Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. október 2009. Útgáfa 137. Prenta í tveimur dálkum.
Lögreglulög
1996 nr. 90 13. júní
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 1. júlí 1997. Breytt með l. 83/1997 (tóku gildi 6. júní 1997), l. 29/1998 (tóku gildi 29. apríl 1998), l. 78/1998 (tóku gildi 1. júlí 1998), l. 121/1999 (tóku gildi 30. des. 1999), l. 15/2000 (tóku gildi 28. apríl 2000), l. 49/2000 (tóku gildi 26. maí 2000), l. 155/2000 (tóku gildi 1. jan. 2001), l. 56/2002 (tóku gildi 14. maí 2002), l. 44/2003 (tóku gildi 3. apríl 2003), l. 56/2004 (tóku gildi 14. júní 2004), l. 46/2006 (tóku gildi 1. jan. 2007 nema 6. gr. og ákvæði til bráðabirgða sem tóku gildi 16. júní 2006), l. 85/2007 (tóku gildi 1. júlí 2007), l. 34/2008 (tóku gildi 31. maí 2008 nema ákvæði til bráðabirgða sem tók gildi 8. maí 2008), l. 82/2008 (tóku gildi 1. júní 2008, birt í Stjtíð. 19. júní 2008), l. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008) og l. 147/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009).
I. kafli. Hlutverk lögreglu o.fl.
1. gr. Hlutverk.
1. Ríkið heldur uppi starfsemi lögreglu.
2. Hlutverk lögreglu er:
a. að gæta almannaöryggis og halda uppi lögum og reglu, leitast við að tryggja réttaröryggi borgaranna og vernda eignarrétt, opinbera hagsmuni og hvers konar lögmæta starfsemi,
b. að stemma stigu við afbrotum og koma í veg fyrir athafnir sem raska öryggi borgaranna og ríkisins,
c. að vinna að uppljóstran brota, stöðva ólögmæta háttsemi og fylgja málum eftir í samræmi við það sem mælt er fyrir um í lögum um meðferð [sakamála] 1) eða öðrum lögum,
d. að greiða götu borgaranna eftir því sem við á og aðstoða þá þegar hætta steðjar að,
e. að veita yfirvöldum vernd eða aðstoð við framkvæmd starfa sinna samkvæmt fyrirmælum laga eða venju eftir því sem þörf er á,
f. að starfa í samvinnu við önnur stjórnvöld og stofnanir sem hafa með höndum verkefni sem tengjast starfssviði lögreglu,
g. að sinna öðrum verkefnum sem henni eru falin í lögum eða leiðir af venju.
1)L. 88/2008, 234. gr.
2. gr. Tengsl við þjóðarétt.
Lögregla skal í störfum sínum hafa í heiðri þær þjóðréttarlegu skuldbindingar sem Ísland hefur undirgengist.
3. gr. Lögreglumenn.
Til lögreglumanna teljast þeir sem skipaðir eru eða settir til lögreglustarfs skv. 3. mgr. 28. gr. eða ráðnir tímabundið skv. 4. mgr. 28. gr.
II. kafli. Skipulag lögreglu og æðsta stjórn.
4. gr. Æðsta stjórn lögreglu.
Dómsmálaráðherra er æðsti yfirmaður lögreglunnar í landinu. Ríkislögreglustjóri fer með málefni lögreglunnar í umboði hans. [Ríkislögreglustjóri hefur aðsetur í Kópavogi, nema ráðherra ákveði annað.] 1)
1)L. 121/1999, 2. gr.
5. gr. Ríkislögreglustjóri.
1. Hlutverk ríkislögreglustjóra er:
a. að flytja og kynna lögreglustjórum boð og ákvarðanir æðstu handhafa ríkisvaldsins sem snerta starfsemi lögreglunnar með einum eða öðrum hætti og vinna að og fylgjast með að þeim ákvörðunum verði fylgt í starfsemi lögreglunnar,
b. að láta dómsmálaráðherra í té upplýsingar um hvers konar lögreglumálefni sem hann getur notað til að undirbúa og byggja ákvarðanir sínar á,
c. að gera tillögur til dómsmálaráðherra um almenn fyrirmæli til lögreglustjóra,
d. að vinna að og gera tillögur um hagræðingu, samræmingu, framþróun og öryggi í starfsemi lögreglunnar,
e. að annast alþjóðasamskipti á sviði löggæslu,
f. að veita lögreglustjórum aðstoð og stuðning í lögreglustörfum,
g. að annast viðfangsefni sem eðli máls samkvæmt eða aðstæðna vegna kalla á miðstýringu eða samhæfingu á landsvísu eða samstarf við lögreglu í öðru landi,
h. að hafa með höndum yfirstjórn eða gefa fyrirmæli um framkvæmd einstakra löggæsluverkefna sem krefjast viðamikils undirbúnings eða þátttöku lögreglumanna úr fleiri en einu umdæmi. Ríkislögreglustjóri skal að fengnu samþykki dómsmálaráðherra tilkynna hlutaðeigandi lögreglustjóra eða lögreglustjórum ákvörðun sína varðandi stjórn löggæsluverkefnis með hæfilegum fyrirvara,
[i. að halda málaskrá um kærur sem berast lögreglu um afbrot með öllum nauðsynlegum upplýsingum sem mál varða, dagbók lögreglu með upplýsingum um erindi til lögreglu og úrlausn þeirra, skrá yfir handtekna menn og aðrar skrár sem nauðsynlegar eru í þágu löggæsluhagsmuna til að afstýra yfirvofandi hættu eða sporna við afbrotum. Dómsmálaráðherra setur nánari reglur 1) um þessar skrár], 2)
[j. að annast málefni almannavarna í umboði dómsmálaráðherra]. 3)
2. Sérstök verkefni sem ríkislögreglustjóra ber að hafa með höndum eru:
a. að starfrækja lögreglurannsóknardeild sem rannsakar skatta- og efnahagsbrot,
b. [að starfrækja lögreglurannsóknardeild og greiningardeild sem rannsakar landráð og brot gegn stjórnskipan ríkisins og æðstu stjórnvöldum þess og leggur mat á hættu á hryðjuverkum og skipulagðri glæpastarfsemi], 4)
c. að starfrækja almenna deild er annist kerfisbundna skráningu upplýsinga um lögreglumálefni, hafi umsjón með kaupum á ökutækjum, búnaði og fatnaði lögreglu og hafi reglulegt eftirlit með lögreglustöðvum, tækjum þeirra og búnaði,
d. að starfrækja alþjóðadeild er annist alþjóðleg boðskipti,
e. [að starfrækja rannsóknastofu sem hafi eftirlit með framkvæmd tæknirannsókna lögreglu, þar með rekstri miðlægra gagnagrunna lögreglu á sviði tæknirannsókna, annist erlend samskipti vegna tæknirannsókna og samstarf, haldi skrá um horfið fólk og hafi umsjón með störfum kennslanefndar og útgáfu leiðbeininga og verklagsreglna um tæknirannsóknir sem ríkislögreglustjóri setur], 5)
[f. að starfrækja áfengiseftirlitsdeild sem annist eftirlit með meðferð áfengis], 6)
[g. að starfrækja almannavarnadeild sem annist verkefni á sviði almannavarna]. 7)
3. Dómsmálaráðherra mælir nánar fyrir 8) um starfsemi ríkislögreglustjóra.
4. [Ríkislögreglustjóra til aðstoðar eru aðstoðarríkislögreglustjórar. Einn þeirra skal vera staðgengill ríkislögreglustjóra.] 4)
5. Þegar ríkislögreglustjóri er svo við málsefni eða aðila riðinn að hann mætti eigi gegna dómarastörfum í því skal hann víkja sæti og setur dómsmálaráðherra þá löghæfan mann til meðferðar þess máls.
1)Rg. 322/2001, sbr. 362/2008 og 1137/2008. 2)L. 15/2000, 10. gr. 3)L. 82/2008, 35. gr. 4)L. 46/2006, 1. gr. 5)L. 56/2004, 1. gr. 6)L. 78/1998, 1. gr. 7)L. 44/2003, 10. gr. 8)Rg. 804/2007.
6. gr. [Lögregluumdæmi og stjórn þeirra.
1. Landið skiptist í 15 lögregluumdæmi. Með lögreglustjórn fara lögreglustjórar og sýslumenn sem hér segir:
1. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu fer með lögreglustjórn á svæði sem nær yfir Reykjavíkurborg, Seltjarnarneskaupstað, Mosfellsbæ, Kjósarhrepp, Kópavog, Garðabæ, Hafnarfjörð og Sveitarfélagið Álftanes.
2. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum … 1) fer með lögreglustjórn á svæði sem nær yfir Grindavík, [Keflavíkurflugvöll], 1) Sandgerði, Sveitarfélagið Garð, Reykjanesbæ og Sveitarfélagið Voga … 1)
3. Sýslumenn með aðsetur á Akranesi, í Borgarnesi, í Stykkishólmi, á Ísafirði, Blönduósi, Sauðárkróki, Akureyri, Húsavík, Seyðisfirði, Eskifirði, Hvolsvelli, í Vestmannaeyjum og á Selfossi. Með lögreglustjórn í umdæmi sýslumannsins í Búðardal fer sýslumaðurinn í Borgarnesi, með lögreglustjórn í umdæmum sýslumannanna á Patreksfirði, í Bolungarvík og á Hólmavík fer sýslumaðurinn á Ísafirði, með lögreglustjórn í umdæmi sýslumannsins á Siglufirði fer sýslumaðurinn á Akureyri, með lögreglustjórn í umdæmi sýslumannsins á Höfn fer sýslumaðurinn á Eskifirði og með lögreglustjórn í umdæmi sýslumannsins í Vík fer sýslumaðurinn á Hvolsvelli. Umdæmi lögreglustjóra samkvæmt þessum tölulið skulu að öðru leyti ákveðin með reglugerð að fenginni umsögn viðkomandi lögreglustjóra og sveitarstjórna.
2. Við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum skulu starfa aðstoðarlögreglustjórar.
3. Lögreglustjórar fara með stjórn lögregluliðs, hver í sínu umdæmi. Þeir annast daglega stjórn og rekstur lögreglunnar í umdæmi sínu og bera ábyrgð á framkvæmd lögreglustarfa innan þess. Vaktskipulag og almenn löggæsla í lögregluumdæmum á Vesturlandi, Norðurlandi, Austurlandi og Suðurlandi skal í hverjum fjórðungi samhæfð og samræmd eftir því sem við verður komið. Ráðherra setur nánari reglur 2) um fyrirkomulag samvinnu og til hvaða umdæma hún skuli ná.
4. Lögreglustjórar fara með yfirstjórn leitar- og björgunaraðgerða í landi. Um björgun sem heyrir undir skipulag almannavarna gilda sérstök lög. Ráðherra setur reglur 3) um samstarf lögreglu og björgunarsveita.] 4)
1)L. 34/2008, 30. gr. 2) Rgl. 1053/2006. Rg. 66/2007, sbr. 506/2008. 3)Rg. 289/2003. 4)L. 46/2006, 2. gr.
7. gr. Starfssvæði lögreglu.
1. Lögreglumenn hafa lögregluvald hvar sem er á landinu.
2. Starfssvæði lögreglumanns er það umdæmi sem hann er skipaður, settur eða ráðinn til þess að starfa í.
3. Dómsmálaráðherra getur ákveðið að hluti lögregluliðs skuli gegna lögreglustörfum alls staðar á landinu. Hann setur reglur 1) um störf þess lögregluliðs og hvernig stjórn þess skuli háttað.
4. Heimilt er að víkja frá ákvæði 2. mgr. í eftirfarandi tilvikum:
a. [Ríkislögreglustjóri getur ákveðið að höfðu samráði við lögreglustjóra að lögreglulið í einu umdæmi skuli tímabundið gegna lögreglustörfum í öðru umdæmi og ákveður þá jafnframt hver skuli fara með stjórn þess. Dómsmálaráðherra getur samkvæmt tillögu ríkislögreglustjóra kveðið á um skipulagt samstarf lögregluliða við framkvæmd og stjórnun ákveðinna löggæsluverkefna og miðlun mannafla milli lögregluliða á tilteknu svæði til að gæta almannaöryggis og halda uppi lögum og reglu. Þá getur ráðherra samkvæmt tillögu ríkislögreglustjóra falið lögreglustjórum tímabundið tiltekin löggæsluverkefni utan síns umdæmis ef hagfellt þykir vegna staðhátta.] 2)
b. Lögreglumanni er heimilt að fara út fyrir starfssvæði sitt til þess að ljúka lögregluaðgerð sem hann hefur hafið innan þess. Á sama hátt getur lögreglumaður unnið lögregluverk utan umdæmis síns ef verkefnið krefst þess eða brýna nauðsyn ber til.
c. Lögreglumanni, sem er að störfum en á leið um annað lögregluumdæmi, er heimilt að hafa afskipti af mönnum sem hann stendur að lögbrotum.
5. Lögreglumaður skal tilkynna yfirmanni sínum um aðgerðir sínar skv. b- og c-liðum 4. mgr. svo fljótt sem kostur er. Með sama hætti ber að tilkynna lögreglustjóra hlutaðeigandi umdæmis um aðgerðir lögreglumanns.
1)Rg. 774/1998. Rg. 335/2005. 2)L. 29/1998, 2. gr.
8. gr. [Lögreglurannsóknir.
1. Lögregla annast rannsókn brota í samráði við ákærendur.
2. Við embætti eftirtalinna lögreglustjóra skulu vera sérstakar rannsóknardeildir:
1. lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir umdæmi hans,
2. lögreglustjórans á Akranesi fyrir umdæmi hans, lögreglustjórans í Borgarnesi og Stykkishólmi,
3. lögreglustjórans á Ísafirði fyrir umdæmi hans,
4. lögreglustjórans á Akureyri fyrir umdæmi hans, lögreglustjórans á Blönduósi, á Sauðárkróki og á Húsavík,
5. lögreglustjórans á Eskifirði fyrir umdæmi hans og lögreglustjórans á Seyðisfirði,
6. lögreglustjórans á Selfossi fyrir umdæmi hans og lögreglustjórans á Hvolsvelli og í Vestmannaeyjum,
7. lögreglustjórans á Suðurnesjum fyrir umdæmi hans.
3. Ráðherra setur nánari reglur samkvæmt tillögu ríkissaksóknara um hvaða brot skuli rannsaka hjá sérstökum rannsóknardeildum skv. 2. mgr. Önnur brot skal rannsaka í því umdæmi þar sem þau eru framin, sbr. þó ákvæði a- og b-liðar 2. mgr. 5. gr. Jafnframt setur ráðherra reglur 1) um hvernig stjórn rannsóknar skuli háttað, hvenær brot skuli rannsakað undir stjórn ríkislögreglustjóra skv. a-lið 2. mgr. 5. gr. og um rannsóknaraðstoð.
4. Sá lögreglustjóri sem rannsóknardeild á undir fer með forræði á rannsókn máls sem til rannsóknar er hjá sérstakri rannsóknardeild.
5. Ráðherra er heimilt að ákveða að við einstök embætti lögreglustjóra starfi, undir eftirliti ríkislögreglustjóra, greiningardeildir til að leggja mat á hættu á hryðjuverkum og skipulagðri glæpastarfsemi.
6. Við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu skal starfrækt tæknideild sem sinni vettvangsrannsóknum, samanburðarrannsóknum og öðrum slíkum rannsóknum og varðveiti fingrafarasafn lögreglu og ljósmyndasafn og haldi því við. Tæknideildin skal þjóna öllum lögregluumdæmum landsins og setur ríkislögreglustjóri nánari reglur um starfrækslu hennar.] 2)
[7. Lögreglustjórar og aðrir þeir sem fara með lögregluvald mega ekki rannsaka brot ef þeir eru vanhæfir til þess samkvæmt stjórnsýslulögum, sbr. þó 5. mgr. 5. gr. Starfsmenn þess lögreglustjóra, sem vanhæfur er, geta þó rannsakað mál undir stjórn annars lögreglustjóra nema þeir séu sjálfir vanhæfir til að fara með málið samkvæmt stjórnsýslulögum.] 3)
1)Rg. 804/2007. Rg. 192/2008. 2)L. 46/2006, 3. gr. 3)L. 88/2008, 234. gr.
9. gr. Handhafar lögregluvalds.
1. Ríkislögreglustjóri, [aðstoðarríkislögreglustjórar], 1) lögreglustjórar, [aðstoðarlögreglustjórar á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum], 1) skólastjóri Lögregluskóla ríkisins, löglærðir fulltrúar lögreglustjóra og lögreglumenn fara með lögregluvald.
2. Dómsmálaráðherra er heimilt í undantekningartilvikum að fela öðrum starfsmönnum lögreglu lögregluvald tímabundið til að sinna sérstökum verkefnum.
3. [Áhafnir varðskipa og gæsluflugvéla] 2) fara með lögregluvald þegar þær annast eða aðstoða við löggæslu.
4. [[Tollstjóri, löglærðir fulltrúar hans] 3) og tollverðir fara með lögregluvald á sínu starfssviði og þegar þeir annast eða aðstoða við löggæslu.] 4)
5. Hreppstjórar fara með lögregluvald samkvæmt lögum um hreppstjóra.
6. Héraðslögreglumenn fara með lögregluvald þegar þeir gegna starfinu.
7. Þeir sem kvaddir eru lögreglu til aðstoðar lögum samkvæmt fara með lögregluvald á meðan þeir gegna starfanum.
8. Nemar í Lögregluskóla ríkisins fara með lögregluvald þegar þeir gegna lögreglustarfi.
1)L. 46/2006, 4. gr. 2)L. 29/1998, 3. gr. 3)L. 147/2008, 44. gr. 4)L. 155/2000, 24. gr.
10. gr. Héraðslögreglumenn.
1. Lögreglustjóra er heimilt að fengnu samþykki ríkislögreglustjóra að ráða héraðslögreglumenn til starfa í umdæmi sínu, enda fullnægi þeir skilyrðum í [a-, b-, c- og d-liðum 2. mgr. 38. gr. laganna]. 1)
2. Hlutverk héraðslögreglumanna er að gegna almennum löggæslustörfum þegar á þarf að halda, þar á meðal að halda uppi lögum og reglu á mannfundum og skemmtunum undir stjórn lögreglumanna.
3. Dómsmálaráðherra setur reglur 2) um fjölda héraðslögreglumanna og störf þeirra.
4. Héraðslögreglumenn njóta sömu réttinda og bera sömu skyldur og lögreglumenn á meðan þeir gegna lögreglustörfum.
1)L. 56/2002, 6. gr. 2)Rg. 283/1997, sbr. 961/2008 og 1037/2008.
11. gr. Samvinna lögreglu við önnur stjórnvöld og stofnanir.
1. Lögreglan skal aðstoða ákæruvaldið við störf þess.
2. Lögregla og önnur stjórnvöld og stofnanir skulu hafa gagnkvæmt samstarf varðandi verkefni sem tengjast löggæslu, svo sem forvarnir. Sérstaklega skal lögregla vinna með félagsmálayfirvöldum, heilbrigðisyfirvöldum og menntamálayfirvöldum að forvörnum eftir því sem tilefni gefst til og aðstæður leyfa og upplýsa þessa aðila um málefni sem krefjast afskipta þeirra.
12. gr. Samstarfsnefndir lögreglu og sveitarfélaga.
1. Í hverju lögregluumdæmi skal starfa samstarfsnefnd um málefni lögreglunnar. Í henni sitja þrír menn: Lögreglustjóri viðkomandi umdæmis sem jafnframt er formaður nefndarinnar og tveir sveitarstjórnarmenn tilnefndir af hálfu sveitarstjórna þeirra sveitarfélaga sem eru í lögregluumdæminu. Fundi skal halda eigi sjaldnar en tvisvar á ári.
2. Nefndin er vettvangur fyrir samskipti og samvinnu lögreglunnar og sveitarfélaga í umdæminu. Hún gerir m.a. tillögur um úrbætur í málefnum sem varða löggæslu í umdæmi hennar og beitir sér fyrir því að almenningi verði kynnt starfsemi lögreglunnar.
III. kafli. Skyldur lögreglumanna og framkvæmd lögreglustarfa.
13. gr. Almennar reglur.
1. Handhafa lögregluvalds ber að sýna árvekni í starfi sínu og kunna glögg skil á skyldum sínum og þeirri ábyrgð sem starfinu fylgir.
2. Handhafa lögregluvalds ber að rækja starfa sinn af kostgæfni og samviskusemi og ávallt gæta fyllstu hlutlægni og réttsýni. Þeir skulu gæta þess að mönnum verði ekki gert tjón, óhagræði eða miski framar en óhjákvæmilegt er eftir því sem á stendur. Ekki mega þeir beita sakaðan mann harðræði fram yfir það sem lög heimila og nauðsynlegt er til þess að vinna bug á mótþróa hans gegn lögmætum aðgerðum né á annan hátt beita hann ólögmætri þvingun í orði eða verki, svo sem með hótunum.
3. [Við framkvæmd starfa sinna skulu handhafar lögregluvalds bera á sér sérstök skilríki. Ráðherra ákveður útlit, efni og notkun lögregluskilríkja með reglugerð. 1)] 2)
1)Rg. 1052/2006. 2)L. 29/1998, 4. gr.
14. gr. Valdbeiting.
Handhöfum lögregluvalds er heimilt að beita valdi við framkvæmd skyldustarfa sinna. Aldrei mega þeir þó ganga lengra í beitingu valds en þörf er á hverju sinni.
15. gr. Aðgerðir í þágu almannafriðar, allsherjarreglu o.fl.
1. Lögreglu er heimilt að hafa afskipti af borgurunum til að halda uppi almannafriði og allsherjarreglu eða koma í veg fyrir yfirvofandi röskun til að gæta öryggis einstaklinga eða almennings eða til að afstýra afbrotum eða stöðva þau.
2. Í þessu skyni er lögreglu m.a. heimilt að taka í sínar hendur umferðarstjórn, banna dvöl á ákveðnum svæðum, svo sem með því að girða af eða hindra umferð um þau, taka í sínar vörslur hættulega muni, vísa á brott eða fjarlægja fólk, fyrirskipa stöðvun eða breytingu á aðgerðum eða starfsemi, fara inn á svæði í einkaeign og fyrirskipa brottflutning fólks af þeim.
3. [Ef uggvænt þykir að óspektir verði á mótmælafundi, í kröfugöngu eða á annarri slíkri samkomu á opinberum stað er lögreglu heimilt að banna að maður breyti andliti sínu eða hylji það eða hluta þess með grímu, hettu, málningu eða öðru þess háttar sem er til þess fallið að koma í veg fyrir að kennsl verði borin á hann.] 1)
4. Óhlýðnist maður fyrirmælum lögreglu [skv. 2. og 3. mgr.] 1) getur hún gripið til nauðsynlegra ráðstafana á hans kostnað til að koma í veg fyrir að óhlýðni hans valdi tjóni eða stofni almenningi í hættu.
5. Lögreglu er heimilt að krefjast þess að maður segi til nafns síns, kennitölu og heimilisfangs og sýni skilríki því til sönnunar.
6. Lögreglu er heimilt að hafa afskipti af málefnum sem samkvæmt lögum heyra undir önnur stjórnvöld ef það er talið nauðsynlegt til að stöðva eða koma í veg fyrir alvarlega röskun á almannafriði og allsherjarreglu og ekki næst til viðkomandi stjórnvalds eða aðgerðir af þess hálfu eru útilokaðar, þýðingarlausar eða fyrirsjáanlegt er að þær muni hefjast of seint. Tilkynna skal hlutaðeigandi stjórnvaldi um aðgerðir lögreglu svo fljótt sem auðið er.
1)L. 56/2002, 2. gr.
16. gr. Heimild til handtöku.
1. Handhafa lögregluvalds er heimilt að handtaka mann og færa á lögreglustöð eða á annan stað þar sem lögregla hefur aðstöðu:
a. í þeim tilgangi að halda uppi lögum og reglu, svo sem ef maður ærist á almannafæri eða veldur þar hneyksli eða hættu á óspektum,
b. ef hann hefur hér ekki landvistarleyfi,
[c. ef hann á að afplána refsingu,
d. ef hann hefur leyfislaust vikið úr fangelsi,
e. ef rökstuddur grunur leikur á að hann hafi rofið í verulegum atriðum skilyrði sem honum hafa verið sett í skilorðsbundnum dóm, reynslulausn eða náðun.] 1)
2. Lögregla skal gera manni grein fyrir ástæðum þess að hann er færður á starfsstöð lögreglu. Ekki má halda manni lengur en nauðsyn ber til.
1)L. 88/2008, 234. gr.
17. gr. Leit á mönnum.
1. Lögreglu er heimilt ef ástæða er til að leita að vopnum eða öðrum hættulegum munum á hverjum þeim sem fjarlægður er eða handtekinn af lögreglu.
2. Sé maður vistaður í fangageymslu er lögreglu heimilt að leita á honum og taka til varðveislu muni sem hann hefur á sér og hann getur notað til þess að vinna tjón á sjálfum sér eða öðrum. Ef ástand manns eða aðstæður að öðru leyti gefa tilefni til er heimilt að taka af honum peninga og muni sem hann hefur á sér og hætta þykir á að geti skemmst, eyðilagst eða glatast.
3. Verðmætum, sem lögregla tekur til varðveislu skv. 2. og 3. mgr., ber að skila aftur þegar maður er látinn laus, enda séu ekki skilyrði til að leggja hald á þau samkvæmt lögum um meðferð [sakamála]. 1)
1)L. 88/2008, 234. gr.
18. gr. Afskipti af börnum.
Lögreglu ber að hafa afskipti af börnum yngri en 16 ára sem eru á stöðum þar sem heilsu þeirra eða velferð er alvarleg hætta búin og koma þeim í hendur forsjármanna eða barnaverndaryfirvalda ef nauðsynlegt þykir.
19. gr. Skylda til að hlýða fyrirmælum lögreglu.
Almenningi er skylt að hlýða fyrirmælum sem lögreglan gefur, svo sem vegna umferðarstjórnar eða til þess að halda uppi lögum og reglu á almannafæri.
20. gr. Skylda til að aðstoða lögreglu.
1. Ef nauðsyn ber til getur lögregla kvatt sér til aðstoðar hvern fulltíða mann, þar á meðal til að afstýra óreglu eða óspektum á almannafæri. Maður er skyldur til að hlýða kvaðningu lögreglu ef hann getur veitt aðstoð án þess að stofna lífi, heilbrigði, velferð eða verulegum hagsmunum sjálfs sín eða nánustu vandamanna í hættu.
2. Þeir sem kvaddir eru lögreglunni til aðstoðar skv. 1. mgr. fara með lögregluvald meðan þeir gegna starfinu og njóta sömu verndar og aðrir lögreglumenn.
21. gr. Bann við að tálma lögreglu í störfum sínum.
Enginn má á neinn hátt tálma því að maður gegni lögreglustörfum.
22. gr. Þagnarskylda.
1. Lögreglumönnum og öðru starfsliði lögreglu ber þagnarskylda um þau atvik sem þeim verða kunn í starfi sínu eða vegna starfs síns og leynt eiga að fara vegna lögmætra almanna- eða einkahagsmuna. Tekur þetta til upplýsinga um einkahagi manna sem eðlilegt er að leynt fari, upplýsinga sem varða starfshætti lögreglu og fyrirhugaðar lögregluaðgerðir og annarra upplýsinga sem leynt skulu fara samkvæmt lögum, starfsreglum lögreglu eða eðli máls.
2. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi.
[3. Ákvæði 1. mgr. skal ekki vera því til fyrirstöðu að lögreglan veiti tollstjóra aðgang að málaskrám sínum og öðrum upplýsingum sem lögregla býr yfir og varða ætluð brot á tollalögum, lögum um ávana- og fíkniefni eða öðrum lögum sem tollstjóra ber að framfylgja, enda séu upplýsingarnar nauðsynlegar í þágu greiningarstarfs tollstjóra.] 1)
1)L. 147/2008, 45. gr.
23. gr. Afskipti af eigin málum eða nákominna vandamanna.
Starfsmanni lögreglu er í starfi sínu óheimilt að aðhafast í eigin málum eða nákominna vandamanna nema afskipti hans af máli séu nauðsynleg til verndar lífi eða heilsu manna eða eignum gegn yfirvofandi hættu eða hætta sé á að frestun aðgerðar muni leiða til þess að tilgangi hennar verði ekki náð.
24. gr. Afskipti af vinnudeilum.
Lögreglu er óheimilt að hafa önnur afskipti af vinnudeilum en að halda þar, eins og annars staðar, uppi friði og afstýra skemmdum, meiðslum og vandræðum.
25. gr. Lögreglustörf utan vinnutíma.
1. Lögreglumanni er heimilt að sinna lögreglustörfum í frítíma sínum ef:
a. þess er þörf til verndar lífi eða heilsu fólks eða verulegum opinberum hagsmunum,
b. þess er þörf til að afstýra eða stöðva alvarlegt lögbrot eða
c. þess er þörf til að handtaka megi mann sem grunaður er um alvarlegan refsiverðan verknað.
2. Hafi lögreglumaður haft afskipti af máli skv. 1. mgr. ber honum tafarlaust að tilkynna það yfirmanni sínum. Hafi hann unnið slík verk utan starfsumdæmis síns skal hann tilkynna það lögreglustjóra þess umdæmis.
26. gr. Heimild til að fela lögreglu tollgæslustörf.
Dómsmálaráðherra er heimilt að ákveða með samkomulagi við fjármálaráðherra að lögreglumenn skuli gegna tollgæslustörfum jafnframt öðrum löggæslustörfum eftir nánari fyrirmælum lögreglustjóra og eftir reglum sem settar eru í samráði við [tollstjóra]. 1) Þar sem slík starfstilhögun er ákveðin skal þess getið í auglýsingu um starf lögreglumanns.
1)L. 147/2008, 46. gr.
IV. kafli. [Um veitingu starfa í lögreglu og starfslok.]1)
1)L. 56/2002, 4. gr.
27. gr. Fjöldi lögreglumanna.
Ráðherra ákveður á hverjum tíma í samráði við ríkislögreglustjóra að fengnum tillögum hlutaðeigandi lögreglustjóra fjölda lögreglumanna í hverju umdæmi.
28. gr. [Veiting starfa í lögreglu.
1. Ráðherra skipar til fimm ára í senn ríkislögreglustjóra, aðstoðarríkislögreglustjóra, lögreglustjóra og aðstoðarlögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum.
2. Ríkislögreglustjóri og lögreglustjórar skulu fullnægja sömu almennu hæfisskilyrðum og sýslumenn til skipunar í embætti. Sama gildir um staðgengla þeirra.
3. Aðstoðarríkislögreglustjórar og aðstoðarlögreglustjórar skulu fullnægja sömu skilyrðum og ríkislögreglustjóri til skipunar í embætti, en eftirtalin skilyrði gilda um menntun og starfsreynslu þeirra:
a. hefur lokið fullnaðarprófi í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi, eða háskólaprófi í þeirri grein sem metið verður jafngilt, eða lokið námi frá Lögregluskóla ríkisins svo og stjórnunarnámi eða öðru sambærilegu námi;
b. hefur í þrjú ár gegnt lögfræðistörfum að aðalstarfi eða verið stjórnandi innan lögreglunnar, en leggja má saman starfstíma í þessum greinum.
4. Ráðherra skipar yfirlögregluþjóna og aðstoðaryfirlögregluþjóna til fimm ára í senn. Ríkislögreglustjóri skipar aðra lögreglumenn til fimm ára í senn. Hver sá sem skipaður er til lögreglustarfa skal hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins. Ráðherra setur í reglugerð 1) nánari fyrirmæli um starfsstig innan lögreglunnar.
5. Ríkislögreglustjóri getur heimilað lögreglustjórum að ráða mann tímabundið til lögreglustarfa vegna orlofstöku, veikinda- eða slysaforfalla eða tímabundinna leyfa lögreglumanna þó að hann hafi ekki lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins, enda fullnægi hann skilyrðum 2. mgr. 38. gr. laganna og enginn með próf frá Lögregluskóla ríkisins er tiltækur í stöðuna.] 2)
1)Rg. 1051/2006. 2)L. 46/2006, 5. gr.
29. gr. Heitstafur.
Allir lögreglumenn sem eru skipaðir eða ráðnir til starfa skulu vinna svofellt heit: Því heiti ég og legg við drengskap minn og heiður að lögreglumannsstarfa minn skal ég rækja með kostgæfni og samviskusemi í hvívetna og vinna að því eftir fremsta megni að halda uppi stjórnarskrá lýðveldisins og öðrum lögum þess.
[29. gr. a. Starfslokaaldur.
Lögreglumenn skulu leystir frá embætti þegar þeir eru orðnir fullra 65 ára eða fyrr, eftir því sem dómsmálaráðherra ákveður með reglugerð.] 1)
1)L. 56/2002, 3. gr.
V. kafli. Atriði sem varða starfskjör lögreglumanna.
30. gr. Bótagreiðslur.
Ríkissjóður skal bæta lögreglumönnum líkamstjón og munatjón sem þeir verða fyrir vegna starfs síns. Greiða skal bætur fyrir missi framfæranda ef því er að skipta.
31. gr. Bann við verkföllum.
Lögreglumenn mega hvorki gera verkfall né taka þátt í verkfallsboðun.
32. gr. Aukastörf.
1. Heimilt er að fela lögreglumanni að vinna fyrir sanngjarnt endurgjald aukastörf í þágu ríkisins, enda valdi það ekki vanrækslu á þeim störfum er stöðu hans fylgja.
2. Áður en lögreglumaður hyggst, samhliða starfi sínu, taka við launuðu starfi í þjónustu annars aðila, ganga í stjórn atvinnufyrirtækis eða stofna til atvinnurekstrar ber honum að skýra lögreglustjóra frá því. Innan tveggja vikna skal lögreglumanni skýrt frá því ef áðurnefnd starfsemi telst ósamrýmanleg stöðu hans og honum bannað að hafa hana með höndum. Bera má slíkt bann undir ríkislögreglustjóra.
3. Rétt er að banna starfsmanni slíka starfsemi sem í 2. mgr. segir ef það er síðar leitt í ljós að hún megi ekki saman fara starfi hans í þjónustu ríkisins.
4. Við mat á því hvort starfsemi teljist ósamrýmanleg lögreglustarfi skal horft til þess hvort ástæða er til að ætla að aukastarfið valdi vanrækslu á þeim störfum sem stöðu hans fylgja, ástæða er til að ætla að það brjóti á einhvern hátt í bága við lögreglustarfið eða það geti með öðrum hætti hamlað því að viðkomandi geti sinnt lögreglustarfinu forsvaranlega.
5. Dómsmálaráðherra setur almennar reglur um hvaða aukastörf teljist heimil.
VI. kafli. Löggæslukostnaður.
33. gr. Kostnaður við rekstur lögreglu.
Kostnaður af starfsemi lögreglunnar greiðist úr ríkissjóði.
34. gr. Sérstakur löggæslukostnaður.
1. … 1)
2. [Lögreglustjóra er heimilt í sérstökum reglum 2) sem dómsmálaráðherra setur að] 1) kveða á um greiðslu kostnaðar af gæslustörfum vegna framkvæmda á almannafæri og flutnings á óvenjulegum eða hættulegum farmi þar sem lögreglustjóri telur nauðsynlegt að fyrirskipa slíka löggæslu.
1)L. 85/2007, 28. gr. 2)Rg. 289/2004.
VII. kafli. Kærur á hendur lögreglu.
35. gr. [1. Kæru á hendur starfsmanni lögreglu fyrir ætlað refsivert brot við framkvæmd starfa hans skal beina til ríkissaksóknara og fer hann með rannsókn málsins.
2. Við meðferð slíkra mála getur ríkissaksóknari beitt þeim heimildum sem lögregla hefur endranær.
3. Lögreglu ber að veita ríkissaksóknara aðstoð við rannsókn mála samkvæmt þessari grein eftir því sem óskað er.] 1)
1)L. 29/1998, 6. gr.
VIII. kafli. Lögregluskóli ríkisins.
36. gr. Hlutverk Lögregluskóla ríkisins.
1. Lögregluskóli ríkisins er sjálfstæð stofnun. Skólinn skal starfrækja grunnnámsdeild er veiti lögreglunemum menntun í almennum lögreglufræðum og framhaldsdeild er veiti starfandi lögreglumönnum símenntun, framhaldsmenntun og sérmenntun.
2. Lögregluskóli ríkisins skal vera vettvangur rannsókna í lögreglufræðum og stjórnvöldum til ráðgjafar um lögreglumálefni.
37. gr. Stjórn Lögregluskóla ríkisins.
1. [Ráðherra skipar skólastjóra Lögregluskóla ríkisins til fimm ára í senn.] 1) Hann skal fullnægja sömu skilyrðum fyrir skipan í embætti og lögreglustjórar og hafa staðgóða þekkingu á lögreglumálefnum.
2. Við Lögregluskóla ríkisins skulu starfa yfirlögregluþjónn og aðstoðaryfirlögregluþjónn sem dómsmálaráðherra skipar [til fimm ára í senn]. 1)
1)L. 83/1997, 32. gr.
38. gr. Inntaka nýnema og námstilhögun.
1. Ríkislögreglustjóri auglýsir eftir nemum í skólann um land allt. Hann ákveður fjölda nemenda sem hefja skulu nám ár hvert á grundvelli áætlunar um endurnýjun í lögreglu ríkisins.
2. [Lögreglumannsefni skulu fullnægja eftirtöldum almennum skilyrðum:
a. vera íslenskir ríkisborgarar, 20–40 ára,
b. hafa ekki gerst brotleg við refsilög; þetta gildir þó ekki ef brot er smávægilegt eða langt um liðið frá því að það var framið,
c. vera andlega og líkamlega heilbrigð og standast læknisskoðun trúnaðarlæknis samkvæmt fyrirliggjandi kröfum,
d. hafa lokið a.m.k. tveggja ára almennu framhaldsnámi eða öðru sambærilegu námi með fullnægjandi árangri eða starfsþjálfun sem jafna má til slíks náms, hafa gott vald á íslensku og ensku, hafa almenn ökuréttindi til bifreiðaaksturs og vera synd,
e. standast inntökupróf samkvæmt kröfum valnefndar með áherslu á íslensku og þrek.] 1)
3. Valnefnd velur nema í lögregluskólann úr hópi umsækjenda [og eru ákvarðanir hennar um val nema endanlegar]. 2) Nefndina skipa fimm menn, einn tilnefndur af dómsmálaráðherra, einn af ríkislögreglustjóra, einn af Sýslumannafélagi Íslands, einn af Landssambandi lögreglumanna og einn af skólastjóra Lögregluskóla ríkisins er skal vera formaður nefndarinnar.
4. [Nám í lögregluskólanum stendur í a.m.k. tólf mánuði og skiptist í þrjár annir. Fyrsta önn er ólaunuð. Þeim nemum sem standast próf á önninni skal ríkislögreglustjóri sjá fyrir launaðri starfsþjálfun í lögreglu ríkisins í a.m.k. fjóra mánuði. Að lokinni starfsþjálfunarönn tekur við launuð þriðja önn í lögregluskólanum sem lýkur með prófum.] 3)
[Valnefnd er heimilt að setja sér verklagsreglur þar sem fram koma þau viðmið sem stuðst er við þegar meta á skilyrði skv. b- og c-lið 2. mgr. og um val á nemum í lögregluskólann.] 1)
1)L. 46/2006, 6. gr. 2)L. 56/2002, 5. gr. 3)L. 49/2000, 1. gr.
39. gr. Reglugerð um Lögregluskóla ríkisins.
Dómsmálaráðherra setur í reglugerð 1) nánari fyrirmæli um stjórn skólans og starfslið, inntökuskilyrði, námstilhögun og prófkröfur.
1)Rg. 490/1997, sbr. 1102/2008.
IX. kafli. Ýmis ákvæði.
40. gr. Nánari reglur um framkvæmd laganna.
Dómsmálaráðherra setur nánari reglur 1) um framkvæmd laga þessara.
1)Rg. 289/2004. Rg. 8/2007. Rg. 192/2008. Rg. 350/2009.
41. gr. Refsingar.
Brot gegn 19.–21. gr. varða fésektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.
42. gr. Gildistaka.
1. Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1997.
…
43. gr. …
X. kafli. Ákvæði til bráðabirgða.
44. gr. Niðurlagning Rannsóknarlögreglu ríkisins. …
[45. gr. Undanþága frá aldursskilyrði. …]1)
1)L. 29/1998, 7. gr.
[Þeir sem náð hafa 63 ára aldri við gildistöku laga þessara en eru ekki orðnir 65 ára geta innan sex mánaða frá gildistöku laganna óskað eftir því að eldri reglur um starfslokaaldur gildi um þá. Nái þeir 65 ára aldri innan sex mánaða frá gildistöku laganna skulu þeir setja fram slíka ósk áður en þeim aldri er náð. Óski lögreglumaður eftir því að eldri reglur um starfslokaaldur gildi um hann skal hann senda bréflega tilkynningu þess efnis til embættis ríkislögreglustjóra.
Þeim sem náð hafa 65 ára aldri við gildistöku laganna en eru ekki orðnir 70 ára skal veitt lausn frá embætti í síðasta lagi frá og með 1. maí 2003 nema þeir óski þess fyrir þann tíma að eldri reglur um starfslokaaldur gildi um þá. Skal þá senda bréflega tilkynningu þess efnis til embættis ríkislögreglustjóra.] 1)
1)L. 56/2002, 7. gr.