svo sem með háværri tónlist, og staðir sem kalla ekki á mikið eftirlit og/eða löggæslu.]1) |
Flokkur III: |
[Umfangsmiklir áfengisveitingastaðir, svo sem þar sem leikin er hávær tónlist, og staðir sem kalla á meira eftirlit og/eða löggæslu.]1) |
Á veitingastöðum er hvorki heimilt að bjóða upp á nektarsýningar né með öðrum hætti að gera út á nekt starfsmanna eða annarra sem á staðnum eru. …
2)
Heimilt er í reglugerð að kveða nánar á um einstakar tegundir veitingastaða, flokkun þeirra og búnað.
1)L. 67/2016, 2. gr. 2)L. 18/2010, 1. gr.
II. kafli.
Almenn ákvæði um veitingastaði.
5. gr.
Dvöl ungmenna á veitingastöðum.
Á veitingastað sem leyfi hefur til áfengisveitinga er ungmennum yngri en 18 ára óheimil dvöl eftir kl. 22 á kvöldin og fram til lokunar staðarins nema í fylgd með foreldrum sínum, öðrum forráðamönnum, ættingjum eða maka, 18 ára eða eldri. Dyraverðir, eftirlitsmenn, framreiðslumenn og/eða aðrir sem ábyrgð bera á rekstri staðarins skulu láta ungmenni er koma á slíka staði eða dveljast þar eftir kl. 22 að kvöldi, án framangreindrar fylgdar, sanna aldur sinn með því að sýna skilríki með mynd eða á annan fullnægjandi hátt enda sé ástæða til að ætla að hlutaðeigandi hafi ekki náð 18 ára aldri.
Veita má í reglugerð undanþágu frá reglu 1. mgr. sem tekur til ákveðinna tegunda veitingastaða og sérstakra tilefna, svo sem skóladansleikja, enda fari engar áfengisveitingar þar fram og afgreiðslutími viðkomandi veitingastaðar sé í samræmi við heimilan afgreiðslutíma samkvæmt rekstrarleyfi staðarins, nema sótt hafi verið um tímabundið leyfi skv. [17. gr.]
1)
1)L. 67/2016, 3. gr.
6. gr.
Dyravarsla.
Dyravarsla á veitingahúsum og öðrum samkomum fer eftir flokkun þeirra, tegund, stærð, afgreiðslutíma og hvort um áfengisveitingar er að ræða. [Nánar skal kveða á um [hæfni]
1) og þjálfun dyravarða í reglugerð og er heimilt að kveða þar á um að dyraverðir skuli hafa náð 20 ára aldri, að þeir hafi ekki gerst sekir um ofbeldis- eða fíkniefnabrot á síðastliðnum fimm árum og að dyraverðir skuli sækja sérstök námskeið þar sem farið er yfir atriði sem á reynir við dyravörslu, svo sem ákvæði áfengislaga, hjálp í viðlögum, viðbrögð við óspektum og hvernig þekkja megi merki um neyslu og sölu ólöglegra vímuefna.]
2) Leyfisveitanda er heimilt að binda útgáfu rekstrarleyfis því skilyrði að hluti dyravarða hafi lokið slíku námskeiði.
Nánar skal kveða á um skyldu til dyravörslu og framkvæmd námskeiða í reglugerð.
1)L. 67/2016, 4. gr. 2)L. 113/2014, 1. gr.
III. kafli.
[Leyfisveitingar og skráningarskylda.]1)
1)L. 67/2016, 11. gr.
7. gr.
Leyfisskylda.
[Sá sem hyggst stunda starfsemi sem fellur undir gistiflokka II–IV og veitingastaðaflokka II og III skal hafa til þess rekstrarleyfi útgefið af leyfisveitanda.]
1) Í rekstrarleyfi getur falist leyfi til sölu gistingar og/eða veitingar og sölu veitinga, hvort sem er í mat eða drykk, bæði áfengra og óáfengra, og/eða útleigu samkomusala í atvinnuskyni.
Rekstrarleyfið skal tilgreina þann flokk og þá tegund staðar sem starfsemi fellur undir og leyfi fæst fyrir.
[Leyfisveitendur samkvæmt lögum þessum eru sýslumenn.]
2)
Leyfishafi skal hafa leyfisbréf til leyfisskyldrar starfsemi samkvæmt lögum þessum sýnilegt fyrir viðskiptavinum þar sem leyfisskyld starfsemi fer fram.
1)L. 67/2016, 5. gr. 2)L. 51/2014, 12. gr.
8. gr.
Skilyrði sem umsækjandi þarf að uppfylla.
Til þess að öðlast rekstrarleyfi þarf umsækjandi og/eða forsvarsmaður umsækjanda ef hann er lögaðili að uppfylla eftirfarandi skilyrði og framvísa nauðsynlegum vottorðum því til staðfestingar:
a. Hafa búsetu á Íslandi. [Ríkisborgarar og lögaðilar …
1) ríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins og aðildarríkja stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu, svo og Færeyingar og lögaðilar í Færeyjum, eru undanþegnir búsetuskilyrðinu.]
2)
b. Vera lögráða og hafa náð a.m.k. [18 ára]
3) aldri á umsóknardegi. [Feli rekstrarleyfi í sér heimild til áfengisveitinga skal umsækjandi vera lögráða og hafa náð a.m.k. 20 ára aldri á umsóknardegi.]
3)
c. Hafa forræði á búi sínu.
d. Hafa tilkynnt atvinnurekstur til skráningar hjá [ríkisskattstjóra].
4)
e. Hafa ekki á síðustu fimm árum gerst sekur um háttsemi sem varðar við almenn hegningarlög, lög um ávana- og fíkniefni, lög um hlutafélög, lög um einkahlutafélög, lög um bókhald, lög um ársreikninga, lög um tekjuskatt, lög um virðisaukaskatt, lög um staðgreiðslu opinberra gjalda, lög um tryggingagjald né lög þessi sem og reglur settar samkvæmt tilgreindum lögum.
f. Hafa ekki verið sviptur leyfi til rekstrar gististaðar, veitingastaðar eða áfengisveitinga á síðustu fimm árum frá umsókn.
g. Skulda ekki skatta, opinber gjöld eða iðgjöld í lífeyrissjóð sem nema samanlagt hærri fjárhæð en [1.000.000 kr.]
1)
Ákvæði c–g-liðar 1. mgr. gilda jafnt um umsækjanda sem er lögaðili og forsvarsmann umsækjanda.
Heimilt er í reglugerð að kveða nánar á um skilyrði rekstrarleyfis og gögn sem afla þarf.
1)L. 67/2016, 6. gr. 2)L. 77/2011, 1. gr. 3)L. 90/2021, 1. gr. 4)L. 136/2009, 108. gr.
9. gr.
Umsókn.
Umsækjandi um leyfi samkvæmt lögum þessum getur verið hvort sem er einstaklingur eða lögaðili. Ef leyfishafi er lögaðili skal tilgreindur forsvarsmaður sem jafnframt ber ábyrgð á rekstrinum og uppfyllir skilyrði laga þessara.
Umsókn skal vera skrifleg og send leyfisveitanda í því umdæmi þar sem leyfisskyld starfsemi er fyrirhuguð. Sækja skal um rekstrarleyfi vegna sölu veitinga um borð í skipum til leyfisveitanda þar sem heimahöfn skipsins er samkvæmt lögum um skráningu skipa.
Umsóknareyðublað skal vera tiltækt bæði á prentuðu formi hjá leyfisveitanda og rafrænt á heimasíðu hans. Skal þar getið um þau gögn sem fylgja þurfa umsókn.
Heimilt er að skila umsókn rafrænt og skal á umsókn vera heimild til handa umsækjanda að fela leyfisveitanda að afla nauðsynlegra gagna sem fylgja þurfa umsókn rafrænt, þar sem slíkt er mögulegt. Kjósi umsækjandi að nýta sér þessa heimild skal það skoðast sem upplýst samþykki í skilningi laga um persónuvernd og [vinnslu]
1) persónuupplýsinga.
Heimilt er að kveða nánar á um það sem koma þarf fram í umsókn og um fylgigögn með umsókn í reglugerð.
1)L. 90/2018, 54. gr.
10. gr.
Umsóknarferli.
[Útgáfa rekstrarleyfis samkvæmt lögum þessum er háð því að kröfur á grundvelli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir og laga um matvæli séu uppfyllt og, eftir því sem við á, að starfsleyfi sem gefin eru út af heilbrigðisnefndum sveitarfélaga fáist fyrir þeirri starfsemi sem umsókn lýtur að.]
1)
Liggi starfsleyfi heilbrigðisnefndar ekki fyrir þegar sótt er um rekstrarleyfi getur umsækjandi sótt um slíkt leyfi samhliða umsókn um rekstrarleyfi á þar til gerðu eyðublaði sem nálgast má hjá leyfisveitanda, hvort sem er á skrifstofu hans eða heimasíðu. Um umsókn um starfsleyfi fer eftir ákvæðum laga og reglna sem um slík leyfi gilda.
Þegar fullnægjandi umsókn um rekstrarleyfi hefur borist leyfisveitanda skal hann þegar í stað senda umsókn til umsagnaraðila skv. 4. mgr. þrátt fyrir að starfsleyfi liggi ekki fyrir.
Leyfisveitandi skal leita umsagna eftirtalinna aðila í því umdæmi þar sem starfsemi er fyrirhuguð og skulu umsagnir vera skýrar og rökstuddar:
1. [Sveitarstjórnar sem m.a. staðfestir eftirfarandi atriði:
a. að starfsemi sé í samræmi við byggingarleyfi og skipulagsskilmála,
b. að lokaúttekt hafi farið fram á húsnæðinu,
c. að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um,
d. að starfsemi sé í samræmi við ákvæði laga um hollustuhætti og mengunarvarnir og laga um matvæli og, þegar við á, mat heilbrigðisnefndar á grenndaráhrifum starfseminnar, þ.m.t. hljóðvist,
e. að kröfum um brunavarnir sé fullnægt samkvæmt mati slökkviliðs.]
1)
2. …
1)
3. …
1)
4. Vinnueftirlits sem m.a. kannar hvort aðstæður á vinnustað séu í samræmi við ákvæði laga og reglna.
5. …
1)
6. Lögreglu sem m.a. kveður á um nauðsyn til dyravörslu.
Óheimilt er að gefa út rekstrarleyfi ef einhver framangreindra aðila leggst gegn útgáfu leyfisins og skal rekstrarleyfi jafnframt bundið þeim skilyrðum sem fram kunna að koma í umsögnunum.
Leita skal umsagnar [Samgöngustofu]
2) áður en leyfi er veitt til veitingarekstrar um borð í skipi auk annarra umsagna eftir því sem við á.
Heimilt er með reglugerð að kveða nánar á um umsóknarferli vegna rekstrarleyfa, þar á meðal útgáfu leiðbeininga fyrir umsagnaraðila um þau atriði sem umsögn skal lúta að og tímafresti.
1)L. 67/2016, 7. gr. 2)L. 59/2013, 34. gr.
11. gr.
Rekstrarleyfi.
[Rekstrarleyfi til starfsemi samkvæmt lögum þessum skal vera ótímabundið. Leyfishafi skal tafarlaust og í samræmi við 2. mgr. 12. gr. tilkynna leyfisveitanda að hann hyggist hætta hinni leyfisskyldu starfsemi.]
1)
…
1) Rekstrarleyfi er bundið við leyfishafa og er á engan hátt framseljanlegt. Þá er rekstrarleyfið jafnframt bundið við hina tilgreindu starfsemi og staðsetningu.
Í rekstrarleyfi skal koma fram …
1) sú starfsemi sem veitt er leyfi fyrir og þau skilyrði sem sett eru fyrir leyfi, svo sem um gestafjölda, heimilan afgreiðslutíma, heimild til útiveitinga, dyravörslu, hávaða, umgengni, öryggi, þrifnað og annan aðbúnað.
[Í rekstrarleyfi skal koma fram númer sem leyfisveitandi úthlutar leyfishafa. Leyfishafi skal nota númerið í allri markaðssetningu á starfsemi sinni, svo sem í auglýsingum, á vefsíðum og bókunarsíðum, innlendum sem erlendum.]
1)
Heimilt er að binda rekstrarleyfi mismunandi skilyrðum og haga töku leyfisgjalds eftir flokkun og tegund starfsemi. Heimilt er í reglugerð að kveða nánar á um mismunandi kröfur sem gera má til starfsemi og mismunandi skilyrði sem setja má fyrir rekstrarleyfi eftir tegund og flokkun staða og annað það sem koma skal fram í rekstrarleyfi.
1)L. 67/2016, 8. gr.
12. gr.
Breytingar er varða rekstrarleyfi og leyfishafa.
Leyfishafi skal tilkynna leyfisveitanda þegar í stað um fyrirhugaðar breytingar sem varða hina leyfisskyldu starfsemi. Kalli þær á breytingar á skilmálum gildandi rekstrarleyfis skal sótt um slíkar breytingar sérstaklega til leyfisveitanda.
Taki nýr aðili við rekstri sem leyfi er fyrir samkvæmt lögum þessum eða hyggist leyfishafi hætta hinni leyfisskyldu starfsemi skal það tilkynnt leyfisveitanda án tafar. Leyfishafi ber ábyrgð á rekstrinum þar til slík tilkynning hefur borist leyfisveitanda en nýr aðili sem við rekstrinum tekur frá þeim tíma og skal hann þegar í stað sækja um nýtt rekstrarleyfi.
Með umsókn skv. 1.–2. mgr. skal að jafnaði fara eftir ákvæðum 9.–11. gr. eftir því sem við á. Leyfisveitanda er þó heimilt að falla frá öflun umsagna skv. 10. gr. að öllu leyti eða hluta ef um umsókn skv. 2. mgr. er að ræða telji hann slíkt óþarft, svo sem ef ekki er um breytingar að ræða á starfsemi sem rekstrarleyfi tekur til. Um umsókn og skilyrði fyrir rekstrarleyfi fer að öðru leyti samkvæmt ákvæðum laga þessara.
Á meðan umsókn skv. 1.–2. mgr. er til meðferðar má leyfisveitandi gefa út rekstrarleyfi til bráðabirgða með sömu skilmálum og giltu um hið fyrra leyfi, til allt að þriggja mánaða. Að liðnum þriggja mánaða gildistíma bráðabirgðaleyfis verður bráðabirgðaleyfi einungis framlengt ef umsækjanda verður ekki kennt um tafir á útgáfu rekstrarleyfis.
Leyfisveitandi skal tilkynna umsagnaraðilum um nýjan rekstraraðila eftir því sem við á.
…
1) Við gjaldtöku vegna viðbótarstarfsemi skal miða við mismun gjalds vegna upphaflegs rekstrarleyfis og gjalds fyrir rekstrarleyfi eftir breytingu.
1)L. 67/2016, 9. gr.
13. gr.
[Skráningarskylda.
Hver sem hyggst bjóða upp á heimagistingu í samræmi við 1. mgr. 3. gr. skal tilkynna sýslumanni í viðkomandi umdæmi að hann hyggist leigja út lögheimili sitt eða eina aðra fasteign í sinni eigu. Aðila ber að staðfesta við skráningu að húsnæðið uppfylli kröfur í reglugerð um brunavarnir, það hafi hlotið samþykki sem íbúðarhúsnæði og að húsnæðið sé fullnægjandi með tilliti til hollustuhátta samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Endurnýja þarf skráningu á ári hverju og við lok hvers almanaksárs skal aðili með skráða heimagistingu skila til sýslumanns yfirliti yfir þá daga sem húsnæði var leigt út ásamt upplýsingum um leigutekjur. Skil á upplýsingum skv. 1. málsl. er skilyrði fyrir endurnýjun skráningar á næsta almanaksári. Sýslumanni er heimilt að senda upplýsingar skv. 1. málsl. til skattyfirvalda.
Við skráningu heimagistingar skal sýslumaður úthluta aðila númeri skráningar og ber aðila að nota númerið í allri markaðssetningu og kynningu, þ.m.t. á vefsíðum, bókunarsíðum, á sjálfri fasteigninni og í auglýsingum hvers konar.
Um skráningarskylda aðila gilda, eftir því sem við á, ákvæði 19. og 26. gr.
Heimagisting sem uppfyllir skilyrði laga þessara telst ekki fara fram í atvinnuhúsnæði í skilningi laga um tekjustofna
sveitarfélaga, nr. 4/1995.
Í reglugerð skal kveða nánar á um framkvæmd skráningarskyldu, upplýsingar sem veita skal og kröfur til notkunar skráningarnúmers. Ráðherra er í reglugerð enn fremur heimilt að kveða á um að öll skráning, vinnsla og/eða allt eftirlit með heimagistingu geti farið fram hjá einu sýslumannsembætti.]
1)
1)L. 67/2016, 10. gr.
IV. kafli.
[Synjun, brottfall, afturköllun og svipting rekstrarleyfis og afskráning.]1)
1)L. 67/2016, 14. gr.
14. gr.
Synjun rekstrarleyfis.
Leyfisveitandi synjar um rekstrarleyfi ef einhver af skilyrðum 8. gr. eru ekki uppfyllt og/eða einhver umsagnaraðila skv. 10. gr. mælir gegn útgáfu rekstrarleyfis.
Umsækjanda skal tilkynnt um fyrirhugaða synjun skriflega og skal þar getið um ástæður hennar. Skal umsækjanda gefinn kostur á að bæta úr því sem er ábótavant við umsókn, ef þess er kostur, innan hæfilegs tíma sem tilgreindur skal í tilkynningu. Að öðrum kosti skal umsókn synjað.
15. gr.
Brottfall, innlögn, afturköllun og svipting rekstrarleyfis.
…
1) Rekstrarleyfi telst …
1) niður fallið frá þeim tíma þegar það er móttekið hjá leyfisveitanda kjósi leyfishafi að leggja það inn.
Leyfisveitandi skal afturkalla rekstrarleyfi ef leyfishafi eða forsvarsmaður uppfyllir ekki lengur skilyrði 8. gr., sbr. þó heimild 16. gr.
Leyfisveitanda er heimilt að svipta leyfishafa rekstrarleyfi tímabundið verði hann eða forsvarsmaður hans uppvís að því að misnota rekstrarleyfið eða vanrækja skyldur sem á honum hvíla samkvæmt lögum þessum eða öðrum lögum sem um reksturinn gilda eða brjóti hann að öðru leyti gegn skilyrðum eða skilmálum leyfisins. Verði leyfishafi uppvís að ítrekuðum brotum samkvæmt þessari málsgrein er leyfisveitanda heimilt að svipta leyfishafa rekstrarleyfinu að fullu.
Áður en kemur til afturköllunar skv. 2. mgr. eða sviptingar skv. 3. mgr. skal leyfisveitandi senda leyfishafa viðvörun þar um, þar sem fram komi tilefni afturköllunar eða sviptingar og skal leyfishafa eftir atvikum gefinn frestur til að bæta úr annmörkum sé það mögulegt.
Komi til afturköllunar eða sviptingar rekstrarleyfis skal leyfishafa tilkynnt um það skriflega og frá hvaða tíma rekstrarleyfið telst niður fallið og skal leyfishafi skila leyfisbréfi til leyfisveitanda án tafar fyrir þau tímamörk. Leyfisveitandi skal tilkynna heilbrigðisnefnd um afturköllun eða sviptingu rekstrarleyfis.
Við innlögn rekstrarleyfis á leyfishafi ekki rétt á endurgreiðslu hluta gjalds sem greitt var fyrir rekstrarleyfi …
1). Sama gildir ef rekstrarleyfi er afturkallað skv. 2. mgr. eða leyfishafi er sviptur rekstrarleyfi skv. 3. mgr.
[Sýslumanni er heimilt að fella niður rekstrarleyfi hafi ekki verið nein starfsemi af hálfu leyfishafa á þeim veitingastað, gististað eða skemmtistað sem fram kemur í leyfinu í samfellt tólf mánuði. Skal leyfishafa tilkynnt skriflega um að niðurfelling standi til og honum heimilað að gera athugasemdir við niðurfellinguna. Sýslumanni er heimilt að senda tilkynningar samkvæmt ákvæði þessu með rafrænum hætti á netfang leyfishafa.]
1)
Beita skal úrræði 23. gr. um lokun staðar ef starfsemi er haldið áfram eftir brottfall rekstrarleyfis, afturköllun eða sviptingu þess skv. 1.–3. mgr.
1)L. 67/2016, 12. gr.
[15. gr. a.
Afskráning og synjun skráningar.
Sýslumaður skal afskrá heimagistingu verði aðili uppvís að því að leigja út húsnæði sitt til lengri tíma en 90 daga á ári hverju eða fyrir hærri fjárhæð en kveðið er á um í 3. tölul. 4. gr. laga um virðisaukaskatt.
Áður en kemur til afskráningar skal sýslumaður senda skráningaraðila tilkynningu þar um þar sem fram kemur tilefni afskráningar og skal skráningaraðila gefinn frestur til að andmæla eða bæta úr annmörkum sé það mögulegt.
Sýslumaður skal enn fremur synja um skráningu hafi heimagisting ítrekað verið afskráð, nýtingaryfirliti og upplýsingum um leigutekjur ekki verið skilað eða aðili ítrekað misnotað skráningu sína.
Sýslumanni er heimilt að senda tilkynningar samkvæmt ákvæði þessu með rafrænum hætti á uppgefið tölvupóstfang skráningaraðila.]
1)
1)L. 67/2016, 13. gr.
16. gr.
Gjaldþrot eða andlát.
Þrotabúi leyfishafa er heimilt að halda starfsemi áfram meðan á skiptum stendur og tekur skiptastjóri þrotabúsins þá stöðu leyfishafa.
Dánarbúi leyfishafa eða þeim sem hefur tekið við starfsemi að arfi er heimilt að halda starfseminni áfram í allt að eitt ár eftir andlát leyfishafa án nýs rekstrarleyfis en sækja skal um bráðabirgðaleyfi ef rekstrarleyfi rennur út innan ársins. Að þeim tíma liðnum skal erfingi sækja um rekstrarleyfi vilji hann halda starfsemi áfram.
V. kafli.
Tækifærisleyfi.
17. gr.
Tækifærisleyfi.
Sækja þarf um leyfi fyrir einstakar skemmtanir og atburði sem fram fara utan veitinga- og gististaða í atvinnuskyni …
1) og kalla á eftirlit og/eða löggæslu. Hér undir geta fallið t.d. útihátíðir, útitónleikar, skóladansleikir og tjaldsamkomur. Leyfi samkvæmt ákvæði þessu er bundið við einstaka skemmtun og/eða atburð og skal gildistími að jafnaði ekki vera lengri en 7 dagar. …
1)
[Sækja þarf um tækifærisleyfi til áfengisveitinga við einstök tækifæri í atvinnuskyni hvort sem um beina sölu veitinganna er að ræða eða afhendingu þeirra, svo sem í kynningarskyni, á sýningum eða sem lið í hvers konar samkomu- og/eða ráðstefnuhaldi, hvort sem er innan dyra, undir berum himni eða í tjaldi. Slík leyfi verða eingöngu gefin út þegar atburður fer fram á stað sem ekki hefur rekstrarleyfi en þó almennt ekki oftar en tólf sinnum ár hvert vegna sama staðar. Tækifærisleyfi til áfengisveitinga má þó samþykkja sem viðbót við gilt rekstrarleyfi, svo sem vegna tímabundins viðbótarafgreiðslutíma áfengisveitinga.
Ekki þarf tækifærisleyfi fyrir einkasamkvæmum.]
1)
Sækja skal um tækifærisleyfi með a.m.k. [tveggja vikna]
2) fyrirvara. Umsækjandi og/eða forsvarsmaður ef umsækjandi er lögaðili skal uppfylla skilyrði 8. gr. eftir því sem við á. Leyfisveitanda er þó heimilt að víkja frá fjárræðisskilyrði í því tilviki að umsækjandi hafi ekki náð tilskildum aldri enda verði tilnefndur ábyrgðarmaður að skemmtun eða atburði sem uppfyllir skilyrðið.
[Leyfisveitandi getur bundið leyfi eftirfarandi skilyrðum að fengnum umsögnum lögreglustjóra, heilbrigðisnefnda, sveitarstjórnar, slökkviliðs og eftir atvikum annarra umsagnaraðila skv. 10. gr.]:
1)
1. að sá sem fyrir skemmtun stendur geri fullnægjandi ráðstafanir til að halda uppi reglu, öryggi og velsæmi,
2. að eigi annist aðrir dyravörslu en [lögreglustjóri]
1) samþykkir,
3. að lögreglumenn [eða öryggisvakt slökkviliðs]
1) verði á skemmtuninni,
4. að sá sem fyrir skemmtun stendur greiði kostnað af ráðstöfunum sem lögreglustjóri [eða slökkviliðsstjóri]
1) ákveður í samráði við umsækjanda,
5. öðrum þeim skilyrðum sem nauðsyn ber til, svo sem um aldur og fjölda gesta og slit skemmtunar.
…
1)
Heimilt er leyfisveitanda að krefja leyfishafa um þann kostnað sem leiðir af aukinni löggæslu umfram venjubundna löggæslu á sama tíma. Getur leyfisveitandi krafist þess að sá kostnaður verði greiddur fyrir fram eða trygging sett fyrir greiðslu hans.
Ákvæði 23. gr. gilda um úrræði vegna brota gegn ákvæði þessu.
Heimilt er í reglugerð að kveða nánar á um framkvæmd við útgáfu leyfa, skilyrði fyrir leyfum og innheimtu og ákvörðun löggæslukostnaðar.
1)L. 67/2016, 15. gr. 2)L. 90/2021, 2. gr.
18. gr. …
1)
1)L. 67/2016, 16. gr.
VI. kafli.
Upplýsingaskylda, eftirlit, viðurlög o.fl.
19. gr.
Upplýsingaskylda.
Rekstraraðilar er undir þessi lög falla skulu veita stjórnvöldum upplýsingar samkvæmt nánari fyrirmælum Hagstofu Íslands eða viðkomandi stjórnvalds. Slíkar upplýsingar skulu einungis notaðar til könnunar og skipulagningar á ferðaþjónustu almennt og/eða rekstri veitingastaða og gististaða sérstaklega sem atvinnugreinar.
20. gr.
Skrá.
Leyfisveitandi skal skrá útgefin rekstrarleyfi samkvæmt lögum þessum í miðlægt leyfakerfi sem nánar er kveðið á um í reglugerð og birta rekstrarleyfi í gildi með aðgengilegum hætti, svo sem á heimasíðu sinni. Skráin skal innihalda upplýsingar um nafn leyfishafa, kennitölu, hvar aðalstarfsemin er rekin, útgáfu rekstrarleyfis og annað sem ákveðið kann að vera í reglugerð.
[Leyfisveitandi skal enn fremur birta lista yfir skráða heimagistingu í miðlægu kerfi og á heimasíðu sinni. Nánar skal kveðið á um birtingu upplýsinga í reglugerð.]
1)
1)L. 67/2016, 17. gr.
21. gr.
Eftirlit.
Lögreglustjórar hafa eftirlit með framkvæmd laga þessara, þar á meðal eftirlit með því að leyfishafi uppfylli skilyrði fyrir rekstrarleyfi, að fylgt sé skilyrðum sem leyfi er bundið, svo sem um dyravörslu, leyfilegan afgreiðslutíma og gestafjölda, einnig að fylgt sé ákvæðum laganna um dvöl ungmenna á veitingastöðum og um áfengisveitingar.
[Sýslumenn skulu hafa eftirlit með skráðum og skráningarskyldum aðilum, svo sem varðandi skráningarskyldu, tímalengd útleigu í heimagistingu og skil á nýtingaryfirliti og upplýsingum um leigutekjur. Sýslumenn geta leitað atbeina lögreglu við eftirlit með skráðum og skráningarskyldum aðilum. Þá skulu sýslumenn einnig sinna eftirliti með notkun á leyfisnúmeri í rekstrarleyfisskyldri starfsemi, sbr. 4. mgr. 11. gr.]
1)
Um eftirlit með starfsemi sem lög þessi taka til fer að öðru leyti samkvæmt lögum og reglugerðum um matvæli, hollustuhætti og mengunarvarnir, eftirlit, aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, brunamál og öðrum lögum sem átt geta við um viðkomandi starfsemi. Eftirlitið er í höndum þeirra sem lögin kveða á um hverju sinni.
[Heilbrigðisnefnd skal tilkynna viðkomandi leyfisveitanda ef fyrirhuguð er svipting starfsleyfis eða ef starfsemi uppfyllir ekki þær kröfur sem gerðar eru til heimagistingar samkvæmt
lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, og um frávik sem koma fram í eftirliti. Leyfisveitandi skal tilkynna heilbrigðisnefnd ef fyrirhuguð er svipting rekstrarleyfis eða afskráning heimagistingar.]
1)
Eftirlitsaðilar skulu tilkynna leyfisveitanda um alvarlegar athugasemdir sem þeir kunna að gera við rekstur leyfishafa [eða skráðs aðila]
1) og annað sem er tilefni athugasemda af þeirra hálfu við starfsemi og áhrif kann að hafa á rekstrarleyfið og [skráningu],
1) sem og ef fyrirhuguð er stöðvun starfseminnar á grundvelli heimildar í lögum skv. 2. mgr.
1)L. 67/2016, 18. gr.
22. gr.
Viðurlög vegna brota.
[Hver sá sem brýtur gegn 4. mgr. 4. gr. um nektarsýningar eða 5. gr. um dvöl ungmenna á veitingastöðum eða rekur leyfisskylda [veitingastarfsemi]
1) án tilskilins leyfis [skv. 7. og 12. gr. eða leyfisskylda starfsemi skv. 17. gr. án leyfis]
1) skal sæta sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.]
2) Brot gegn reglugerðum settum með stoð í lögum þessum varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.
[Hver sá sem rekur heimagistingu án skráningar skal sæta sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.]
2)
Misbeiti leyfishafi sem hefur leyfi til veitingar áfengis leyfi sínu með því að veita áfengi á öðrum tímum eða á annan hátt en honum er heimilt, eða aðrar áfengistegundir, svo og með því að selja eða afhenda áfengi án þess að neytt sé á staðnum, eða hann brýtur á annan hátt gegn fyrirmælum sem um áfengisveitingar gilda, varðar það refsingu samkvæmt áfengislögum.
Gera má lögaðila sekt samkvæmt reglum II. kafla A almennra hegningarlaga fyrir brot gegn [1.–3. mgr.]
2)
Heimilt er jafnframt í tilefni brota skv. [1.–3. mgr.]
2) að beita úrræði 23. gr. um lokun starfsstöðvar þar sem brot er framið.
1)L. 83/2019, 1. gr. 2)L. 67/2016, 19. gr.
[22. gr. a.
Stjórnvaldssektir.
Sýslumaður getur lagt stjórnvaldssektir á hvern þann sem rekur [leyfisskylda gististarfsemi án tilskilins rekstrarleyfis, sbr. 7. gr.],
1) heimagistingu án skráningar skv. 13. gr., stundar útleigu lengur en 90 daga á hverju almanaksári eða fyrir hærri fjárhæð en kveðið er á um í 3. tölul. 4. gr. laga um virðisaukaskatt.
Einnig er sýslumanni heimilt að leggja stjórnvaldssektir á hvern þann sem ekki notar númer rekstrarleyfis eða skráningar í markaðssetningu skv. 4. mgr. 11. gr. og 3. mgr. 13. gr. [eða skilar ekki nýtingaryfirliti til sýslumanns skv. 2. mgr. 13. gr.]
1)
[Við ákvörðun um stjórnvaldssekt vegna rekstrarleyfisskyldrar gististarfsemi er sýslumanni heimilt að afla gagna með sjálfstæðri rannsókn og leita atbeina lögreglu við öflun slíkra gagna.]
1)
Stjórnvaldssektir geta numið frá 10 þús. kr. til 1 millj. kr. fyrir hvert brot, eru aðfararhæfar og skulu renna í ríkissjóð. Við ákvörðun sekta skal tekið tillit til alvarleika brots, [svo sem umfangs, ætlaðs ávinnings, ítrekunaráhrifa og hvort um rekstrarleyfis- eða skráningarskylda starfsemi er að ræða. Litið er á hverja selda gistinótt umfram það sem heimilt er samkvæmt lögum þessum sem sjálfstætt brot].
1)
Gjalddagi stjórnvaldssektar er 30 dögum eftir að ákvörðun um sektina var tekin. Um ákvörðun og útreikning dráttarvaxta fer eftir lögum um vexti og verðtryggingu.
Stjórnvaldssektum má beita óháð því hvort lögbrot eru framin af ásetningi eða gáleysi.
Aðili máls getur skotið ákvörðun sýslumanns um stjórnvaldssektir til ráðherra innan þriggja mánaða frá því að aðila var tilkynnt um ákvörðunina. Málskot til ráðherra frestar aðför.
[Ráðherra er í reglugerð heimilt að kveða á um að einu sýslumannsembætti sé falið að taka ákvarðanir um stjórnvaldssektir vegna leyfisskyldrar gististarfsemi. Ákvörðun skal tekin að höfðu samráði við þann ráðherra sem fer með málefni sýslumanna.]
1)]
2)
1)L. 83/2019, 2. gr. 2)L. 67/2016, 20. gr.
23. gr.
Þvingunarúrræði.
Lögreglustjóri skal án fyrirvara eða aðvörunar stöðva leyfisskylda starfsemi sem fer fram án tilskilins leyfis. Á það við um eftirfarandi tilvik:
a. Þegar ekki hefur verið gefið út rekstrarleyfi vegna hinnar leyfisskyldu starfsemi, …
1) nýr rekstraraðili hefur ekki fengið útgefið nýtt rekstrarleyfi, rekstrarleyfi hefur verið lagt inn, það afturkallað eða leyfishafi sviptur því.
b. Þegar leyfisskyld starfsemi fer út fyrir mörk og skilmála útgefins rekstrarleyfis, svo sem varðandi heimilaðan afgreiðslutíma og þá tegund leyfisskyldrar starfsemi sem hið útgefna rekstrarleyfi tekur til.
c. Þegar veitingar áfengis, sem leyfisskyldar eru skv. [17. gr.],
1) fara fram án tilskilins leyfis eða út fyrir mörk og skilmála útgefins leyfis.
[d. Þegar rökstuddur grunur er um að fram fari nektarsýningar eða að með öðrum hætti sé gert út á nekt starfsmanna eða annarra sem eru á staðnum.]
1)
Lögreglustjóri skal jafnframt slíta samkomu sem fram fer á grundvelli 17. gr. ef hún brýtur gegn ákvæðum laga eða brotin eru fyrirmæli eða skilyrði sem leyfisveitandi hefur sett, ef regla á samkomu er eigi nægilega góð eða þegar slík samkoma fer fram án tilskilins leyfis.
[Sýslumaður getur farið fram á að lögreglustjóri, án fyrirvara eða aðvörunar, stöðvi skráningarskylda starfsemi sem fram fer án skráningar. Heimilt er að útfæra þetta úrræði nánar í reglugerð.]
1)
Lögreglustjóri skal tilkynna heilbrigðisnefnd um beitingu þvingunarúrræða samkvæmt ákvæði þessu.
1)L. 67/2016, 21. gr.
24. gr.
Gjaldtaka.
[Um skráningargjald og gjald]
1) fyrir rekstrarleyfi samkvæmt lögum þessum fer samkvæmt lögum um aukatekjur ríkissjóðs.
1)L. 67/2016, 22. gr.
25. gr.
Reglugerð.
Ráðherra setur nánari ákvæði í reglugerð
1) um framkvæmd laga þessara.
1)Rg. 1277/2016, sbr. 649/2018, 686/2018, 776/2019, 552/2021, 931/2021 og 402/2022.
26. gr.
Kæruheimild.
Stjórnsýsluákvörðunum leyfisveitanda, svo sem um synjun á útgáfu leyfa og ákvörðun um sviptingu leyfa, má skjóta til ráðuneytisins. Um málsmeðferð fer samkvæmt stjórnsýslulögum nema annars sé sérstaklega getið í lögum þessum.
VII. kafli.
Gildistaka, brottfall laga o.fl.
27. gr.
Gildistaka og brottfall laga.
Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2007.
…
28. gr.
…
Ákvæði til bráðabirgða. …
1)
1)L. 67/2016, 23. gr.
Í lögum nr. 67/2016 eru svofelld ákvæði til bráðabirgða:
[I.
Öll rekstrarleyfi sem gefin hafa verið út á grundvelli
laga nr. 85/2007 halda gildi sínu fram að endurnýjun samkvæmt leyfisbréfi enda komi ekki til niðurfellingar eða sviptingar. Þegar leyfi hefur runnið út skal sækja um nýtt rekstrarleyfi á grundvelli laganna.]
1)
1)L. 67/2016, brbákv. I.
[II.
Þegar kemur að lokum gildistíma er leyfisveitanda heimilt að gefa út rekstrarleyfi til bráðabirgða með sömu skilmálum og giltu um hið fyrra leyfi til allt að þriggja mánaða. Á gildistíma bráðabirgðaleyfis skal leyfishafi sækja um nýtt leyfi á grundvelli nýrra laga eða skrá starfsemi sína í samræmi við ákvæði þar um. Einungis er heimilt að framlengja bráðabirgðaleyfi ef umsækjanda verður ekki kennt um tafir á útgáfu nýs leyfis eða skráningu.]
1)
1)L. 67/2016, brbákv. II.