Lagasafn.  Íslensk lög 12. apríl 2024.  Útgáfa 154b.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um almannavarnir

2008 nr. 82 12. júní


Ferill málsins á Alþingi.    Frumvarp til laga.

Tóku gildi 1. júní 2008, birt í Stjtíð. 19. júní 2008. Breytt með: L. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011). L. 84/2011 (tóku gildi 30. júní 2011 nema 1. gr. og c-liður 14. gr. sem tóku gildi 1. sept. 2012). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 32/2013 (tóku gildi 1. júní 2013). L. 59/2013 (tóku gildi 1. júlí 2013). L. 51/2014 (tóku gildi 31. maí 2014 nema 3. og 4. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2015). L. 90/2018 (tóku gildi 15. júlí 2018; EES-samningurinn: XI. viðauki reglugerð 2016/679). L. 71/2019 (tóku gildi 5. júlí 2019). L. 27/2020 (tóku gildi 3. apríl 2020). L. 16/2021 (tóku gildi 30. mars 2021). L. 75/2021 (tóku gildi 1. júlí 2021). L. 39/2022 (tóku gildi 7. júlí 2022).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við dómsmálaráðherra eða dómsmálaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.

I. kafli. Almenn ákvæði.
1. gr. Markmið almannavarna.
Lög þessi taka til samhæfðra almannavarnaviðbragða til þess að takast á við afleiðingar neyðarástands sem kann að ógna lífi og heilsu almennings, umhverfi og/eða eignum.
Markmið almannavarna er að undirbúa, skipuleggja og framkvæma ráðstafanir sem miða að því að koma í veg fyrir og takmarka, eftir því sem unnt er, að almenningur verði fyrir líkams- eða heilsutjóni, eða umhverfi eða eignir verði fyrir tjóni, af völdum náttúruhamfara eða af mannavöldum, farsótta eða hernaðaraðgerða eða af öðrum ástæðum og veita líkn í nauð og aðstoð vegna tjóns sem hugsanlega kann að verða eða hefur orðið.
2. gr. Umsjón almannavarna.
Ríkið fer með almannavarnir á landinu öllu, hvort heldur sem er á landi, í lofti eða á sjó. Sveitarfélög fara með almannavarnir í héraði, í samvinnu við ríkisvaldið, svo sem kveðið er á um í lögum þessum.
[2. gr. a. Almannavarnastig.
Ríkislögreglustjóri lýsir yfir almannavarnastigi í samráði við viðkomandi lögreglustjóra ef unnt er og tilkynnir það ráðherra, þegar neyðarástand er líklegt, er yfirvofandi eða ríkir, eða sambærilegar aðstæður eru fyrir hendi. Almannavarnastig samkvæmt lögum þessum eru þrjú: óvissustig, hættustig og neyðarstig, í samræmi við alvarleika þess neyðarástands sem uppi er hverju sinni, umfang viðbúnaðar og þörf á forgangshraða viðbragðsaðila.
Ráðherra sem fer með málefni almannavarna gefur út reglur um almannavarnastig, að fenginni tillögu ríkislögreglustjóra og að höfðu samráði við almannavarnaráð.] 1)
    1)L. 39/2022, 1. gr.
[2. gr. b. Hættustund.
Hættustund samkvæmt lögum þessum hefst þegar hættustigi eða neyðarstigi almannavarna er lýst yfir og lýkur þegar hættustigi eða neyðarstigi er aflýst. Á hættustundu virkjast valdheimildir sem kveðið er á um í VII. og VIII. kafla.] 1)
    1)L. 39/2022, 1. gr.

II. kafli. [Stefnumörkun í almannavarnamálum.]1)
    1)L. 39/2022, 4. gr.
3. gr. [Hlutverk almannavarnaráðs.
Stefna stjórnvalda í almannavarnamálum skal mörkuð af almannavarnaráði til fimm ára í senn. Í almannavarnastefnu stjórnvalda skal gera grein fyrir ástandi og horfum í almannavarnamálum í landinu, fjalla um áhersluatriði varðandi skipulag almannavarnamála, forvarnastarf, nauðsynlega samhæfingu á efni viðbragðsáætlana og starfsemi opinberra stofnana á því sviði, sbr. VI. kafla, nauðsynlegar birgðir til þess að tryggja lífsafkomu þjóðarinnar á hættutímum, endurreisn eftir hamfarir og aðrar aðgerðir sem ráðið telur nauðsynlegar til þess að markmið laga þessara náist.
Umsýsla vegna almannavarnaráðs og undirbúningur funda þess er í höndum ráðherra sem fer með málefni almannavarna.] 1)
    1)L. 39/2022, 2. gr.
4. gr. [Skipan almannavarnaráðs.
Í almannavarnaráði eiga sæti ráðherra er fer með málefni almannavarnaráðs sem jafnframt er formaður þess og skipar í ráðið, ráðherra er fer með málefni almannavarna, ráðherra er fer með málefni mengunarvarna og ofanflóðavarna, ráðherra er fer með heilbrigðismál, ráðherra er fer með samgöngumál, ráðherra er fer með orkumál og ráðherra er fer með varnarmál og samskipti við önnur ríki. Ráðherra er fer með málefni almannavarnaráðs er heimilt að kveðja allt að tvo ráðherra að auki til setu í ráðinu hverju sinni vegna sérstakra mála.
Einnig eiga ráðuneytisstjórar þeirra ráðuneyta sem fara með málaflokka skv. 1. mgr. sæti í almannavarnaráði. Þá eiga einnig sæti í ráðinu:
    1. Ríkislögreglustjóri, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, forstjóri Fjarskiptastofu, forstjóri Samgöngustofu og forstjóri Vegagerðarinnar.
    2. Forstjóri Veðurstofu Íslands, forstjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og forstjóri Umhverfisstofnunar.
    3. Landlæknir, sóttvarnalæknir og forstjóri Geislavarna ríkisins.
    4. Orkumálastjóri og forstjóri Landsnets.
    5. Fulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
    6. Fulltrúi Rauða krossins á Íslandi.
    7. Fulltrúi samræmdrar neyðarsvörunar.
    8. Tveir fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga.] 1)
    1)L. 39/2022, 3. gr.

III. kafli. Skipulag almannavarna á landinu öllu.
5. gr. Æðsta stjórn almannavarna.
[Ráðherra sem fer með málefni almannavarna er æðsti yfirmaður almannavarna í landinu.] 1)
Ríkislögreglustjóri annast málefni almannavarna í umboði [ráðherra]. 2) Ríkislögreglustjóri tekur ákvörðun um almannavarnastig hverju sinni í samráði við viðkomandi lögreglustjóra ef unnt er og tilkynnir það [ráðherra]. 2) Heimilt er að lýsa yfir [almannavarnastigi skv. 2. gr. a] 1) þegar neyðarástand er líklegt, er yfirvofandi eða ríkir eða sambærilegar aðstæður eru fyrir hendi.
Við embætti ríkislögreglustjóra starfar í Reykjavík samhæfingar- og stjórnstöð undir sérstakri stjórn, sbr. V. kafla laga þessara.
    1)L. 39/2022, 5. gr. 2)L. 162/2010, 193. gr.
6. gr. Tímabundinn flutningur á stjórn almannavarna.
[Ráðherra] 1) er heimilt að færa stjórn almannavarnaaðgerða frá Reykjavík þegar yfirgnæfandi líkur eru á því að almannavörnum landsins verði ekki stjórnað þaðan.
    1)L. 162/2010, 193. gr.
7. gr. Verkefni ríkislögreglustjóra á sviði almannavarna.
Ríkislögreglustjóri hefur umsjón með að ráðstafanir séu gerðar í samræmi við stefnu stjórnvalda í [almannavarnamálum]. 1)
Ríkislögreglustjóri hefur eftirlit með skipulagi almannavarna á landinu öllu og eftirlit með almannavörnum sveitarfélaga. Hann hefur eftirlit með gerð hættumats í samráði við almannavarnanefndir. Hann tekur þátt í undirbúningi og gerð viðbragðsáætlana ríkis og sveitarfélaga, sbr. VI. kafla laga þessara, og hefur eftirlit með endurskoðun þeirra og samhæfingu. Auk þessa hefur ríkislögreglustjóri eftirlit með gerð viðbragðsáætlana einkaaðila. Hann hefur með höndum eftirlit með samhæfingu viðbragðsaðila og annarra aðila, sbr. 8. gr., og með stjórn aðgerða [á hættustundu og þegar hún er um garð gengin]. 1)
Ríkislögreglustjóri skipuleggur forvarnir og almenningsfræðslu á sviði almannavarna, svo og fræðslu einkaaðila, stjórnvalda og almennings um skipulag almannavarnakerfisins eftir því sem þurfa þykir. Auk þess annast ríkislögreglustjóri þjálfun og fræðslu á sviði almannavarna.
Ríkislögreglustjóri tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi stjórnvalda um almannavarnir [og getur að fengnu samþykki ráðherra farið fram á aðstoð hjálparliðs erlendis frá vegna almannavarnaástands í samræmi við alþjóðasamninga sem Ísland á aðild að, ef við á]. 1)
[Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um móttöku erlends hjálparliðs, þ.m.t. um tímabundin starfsleyfi fyrir erlent fagfólk, um undanþágur frá ákvæðum laga sem tefja eða takmarka möguleika á innflutningi dýra og búnaðar sem nota þarf við hjálparstörf og undanþágur frá aðflutningsgjöldum vegna tímabundins innflutnings.] 1)
    1)L. 39/2022, 6. gr.
8. gr. Um samninga við þriðja aðila.
Ríkislögreglustjóra er heimilt að semja við sjálfseignarstofnanir, félagasamtök eða aðra aðila um að þeir skuli annast framkvæmd almannavarna á tilteknu sviði.
Samningur um framkvæmd aðila á almannavörnum samkvæmt þessari grein er háður samþykki [ráðherra]. 1)
    1)L. 162/2010, 193. gr.

IV. kafli. Skipulag almannavarna í héraði.
9. gr. Almannavarnanefndir.
Í hverju sveitarfélagi starfar almannavarnanefnd sem sveitarstjórn skipar og ákveður sveitarstjórnin fjölda nefndarmanna. Almannavarnanefnd skal skipuð [lögreglustjóra] 1) þess umdæmis sem sveitarfélagið er í, fulltrúum úr sveitarstjórn og þeim fulltrúum sveitarstjórna sem í starfi sínu sinna verkefnum í þágu öryggis hins almenna borgara. … 1)
Almannavarnanefnd kýs sér sjálf formann og varaformann. Sveitarstjórnir ráða starfsmenn almannavarnanefnda og greiða kostnað af störfum þeirra.
Sveitarstjórnum er heimilt að vinna saman að gerð viðbragðsáætlunar, semja um gagnkvæma aðstoð eða koma á fót sameiginlegri almannavarnanefnd. Sameining almannavarnanefnda eða samstarf þeirra er háð staðfestingu [ráðherra]. 2) [Ráðherra ákveður hvaða lögreglustjóri skuli sitja í almannavarnanefnd ef fleiri en eitt lögregluumdæmi falla undir nefndina.] 1) Ef ein almannavarnanefnd er í umdæmi lögreglustjóra skal hann sitja í nefndinni.
    1)L. 51/2014, 12. gr. 2)L. 162/2010, 193. gr.
10. gr. Hlutverk almannavarnanefnda.
Almannavarnanefndir móta stefnu og skipuleggja starf sitt að almannavörnum í héraði í samræmi við lög þessi.
Í umdæmum sínum vinna almannavarnanefndir [og viðeigandi lögreglustjóri] 1) að gerð hættumats og viðbragðsáætlana, í samvinnu við ríkislögreglustjóra, sbr. 16. gr.
Almannavarnanefndir [og viðeigandi lögreglustjóri] 1) skulu endurskoða hættumat og framkvæma prófanir á viðbragðsáætlunum í samvinnu við ríkislögreglustjóra.
    1)L. 39/2022, 7. gr.
11. gr. Aðgerða- og vettvangsstjórn í héraði.
Stjórn aðgerða í héraði þegar almannavarnaástand ríkir er í höndum lögreglustjóra í viðkomandi lögregluumdæmi. Hann situr í aðgerðastjórn ásamt fulltrúa almannavarnanefndar, fulltrúa Slysavarnafélagsins Landsbjargar, fulltrúa Rauða kross Íslands, hlutaðeigandi viðbragðsaðila, sbr. viðbragðsáætlun, svo og öðrum hlutaðeigandi aðilum sem tengjast aðgerðum hverju sinni. Aðgerðastjórn starfar í samvinnu við samhæfingar- og stjórnstöð. Í stjórn aðgerða felst m.a. skipulag björgunar- og hjálparstarfa vegna hættu eða tjóns sem getur eða hefur skapast og að stýra neyðaraðgerðum í samvinnu við samhæfingar- og stjórnstöð, sbr. 12. gr.
Lögreglustjóri tilnefnir vettvangsstjóra er fari með stjórn og samhæfingu á vettvangi.

V. kafli. Samhæfingar- og stjórnstöð.
12. gr. Hlutverk samhæfingar- og stjórnstöðvar.
Í samhæfingar- og stjórnstöð fer fram samhæfing og yfirstjórn almannavarnaaðgerða með hliðsjón af almannavarnastigi og viðeigandi viðbragðsáætlun. Þar getur einnig farið fram samhæfing hvers kyns aðgerða við leit og björgun á landi, sjó og í lofti eða viðbragða við hættuástandi þótt ekki hafi verið lýst yfir almannavarnaástandi, sbr. 13. gr.
Í almannavarnaástandi starfa í stjórnstöðinni fulltrúar viðbragðsaðila almannavarna og ber þeim skylda til að fara að fyrirmælum þess aðila sem stýrir samhæfingu aðgerða úr samhæfingar- og stjórnstöð samkvæmt viðbragðsáætlun. Nú er ágreiningur um hvaða fyrirmæli skuli gefin og sker þá ríkislögreglustjóri úr. Ákvörðun ríkislögreglustjóra samkvæmt þessu ákvæði verður ekki skotið til [ráðherra]. 1)
[Samhæfingar- og stjórnstöð og viðbragðsaðilar skulu hafa aðgang að neyðar- og öryggisfjarskiptakerfi, sem er óháð og aðskilið frá almennum fjarskiptakerfum, vegna samskipta samhæfingar- og stjórnstöðvar og viðbragðsaðila almannavarna. Ráðherra er heimilt að fela aðila í opinberri eigu rekstur neyðar- og öryggisfjarskiptakerfisins.] 2)
Samhæfingar- og stjórnstöð lýtur ellefu manna stjórn sem [ráðherra] 1) skipar. Formaður stjórnar skal skipaður af ráðherra án tilnefningar. Ríkislögreglustjóri, Landhelgisgæsla Íslands, landlæknir, stjórn slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, stjórn samræmdrar neyðarsvörunar, [Rauði krossinn á Íslandi], 2) [rekstraraðilar flugvalla og flugleiðsögu] 2) og stjórn Slysavarnafélagsins Landsbjargar tilnefna hver sinn fulltrúa í stjórnina og skulu þeir valdir úr hópi þeirra sem taka virkan þátt í starfi samhæfingar- og stjórnstöðvarinnar. [Auk þess tilnefnir stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga einn fulltrúa.] 3)
Stjórnin ræðir og tekur ákvarðanir um innra skipulag, rekstur og samstarf viðbragðsaðila. Stjórnin beitir sér fyrir ráðstöfunum til að tryggja snurðulausa framkvæmd viðbragðsáætlana. Samhæfing eða framkvæmd aðgerða er ekki á verksviði stjórnar.
Stjórnin getur ákveðið að viðbragðsaðilar almannavarna, sem ekki eiga fulltrúa í stjórn samhæfingar- og stjórnstöðvar, tilnefni fulltrúa í samhæfingar- og stjórnstöðvarráð sem er stjórninni til ráðuneytis við ákvarðanir hennar.
Ríkislögreglustjóri ræður umsjónarmann samhæfingar- og stjórnstöðvarinnar að fenginni tillögu stjórnar stjórnstöðvarinnar. Kostnaður af starfsemi samhæfingar- og stjórnstöðvar greiðist úr ríkissjóði.
    1)L. 162/2010, 193. gr. 2)L. 39/2022, 8. gr. 3)L. 162/2010, 257. gr. Þar segir að 3. málsl. orðist svo en augljóslega er átt við 4. málsl.
13. gr. Verkefni samhæfingar- og stjórnstöðvar.
Samhæfingar- og stjórnstöð skal virkjuð þegar nauðsyn krefst að mati þeirra sem koma að stjórn leitar, björgunar eða viðbragða við hættuástandi.
Almannavarnanefnd eða viðbragðsaðili almannavarna getur óskað eftir því að samhæfingar- og stjórnstöð annist stjórn aðgerða vegna tiltekinnar hættu. Ef ágreiningur er í almannavarnanefnd eða á milli viðbragðsaðila um það hvort leita skuli til samhæfingar- og stjórnstöðvar getur hvor aðili um sig óskað eftir því við ríkislögreglustjóra að samhæfingar- og stjórnstöð taki við stjórn aðgerða. Áður en ríkislögreglustjóri tekur ákvörðun í málinu skal hann kanna afstöðu viðkomandi lögreglustjóra til beiðninnar.
14. gr. Tímabundin stofnun og rekstur þjónustumiðstöðvar.
[Samhliða rekstri samhæfingar- og stjórnstöðvar er ríkislögreglustjóra heimilt, á hættustundu eða þegar hún er um garð gengin, að stofna tímabundið þjónustumiðstöð.] 1)
Verkefni þjónustumiðstöðvarinnar skulu m.a. felast í upplýsingagjöf til almennings og þjónustu við þá aðila sem hafa orðið fyrir tjóni og hin tiltekna hætta hefur haft önnur bein áhrif á. Auk þess skal þjónustumiðstöðin, í samvinnu við hlutaðeigandi almannavarnanefndir, annast samskipti við fjölmiðla vegna aðgerða sem gripið er til hverju sinni.
Ráðuneyti og sveitarfélög, þar með taldar undirstofnanir þeirra, skulu veita hinni tímabundnu þjónustumiðstöð lið við miðlun upplýsinga og þjónustu. Haft skal samráð við hlutaðeigandi sveitarstjórnir um starfsemi þjónustumiðstöðvar samkvæmt þessari grein.
    1)L. 39/2022, 9. gr.

VI. kafli. Gerð viðbragðsáætlana.
15. gr. Skylda ríkisvalds til að gera viðbragðsáætlanir.
Einstök ráðuneyti og undirstofnanir þeirra skulu, í samvinnu við ríkislögreglustjóra, kanna áfallaþol þess hluta íslensks samfélags sem fellur undir starfssvið þeirra. Þá skulu einstök ráðuneyti og stofnanir á þeirra vegum, í samvinnu við ríkislögreglustjóra og í samræmi við lög sem um starfssviðið gilda, skipuleggja fyrirhuguð viðbrögð og aðgerðir samkvæmt viðbragðsáætlun þar sem m.a. er fjallað um eftirfarandi þætti:
    1. Skipulagningu aðgerða.
    2. Viðbúnað viðbragðsaðila, m.a. liðsafla, þjálfun liðsafla og útbúnað og stjórnsýsluviðbúnað.
    3. Samgöngur og fjarskipti.
    4. Framkvæmd ráðstafana á hættustundu.
    5. Samhæfingu og stjórn aðgerða viðbragðsaðila og annarra aðila.
    6. Áfallahjálp og aðstoð við þolendur.
    7. Hagvarnir, birgðir og neyðarflutninga til og frá landi.
Ríkislögreglustjóri skal semja viðbragðsáætlanir varðandi þá hluta íslensks samfélags sem falla ekki undir starfssvið tiltekins ráðuneytis.
Viðbragðsáætlanir skulu undirritaðar og staðfestar af réttum yfirvöldum.
16. gr. [Skylda sveitarfélaga og lögreglustjóra til að gera viðbragðsáætlanir.]1)
[Sveitarfélög, stofnanir á þeirra vegum og viðeigandi lögreglustjóri skulu, í samvinnu við ríkislögreglustjóra, kanna áfallaþol í umdæmi sínu. Þá skulu almannavarnanefndir og viðeigandi lögreglustjóri, í samvinnu við ríkislögreglustjóra, gera viðbragðsáætlun í samræmi við hættumat í umdæmi þeirra. Efni viðbragðsáætlana skal vera í samræmi við 15. gr.] 1)
Almannavarnanefndum er heimilt að hafa samvinnu um gerð viðbragðsáætlana. Hafi almannavarnanefndir verið sameinaðar skal gerð sameiginleg viðbragðsáætlun.
Ríkislögreglustjóri skal hafa yfirumsjón með samvinnu einstakra sveitarfélaga vegna sameiginlegrar hættu svo og þegar almannavarnanefndir tveggja eða fleiri sveitarfélaga gera viðbragðsáætlun.
    1)L. 39/2022, 10. gr.
17. gr. Afhending viðbragðsáætlana, æfingar og endurskoðun.
Ráðuneyti, undirstofnanir þeirra og sveitarfélög skulu staðfesta viðbragðsáætlanir sínar og senda þær ríkislögreglustjóra.
Þegar viðbragðsáætlun hefur verið staðfest og afhent ríkislögreglustjóra skal hún æfð eftir því sem frekast er kostur. Ríkislögreglustjóri, almannavarnanefndir, viðbragðsaðilar almannavarna, stofnanir ríkis og sveitarfélaga og einkaaðilar sem hafa hlutverki að gegna í skipulagi almannavarna samkvæmt samningi skulu án endurgjalds taka þátt í æfingu viðbragðsáætlunar eftir því sem þurfa þykir. Ágreiningi um skyldu til að taka þátt í æfingu má skjóta til [ráðherra]. 1) Viðbragðsáætlanir skal endurskoða eins oft og nauðsyn krefst.
    1)L. 162/2010, 193. gr.
18. gr. Upplýsinga- og aðgerðaskylda opinberra aðila og einkaaðila.
Opinberum aðilum og einkaaðilum ber skylda til að veita nauðsynlegar upplýsingar við gerð viðbragðsáætlana ríkis eða sveitarfélaga. Nú er ágreiningur um hvað teljist nauðsynlegar upplýsingar samkvæmt málsgrein þessari og er þá heimilt að leita dómsúrskurðar um málið.
Sérhver ráðherra getur, í samráði við ríkislögreglustjóra, ákveðið að opinberir aðilar eða einkaaðilar skuli veita aðstoð, liðsinni eða útfæra nánar einstaka þætti laga þessara.
Sérhver ráðherra getur, í samráði við ríkislögreglustjóra, ákveðið að opinberir aðilar eða einkaaðilar skuli grípa til fyrirbyggjandi ráðstafana varðandi sölu á vörum, veitingu þjónustu og framleiðslu í atvinnurekstri sínum ef þess gerist þörf til þess að markmið laga þessara náist.
Áður en ákvörðun er tekin á grundvelli 2. og 3. mgr. skal leitast við að semja um skyldur þeirra fyrirtækja eða stofnana sem ákvörðunin varðar og hversu mikil áhrif þær muni hafa á starfsemi þeirra.
Nú er heimild skv. 2. og 3. mgr. beitt og skal þá ríkið bæta það tjón sem af hlýst fyrir viðkomandi aðila samkvæmt almennum reglum.

VII. kafli. Borgaralegar skyldur á hættustundu.
19. gr. Almenn borgaraleg skylda.
Það er borgaraleg skylda þeirra sem eru á aldrinum 18–65 ára að gegna á hættustundu, án endurgjalds, starfi í þágu almannavarna í umdæmi þar sem þeir dveljast samkvæmt fyrirmælum er lögreglustjóri gefur, að fengnum tillögum almannavarnanefndar eða ríkislögreglustjóra. Ákvörðun lögreglustjóra má skjóta til [ráðherra]. 1) [Þessari heimild skal þó ekki beitt nema brýna nauðsyn beri til og önnur vægari úrræði dugi ekki.] 2)
Kveðja má þá sem eru á aldrinum 16–18 ára eða eldri en 65 ára til starfs skv. 1. mgr., ef þeir óska þess sjálfir.
Þeim sem kvaddir hafa verið til starfs skv. 1. mgr. ber að koma til læknisskoðunar, ef nauðsynlegt þykir.
Enginn má á neinn hátt tálma því að maður gegni starfi sem hann hefur verið kvaddur til í þágu almannavarna.
[Sé heilsufari manns, eða annars einstaklings sem hann ber ábyrgð á, svo háttað að öryggi og/eða heilsu hans, eða aðila sem hann ber ábyrgð á, sé stefnt í sérstaka hættu með því að fela honum að gegna slíkum störfum skal hann undanþeginn skyldu skv. 1. mgr.] 2)
    1)L. 162/2010, 193. gr. 2)L. 39/2022, 11. gr.
20. gr. Kvaðning til aðstoðar við almannavarnir.
[Á hættustundu] 1) getur lögreglustjóri … 1) kvatt hvern fulltíða mann, sem tiltækur er, til tafarlausrar aðstoðar við störf í þágu almannavarna. Ákvörðun um kvaðningu fulltíða manns til tafarlausrar aðstoðar við almannavarnir verður ekki skotið til æðra stjórnvalds.
Ríkislögreglustjóri hefur ákvörðunarvald um flutning þeirra manna sem kvaddir hafa verið til tafarlausrar aðstoðar í þágu almannavarna. Ef fjöldi manns eða hjálparlið er flutt á milli umdæma skal haft samráð við lögreglustjóra og almannavarnanefnd.
    1)L. 39/2022, 12. gr.
21. gr. Skylda til að taka þátt í námskeiðum og æfingum.
Ríkislögreglustjóri boðar þá sem kvaddir hafa verið til starfa í þágu almannavarna skv. 19. gr. til námskeiða og æfinga. Ber öllum viðkomandi að fara að þeim fyrirmælum og öðrum starfsreglum. Óheimilt er að hverfa úr starfi án leyfis.
Á hættustundu má starfsmaður ekki fara úr lögsagnarumdæmi án samþykkis lögreglustjóra eða þess er hann tilnefnir.
Ef sá sem kvaddur hefur verið til starfa í þágu almannavarna verður fyrir meiðslum eða tjóni á námskeiði eða æfingu á hann rétt á bótum.
22. gr. Reglur um starfsskyldu.
[Ráðherra] 1) er heimilt að setja reglur 2) um starfsskyldu samkvæmt ákvæðum þessa kafla. Skal að því stefnt að starfskvöð komi sem réttlátast niður á borgarana. Ráðherra ákveður hámarkstíma fyrir skyldunám og æfingar í þágu almannavarna.
    1)L. 162/2010, 193. gr. 2) Rgl. 226/2020.

VIII. kafli. Valdheimildir á hættustundu.
23. gr. Almenn fyrirmæli á hættustundu.
Á hættustundu er lögreglustjóra heimilt að ákveða að taka í sínar hendur umferðarstjórn, banna dvöl eða umferð á ákveðnum svæðum, svo sem með því að girða af eða hindra umferð um þau, þ.m.t. tilteknar fasteignir, taka í sínar vörslur hættulega muni, vísa á brott eða fjarlægja fólk.
Fyrirmælum þessum er öllum skylt að hlíta.
24. gr. Flutningur fólks af hættusvæðum.
Ríkislögreglustjóri gefur fyrirmæli um brottflutning fólks af hættusvæði.
Nú eru fyrirmæli gefin skv. 1. mgr. og er þá öllum skylt að halda brott á þeirri stundu, á þann hátt og til þess móttökustaðar sem ákveðinn er. Engum er heimilt án sérstaks leyfis að fara af móttökustað.
25. gr. Heimild til leigunáms.
[Ráðherra] 1) getur, [á hættustundu], 2) ákveðið að taka leigunámi fasteignir eða lausafé í eigu einkaaðila, í þágu almannavarna, enda komi bætur fyrir eftir samkomulagi eða á grundvelli mats samkvæmt lögum um framkvæmd eignarnáms. Stofnunum ríkis og sveitarfélaga er skylt á hættustundu að ljá til almannavarna fasteignir og lausafjármuni, eftir því sem við verður komið, án sérstaks endurgjalds.
Heimild skv. 1. mgr. felur enn fremur í sér að gera má hverjar þær breytingar á viðkomandi fasteignum eða lausafjármunum sem þörf er á til að þær komi að tilætluðum notum í þágu almannavarna.
    1)L. 162/2010, 193. gr. 2)L. 39/2022, 13. gr.
26. gr. Skyldur eigenda og umráðamanna húsnæðis.
Ríkislögreglustjóra er heimilt, ef brýna nauðsyn ber til, að gefa eiganda eða umráðamanni húsnæðis fyrirmæli um að taka við fólki sem flutt hefur verið af hættusvæði, veita því húsaskjól og annan viðurgjörning eftir því sem aðstæður krefjast.
Sveitarfélag sem flutt er frá greiðir kostnað vegna húsnæðis og fæðis, sem látið er í té samkvæmt þessari grein, en á kröfu um endurheimt á hendur þeim sem fyrirgreiðslunnar hafa notið.
27. gr. Um fyrirmæli um sölu og dreifingu nauðsynja.
Ríkisstjórninni er heimilt, ef almannaheill krefur vegna hættu á náttúruhamförum, farsóttum, hernaðaraðgerðum, hryðjuverkum eða annarrar hættu, að gefa út fyrirmæli um sölu og dreifingu nauðsynja sem til eru í landinu eða taka eignarnámi matvæli, eldsneyti, varahluti, lyf og aðrar nauðsynjar sem hætta er á að gangi fljótt til þurrðar.

IX. kafli. [Rýni á aðgerðum viðbragðsaðila.]1)
    1)L. 39/2022, 17. gr.
28. gr. [Rýnifundir ríkislögreglustjóra.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra skal án tafar og innan mánaðar eftir að almannavarnastigi hefur verið aflétt halda rýnifund með fulltrúum viðbragðsaðila sem virkjaðir voru vegna aðgerða eða fyrirhugaðra aðgerða. Ef sérstök ástæða er talin til er heimilt að halda slíkan fund þótt almannavarnastigi hafi ekki verið aflétt.
Veita skal viðkomandi viðbragðsaðilum tækifæri á að koma sjónarmiðum á framfæri um gæði viðbragða. Ríkislögreglustjóri skal rita og varðveita fundargerð um efni og niðurstöður rýnifundar. Hann skal jafnframt afhenda fundargerð til viðkomandi viðbragðsaðila, stjórnar samhæfingar- og stjórnstöðvar og ráðherra.
Ríkislögreglustjóri hefur eftirlit með því að viðbragðsaðilar geri viðunandi úrbætur í samræmi við niðurstöðu rýnifundar.] 1)
    1)L. 39/2022, 14. gr.
29. gr. [Ytri rýni.
Stjórn samhæfingar- og stjórnstöðvar er heimilt að láta vinna skýrslu þegar almannavarnastigi er aflétt og að rýnifundi skv. 28. gr. loknum ef það er mat stjórnar að þörf sé á ytri rýni sérfræðings eða eftir atvikum sérfræðinga á aðgerðum eða aðgerðaleysi viðbragðsaðila. Ef sérstök ástæða er talin til er heimilt að láta vinna slíka skýrslu þótt almannavarnastigi hafi ekki verið aflétt. Sama á við þegar stjórnin telur álitamál hvort lýsa átti yfir almannavarnastigi þegar það var ekki gert. Gerðar skulu kröfur um sérfræðiþekkingu skýrslugjafa eftir því sem við á í ljósi viðfangsefnisins.
Ráðherra er heimilt að láta vinna skýrslu við þær aðstæður sem kveðið er á um í 1. mgr. og með sömu skilyrðum. Sú heimild er fyrir hendi ef hann telur að skýrsla stjórnar samhæfingar- og stjórnstöðvar veiti ekki fullnægjandi svör við álitaefnum í kjölfar hættu- eða neyðarástands. Sama á við ef hann telur að þörf sé á ytri rýni þótt stjórn samhæfingar- og stjórnstöðvar hafi ekki óskað eftir slíkri sérfræðiskýrslu.
Sérfræðingar sem vinna skýrslu samkvæmt þessu ákvæði skulu ekki hafa slík tengsl við þá viðbragðsaðila sem skýrslan varðar að þeir teldust vanhæfir til meðferðar stjórnsýslumáls viðkomandi viðbragðsaðila, sbr. II. kafla stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.] 1)
    1)L. 39/2022, 15. gr.
30. gr.1)
    1)L. 39/2022, 16. gr.
31. gr.1)
    1)L. 39/2022, 16. gr.

X. kafli. Um skiptingu kostnaðar vegna almannavarna.
32. gr. Skipting kostnaðar á milli ríkisvalds og sveitarfélaga o.fl.
Kostnaður vegna skyldna ríkisins skv. II., III., VI. og IX. kafla laga þessara greiðist úr ríkissjóði. Kostnaður vegna verkefna sveitarfélaganna skv. IV. og VI. kafla greiðist af hálfu sveitarfélaga.
Ef sveitarfélög hafa samstarf um skyldur sínar samkvæmt þessum lögum þá skal skipta kostnaði á milli þeirra samkvæmt íbúatölu.

XI. kafli. Refsiákvæði.
33. gr.
Hver sá sem uppvís er að því að gefa af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi ranga tilkynningu til samhæfingar- og stjórnstöðvar skv. V. kafla laga þessara eða viðbragðsaðila almannavarna eða misnota að öðru leyti þjónustu þessara aðila varðandi almannavarnir skal sæta refsingu skv. 120. gr. og 120. gr. a almennra hegningarlaga.

XII. kafli. Reglugerð og gildistaka.
34. gr.
[Ráðherra setur með reglugerð 1) nánari ákvæði um flokkun almannavarnastiga almannavarna, inntak þeirra og viðbrögð, um frekara skipulag samhæfingar- og stjórnstöðvar og þjónustumiðstöðva skv. V. kafla að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, um tilhögun neyðar- og öryggisfjarskiptakerfisins, um störf stjórnar samhæfingar- og stjórnstöðvar og samhæfingar- og stjórnstöðvarráðs, svo og hverjir skuli teljast viðbragðsaðilar almannavarna.] 2)
Þá setur [ráðherra], 3) að fenginni tillögu ríkislögreglustjóra, reglugerð 4) um efni og gerð viðbragðsáætlana skv. 15. og 16. gr. Ráðherra er og heimilt að kveða í reglugerð nánar á um samræmda gerð og samningu einstakra viðbragðsáætlana, fjölda æfinga og tengsl við almannavarnastig.
2)
Forsætisráðherra setur reglugerð 5) um starfshætti [almannavarnaráðs] 2) í samráði við [ráðherra]. 3)
[Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um móttöku erlends hjálparliðs, þ.m.t. um tímabundin starfsleyfi fyrir erlent fagfólk, um undanþágur frá ákvæðum laga sem tefja eða takmarka möguleika á innflutningi dýra og búnaðar sem nota þarf við hjálparstörf og undanþágur frá aðflutningsgjöldum vegna tímabundins innflutnings.] 2)
    1)Rg. 100/2009. Rg. 650/2009. 2)L. 39/2022, 18. gr. 3)L. 162/2010, 193. gr. 4)Rg. 323/2010. 5)Rg. 459/2009.
35. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. júní 2008.
Reglugerðir og önnur stjórnvaldsfyrirmæli sem sett eru samkvæmt eldri lögum skulu halda gildi sínu að svo miklu leyti sem þau fara ekki í bága við lög þessi. Þá skulu samningar sem gerðir voru í tíð eldri laga halda gildi sínu uns þeir verða endurskoðaðir af hálfu samningsaðila.

Ákvæði til bráðabirgða.
I.1)
    1)L. 39/2022, 19. gr.
[II.
[… 1)] 2)] 3)
    1)Fellt úr gildi skv. 2. mgr. ákvæðisins. 2)L. 16/2021, 1. gr. 3)L. 27/2020, 1. gr.