Tilkynningar (Síða 2)

12.9.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir fimmtudaginn 18. september

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða fimmtudaginn 18. september kl. 10:30.

Lesa meira

12.9.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir mánudaginn 15. september

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða mánudaginn 15. september kl. 15:00.

Lesa meira

11.9.2025 : Svipmyndir frá þingsetningu 9. september

20250909-thingsetning_EA-90-CopyEyþór Árnason ljósmyndari fylgdist með setningu 157. löggjafarþings og má sjá fleiri myndir frá henni á Flickr-síðu Alþingis.

Lesa meira

10.9.2025 : Þingmálaskrá ríkisstjórnar

Þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir 157. löggjafarþing (2025-2026) er aðgengileg á vef Stjórnarráðsins.

Lesa meira

9.9.2025 : Ávarp forseta Alþingis við setningu 157. löggjafarþings

Forseti Alþingis flutti ávarp við setningu 157. löggjafarþings 9. september og bauð þingmenn velkomna til starfa.

Lesa meira

9.9.2025 : Stefnuræða forsætisráðherra 10. september

Stefnuraeda-10092025_samsettUmræðum um stefnuræðu forsætisráðherra verður útvarpað og sjónvarpað miðvikudagskvöldið 10. september kl. 19:40. Strax að loknum umræðum verður bein útsending úr Alþingishúsinu á RÚV þar sem sérfræðingar fjalla um það sem fram kemur í umræðunum.

Lesa meira

8.9.2025 : Varamenn taka sæti

Sigurður Örn Hilmarsson og Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir taka sæti á Alþingi þriðjudaginn 9. september, sem varaþingmenn fyrir Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur og Rögnu Sigurðardóttur. 

Lesa meira

5.9.2025 : Heimsókn þingmannasendinefndar frá Bretlandi

COVER_1757082833821Hópur þingmanna frá báðum deildum breska þingsins heimsótti Alþingi í dag, þar sem Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, tók á móti þeim og áttu þeir í kjölfarið hádegisverðarfund með forseta og fulltrúum í utanríkismálanefnd. Fyrir hópnum fór Fabian Hamilton, þingmaður verkamannaflokksins í Leeds, en auk hans voru níu þingmenn í sendinefndinni, þ.á m. Emily Thornberry, formaður utanríkismálanefndar neðri málstofu breska þingsins.

Lesa meira

4.9.2025 : Setning Alþingis 9. september

Bjalla-og-hamar_1702974837359Alþingi verður sett þriðjudaginn 9. september. Þingsetningarathöfnin hefst kl. 13:30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu.

Lesa meira

4.9.2025 : Sumarfundur forsætisnefndar á Snæfellsnesi

_DSC1964Forsætisnefnd Alþingis kom saman til árlegs vinnufundar í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi og í Stykkishólmi dagana 2. og 3. september. Um langt árabil hefur forsætisnefnd komið saman til lengri vinnufunda áður en nýtt löggjafarþing kemur saman. Að jafnaði eru slíkir sumarfundir haldnir í kjördæmum landsins til skiptis.

Lesa meira

4.9.2025 : Útbýting utan þingfunda 4. september

Þingskjölum var útbýtt utan þingfunda fimmtudaginn 4. september kl. 9:45.

Lesa meira

3.9.2025 : Alþjóðlegir drifkraftar, óvissuþættir framtíðar og sviðsmyndir um netöryggi á vinnustofu framtíðarnefndar 4. og 5. september

CoverVinnustofa framtíðarnefndar Alþingis verður haldin í samstarfi við CIFS (Copenhagen Institute for Futures Studies) dagana 4. og 5. september. Á vinnustofunni verður leitast við að fara yfir það sem efst er á baugi í framtíðarfræðum, alþjóðlegir drifkraftar og óvissuþættir framtíðar skoðaðir og unnið að sviðsmyndum um netöryggi á Íslandi.

Lesa meira

29.8.2025 : Forsetar þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja funda í Tallinn

IMG_5894Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, sótti árlegan fund forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja sem haldinn var í Tallinn í Eistlandi í dag, 29. ágúst. Ræddu þingforsetarnir m.a. það sem efst er á baugi í þingstörfum og þjóðmálum í löndunum átta, ásamt því að ræða samstarf þjóðþinganna og sameiginleg verkefni.

Lesa meira

25.8.2025 : Formenn landsdeilda NB8 lýsa yfir stuðningi við fullveldi, sjálfstæði og friðhelgi Úkraínu

54737002351_ee74868b9a_o-1-Formenn landsdeilda Norðurlanda og Eystrasaltsríkja á Evrópuráðsþinginu hittust á fundi í Jurmala í Lettlandi föstudaginn 22. ágúst til þess að ræða þær ógnir sem steðja að lýðræði í dag, stöðuna á Eystrasaltinu í kjölfar innrásarstríðs Rússlands í Úkraínu og þær áskoranir sem ný staða í öryggis- og varnarmálum felur í sér fyrir samfélögin á Norðurlöndum og Eystrasaltssvæðinu.

Lesa meira

20.8.2025 : Jón Gnarr kjörinn formaður Vestnorræna ráðsins

Untitled-design-1-_1755706051984Ársfundur Vestnorræna ráðsins fór fram í Ilulissat á Grænlandi dagana 19.–20. ágúst. Á fundinum var m.a. fjallað um jafnrétti og málefni ungs fólks á Vestur-Norðurlöndum auk þess sem samþykktar voru tvær ályktanir er snúa að öryggis- og varnarmálum á vestnorræna svæðinu. Í lok fundar var Jón Gnarr kosinn formaður Vestnorræna ráðsins.

Lesa meira

20.8.2025 : Vestnorrænir þingforsetar funda í Ilulissat

HeadlineÞórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, sótti ársfund Vestnorræna ráðsins sem haldinn er í Ilulissat á Grænlandi að þessu sinni. Var hún, ásamt forsetum færeyska og grænlenska þingsins, framsögumaður í þemaumræðum um jafnréttismál á Vestur-Norðurlöndum og lagði þar m.a. áherslu á að ríkisstjórnir landanna þriggja framfylgdu ályktun ráðsins um samstarf og samvinnu í jafnréttismálum. Samhliða ársfundi áttu þingforsetar Vestur-Norðurlanda fund þar sem þeir ræddu framtíð þingmannasamstarfsins sem fagnar 40 ára afmæli á þessu ári.

Lesa meira

14.8.2025 : Þingsetning verður 9. september

Alþingi verður sett þriðjudaginn 9. september, samkvæmt venju, en þingsetning er ávallt á öðrum þriðjudegi septembermánaðar. Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða miðvikudagskvöldið 10. september.

Lesa meira

31.7.2025 : 6. heimsráðstefna þingforseta í Genf

RaedaÞórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, hefur síðastliðna tvo daga setið heimsráðstefnu forseta þjóðþinga sem eiga aðild að Alþjóðaþingmannasambandinu, IPU, í Genf.

Lesa meira

28.7.2025 : Kvenþingforsetar funda í Genf

Radstefna-kventhingforseta-adildarrikja-IPU-i-Genf-2025-07-28Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, sækir 15. ráðstefnu kvenþingforseta aðildarríkja Alþjóðaþingmannasambandsins sem haldin er í Genf í dag, 28. júlí. Ráðstefnan er haldin í aðdraganda heimsráðstefnu þingforseta sem standa mun næstu þrjá daga í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í Genf.

Lesa meira

16.7.2025 : Aðalmenn taka sæti

Eyjólfur Ármannsson tók sæti á ný á Alþingi mánudaginn 14. júlí. Vék þá varaþingmaður hans, Bragi Þór Thoroddsen, af þingi. 

Jón Gunnarsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Alma Möller, Ingvar Þóroddsson, Halla Hrund Logadóttir, Ingibjörg Isaksen, Ragna Sigurðardóttir og Snorri Másson tóku sæti á ný á Alþingi þriðjudaginn 15. júlí. Viku þá varaþingmenn þeirra, Árni Helgason, Birna Bragadóttir, Hildur Rós Guðbjargardóttir, Heiða Ingimarsdóttir, Jóhann Friðrik Friðriksson, Jónína Brynjólfsdóttir, Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir og Þorsteinn B Sæmundsson af þingi. 

Lesa meira

16.7.2025 : Aðalmenn taka sæti

Eyjólfur Ármannsson tók sæti á ný á Alþingi mánudaginn 14. júlí. Vék þá varaþingmaður hans, Bragi Þór Thoroddsen, af þingi.

Jón Gunnarsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Alma D. Möller, Ingvar Þóroddsson, Halla Hrund Logadóttir, Ingibjörg Isaksen, Ragna Sigurðardóttir og Snorri Másson tóku sæti á ný á Alþingi þriðjudaginn 15. júlí. Viku þá varaþingmenn þeirra, Árni Helgason, Birna Bragadóttir, Hildur Rós Guðbjargardóttir, Heiða Ingimarsdóttir, Jóhann Friðrik Friðriksson, Jónína Brynjólfsdóttir, Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir og Þorsteinn B Sæmundsson af þingi. 

Lesa meira

16.7.2025 : Aðalmenn taka sæti

Eyjólfur Ármannsson tók sæti á ný á Alþingi mánudaginn 14. júlí. Vék þá varaþingmaður hans, Bragi Þór Thoroddsen, af þingi.

Jón Gunnarsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Alma D. Möller, Ingvar Þóroddsson, Halla Hrund Logadóttir, Ingibjörg Isaksen, Ragna Sigurðardóttir og Snorri Másson tóku sæti á ný á Alþingi þriðjudaginn 15. júlí. Viku þá varaþingmenn þeirra, Árni Helgason, Birna Bragadóttir, Hildur Rós Guðbjargardóttir, Heiða Ingimarsdóttir, Jóhann Friðrik Friðriksson, Jónína Brynjólfsdóttir, Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir og Þorsteinn B Sæmundsson af þingi. 

Lesa meira

14.7.2025 : Tölfræði 156. löggjafarþings

Þingfundum 156. löggjafarþings var frestað 14. júlí. Þingið var að störfum frá 4. febrúar til 14. júlí 2025. Hér hafa verið teknar saman tölfræðilegar upplýsingar um löggjafarþingið.

Lesa meira

11.7.2025 : Útbýting utan þingfunda 11. júlí

Þingskjali var útbýtt utan þingfunda föstudaginn 11. júlí kl. 19:50

Lesa meira

11.7.2025 : Aðalmaður tekur sæti

Sigurður Helgi Pálmason tekur sæti á Alþingi á ný laugardaginn 12. júlí. Víkur þá varaþingmaður hans, Elín Íris Fanndal, af þingi. 

Lesa meira

10.7.2025 : Varamaður tekur sæti

Jóhann Friðrik Friðriksson tekur sæti á Alþingi fimmtudaginn 10. júlí sem varaþingmaður fyrir Höllu Hrund Logadóttur. 

Lesa meira

9.7.2025 : Varamenn taka sæti

Árni Helgason, Jónína Brynjólfsdóttir, Þorsteinn Sæmundsson og Hildur Rós Guðbjargardóttir taka sæti á Alþingi miðvikudaginn 9. júlí sem varaþingmenn fyrir Jón Gunnarsson, Ingibjörgu Isaksen, Snorra Másson og Ölmu Möller. Víkur þá Jóna Þóra Pétursdóttir, varaþingmaður Ölmu Möller, af þingi.

Lesa meira

8.7.2025 : Aðalmenn og varamaður taka sæti

Dagbjört Hákonardóttir, Guðmundur Ingi Kristinsson, Jónína Björk Óskarsdóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir taka sæti á Alþingi þriðjudaginn 8. júlí. Víkja þá varaþingmenn þeirra Anna María Jónsdóttir, Grétar Mar Jónsson, Ólöf Pálína Úlfarsdóttir og Karólína Helga Símonardóttir af þingi. Bragi Þór Thoroddsen tekur sæti á Alþingi sama dag sem varaþingmaður fyrir Eyjólf Ármannsson.

Lesa meira

7.7.2025 : Aðalmaður tekur sæti

Víðir Reynisson tók sæti á Alþingi sunnudaginn 6. júlí, vék þá varaþingmaður hans, Sverrir Bergmann Magnússon, af þingi.

Lesa meira

4.7.2025 : Aðalmaður og varamaður taka sæti

Pawel Bartoszek tekur sæti á Alþingi laugardaginn 5. júlí. Þá víkur varaþingmaður hans, Katrín Sigríður Júlíu Steingrímsdóttir, af þingi. Elín Íris Fanndal tekur sæti á Alþingi sama dag sem varaþingmaður fyrir Sigurð Helga Pálmason. 

Lesa meira

4.7.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir föstudaginn 4. júlí

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða föstudaginn 4. júlí kl. 13:00.

Lesa meira

4.7.2025 : Varamaður tekur sæti

Birna Bragadóttir tekur sæti á Alþingi föstudaginn 4. júlí sem varamaður fyrir Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur. 

Lesa meira

3.7.2025 : Úthlutun fræðimannsíbúðar Húss Jóns Sigurðssonar

Jónshús_FræðimannsíbúðÚthlutunarnefnd fræðimannsíbúðar, samkvæmt reglum um Hús Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn, hefur lokið störfum og úthlutað íbúð fræðimanns á 2. hæð hússins frá ágústlokum 2025 til sama tíma að ári. Alls bárust nefndinni að þessu sinni 58 gildar umsóknir. 

Lesa meira

2.7.2025 : Starfsáætlun Alþingis fyrir 157. löggjafarþing

Starfsáætlun fyrir 157. löggjafarþing (2025–2026) var samþykkt á fundi forsætisnefndar 1. júlí.

Lesa meira

2.7.2025 : Minningarorð um Magnús Þór Hafsteinsson, fyrrverandi alþingismann

Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, flutti minningarorð um Magnús Þór Hafsteinsson, fyrrverandi alþingismann, á þingfundi miðvikudaginn 2. júlí 2025. Magnús lést 30. júní 2025. 

Lesa meira

1.7.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir þriðjudaginn 1. júlí

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða þriðjudaginn 1. júlí kl. 13:30.

Lesa meira

1.7.2025 : 150 ár frá því Alþingi kom saman í fyrsta sinn samkvæmt nýrri stjórnarskrá – og 150 ára afmæli skrifstofu Alþingis

150 ár eru nú liðin frá því að Alþingi kom saman í fyrsta sinn eftir að Kristján níundi Danakonungur færði Íslendingum nýja stjórnarskrá árið 1874, á 1000 ára afmæli Íslandsbyggðar, en Alþingi kom saman samkvæmt henni árið eftir, 1. júlí 1875. Daginn eftir, 2. júlí 1875, var skrifstofa Alþingis stofnuð.

Lesa meira

1.7.2025 : Varamenn taka sæti

Ólöf Pálína Úlfarsdóttir tekur sæti á Alþingi þriðjudaginn 1. júlí sem varamaður fyrir Jónínu Björk Óskarsdóttur. Grétar Mar Jónsson tekur sæti á Alþingi sama dag sem varamaður fyrir Guðmund Inga Kristinsson. Anna María Jónsdóttir tekur sæti sama dag sem varamaður fyrir Dagbjörtu Hákonardóttur. 

Lesa meira

30.6.2025 : Forseti Alþingis fellst á beiðni Rögnu Árnadóttur um lausn frá embætti skrifstofustjóra frá 1. júlí

Forseti Alþingis hefur fallist á beiðni Rögnu Árnadóttur um lausn frá embætti skrifstofustjóra Alþingis frá 1. júlí í stað 1. ágúst nk. Forseti hefur jafnframt falið Auði Elvu Jónsdóttur, fjármála- og rekstrarstjóra á skrifstofu Alþingis og staðgengli skrifstofustjóra, að sinna verkefnum skrifstofustjóra frá 1. júlí til 31. júlí nk. Ráðgert er að Sverrir Jónsson taki við embætti skrifstofustjóra Alþingis 1. ágúst nk.

Lesa meira

30.6.2025 : Varamaður tekur sæti

Karólína Helga Símonardóttir tekur sæti á Alþingi mánudaginn 30. júní sem varamaður fyrir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur.

Lesa meira

30.6.2025 : Aðalmenn taka sæti

Halla Hrund Logadóttir, Sigríður Á. Andersen og Sigurður Helgi Pálmason taka sæti á ný á Alþingi mánudaginn 30. júní. Víkja þá varaþingmenn þeirra, Jóhann Friðrik Friðriksson, Einar Jóhannes Guðnason og Jónas Yngvi Ásgrímsson, af þingi.

Lesa meira

27.6.2025 : Varamenn taka sæti

Katrín Sigríður Júlíu Steingrímsdóttir tekur sæti á Alþingi laugardaginn 28. júní sem varaþingmaður fyrir Pawel Bartoszek. Sverrir Bergmann Magnússon tekur sæti sama dag sem varaþingmaður fyrir Víði Reynisson. 

Lesa meira

27.6.2025 : Aðalmaður og varamaður taka sæti

Ása Berglind Hjálmarsdóttir tekur sæti á ný á Alþingi föstudaginn 27. júní og víkur þá varamaður hennar, Sverrir Bergmann Magnússon, af þingi. Jóna Þórey Pétursdóttir tekur sæti á Alþingi sama dag sem varamaður fyrir Ölmu D. Möller. 

Lesa meira

26.6.2025 : Aðalmaður tekur sæti

Dagur B. Eggertsson tekur sæti á ný á Alþingi fimmtudaginn 26. júní. Víkur þá varamaður hans, Anna María Jónsdóttir, af þingi.

Lesa meira

23.6.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir fimmtudaginn 26. júní

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða fimmtudaginn 26. júní kl. 10.

Lesa meira

23.6.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir mánudaginn 23. júní

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða mánudaginn 23. júní kl. 15:00.

Lesa meira

23.6.2025 : Varamenn taka sæti

Jóhann Friðrik Friðriksson tekur sæti á Alþingi mánudaginn 23. júní sem varamaður fyrir Höllu Hrund Logadóttur. Jónas Yngvi Ásgrímsson tekur sæti sama dag sem varamaður fyrir Sigurð Helga Pálmason. 

Lesa meira

23.6.2025 : Varamaður tekur sæti

Einar Jóhannes Guðnason tekur sæti á Alþingi mánudaginn 23. júní sem varaþingmaður fyrir Sigríði Á. Andersen. 

Lesa meira

20.6.2025 : NATO-þingið 70 ára

54601041112_5d5615b79b_oBryndís Haraldsdóttir, 1. varaforseti Alþingis, og Dagur B. Eggertsson, formaður Íslandsdeildar NATO-þingsins, sækja leiðtogafund NATO-þingsins sem haldinn er í Brussel í dag. Til fundarins er boðið forsetum þjóðþinga aðildarríkja og formönnum landsdeilda, en í ár fagnar NATO-þingið 70 ára afmæli. Ísland var stofnaðili að Norður-Atlantshafsbandalaginu, NATO, og Alþingi hefur frá upphafi átt fulltrúa á NATO-þinginu, sem var við stofnun í París 1955 nefnt „ráðstefna þingmannasamtaka Norður-Atlantshafsríkjanna“.

Lesa meira

19.6.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir föstudaginn 20. júní

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða föstudaginn 20. júní kl. 10:30.

Lesa meira

18.6.2025 : Varamenn taka sæti

Sverrir Bergmann Magnússon tekur sæti á Alþingi fimmtudaginn 19. júní sem varaþingmaður fyrir Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur. Anna María Jónsdóttir tekur sæti sama dag sem varaþingmaður fyrir Dag B. Eggertsson. 

Lesa meira

16.6.2025 : Aðalmaður tekur sæti

Inga Sæland tekur sæti á ný á Alþingi þriðjudaginn 17. júní. Víkur þá varaþingmaður hennar, Rúnar Sigurjónsson, af þingi. 

Lesa meira

16.6.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir mánudaginn 16. júní

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða mánudaginn 16. janúar um kl. 15:00.

Lesa meira

16.6.2025 : Aðalmaður tekur sæti

Kristján Þórður Snæbjarnarson tók sæti á ný á Alþingi sunnudaginn 15. júní. Vék þá varaþingmaður hans, Vilborg Kristín Oddsdóttir, af þingi.

Lesa meira

13.6.2025 : Sverrir Jónsson ráðinn skrifstofustjóri Alþingis

SvJ-3Sverrir Jónsson var í dag ráðinn skrifstofustjóri Alþingis. Sverrir tekur við embættinu 1. ágúst nk., en þá lætur núverandi skrifstofustjóri, Ragna Árnadóttir, af embætti.

Lesa meira

12.6.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir föstudaginn 13. júní

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða föstudaginn 13. júní um kl. 11:00.

Lesa meira

11.6.2025 : Varaforseti Alþýðuþjóðþings Kína heimsækir Alþingi

5Varaforseti Alþýðuþjóðþings Kína, Zhang Qingwei, heimsótti Alþingi í gær ásamt sendinefnd. Forseti Alþingis, Þórunn Sveinbjarnardóttir, tók á móti gestum ásamt Grími Grímssyni, 2. varaforseta Alþingis, Örnu Láru Jónsdóttur, formanni efnahags- og viðskiptanefndar, og Guðrúnu Hafsteinsdóttur, 1. varaformanni allsherjar- og menntamálanefndar.

Lesa meira

10.6.2025 : Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagur) 11. júní 2025

Stefnuraeda-2025-2Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður) fara fram á Alþingi miðvikudaginn 11. júní og verða sendar út í útvarpi og sjónvarpi. Umræðurnar hefjast kl. 19:40, skiptast í tvær umferðir og hefur hver þingflokkur átta mínútur í fyrri umferð og fimm mínútur í seinni umferð.

Lesa meira

10.6.2025 : Varamaður tekur sæti

Rúnar Sigurjónsson tekur sæti á Alþingi þriðjudaginn 10. júní sem varamaður fyrir Ingu Sæland.

Lesa meira

6.6.2025 : Starfsáætlun Alþingis felld úr gildi

Forseti Alþingis hefur átt fund með forsætisnefnd og formönnum þingflokka og gert þeim grein fyrir því að starfsáætlun Alþingis hefur verið felld úr gildi.

Lesa meira

6.6.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir þriðjudaginn 10. júní

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða þriðjudaginn 10. júní um kl. 13:30.

Lesa meira

4.6.2025 : Sérstök umræða 5. júní um nýsköpun í heilbrigðisþjónustu og einkarekstur

AslaugArna_AlmaMollerSérstök umræða um nýsköpun í heilbrigðisþjónustu og einkarekstur verður fimmtudaginn 5. júní um kl. 11.

Lesa meira

4.6.2025 : Þingforsetar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja heimsækja Bosníu-Hersegóvínu

IMG_4769Forsetar þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja sækja Bosníu-Hersegóvínu heim 2.-4. júní og er Bryndís Haraldsdóttir, 1. varaforseti, fulltrúi Alþingis í ferðinni.

Í gær heimsóttu þingforsetarnir þjóðþing Bosníu-Hersegóvínu og áttu fundi með forsetum og varaforsetum beggja þingdeilda. Þá áttu þau fund með þjóðarleiðtogum landsins en þannig háttar til að í Bosníu-Hersegóvínu er þriggja manna forsetaráð sem samanstendur af einum fulltrúa frá helstu þjóðarbrotunum, Bosníumönnum, Króötum og Serbum. Fulltrúarnir skiptast á að gegna formennsku á átta mánaða fresti.

Lesa meira

4.6.2025 : Varamaður tekur sæti

Vilborg Kristín Oddsdóttir tekur sæti á Alþingi miðvikudaginn 4. júní sem varaþingmaður fyrir Kristján Þórð Snæbjarnarson.

Lesa meira

2.6.2025 : Opinn fundur 5. júní um skýrslu fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis fyrir árið 2024

Opinn nefndarfundurEfnahags- og viðskiptanefnd Alþingis heldur opinn fund fimmtudaginn 5. júní í húsnæði Alþingis í Smiðju og hefst hann kl. 8:30. Fundarefnið er skýrsla fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis fyrir árið 2024.

Lesa meira

30.5.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir fimmtudaginn 5. júní

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða fimmtudaginn 5. júní kl. 10:30.

Lesa meira

30.5.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir mánudaginn 2. júní

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða mánudaginn 2. júní kl. 15:00.

Lesa meira

28.5.2025 : Útbýting utan þingfunda 28. maí

Þingskjölum var útbýtt utan þingfunda miðvikudaginn 28. maí kl. 19:30

Lesa meira

28.5.2025 : Aðalmenn taka sæti

Jón Gnarr, Dagur B. Eggertsson, Njáll Trausti Friðbertsson, Sigmar Guðmundsson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir taka sæti á ný á Alþingi miðvikudaginn 28. maí. Þá víkja varaþingmenn þeirra, Aðalsteinn Leifsson, Pétur Marteinn Urbancic Tómasson, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Valdimar Breiðfjörð Birgisson og Ragnhildur Jónsdóttir af þingi. 

Lesa meira

27.5.2025 : Fundur þingmannanefndar EES í Hofi á Akureyri

20250527_142421Sameiginleg þingmannanefnd EES fundaði í dag í Hofi á Akureyri. Rætt var um stöðu EES-samningsins, norðurskautsmála og alþjóðaviðskipta, stuðning Evrópu við Úkraínu og stefnumótun Evrópusambandsins sem hefur það að markmiði að auka samkeppnishæfni innri markaðarins.

Nefndin samanstendur af þingmönnum EES og EFTA ríkjanna, þ.e. Íslands, Noregs og Liechtenstein, og þingmönnum Evrópuþingsins. Sviss hefur áheyrnaraðild að nefndinni.

Lesa meira

27.5.2025 : Skýrsla Framtíðarseturs um græn umskipti 2040

Framtíðarsetur Íslands hefur unnið skýrslu um græn umskipti og áskoranir til ársins 2040 að beiðni framtíðarnefndar Alþingis. Viðtöl voru tekin við sérfræðinga og haldin voru drifkraftaverkstæði, sviðsmyndafundur og vinnustofur.

Lesa meira

26.5.2025 : Aðalmenn taka sæti

Jónína Björk Óskarsdóttir tekur sæti á ný á Alþingi mánudaginn 26. maí. Víkur þá varaþingmaður hennar, Grétar Mar Jónsson, af þingi. Þórarinn Ingi Pétursson tekur sæti á ný sama dag. Víkur þá varaþingmaður hans, Jónína Brynjólfsdóttir, af þingi. Ásthildur Lóa Þórsdóttir tekur einnig sæti á ný á Alþingi sama dag og víkur þá varaþingmaður hennar, Elín Íris Fanndal, af þingi.

Lesa meira

26.5.2025 : Aðalmaður tekur sæti

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tók sæti á ný á Alþingi laugardaginn 24. maí. Vék þá varaþingmaður hennar, Karólína Helga Símonardóttir, af þingi. 

Lesa meira

23.5.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir mánudaginn 26. maí

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða mánudaginn 26. maí um kl. 15:00.

Lesa meira

22.5.2025 : 150 ár frá stofnun skrifstofu Alþingis

  • XP1017620

P1017523Afmælisfagnaður var haldinn í Smiðju fimmtudaginn 22. maí í tilefni þess að í ár eru 150 ár liðin frá því að skrifstofa Alþingis var stofnuð. Til fagnaðarins var boðið þingmönnum og starfsfólki skrifstofunnar, núverandi og fyrrverandi.

Lesa meira

22.5.2025 : Varamaður tekur sæti

Heiða Ingimarsdóttir tekur sæti fimmtudaginn 22. maí, sem varaþingmaður fyrir Ingvar Þóroddsson. 

Lesa meira

21.5.2025 : Sérstök umræða um innlenda vinnsluskyldu á sjávarafla fimmtudaginn 22. maí

EydisAsbjorns_HannaKatrinSérstök umræða um innlenda vinnsluskyldu á sjávarafla verður fimmtudaginn 22. maí um kl. 11.

Lesa meira

21.5.2025 : Aðalmaður og varamenn taka sæti

Arna Lára Jónsdóttir tekur sæti á ný á Alþingi miðvikudaginn 21. maí. Þá víkur varaþingmaður hennar, Hannes S. Jónsson, af þingi. Aðalsteinn Leifsson tekur sæti á Alþingi miðvikudaginn 21. maí sem varaþingmaður fyrir Jón Gnarr og víkur þá Diljá Ámundadóttir Zoega af þingi. Berglind Harpa Svavarsdóttir tekur sæti sama dag sem varaþingmaður fyrir Njál Trausta Friðbertsson. Valdimar Breiðfjörð Birgisson tekur sæti sama dag sem varaþingmaður fyrir Sigmar Guðmundsson. Pétur Marteinn Urbancic Tómasson tekur sæti sama dag sem varaþingmaður fyrir Dag B. Eggertsson. Þá tekur Ragnhildur Jónsdóttir sæti sama dag sem varaþingmaður fyrir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur.

Lesa meira

20.5.2025 : Fundur formanna landsdeilda Norðurlanda og Eystrasaltsríkja á ÖSE þingi í Ósló

2Arna Lára Jónsdóttir sótti fund formanna landsdeilda Norðurlanda og Eystrasaltsríkja (NB8) á þingi Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) í Ósló. Umræðuefnið er undirbúningur ársfundar ÖSE-þingsins, sem fer fram í Porto í Portúgal dagana 29. júní – 3. júlí.

Lesa meira

19.5.2025 : Ný útgáfa lagasafnsins

Bjalla-og-hamarNý útgáfa lagasafnsins (156a) hefur verið birt á vef Alþingis. Þar er safn gildandi laga uppfært til 30. apríl 2025. Tilvísanir til stjórnvaldsfyrirmæla, þ.e. reglugerða, reglna og auglýsinga sem hafa almennt gildi, eru að jafnaði birtar í lagasafninu til sama tíma en opinber birting þeirra er á vef Stjórnartíðinda. Breytingar á stofnreglugerðum hafa ekki verið uppfærðar en eru aðgengilegar á vef Stjórnartíðinda og reglugerd.is.

Lesa meira

19.5.2025 : Nefndadagar 23., 27., 28. og 30. maí

Opinn nefndarfundurNefndadagar verða samkvæmt starfsáætlun Alþingis föstudaginn 23. maí, þriðjudaginn 27. maí og miðvikudaginn 28. maí. Þá er nefndadagur föstudaginn 30. maí, sbr. breytingu sem gerð var á starfsáætlun Alþingis 9. maí sl.

Lesa meira

19.5.2025 : Góðir gestir frá Grænlandi

KimKielsen_ThorunnSveinbjarnar-16.5.25Kim Kielsen, forseti grænlenska þingsins Inatsisartut, er í vinnuheimsókn á Íslandi ásamt forsætisnefnd þess. Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, tók í morgun á móti grænlenskum starfsbróður sínum til fundar og ræddu þau m.a. stöðuna í stjórnmálum og verkefni þinganna, en í báðum löndum urðu ríkisstjórnarskipti að lokum síðustu þingkosningum.

Lesa meira

19.5.2025 : Aðalmenn taka sæti

Eyjólfur Ármannsson tekur sæti á ný á Alþingi mánudaginn 19. maí og víkur þá varaþingmaður hans, Bragi Þór Thoroddsen, af þingi. Guðrún Hafsteinsdóttir tekur sæti á ný sama dag og víkur þá varaþingmaður hennar, Gísli Stefánsson, af þingi. Snorri Másson tekur einnig sæti á ný sama dag og víkur þá varaþingmaður hans, Þorsteinn B Sæmundsson af þingi. 

Lesa meira

16.5.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir mánudaginn 19. maí

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða mánudaginn 19. maí um kl. 15:00.

Lesa meira

16.5.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir fimmtudaginn 22. maí

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða fimmtudaginn 22. maí um kl. 10:30.

Lesa meira

14.5.2025 : Varamaður tekur sæti

Diljá Ámundadóttir Zoega tekur sæti á Alþingi miðvikudaginn 14. maí sem varaþingmaður fyrir Jón Gnarr. 

Lesa meira

13.5.2025 : Varamenn taka sæti

Grétar Mar Jónsson tekur sæti á Alþingi þriðjudaginn 13. maí sem varaþingmaður fyrir Jónínu Björk Óskarsdóttur. Sama dag tekur Karólína Helga Símonardóttir sæti sem varaþingmaður fyrir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur.

Lesa meira

12.5.2025 : Nefndadagur 16. maí

Opinn nefndarfundurNefndadagur verður samkvæmt starfsáætlun Alþingis föstudaginn 16. maí.

Lesa meira

12.5.2025 : Aðalmenn og varamaður taka sæti

Logi Einarsson tekur sæti á ný á Alþingi mánudaginn 12. maí. Þá víkur varaþingmaður hans, Sindri S. Kristjánsson, af þingi. Alma D. Möller tekur sæti á ný sama dag. Þá víkur varaþingmaður hennar, Árni Rúnar Þorvaldsson, af þingi. Sama dag tekur Gísli Stefánsson sæti á Alþingi sem varaþingmaður fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur í stað Ingveldar Önnu Sigurðardóttur sem víkur af þingi. Sama dag tekur Bragi Þór Thoroddsen sæti á Alþingi sem varaþingmaður fyrir Eyjólf Ármannsson.

Lesa meira

9.5.2025 : Breytingar á starfsáætlun

Eftir fund forseta Alþingis með formönnum þingflokka og fund forsætisnefndar föstudaginn 9. maí liggur fyrir að gerðar verða tvær breytingar á starfsáætlun Alþingis í maí. Þingfundur verður laugardaginn 10. maí og nefndadagur föstudaginn 30. maí.

Lesa meira

9.5.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir fimmtudaginn 15. maí

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða fimmtudaginn 15. maí um kl. 10:30.

Lesa meira

9.5.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir mánudaginn 12. maí

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða mánudaginn 12. maí um kl. 15:00.

Lesa meira

8.5.2025 : Varamaður tekur sæti

Hannes S. Jónsson tekur sæti á Alþingi fimmtudaginn 8. maí sem varaþingmaður fyrir Örnu Láru Jónsdóttur.

Lesa meira

5.5.2025 : Mannréttindastofnun Íslands tekin til starfa

Mannréttindastofnun Íslands tók til starfa 1. maí sl. og starfar hún á vegum Alþingis samkvæmt lögum nr. 88/2024. Vefsíða embættisins er www.mannrettindi.is en hún er enn í vinnslu.

Lesa meira

2.5.2025 : Utanríkisráðherra Mongolíu á fundum með forseta Alþingis og utanríkismálanefnd

Vinnuheimsokn-utanrikisradherra-Mongoliu-til-Islands-2025-05-02Utanríkisráðherra Mongolíu, Battsetseg Batmunkh, er ásamt sendinefnd í vinnuheimsókn á Íslandi og fundaði í dag með forseta Alþingis og utanríkismálanefnd.

Lesa meira

2.5.2025 : Nefndadagur 9. maí

Opinn nefndarfundurNefndadagur verður samkvæmt starfsáætlun Alþingis föstudaginn 9. maí.

Lesa meira

2.5.2025 : Varamenn taka sæti

Árni Rúnar Þorvaldsson tekur sæti á Alþingi mánudaginn 5. maí sem varaþingmaður fyrir Ölmu D. Möller. Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir tekur sæti sama dag sem varaþingmaður fyrir Rögnu Sigurðardóttur. Þá tekur Sindri S. Kristjánsson sæti sem varaþingmaður fyrir Loga Einarsson, Jónína Brynjólfsdóttir tekur sæti sem varaþingmaður fyrir Þórarin Inga Pétursson og Ingveldur Anna Sigurðardóttir tekur sæti sem varaþingmaður fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur. 

Lesa meira

29.4.2025 : Sérstök umræða 29. apríl um fjárfestingarstefnu lífeyrissjóðanna

ThorarinnIngi_ThorbjorgSigr-1-Sérstök umræða um fjárfestingarstefnu lífeyrissjóðanna verður þriðjudaginn 29. apríl um kl. 14.

 

Lesa meira

28.4.2025 : Opinn fundur 30. apríl um meðferð forsætisráðuneytisins á erindi um persónulegt málefni þáverandi mennta- og barnamálaráðherra

Opinn nefndarfundurStjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis heldur opinn fund miðvikudaginn 30. apríl til að fjalla um meðferð forsætisráðuneytisins á erindi um persónulegt málefni þáverandi mennta- og barnamálaráðherra.

Lesa meira

28.4.2025 : Varamaður tekur sæti

Þorsteinn B Sæmundsson tekur sæti á Alþingi mánudaginn 28. apríl sem varaþingmaður fyrir Snorra Másson.

Lesa meira

25.4.2025 : Fríverslunarmál rædd í Malasíu

AHM-0852Sendinefnd þingmanna frá Íslandi, Noregi, Sviss og Liechtenstein heimsótti Malasíu í vikunni í tengslum við gerð fríverslunarsamningsins EFTA og Malasíu. Þátttakendur af hálfu Alþingis voru Grímur Grímsson og Ingibjörg Isaksen, Grímur leiddi sendinefndina sem formaður þingmannanefndar EFTA. 

Lesa meira

25.4.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir miðvikudaginn 30. apríl

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða miðvikudaginn 30. apríl kl. 15:00.

Lesa meira

25.4.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir mánudaginn 28. apríl

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða mánudaginn 28. apríl kl. 15:00.

Lesa meira

24.4.2025 : Íslenski söfnuðurinn í Danmörku hlýtur Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta árið 2025

IMG_4593Hátíð Jóns Sigurðssonar var haldin í Jónshúsi í Kaupmannahöfn í dag, 24. apríl, á sumardaginn fyrsta. Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, setti hátíðina og afhenti Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta. Aðalræðumaður að þessu sinni var Ágúst Óskar Gústafsson heimilislæknir og tónlistarflutning annaðist kórinn Hafnarbræður.

Verðlaun Jóns Sigurðssonar 2025 hlaut íslenski söfnuðurinn í Kaupmannahöfn og er þetta í annað sinn sem félagasamtök hljóta verðlaunin.

Lesa meira

10.4.2025 : Aðalmenn taka sæti

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Víðir Reynisson, Ragnar Þór Ingólfsson, Sigurður Helgi Pálmason, Sigríður Á. Andersen, Lilja Rafney Magnúsdóttir og Dagur B. Eggertsson taka sæti á Alþingi föstudaginn 11. apríl.

Lesa meira

7.4.2025 : Varamaður tekur sæti

Jakob Frímann Magnússon tekur sæti á Alþingi mánudaginn 7. apríl sem varaþingmaður fyrir Sigríði Á. Andersen. 

Lesa meira

4.4.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir 10. apríl

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða fimmtudaginn 10. apríl kl. 10:30.

Lesa meira

4.4.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir 7. apríl

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða mánudaginn 7. apríl kl. 15:00.

Lesa meira

4.4.2025 : Aðalmenn og varamenn taka sæti

Sigurður Ingi Jóhannsson og Halla Hrund Logadóttir taka sæti á ný á Alþingi mánudaginn 7. apríl. Þá víkja varamenn þeirra Jóhann Friðrik Friðriksson og Fida Abu Libdeh af þingi. Sama dag tekur Marta Wieczorek sæti sem varamaður fyrir Ragnar Þór Ingólfsson og Jónas Yngvi Ásgrímsson tekur sæti fyrir Sigurð Helga Pálmason. 

Lesa meira

3.4.2025 : Umsækjendur um embætti skrifstofustjóra Alþingis

Parliament-4-1x1Alls bárust 22 umsóknir um embætti skrifstofustjóra Alþingis sem auglýst var 15. mars sl. en umsóknarfrestur rann út 31. mars.

Lesa meira

3.4.2025 : Varamenn taka sæti

Anna María Jónsdóttir tekur sæti á Alþingi föstudaginn 4. apríl sem varamaður fyrir Dag B. Eggertsson. Sverrir Bergmann Magnússon tekur sæti sama dag sem varamaður fyrir Víði Reynisson.

Lesa meira

3.4.2025 : Varamaður tekur sæti

Bragi Þór Thoroddsen tekur sæti á Alþingi fimmtudaginn 3. apríl sem varamaður fyrir Lilju Rafneyju Magnúsdóttur.

Lesa meira

2.4.2025 : Aðalmaður og varamaður taka sæti

Guðbrandur Einarsson tekur sæti á ný á Alþingi miðvikudaginn 2. apríl. Þá víkur varamaður hans, Sandra Sigurðardóttir, af þingi. Sama dag tekur Valdimar Breiðfjörð Birgisson sæti sem varamaður fyrir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur.

Lesa meira

1.4.2025 : Margrét María Sigurðardóttir skipuð í embætti framkvæmdastjóra Mannréttindastofnunar Íslands

Margret-Maria-SigurdardottirStjórn Mannréttindastofnunar Íslands hefur, að undangengnu mati hæfnisnefndar, skipað Margréti Maríu Sigurðardóttur í embætti framkvæmdastjóra Mannréttindastofnunar Íslands. Hún er skipuð til næstu fimm ára.

Lesa meira

31.3.2025 : Forseti Alþingis sækir minningarathöfn og ráðstefnu í Bútsja í Úkraínu

Minningarathofn-og-radstefna-Butsja-Ukrainu-2025-03-31_1Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, sækir ráðstefnu í bænum Bútsja í Úkraínu í dag þar sem þess er minnst þess að þrjú ár eru liðin frá því að Úkraínuher hrakti Rússlandsher frá bænum. Ruslan Stefanchuk, forseti úkraínska þingsins, býður af þessu tilefni þingforsetum og fulltrúum evrópskra þjóðþinga til Bútsja.

Lesa meira

29.3.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir 31. mars

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða mánudaginn 31. mars kl. 15:00.

Lesa meira

29.3.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir 3. apríl

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða fimmtudaginn 3. apríl kl. 10:30.

Lesa meira

29.3.2025 : Útbýting utan þingfunda 29. mars

Þingskjölum var útbýtt utan þingfunda laugardaginn 29. mars kl. 18:25

Lesa meira

28.3.2025 : Aðalmenn og varamaður taka sæti

Alma D. Möller tekur sæti á ný á Alþingi mánudaginn 31. mars. Þá víkur varaþingmaður hennar, Árni Rúnar Þorvaldsson, af þingi. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson tekur sæti á ný sama dag. Þá víkur varaþingmaður hans, Ágústa Ágústsdóttir, af þingi. Sama dag tekur Fida Abu Libdeh sæti á Alþingi sem varaþingmaður fyrir Höllu Hrund Logadóttur. 

Lesa meira

28.3.2025 : Sérstök umræða 31. mars um stöðu og framtíð þjóðkirkjunnar

ThorarinnIngi_ThorbjorgSigrSérstök umræða um stöðu og framtíð þjóðkirkjunnar verður mánudaginn 31. mars um kl. 15:30.

 

Lesa meira

27.3.2025 : Auglýst eftir umsóknum um dvöl í íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn 2025–2026

Jónshús_FræðimannsíbúðÍbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn, samkvæmt reglum um hús Jóns Sigurðssonar, er laus til afnota frá 20. ágúst 2025 til 18. ágúst 2026. Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist skrifstofu Alþingis eigi síðar en föstudaginn 25. apríl næstkomandi.

Lesa meira

26.3.2025 : Forseti þingsins í Wales heimsækir Alþingi

XP1017180Elin Jones, forseti þingsins í Wales, er í vinnuheimsókn á Íslandi dagana 26. og 27. mars, ásamt tveimur þingmönnum Walesþings. Hún átti í morgun fund með forseta Alþingis, Þórunni Sveinbjarnardóttur, og fundaði í framhaldi með fulltrúum í velferðarnefnd Alþingis. 

Lesa meira

26.3.2025 : Sérstök umræða 27. mars um orkumál og stöðu grænmetisbænda

AsaBerglind_JohannPallSérstök umræða verður fimmtudaginn 27. mars um kl. 11 um orkumál og stöðu grænmetisbænda.

 

Lesa meira

25.3.2025 : Ný útgáfa lagasafns

Bjalla-og-hamar_1702974837359Ný útgáfa lagasafnsins (155) hefur verið birt á vef Alþingis. Þar er safn gildandi laga uppfært til 15. mars 2025. Tilvísanir til stjórnvaldsfyrirmæla, þ.e. reglugerða, reglna og auglýsinga sem hafa almennt gildi, eru að jafnaði birtar í lagasafninu til sama tíma en opinber birting þeirra er á vef Stjórnartíðinda. Breytingar á stofnreglugerðum hafa ekki verið uppfærðar en eru aðgengilegar á vef Stjórnartíðinda og reglugerd.is.

Lesa meira

25.3.2025 : Opinn fundur 1. apríl um skýrslu fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis fyrir árið 2024

Opinn nefndarfundurEfnahags- og viðskiptanefnd Alþingis heldur opinn fund þriðjudaginn 1. apríl til að fjalla um skýrslu fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis fyrir árið 2024. Gestir fundarins verða Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Tómas Brynjólfsson varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika.

Lesa meira

25.3.2025 : Varamaður tekur sæti

Sandra Sigurðardóttir tekur sæti á Alþingi þriðjudaginn 25. mars sem varaþingmaður fyrir Guðbrand Einarsson.

Lesa meira

25.3.2025 : Aðalmaður tekur sæti

Guðmundur Ingi Kristinsson tekur sæti á ný á Alþingi þriðjudaginn 18. mars. Þá víkur varaþingmaður hans, Grétar Mar Jónsson, af þingi.

Lesa meira

24.3.2025 : Varamenn taka sæti

Árni Rúnar Þorvaldsson tekur sæti á Alþingi mánudaginn 24. mars sem varaþingmaður fyrir Ölmu D. Möller. Jóhann Friðrik Friðriksson tekur sæti sama dag sem varaþingmaður fyrir Sigurð Inga Jóhannsson. Elín Íris Fanndal tekur sæti sama dag sem varaþingmaður fyrir Ásthildi Lóu Þórsdóttur.

Lesa meira

22.3.2025 : Útbýting utan þingfunda 22. mars

Þingskjölum var útbýtt utan þingfunda laugardaginn 22. mars kl. 13:50.

Lesa meira

21.3.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir 27. mars

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða fimmtudaginn 27. mars kl. 10:30.

Lesa meira

21.3.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir 24. mars

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða mánudaginn 24. mars kl. 15:00.

Lesa meira

20.3.2025 : Nefndadagur 26. mars

Nefndadagur verður samkvæmt starfsáætlun Alþingis miðvikudaginn 26. mars.

Lesa meira

20.3.2025 : Forseti Alþingis sækir ráðstefnu forseta þjóðþinga aðildarríkja Evrópuráðsins

ThorunnÞórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, sækir ráðstefnu forseta þjóðþinga aðildarríkja Evrópuráðsins sem haldin er í Strassborg 20.–21. mars. Ráðstefnan er haldin annað hvert ár, ýmist í Strassborg eða einu hinna 46 aðildarríkja Evrópuráðsins. Forseti Alþingis verður einn aðalræðumanna í umræðum um hvernig tryggja má tjáningarfrelsi á tímum skautunar og óvissu. 

Lesa meira

19.3.2025 : Sérstök umræða 20. mars um einmanaleika og einangrun eldra fólks

KolbrunAslBald_IngaSaelandSérstök umræða verður fimmtudaginn 20. mars um kl. 11 um einmanaleika og einangrun eldra fólks.

Lesa meira

17.3.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir 17. mars

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða mánudaginn 17. mars kl. 15:00.

Lesa meira

14.3.2025 : Aðalmaður tekur sæti

Sigmundur Ernir Rúnarsson tekur sæti á ný á Alþingi föstudaginn 14. mars. Þá víkur varaþingmaður hans, Anna María Jónsdóttir, af þingi. 

Lesa meira

14.3.2025 : Útbýting utan þingfunda 14. mars

Þingskjölum var útbýtt utan þingfunda föstudaginn 14. mars kl. 16:25.

Lesa meira

14.3.2025 : Heimsókn varaforseta kvenréttindasambands Kína

XP1016999Huang Xiaowei, varaforseti kvenréttindasambands Kína, heimsótti Alþingi í dag ásamt sendinefnd. Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, tók á móti henni. Hún átti svo fund með þremur fulltrúum úr utanríkismálanefnd, þeim Pawel Bartoszek formanni, Sigurði Helga Pálmasyni varaformanni og Diljá Mist Einarsdóttur. Í heimsókninni var einkum fjallað um jafnréttismál og tvíhliða samskipti Íslands og Kína.

 

Lesa meira

14.3.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir 20. mars

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða fimmtudaginn 20. mars kl. 10:30.

Lesa meira

12.3.2025 : Útbýting utan þingfunda 12. mars

Þingskjölum var útbýtt utan þingfunda miðvikudaginn 12. mars kl. 17:17.

Lesa meira

12.3.2025 : Sérstök umræða 13. mars um stöðu efnahagsmála í aðdraganda fjármálaáætlunar

SigurdurIngi_DadiMarSérstök umræða um stöðu efnahagsmála í aðdraganda fjármálaáætlunar verður fimmtudaginn 13. mars um kl. 11.

Lesa meira

11.3.2025 : Forseti Alþingis stýrir hliðarviðburði Íslands á 69. þingi kvennanefndar SÞ í New York

69.-thing-kvennanefndar-STh-i-New-York_1Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, stýrir hliðarviðburði íslenskra stjórnvalda og Kvennaárs 2025 á 69. þingi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna í dag, 11. mars, í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York. 

Lesa meira

11.3.2025 : Aðalmaður og varamaður taka sæti

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir tekur sæti á ný á Alþingi þriðjudaginn 11. mars. Þá víkur varaþingmaður hennar, Lárus Guðmundsson, af þingi. Grétar Mar Jónsson tekur sæti á Alþingi í dag, þriðjudaginn 11. mars, sem varaþingmaður fyrir Guðmund Inga Kristinsson. 

Lesa meira

7.3.2025 : Útbýting utan þingfunda 7. mars

Þingskjölum var útbýtt utan þingfunda föstudaginn 7. mars kl. 18:55.

Lesa meira

7.3.2025 : Aðalmaður og varamenn taka sæti

Sigurjón Þórðarson tekur sæti á ný á Alþingi mánudaginn 10. mars. Þá víkur varaþingmaður hans, Katrín Sif Árnadóttir, af þingi. Sigurður Örn Hilmarsson tekur sæti á Alþingi mánudaginn 10. mars sem varaþingmaður fyrir Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur. Sverrir Bergmann Magnússon tekur sæti sama dag sem varaþingmaður fyrir Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur. Ágústa Ágústsdóttir tekur einnig sæti sem varaþingmaður sama dag, fyrir Sigmund Davíð Gunnlaugsson.

Lesa meira

7.3.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir 11. mars

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða þriðjudaginn 11. mars kl. 13:30.

Lesa meira

6.3.2025 : Opið fyrir tilnefningar til Jafnréttisverðlauna Vigdísar Finnbogadóttur

53816795307_8539d661ca_oOpið er fyrir tilnefningar til jafnréttisverðlauna Evrópuráðsþingsins og íslenskra stjórnvalda sem veitt eru í nafni Vigdísar Finnbogadóttur. Verðlaunin voru veitt í fyrsta skipti í júní 2024 og komu þau í hlut grísku grasrótarsamtakanna Irida Women's Center. Verðlaunin voru stofnuð í aðdraganda leiðtogafundar Evrópuráðsins sem fór fram í Reykjavík í maí 2023.

Lesa meira

6.3.2025 : Opinn fundur 11. mars um skýrslur peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis fyrir árið 2024

Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis heldur opinn fund þriðjudaginn 11. mars til að fjalla um skýrslur peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis fyrir árið 2024. Gestir fundarins verða Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu.

Lesa meira

6.3.2025 : Nefndadagur 12. mars

Nefndadagur verður samkvæmt starfsáætlun Alþingis miðvikudaginn 12. mars.

Lesa meira

5.3.2025 : Sérstök umræða 6. mars um áfengis- og vímuefnavandann

SigmarGudnunds_AlmaMollerSérstök umræða um áfengis- og vímuefnavandann verður 6. mars um kl. 11:00.

Lesa meira

3.3.2025 : Varamaður tekur sæti

Lárus Guðmundsson tekur sæti á Alþingi þriðjudaginn 4. mars sem varamaður fyrir Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur.

Lesa meira

1.3.2025 : Útbýting utan þingfunda 1. mars

Þingskjölum var útbýtt utan þingfunda laugardaginn 1. mars kl. 20:30.

Lesa meira

28.2.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir 3. mars

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða mánudaginn 3. mars kl. 15:00.

Lesa meira

28.2.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir 6. mars

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða fimmtudaginn 6. mars kl. 10:30.

Lesa meira

28.2.2025 : Varamenn taka sæti

Anna María Jónsdóttir tekur sæti á Alþingi mánudaginn 3. mars sem varamaður fyrir Sigmund Erni Rúnarsson. Katrín Sif Árnadóttir tekur sæti sama dag sem varamaður fyrir Sigurjón Þórðarson.

Lesa meira

26.2.2025 : Opinn fundur 3. mars um ákvörðun fjármála- og efnahagsráðherra að krefjast ekki endurgreiðslu framlaga til stjórnmálasamtaka

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis heldur opinn fund mánudaginn 3. mars til að fjalla um ákvörðun fjármála- og efnahagsráðherra um að krefjast ekki endurgreiðslu framlaga til stjórnmálasamtaka. Gestur fundarins verður Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra.

Lesa meira

26.2.2025 : Vaxandi traust til Alþingis

Traust-til-AlthingisTraust almennings til Alþingis hefur aukist um nær tíu prósentustig á tveimur árum, samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallups sem mælir árlega traust til helstu stofnana samfélagsins. Traustið mælist nú tæp 34%, en var 24,6% í ársbyrjun 2023.

Lesa meira

24.2.2025 : Alþingismenn hitta kjósendur á kjördæmadögum

Kjördæmadagar eru 24.–27. febrúar og eru því engir þingfundir á Alþingi þessa vikuna. Kjördæmadagana nýta þingmenn til að fara út í kjördæmi sín og hitta kjósendur, sveitarstjórnafólk, fulltrúa fyrirtækja og fleiri.

Lesa meira

21.2.2025 : Aðalmenn taka sæti

Sigmar Guðmundsson tekur sæti á ný á Alþingi mánudaginn 24. febrúar. Þá víkur varaþingmaður hans, Karólína Helga Símonardóttir, af þingi. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir tekur sæti á ný saman dag. Þá víkur varaþingmaður hennar, Árni Helgason, af þingi. 

Lesa meira

20.2.2025 : Íslandsdeild NATO þingsins á febrúarfundum í Brussel

NatothingNýskipuð Íslandsdeild sótti febrúarfundi NATO-þingsins í Brussel í vikunni. Embættismenn, herforingjar Atlantshafsbandalagsins og aðrir gestir fóru yfir stöðu mála og svöruðu spurningum þingmanna.

Lesa meira

17.2.2025 : Sérstök umræða 18. febrúar um strandveiðar og tekjur hins opinbera af sjávarútvegi

VilhjalmurArna_DadiMarSérstök umræða um strandveiðar og tekjur hins opinbera af sjávarútvegi verður þriðjudaginn 18. febrúar um kl. 14.

Lesa meira

15.2.2025 : Útbýting utan þingfunda 15. febrúar

 Þingskjölum var útbýtt utan þingfunda laugardaginn 15. febrúar kl. 10:10.

Lesa meira

14.2.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir 17. febrúar

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða mánudaginn 17. febrúar kl. 15:00.

Lesa meira

14.2.2025 : Varamenn taka sæti

Karólína Helga Símonardóttir tekur sæti á Alþingi mánudaginn 17. febrúar sem varaþingmaður fyrir Sigmar Guðmundsson. Árni Helgason tekur sæti sama dag sem varaþingmaður fyrir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur. 

Lesa meira

13.2.2025 : Nefndadagur 19. febrúar

Nefndadagur verður samkvæmt starfsáætlun Alþingis  miðvikudaginn 19. febrúar.

Lesa meira

12.2.2025 : Svipmyndir frá stefnuræðu forsætisráðherra 10. febrúar

20250210-AlthingiStefnuraeda_EA_lowres-26Eyþór Árnason ljósmyndari fylgdist með stefnuræðu forsætisráðherra og umræðum um hana mánudagskvöldið 10. febrúar og má sjá fleiri myndir frá henni á Flickr-síðu Alþingis. 

Lesa meira

11.2.2025 : Sérstök umræða 12. febrúar um alvarlega stöðu orkumála á Íslandi

JohannPall_JonGunnarsSérstök umræða um alvarlega stöðu orkumála á Íslandi verður miðvikudaginn 12. febrúar um kl. 15:30.

Lesa meira

10.2.2025 : Samúðarkveðja til Svíþjóðar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, sendi í síðustu viku sænskum starfsbróður sínum Andreas Norlén, forseta sænska þingsins, bréf fyrir hönd Alþingis. Í bréfinu lýsti hún samúð og samhug vegna hinnar mannskæðu skotárásar í Örebro, einkum til fjölskyldna og aðstandenda hinna látnu.

Lesa meira

10.2.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir 13. febrúar

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða fimmtudaginn 13. febrúar kl. 10:30.

Lesa meira

10.2.2025 : Stefnuræða forsætisráðherra 10. febrúar

Stefnuraeda-2025-1-Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra verður útvarpað og sjónvarpað mánudagskvöldið 10. febrúar kl. 19:40.

Lesa meira

10.2.2025 : Óundirbúnar fyrirspurnir 11. febrúar

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða þriðjudaginn 11. febrúar kl. 13:30. 

Lesa meira

8.2.2025 : Útbýting utan þingfunda laugardaginn 8. febrúar 2025

Þingskjölum var útbýtt utan þingfunda laugardaginn 8. febrúar kl. 19:05

Lesa meira

6.2.2025 : Starfsáætlun Alþingis fyrir 156. löggjafarþing

Starfsáætlun fyrir 156. löggjafarþing (2025) var samþykkt á fundi forsætisnefndar 5. febrúar.

Lesa meira

6.2.2025 : Svipmyndir frá þingsetningu 4. febrúar

20250204-AlthingiSetning_EA_lowres-65Svipmyndir frá þingsetningu 4. febrúar 2025. Ljósmyndir eftir Eyþór Árnason.

Lesa meira

5.2.2025 : Stefnuræðu frestað til 10. febrúar og regluleg þingstörf hefjast 11. febrúar

Umræður um stefnuræðu forsætisráðherra, sem vera áttu 5. febrúar, verða mánudaginn 10. febrúar kl. 19:40 með sama fyrirkomulagi og áður hafði verið kynnt. Regluleg þingstörf hefjast þriðjudaginn 11. febrúar. Ekki verður af þingfundi fimmtudaginn 6. febrúar.

Lesa meira

5.2.2025 : Stefnuræðu forsætisráðherra frestað

Bjalla-og-hamar_1702974837359Stefnuræðu forsætisráðherra sem hefjast átti kl. 19:40 í kvöld og umræðum um hana hefur verið frestað vegna rauðrar viðvörunar og hættustigs. Forseti Alþingis mun ákveða aðra tímasetningu eins fljótt og unnt er í samráði við formenn þingflokka. 

Lesa meira

4.2.2025 : Minningarorð um Ellert B. Schram, fyrrverandi alþingismann

Ellert B. Schram, fyrrverandi alþingismaður, lést aðfaranótt 24. janúar, 85 ára að aldri. Hans var minnst á þingsetningarfundi í dag.

Lesa meira

4.2.2025 : Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kosninga lýkur störfum

Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kosninga, sem falið var af starfandi forseta Alþingis að undirbúa þá prófun kosninga sem fer fram á þingsetningarfundi, hefur lokið störfum með greinargerð, sem allir nefndarmenn standa að.

Lesa meira

31.1.2025 : Setning Alþingis 4. febrúar

X20240910-thingsetning_EA-28Alþingi verður sett þriðjudaginn 4. febrúar. Þingsetningarathöfnin hefst kl. 13:30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, biskup Íslands, starfsaldursforseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu.

Lesa meira

23.1.2025 : Seinni kynningarfundur fyrir nýja þingmenn

Seinni hluti kynningar fyrir nýja þingmenn verður í dag. Þá fá nýliðar kynningu á störfum í þingsal, siðareglum og hagsmunaskráningu, nefndum og alþjóðastarfi.

Lesa meira

21.1.2025 : Setning Alþingis 4. febrúar

Alþingi verður sett þriðjudaginn 4. febrúar. Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða miðvikudagskvöldið 5. febrúar.

Lesa meira

16.1.2025 : Ný útgáfa lagasafns

Bjalla-og-hamarNý útgáfa lagasafnsins (154c) hefur verið birt á vef Alþingis. Þar er lagasafnið uppfært til 1. september 2024. Tilvísanir í einstakar breytingar á stofnreglugerðum hafa ekki verið uppfærðar. Unnið er að uppfærslu lagasafnsins (155) sem miðast við 1. janúar 2025.

Lesa meira

15.1.2025 : Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kosninga

Í samræmi við 3. mgr. 1. gr. laga um þingsköp Alþingis hefur starfandi forseti Alþingis falið nefnd níu kjörinna alþingismanna að undirbúa rannsókn á kosningu þingmanna og gildi kosninga sem fer fram á þingsetningarfundi. Nefndarmenn eru tilnefndir af þingflokkum. Fyrsti fundur nefndarinnar verður í dag, 15. janúar.

Lesa meira

14.1.2025 : Hefur þú brennandi áhuga á viðhaldi og rekstri húsnæðis og eigna?

Althingi-blatt_glaert_1736849371280Skrifstofa Alþingis leitar að metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi í starf deildarstjóra fasteignaumsjónar á fjármála- og rekstrarsviði. Í starfinu felst umsjón og eftirlit með rekstri og viðhaldi á húseignum og ýmsum búnaði Alþingis ásamt samskiptum við hagaðila. Umsóknarfrestur er til og með 27. janúar 2025.

Lesa meira

13.1.2025 : Tilnefning til verðlauna Jóns Sigurðssonar

Jónshús_FræðimannsíbúðStjórn Húss Jóns Sigurðssonar óskar eftir tilnefningum til verðlauna Jóns Sigurðssonar forseta, sem eru veitt af Alþingi í minningu starfa Jóns Sigurðssonar í þágu Íslands og Íslendinga. Verðlaunin eru afhent á hátíð Jóns Sigurðssonar í Jónshúsi í Kaupmannahöfn á sumardaginn fyrsta ár hvert.

Lesa meira

18.12.2024 : Undirbúningur fyrir rannsókn kosninga – hvað er næst?

Landskjörstjórn úthlutaði þingsætum til nýkjörinna þingmanna 10. desember sl. Þá tók við sjö daga kærufrestur, sem rann út 17. desember. Að honum loknum fer landskjörstjórn yfir framkomnar kærur og skilar Alþingi rökstuddri umsögn um þær. Undirbúningsnefnd Alþingis fyrir rannsókn kosninga tekur síðan við þeim umsögnum og ferlinu og að því loknu kjörbréfanefnd. Endanleg staðfesting á kosningunni er þó í reynd ekki fyrr en á fyrsta þingfundi þegar kjörbréfanefnd skilar áliti sínu og tillögu sem þingheimur greiðir atkvæði um.

Lesa meira

13.12.2024 : Nýliðun á Alþingi með mesta móti

Nyirthingmenn_1734086874487Í nýafstöðnum þingkosningum varð mesta nýliðun á Alþingi í 65 ár. Nýir þingmenn eru 33, en þess ber þó að geta að þar á meðal eru fimm þingmenn sem áður hafa setið á Alþingi sem aðalmenn. Landskjörstjórn tilkynnti sl. þriðjudag um úthlutun þingsæta á grundvelli kosningaúrslita í kjördæmum. Nýliðarnir eru nú mættir á sinn fyrsta kynningarfund í Smiðju, þar sem farið er yfir ýmis hagnýt atriði, hvað varðar m.a. tækjabúnað, aðgengi og starfskjör, auk þess sem tæpt er á nokkrum atriðum er varða þingstörfin.

Lesa meira

9.12.2024 : Samið við DataLab um gerð aðgerðaáætlunar um hagnýtingu gervigreindar í starfsemi skrifstofu Alþingis

IMG_0055xSkrifstofa Alþingis hefur gert samning við DataLab um hagnýtingu gervigreindarlausna í starfsemi skrifstofunnar. DataLab mun vinna aðgerðaáætlun um hagnýtingu gervigreindar til allt að tveggja ára, sem verður unnin á grundvelli samtala við starfsfólk skrifstofu Alþingis og rýni á ýmsum gögnum auk þess að taka tillit til nýjustu strauma á sviði upplýsingatækni og gervigreindar.

Lesa meira

28.11.2024 : Fyrsti fundur nýkjörinnar stjórnar Mannréttindastofnunar Íslands

P1015562xNýkjörin stjórn Mannréttindastofnunar Íslands hitti Birgi Ármannsson, forseta Alþingis, Rögnu Árnadóttur, skrifstofustjóra Alþingis, og Elínu Valdísi Þorsteinsdóttur, tengilið skrifstofu Alþingis við stjórn Mannréttindastofnunar, í Alþingishúsinu í gær.

Lesa meira

26.11.2024 : Útbýting utan þingfunda þriðjudaginn 26. nóvember 2024

Þingskjölum var útbýtt utan þingfunda þriðjudaginn 26. nóvember kl. 13:00.

Lesa meira

25.11.2024 : Skipun nefndar um rannsókn vegna snjóflóðsins í Súðavík 16. janúar 1995

Fyrsti-fundur-nefndar-um-rannsokn-vegna-snjoflodsins-i-Sudavik-2024-11-25_f-vefForseti Alþingis átti í dag fund með rannsóknarnefnd um snjóflóðið í Súðavík, þar sem nefndarmönnum voru afhent skipunarbréf. Í nefndina hafa verið skipuð Finnur Þór Vilhjálmsson héraðsdómari, sem er jafnframt formaður nefndarinnar, Dóra Hjálmarsdóttir rafmagnsverkfræðingur, og Þorsteinn Sæmundsson jarðfræðingur.

Lesa meira

22.11.2024 : Úthlutun fræðimannsíbúðar Húss Jóns Sigurðssonar 2025

Jónshús_FræðimannsíbúðÚthlutunarnefnd fræðimannsíbúðar, samkvæmt reglum um Hús Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn, hefur lokið störfum og úthlutað íbúð fræðimanns á 4. hæð fyrir árið 2025. Alls bárust nefndinni að þessu sinni 62 gildar umsóknir.

Lesa meira

20.11.2024 : Aðalmenn taka sæti

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir og Jón Gunnarsson taka sæti á ný á Alþingi þriðjudaginn 19. nóvember. Þá víkja varamenn þeirra, Þorgils Magnússon og Sigþrúður Ármann af þingi.

Lesa meira

19.11.2024 : Tölfræði 155. löggjafarþings

Þingfundum 155. löggjafarþings var frestað 18. nóvember. Þingið var að störfum frá 10. september 2024. Hér hafa verið teknar saman tölfræðilegar upplýsingar um tímabilið.

Lesa meira

18.11.2024 : Alþingisgarðurinn friðlýstur

Althingisgardurinn-fridlystur_1Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, undirritaði í dag friðlýsingu vegna Alþingisgarðsins við Kirkjustræti. Friðlýsingin tekur til garðsins í þeirri mynd sem hann hefur varðveist, skipanar stíga, beða, trjágróðurs og tegundaflóru innan hvers reits, minnisvarða, hleðslna og yfirborðsefna og hlaðinna veggja umhverfis garðinn.

Lesa meira

18.11.2024 : Fundum Alþingis frestað

Klar_32_1731932042880Fundum Alþingis var frestað í dag, 18. nóvember. Forseti Alþingis, Birgir Ármannsson, flutti ávarp við þingfrestun en hann lætur nú af þingmennsku eftir 21 ár og sjö mánuði á Alþingi.

Lesa meira

15.11.2024 : Útbýting utan þingfunda föstudaginn 15. nóvember

Þingskjölum var útbýtt utan þingfunda föstudaginn 15. nóvember kl. 18:15.

Lesa meira

15.11.2024 : Þingfundur 18. nóvember

Bjalla-og-hamarÞingfundur verður mánudaginn 18. nóvember og hefst hann kl. 10:00.

Lesa meira

14.11.2024 : Útbýting utan þingfunda fimmtudaginn 14. nóvember

Þingskjölum var útbýtt utan þingfunda fimmtudaginn 14. nóvember kl. 19:22

Lesa meira

14.11.2024 : Þingfundur 15. nóvember

Bjalla-og-hamarÞingfundur verður föstudaginn 15. nóvember og hefst hann kl. 10:30.

Lesa meira

13.11.2024 : Útbýting utan þingfunda 13. nóvember

Þingskjölum var útbýtt utan þingfunda miðvikudaginn 13. nóvember kl. 21:08

Lesa meira

13.11.2024 : Þingfundur 14. nóvember

Þingfundur verður fimmtudaginn 14. nóvember og hefst hann kl. 10:30.

Lesa meira

12.11.2024 : Útbýting utan þingfunda 12. nóvember

Þingskjölum var útbýtt utan þingfunda þriðjudaginn 12. nóvember kl. 18:35

Lesa meira

12.11.2024 : Þingfundur 13. nóvember

Bjalla-og-hamarÞingfundur verður miðvikudaginn 13. nóvember og hefst hann kl. 15:00.

Lesa meira

11.11.2024 : Þingfundur 12. nóvember

Bjalla-og-hamarÞingfundur verður þriðjudaginn 12. nóvember og hefst hann kl. 13:30.

Lesa meira

8.11.2024 : Útbýting utan þingfunda föstudaginn 8. nóvember 2024

Þingskjölum var útbýtt utan þingfunda föstudaginn 8. nóvember kl. 13:45

Lesa meira

8.11.2024 : Studio Granda hlýtur Hönnunarverðlaun Íslands fyrir Smiðju í flokknum Staður

Honnunarverdlaun_Gretar-Orn-Gudmundsson-Steve-Christer-MargretHardardottir-Birgir-Orn-JonssonSmiðja, skrifstofubygging Alþingis eftir Studio Granda, er verðlaunahafi í flokknum Staður á Hönnunarverðlaunum Íslands 2024 fyrir arkitektúr í hæsta gæðaflokki sem ber íslensku hugviti og handverki glæsilegt vitni. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Grósku í gær, 7. nóvember.

Lesa meira

8.11.2024 : Þingfundur 11. nóvember

Bjalla-og-hamarÞingfundur verður mánudaginn 11. nóvember og hefst hann kl. 15:00.

Lesa meira

1.11.2024 : Málverk af Einari K. Guðfinnssyni afhjúpað

Portrettmalverk-af-Einari-K.-Gudfinnssyni-afhjupad-2024-11-01_2Málverk af Einari K. Guðfinnssyni, fyrrverandi forseta Alþingis, var afhjúpað í Smiðju 1. nóvember að viðstöddum forseta Alþingis, Einari, fjölskyldu hans, vinum, þingmönnum og fyrrverandi og núverandi starfsfólki á skrifstofu Alþingis. Stephen Lárus Stephen listmálari málaði myndina og verður henni komið fyrir í efrideildarsal Alþingis.

Lesa meira

1.11.2024 : Varamaður tekur sæti

Sigþrúður Ármann tekur sæti á Alþingi föstudaginn 1. nóvember sem varamaður fyrir Jón Gunnarsson.

Lesa meira

31.10.2024 : Endurnýja þarf grundvallarsáttmála norræns samstarfs

20241031-NordicCouncilReykjavik-55-1200px76. þingi Norðurlandaráðs lauk í dag. Eitt helsta umræðuefni þingsins var endurnýjun Helsingforssamningsins, hinnar eiginlegu „norrænu stjórnarskrár“ sem upphaflega var samþykkt árið 1962. Tillaga um endurskoðun hennar var samþykkt samhljóða á þinginu og send ríkisstjórnum Norðurlanda. Norðurlandaráð leggur meðal annars til að bætt verði í samninginn ákvæðum um öryggis- og varnarmál, loftslags- og umhverfismál og margt fleira. Jafnframt leggur ráðið til að leitað verði leiða til að styrkja stöðu Grænlands, Færeyja og Álandseyja í samstarfinu. Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, var sérstakur gestur og ávarpaði þingið á sérstökum fundi þess.

Lesa meira

31.10.2024 : Þingfundur föstudaginn 1. nóvember

Þingfundur verður föstudaginn 1. nóvember og hefst hann klukkan 10:30.

Lesa meira

31.10.2024 : Kristín Benediktsdóttir tekin við embætti umboðsmanns Alþingis

Nyr-umbodsmadur-bodinn-velkominn-2024-20-31Kristín Benediktsdóttir, sem kjörin var umboðsmaður Alþingis 26. september 2024, tók í dag við embætti umboðsmanns Alþingis, en áður hafði forseti Alþingis fallist á ósk hennar um frest til þess að ljúka þeim störfum sem hún hafði gegnt. Frá sama tíma lýkur setningu Helga I. Jónssonar fyrrverandi hæstaréttardómara í embætti umboðsmanns Alþingis.

Lesa meira

30.10.2024 : Fjöldi alþjóðlegra gesta sækir Norðurlandaráðsþing heim

Heimsokn-sendinefndar-thyskra-thingmanna-a-Nordurlandaradsthing-2024-10-28_2Líkt og jafnan sækja Norðurlandaráðsþing þingmenn utan Norðurlanda sem boðið er sérstaklega til þingsins. Forseti Alþingis, Birgir Ármannsson, tók á móti sendinefnd þýskra þingmanna til fundar á mánudag og síðar sama dag sótti Seán Ó Fearghaíl, forseti Írlandsþings, Alþingi heim. Í dag fundaði forseti Alþingis svo með varaforseta breska þingsins, Caroline Nokes.

Lesa meira

29.10.2024 : Norrænir þingforsetar funda

Forsetar-thinga-Nordurlanda-2024-10-29Í tengslum við Norðurlandaráðsþing koma norrænir þingforsetar jafnan saman til fundar. Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, var gestgjafi fundarins að þessu sinni og var fundurinn haldinn í Smiðju Alþingis. 

Lesa meira

27.10.2024 : Volodimír Selenskí gestur á þingi Norðurlandaráðs

SelenskiForseti Úkraínu, Volodimír Selenskí, mun ávarpa þingfulltrúa Norðurlandaráðs í tengslum við þing ráðsins í Reykjavík 29. október. Meginþemað á Norðurlandaráðsþingi í ár er „Friður og öryggi á norðurslóðum“. 

Lesa meira

25.10.2024 : Þing Norðurlandaráðs Æskunnar helgina 25.-27. október í Smiðju

Halla Tómasdóttir talar fyrir sal UNR, sem er Þing Norðurlandaráðs ÆskunnarÞing Norðurlandaráðs æskunnar (Ungdomens Nordiska Råd) hófst í Smiðju, skrifstofubyggingu Alþingis, í morgun. Þingið stendur yfir helgina og er nú haldið í 53. sinn. UNR er vettvangur fyrir ungliðahreyfingar stjórnmálaafla á Norðurlöndunum. UNR býður öllum aðildarfélögum sínum og áheyrendum til þingsins til að hittast og ræða stjórnmál á líðandi stund og taka ákvarðanir varðandi stefnu fyrir árið. Þar gefast góð tækifæri til þess að hafa áhrif á norrænt samstarf til framtíðar. 

Lesa meira

24.10.2024 : Forseti Alþingis ávarpar ráðstefnu um málefni Úkraínu

Klar_32_1729762759026Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, ávarpaði þingmannaráðstefnu um málefni Úkraínu (e. Parliamentary Summit of the International Crimea Platform) í Ríga í dag, 24. október, með myndbandsskilaboðum. Ráðstefnuna sækja um 40 þingforsetar, eða fulltrúar þjóðþinga, víðs vegar að úr heiminum auk fulltrúa alþjóðlegra þingmannasamtaka.

Lesa meira

24.10.2024 : Norðurlandaráðsþing í Reykjavík dagana 28.–31. október 2024

Þing Norðurlandaráðs 2024 verður haldið í Reykjavík dagana 28.–31. október á Alþingi og í Ráðhúsi Reykjavíkur. Yfirskrift þingsins í ár er „Friður og öryggi á norðurslóðum“.

Lesa meira

23.10.2024 : Starfsáætlun Alþingis felld úr gildi

Bjalla-og-hamarEftir fund forseta Alþingis með formönnum þingflokka og síðan forsætisnefnd fyrr í dag hefur starfsáætlun Alþingis, 155 löggjafarþings, nú verið felld úr gildi. Þingfundur verður á morgun, fimmtudaginn 24. október, og hefst hann klukkan 10:30.

Lesa meira

22.10.2024 : Útbýting utan þingfunda 22. október

Þingskjölum var útbýtt utan þingfunda þriðjudaginn 22. október kl. 20:50.

Lesa meira

22.10.2024 : Verðlaun Norðurlandaráðs í beinni útsendingu í kvöld

Grid_nominees_nr_2024Vinningshafar verðlauna Norðurlandaráðs 2024 verða kynntir í sérstökum sjónvarpsþætti á RÚV og öðrum norrænum sjónvarpsrásum í kvöld kl. 19:40. 

Lesa meira

17.10.2024 : Þingfundur í dag

Bjalla-og-hamarÞingfundur verður kl. 10:30 í dag. Eitt mál er á dagskrá fundarins: Tilkynning forsætisráðherra um þingrof og alþingiskosningar.

Lesa meira

16.10.2024 : Forseti skoska þingsins heimsækir Alþingi

Heimsokn-forseta-skoska-thingsins-2024-10-16Alison Johnstone, forseti skoska þingsins, heimsótti Alþingi í dag ásamt þingmönnunum Ben Macpherson og Monicu Lennon, ásamt starfsmönnum þings. Megintilefni Íslandsheimsóknar er að sækja Hringborð norðurslóða og var skipulögð vinnuheimsókn í Alþingi í aðdraganda Hringborðsins.

Lesa meira

14.10.2024 : Skrifstofa Alþingis hlýtur viðurkenningu Jafnréttisvogar FKA í annað sinn

Jafnvaegisvogin-2024-FKA-Silla-Pals-Mirror-RoseSkrifstofa Alþingis er á meðal þeirra sem hlutu viðurkenningu Jafnréttisvogarinnar, hreyfiaflsverkefnis Félags kvenna í atvinnulífinu. Viðurkenningin var veitt á ráðstefnu Jafnvægisvogarinnar 10. október sl., sem bar yfirskriftina „Látum eitthvað gerast, jafnrétti er ákvörðun“.

Lesa meira

8.10.2024 : Sérstök umræða 9. október um starfsmannaleigur og vinnumansal

ThorhildurSunna_GudmundurIngiSérstök umræða um starfsmannaleigur og vinnumansal verður miðvikudaginn 9. október um kl. 15:30.

Lesa meira

8.10.2024 : Fyrsta heimsókn forsetahjóna og konungshjóna í Jónshús

Klar_9Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og Björn Skúlason, eiginmaður hennar, Friðrik X Danakonungur og Mary Elizabeth Danadrottning heimsóttu Jónshús í dag í tilefni ríkisheimsóknar forseta Íslands og eiginmanns til Danmerkur. Var þetta fyrsta heimsókn dansks þjóðhöfðingja í Jónshús.

Lesa meira

7.10.2024 : Heimsókn forsetahjóna og konungshjóna í Jónshús

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og Björn Skúlason, eiginmaður hennar, heimsækja Jónshús á morgun, þriðjudaginn 8. október, ásamt konungshjónunum Friðrik X og Mary Elizabeth. Heimsóknin er hluti af dagskrá ríkisheimsóknar forseta Íslands og maka til Danmerkur. Jafnframt verður þetta fyrsta heimsókn dansks þjóðhöfðingja í Jónshús frá því að húsið komst í eigu Alþingis árið 1966.

Lesa meira

7.10.2024 : Sérstök umræða 8. október um þjónustu við börn með fjölþættan vanda

ThorbjorgSigridur_AsmundurEinarSérstök umræða um þjónustu við börn með fjölþættan vanda verður þriðjudaginn 8. október um kl. 14.

Lesa meira

4.10.2024 : Útbýting utan þingfunda 4. október

Þingskjölum var útbýtt utan þingfunda föstudaginn 4. október kl. 14:35.

Lesa meira

4.10.2024 : Óundirbúnar fyrirspurnir 10. október

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða fimmtudaginn 10. október kl. 10:30. 

Lesa meira

4.10.2024 : Aðalmaður og varamaður taka sæti

Hanna Katrín Friðriksson tekur sæti á ný á Alþingi mánudaginn 7. október. Þá víkur varaþingmaður hennar, Daði Már Kristófersson, af þingi. Þá tekur Þorgils Magnússon sæti sem varaþingmaður fyrir Lilju Rannveigu Sigurgeirsdóttur.

Lesa meira

4.10.2024 : Óundirbúnar fyrirspurnir 7. október

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða mánudaginn 7. október kl. 15:00.

Lesa meira

3.10.2024 : Auglýst eftir umsóknum um dvöl í íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn 2025

JónshúsÍbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn, samkvæmt reglum um hús Jóns Sigurðssonar, er laus til afnota árið 2025. Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist skrifstofu Alþingis eigi síðar en mánudaginn 4. nóvember næstkomandi.

Lesa meira

1.10.2024 : Helgi I. Jónsson settur umboðsmaður Alþingis

Helgi-I.-JonssonForseti Alþingis hefur sett Helga I. Jónsson fyrrverandi hæstaréttardómara til að sinna starfi umboðsmanns Alþingis meðan nýkjörinn umboðsmaður Alþingis lýkur störfum sínum og verkefnum á öðrum vettvangi. Setningin gildir frá og með 1. október til 1. nóvember 2024, eða skemur, snúi kjörinn umboðsmaður Alþingis til starfa fyrir 1. nóvember nk.

Lesa meira

27.9.2024 : Kjördæmadagar frá 30. september til 4. október

Copy-of-utnmyndKjördæmadagar eru 30. september – 4. október og verða því engir þingfundir á Alþingi þá vikuna. Kjördæmadagana nýta þingmenn til að fara út í kjördæmi sín og hitta kjósendur, sveitarstjórnarfólk, fulltrúa fyrirtækja og fleiri. Næsti þingfundur verður mánudaginn 7. október samkvæmt starfsáætlun Alþingis.

Lesa meira

27.9.2024 : Aðalmaður tekur sæti

Eyjólfur Ármannsson tekur sæti á ný á Alþingi mánudaginn 30. september. Þá víkur varamaður hans, Sigurjón Þórðarson, af þingi.

Lesa meira

26.9.2024 : Kristín Benediktsdóttir kjörin umboðsmaður Alþingis

Kristin-Benediktsdottir_umbodsmadur-AlthingisAlþingi kaus í dag Kristínu Benediktsdóttur prófessor í embætti umboðsmanns Alþingis til næstu fjögurra ára. Hún tekur við embætti 1. október nk.

Lesa meira

23.9.2024 : Sérstök umræða 24. september um húsnæðisliðinn í vísitölu neysluverðs

IngaSaeland_SigurdurIngi_1727089146481Sérstök umræða um húsnæðisliðinn í vísitölu neysluverðs verður þriðjudaginn 24. september um kl. 14:15. 

Lesa meira

23.9.2024 : Fundur formanna utanríkismálanefnda Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna

XP1014877Formenn utanríkismálanefnda þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna koma saman til fundar í Reykjavík mánudaginn 23. september. Gestgjafi fundarins er Jóhann Friðrik Friðriksson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, en slíkir samráðsfundir eru haldnir til skiptis í ríkjunum átta.

Lesa meira

23.9.2024 : Nefndadagur 25. september

Copy-of-utnmyndNefndadagur verður samkvæmt starfsáætlun Alþingis miðvikudaginn 25. september. 

Lesa meira

20.9.2024 : Aðalmaður og varamaður taka sæti

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir tekur sæti á ný á Alþingi mánudaginn 23. september. Þá víkur varamaður hennar, Eva Sjöfn Helgadóttir, af þingi. Sama dag tekur Sigurjón Þórðarson sæti sem varamaður fyrir Eyjólf Ármannsson. 

Lesa meira

20.9.2024 : Útbýting utan þingfunda föstudaginn 20. september 2024

Þingskjölum útbýtt utan þingfunda föstudaginn 20. september kl. 14:15

Lesa meira

20.9.2024 : Óundirbúnar fyrirspurnir 24. september

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða þriðjudaginn 24. september kl. 13:30.

Lesa meira

18.9.2024 : Nýtt myndrænt einkenni Alþingis og hönnunarstaðall

Althingi-blatt_glaertNýtt myndrænt einkenni Alþingis, sem hannað er af Strik Studio, var kynnt á opnunarhátíð Smiðju 14. september sl. Nýja merkið má nú þegar sjá á vef Alþingis og verður nýtt heildarútlit á öllu efni Alþingis innleitt í áföngum á næstu mánuðum.

Lesa meira

16.9.2024 : Varamaður tekur sæti

Eva Sjöfn Helgadóttir tekur sæti á Alþingi mánudaginn 16. september sem varaþingmaður fyrir Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur. 

Lesa meira

13.9.2024 : Laust starf deildarstjóra fasteignaumsjónar á skrifstofu Alþingis

Skrifstofa Alþingis leitar að metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi í starf deildarstjóra fasteignaumsjónar á fjármála- og rekstrarsviði. Í starfinu felst dagleg stjórnun deildarinnar, innkaup og umsjón með húseignum og ýmsum búnaði Alþingis ásamt samskiptum við hagaðila. Umsóknarfrestur er til og með 23. september 2024.

Lesa meira

13.9.2024 : Óundirbúnar fyrirspurnir fimmtudaginn 19. september

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða á dagskrá fimmtudaginn 19. september kl. 10:30. Þá verða til svara fjármála- og efnahagsráðherra, utanríkisráðherra, menningar- og viðskiptaráðherra, mennta- og barnamálaráðherra og matvælaráðherra.

Lesa meira

13.9.2024 : Óundirbúnar fyrirspurnir mánudaginn 16. september

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða á dagskrá mánudaginn 16. september kl. 15:00. Þá verða til svara forsætisráðherra, innviðaráðherra, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra, heilbrigðisráðherra og dómsmálaráðherra.

Lesa meira

13.9.2024 : Svipmyndir frá stefnuræðu forsætisráðherra 11. september

_DSC3754Eyþór Árnason ljósmyndari fylgdist með stefnuræðu Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra og umræðum um hana 11. september og má sjá fleiri myndir frá henni á Flickr-síðu Alþingis.

Lesa meira

11.9.2024 : Þingmálaskrá ríkisstjórnar

Þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir 155. löggjafarþing (2024–2025) er aðgengileg á vef Stjórnarráðsins.

Lesa meira

11.9.2024 : Varamaður tekur sæti

Fimmtudaginn 12. september tekur Daði Már Kristófersson sæti á Alþingi sem varamaður fyrir Hönnu Katrínu Friðriksson.

Lesa meira

11.9.2024 : Svipmyndir frá þingsetningu 10. september

X20240910-thingsetning_EA-28Eyþór Árnason ljósmyndari fylgdist með setningu 155. löggjafarþings og má sjá fleiri myndir frá henni á Flickr-síðu Alþingis.

Lesa meira

11.9.2024 : Stefnuræða forsætisráðherra 11. september

StefnuraedaUmræðum um stefnuræðu forsætisráðherra verður útvarpað og sjónvarpað miðvikudagskvöldið 11. september kl. 19:40. Strax að loknum umræðum verður bein útsending úr Alþingishúsinu á RÚV þar sem sérfræðingar fjalla um það sem fram kemur í umræðunum.

Lesa meira

10.9.2024 : Ávarp forseta Alþingis við setningu 155. löggjafarþings

20240910-thingsetning_EA-12Forseti Alþingis, Birgir Ármannsson, flutti ávarp við setningu 155. löggjafarþings.

Lesa meira

9.9.2024 : Setning Alþingis 10. september

_DSC1823Alþingi verður sett þriðjudaginn 10. september. Þingsetningarathöfnin hefst kl. 13:30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu.

Lesa meira

6.9.2024 : Alþingi býður í heimsókn 14. september

AlþingishúsAlmenningi gefst kostur á að skoða Alþingishúsið og Smiðju, nýja skrifstofubyggingu Alþingis, laugardaginn 14. september. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram í leiðsögn um Alþingishúsið en ekki þarf að skrá sig í heimsókn í Smiðju. 

Lesa meira

6.9.2024 : Útbýting utan þingfunda föstudaginn 6. september 2024

Þingskjölum útbýtt utan þingfunda föstudaginn 6. september kl. 12:35

Lesa meira

5.9.2024 : Setning Alþingis 10. september

Bjalla-og-hamar_1702974837359Alþingi verður sett þriðjudaginn 10. september. Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða miðvikudagskvöldið 11. september.

Lesa meira

4.9.2024 : Viltu stuðla að vandaðri lagasetningu og virku þingeftirliti?

Þá erum við með rétta starfið fyrir þig. Við leitum að lögfræðingi í nefndadeild á skrifstofu Alþingis. Lögfræðingar starfa fyrir fastanefndir þingsins, í hringiðu stjórnmálanna. Þau veita lögfræðilega ráðgjöf og sjá um faglega yfirferð mála sem koma til meðferðar hjá fastanefndum. Þá hafa þau umsjón með skipulagningu nefndastarfsins og sjá um samskipti við stjórnvöld og aðila utan þings fyrir fastanefndir.

Lesa meira

4.9.2024 : Nýir stólar í þingsal

Nyir-stolarVið upphaf nýs þings setjast þingmenn í nýja stóla en stólar í þingsalnum voru síðast endurnýjaðir árið 1987. Stólarnir eru sömu gerðar og þeir stólar sem eru í þingflokksherbergjum og fundarherbergjum í Smiðju. Stólarnir nefnast Spuni og eru eftir hönnuðinn Erlu Sólveigu Óskarsdóttur en tillöguna að leðuráklæðinu og litnum á því átti Anna Leoniak hjá Marimo.

Lesa meira

3.9.2024 : Sumarfundur forsætisnefndar í Rangárþingi ytra

2024-03-09-Sumarfundur-forsaetisnefndar-Hotel-Ranga_1Forsætisnefnd hélt sinn árlega sumarfund á Hótel Rangá í Rangárþingi ytra dagana 2. og 3. september. Sumarfundir forsætisnefndar eru haldnir í kjördæmum landsins til skiptis áður en nýtt löggjafarþing kemur saman og nú var röðin komin að Suðurlandi. 

Lesa meira

28.8.2024 : Heimsókn forseta þjóðþings Liechtenstein

Licht1bForseti þjóðþings Liechtenstein, hr. Albert Frick, er í opinberri heimsókn á Íslandi dagana 27.-29. ágúst í boði forseta Alþingis. Þingforsetinn átti í gær fund með Birgi Ármannsyni, forseta Alþingis. Ræddu þeir m.a. samstarf þjóðþinganna á vettvangi alþjóðlegs þingmannasamstarfs en Liechtenstein er ásamt Íslandi og Noregi aðili að EES samningnum sem fagnar 30 ára afmæli í ár. 

Lesa meira

27.8.2024 : Vefir Alþingis og tölvupóstur niðri síðdegis og að kvöldi þriðjudagsins 27. ágúst

Vegna vinnu við flutning á miðlægum búnaði munu öll kerfi Alþingis liggja niðri (þar með talið vefir og tölvupóstur) frá kl. 16:00 til 24:00 þriðjudaginn 27. ágúst og mögulega geta einnig orðið einhverjar truflanir miðvikudaginn 28. ágúst. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér. 

Lesa meira

23.8.2024 : Forsetar þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja funda

8thingforsetarBirgir Ármannsson, forseti Alþingis, sótti árlegan fund forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja sem haldinn var í Cēsis í Lettlandi í gær, 22. ágúst. Gerðu þingforsetar grein fyrir því sem efst er á baugi í þingstörfum og þjóðmálum í löndunum átta, ræddu áhrif gervigreindar á störf þjóðþinga og kosninga, stöðuna í alþjóðamálum og sameiginleg verkefni.

Lesa meira

15.8.2024 : Fjórir einstaklingar gefa kost á sér í embætti umboðsmanns Alþingis

Forsætisnefnd Alþingis auglýsti þann 3. júlí sl. að hún myndi fyrir lok septembermánaðar gera tillögu til Alþingis um einstakling til að gegna embætti umboðsmanns Alþingis. Var áhugasömum boðið að gefa kost á sér eða koma á framfæri ábendingum um einstaklinga í embættið. Fjórir einstaklingar hafa gefið kost á sér í embætti umboðsmanns Alþingis. Það eru: Anna Tryggvadóttir skrifstofustjóri, Hafsteinn Þór Hauksson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands, Kristín Benediktsdóttir, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, og Reimar Pétursson lögmaður.

Lesa meira

13.8.2024 : Útbýting utan þingfunda þriðjudaginn 13. ágúst 2024

Þingskjölum útbýtt utan þingfunda þriðjudaginn 13. ágúst kl. 11:20

Lesa meira

6.8.2024 : Þingsetning verður 10. september

P1014241Þingsetning er ávallt á öðrum þriðjudegi septembermánaðar, sem í þetta sinn ber upp á 10. september. Framkvæmdir hafa staðið yfir í þingsalnum í allt sumar, reglulegt viðhald ásamt nokkrum breytingum.

Vegna innsetningar forseta Íslands 1. ágúst síðastliðinn voru öll húsgögn tekin út úr salnum og að athöfn lokinni var strax hafin vinna við að koma þingsalnum í fyrra horf á ný. Nú þegar er búið að setja upp borð forseta Alþingis og ræðustólinn og það sem eftir er kemur inn á næstu dögum. Gólfið er nýpússað, gluggatjöld hrein og og gluggar lakkaðir.

Lesa meira

1.8.2024 : Nýr forseti Íslands settur inn í embætti

P1014046Halla Tómasdóttir verður sett inn í embætti forseta Íslands í dag, 1. ágúst. Dagskráin hefst með helgistund í Dómkirkjunni kl. 15:30 og svo verður gengið yfir í Alþingishúsið.

Lesa meira

22.7.2024 : Heimsókn ráðherra enduruppbyggingar í Japan

P1013889_1721654094823Ráðherra enduruppbyggingar í japönsku ríkisstjórninni, fr. Shinako Tsuchiya, heimsótti Alþingi í dag og átti fund með forseta Alþingis, Birgi Ármannssyni. Ræddu þau samskipti landanna og þjóðþinganna, jafnréttismál, jarðhræringar á Reykjanesskaga og stöðuna í Grindavík.

Lesa meira

12.7.2024 : Laust starf í öryggis- og þjónustudeild á skrifstofu Alþingis

P1012797Við leitum að jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingi í stöðu þingvarðar í öryggis- og þjónustudeild í fullt vaktavinnustarf. Einnig kemur til greina að ráða í tímabundna stöðu. Unnið er á dag- og kvöldvöktum alla vikudaga á milli kl. 7-23.

Verkefni starfsfólks eru m.a. umsjón með öryggismálum, almenn þjónusta við þingmenn, starfsfólk og gesti og önnur verkefni sem deildinni eru falin. Starfsfólk deildarinnar tekur þátt í teymisvinnu þvert á starfseiningar skrifstofu Alþingis og í starfinu felst frábært tækifæri til að taka þátt í líflegu og skemmtilegu starfsumhverfi þingsins.

Lesa meira

9.7.2024 : Leiðtogafundur NATO þingsins í Washington D.C.

Stefanchuk_1720536589761Birgir Ármannson, forseti Alþingis, og Njáll Trausti Friðbertsson, formaður Íslandsdeildar NATO-þingsins, sóttu leiðtogafund NATO þingsins sem haldinn var í Bandaríkjaþingi í dag, 9. júlí, í tilefni 75 ára afmælis Atlantshafsbandalagsins.

Lesa meira

5.7.2024 : Útbýting utan þingfunda föstudaginn 5. júlí 2024

Þingskjölum útbýtt utan þingfunda föstudaginn 5. júlí kl. 10:40:

Lesa meira

3.7.2024 : Tilkynning um kosningu umboðsmanns Alþingis

Forsætisnefnd Alþingis mun fyrir lok septembermánaðar nk. gera tillögu til Alþingis um einstakling til að gegna embætti umboðsmanns Alþingis sem verður kjörinn á þingfundi, sbr.  1. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Alþingi kýs umboðsmann Alþingis til fjögurra ára í senn. 

Lesa meira

24.6.2024 : Aðalmenn taka sæti

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Logi Einarsson, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Teitur Björn Einarsson, Andrés Ingi Jónsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson tóku sæti á ný á Alþingi sunnudaginn 23. júní. Þá viku varamenn þeirra, Elín Íris Fanndal, Hilda Jana Gísladóttir, Iða Marsibil Jónsdóttir, Lárus Vilhjálmsson, Sigríður Elín Sigurðardóttir, Valgerður Árnadóttir og Þorgrímur Sigmundsson af þingi.

Lesa meira

23.6.2024 : Ávörp við þingfrestun 23. júní

IMG_6186Forseti Alþingis, Birgir Ármannsson, flutti ávarp við þingfrestun og fór yfir þingstörfin. Hanna Katrín Friðriksson talaði fyrir hönd alþingismanna og loks ávarpaði forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, þingheim og las forsetabréf um frestun Alþingis.

Lesa meira

23.6.2024 : Tölfræði 154. löggjafarþings

Þingfundum 154. löggjafarþings var frestað 23. júní 2024. Þingið var að störfum frá 12. september til 16. desember 2023 og frá 22. janúar til 23. júní 2024. Þingfundir voru samtals 131 og stóðu í rúmar 649 klst. Meðallengd þingfunda var 4 klst. og 55 mín. Lengsti þingfundur stóð í 15 klst. og 43 mín.

Lesa meira

22.6.2024 : Varamenn taka sæti

Valgerður Árnadóttir tekur sæti á Alþingi laugardaginn 22. júní sem varaþingmaður fyrir Andrés Inga Jónsson og Lárus Vilhjálmsson tekur sæti sem varaþingmaður fyrir Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur.

Lesa meira

20.6.2024 : Varamenn taka sæti

Iða Marsibil Jónsdóttir og Sigríður Elín Sigurðardóttir taka sæti á Alþingi fimmtudaginn 20. júní sem varamenn fyrir Lilju Rannveigu Sigurgeirsdóttur og Teit Björn Einarsson. Hilda Jana Gísladóttir tekur sæti á Alþingi föstudaginn 21. júní sem varamaður fyrir Loga Einarsson.

Lesa meira

17.6.2024 : Aðalmenn og varamaður taka sæti

Oddný G. Harðardóttir og Hanna Katrín Friðriksson sæti á ný á Alþingi mánudaginn 17. júní og víkja þá varamenn þeirra, Guðný Birna Guðmundsdóttir og María Rut Kristinsdóttir, af þingi. Halldóra Mogensen tekur sæti á ný á Alþingi þriðjudaginn 18. júní og víkur þá varamaður hennar, Lenya Rún Taha Karim, af þingi. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir tekur sæti á ný á Alþingi miðvikudaginn 19. júní og víkur þá varamaður hennar, Eva Sjöfn Helgadóttir, af þingi. Þorgrímur Sigmundsson tekur sæti á Alþingi miðvikudaginn 19. júní sem varamaður fyrir Sigmund Davíð Gunnlaugsson.

Lesa meira

14.6.2024 : Óundirbúnar fyrirspurnir þriðjudaginn 18. júní

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða á dagskrá þriðjudaginn 18. júní kl. 13:30. Þá verða til svara fjármála- og efnahagsráðherra, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, utanríkisráðherra, heilbrigðisráðherra og dómsmálaráðherra.

Lesa meira

14.6.2024 : Starfsáætlun Alþingis fellur úr gildi

Forseti Alþingis greindi frá því við upphaf þingfundar að starfsáætlun 154. löggjafarþings falli úr gildi frá og með deginum í dag, 14. júní. Þingfundir og nefndarfundir verða haldnir næstu daga eftir því sem þörf verður á.

Lesa meira

13.6.2024 : Heimsókn sendinefndar tékkneska þingsins

Heimsokn-utanrikismalanefndar-tekkneska-thingsins-2024-06-13_3Varaforseti neðri deildar tékkneska þingsins og fulltrúar úr utanríkismálanefnd þess heimsóttu Alþingi í dag. Sendinefndin átti fund með Birgi Ármannsyni, forseta Alþingis, og í kjölfarið með fulltrúum úr utanríkismálanefnd.

Lesa meira

13.6.2024 : Starfsáætlun Alþingis fyrir 155. löggjafarþing

Starfsáætlun fyrir 155. löggjafarþing (2024 –2025) hefur verið samþykkt af forsætisnefnd. Þingsetning verður þriðjudaginn 10. september og stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana að kvöldi miðvikudagsins 11. september.

Lesa meira

12.6.2024 : Heimsókn forseta grænlenska þingsins

Heimsokn-forseta-graenlenska-thingsins-2024-06-12_3Mimi Karlsen, forseti grænlenska þingsins, heimsótti Alþingi í dag. Átti hún fund með Birgi Ármannssyni forseta Alþingis þar sem þau ræddu m.a. samstarf þjóðþinganna á vettvangi norræns og vestnorræns samstarfs.

Lesa meira

12.6.2024 : Aðalmaður og varamaður taka sæti

Jakob Frímann Magnússon tekur sæti á Alþingi miðvikudaginn 12. júní og víkur þá varamaður hans, Katrín Sif Árnadóttir af þingi. Eva Sjöfn Helgadóttir tekur sæti á Alþingi miðvikudaginn 12. júní sem varamaður fyrir Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur.

Lesa meira

11.6.2024 : Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagur) 12. júní

Eldhusdagsumraedur-2024-1Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður) fara fram á Alþingi miðvikudaginn 12. júní og verða sendar út í útvarpi og sjónvarpi. Umræðurnar hefjast kl. 19:40, skiptast í tvær umferðir og hefur hver þingflokkur átta mínútur í fyrri umferð og fimm mínútur í seinni umferð.

Lesa meira

11.6.2024 : Sérstök umræða um forvarnir og lýðheilsu þegar horft er til aukins aðgengis að áfengi þriðjudaginn 11. júní

JodisSkula_WillumThorSérstök umræða um forvarnir og lýðheilsu þegar horft er til aukins aðgengis að áfengi verður þriðjudaginn 11. júní um kl. 14. Málshefjandi er Jódís Skúladóttir og til andsvara verður heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson.

Lesa meira

10.6.2024 : Varamenn taka sæti

Guðný Birna Guðmundsdóttir og María Rut Kristinsdóttir taka sæti á Alþingi mánudaginn 10. júní sem varamenn fyrir Oddnýju G. Harðardóttur og Hönnu Katrínu Friðriksson.

Lesa meira

8.6.2024 : Útbýting utan þingfunda laugardaginn 8. júní 2024

Þingskjali útbýtt utan þingfunda laugardaginn 8. júní kl. 11:20

Lesa meira

7.6.2024 : Óundirbúnar fyrirspurnir fimmtudaginn 13. júní

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða á dagskrá fimmtudaginn 13. júní kl. 10:30. Þá verða til svara forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, menningar- og viðskiptaráðherra, mennta- og barnamálaráðherra, háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra og matvælaráðherra.

Lesa meira

7.6.2024 : Óundirbúnar fyrirspurnir mánudaginn 10. júní

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða á dagskrá mánudaginn 10. júní kl. 15:00. Þá verða til svara félags- og vinnumarkaðsráðherra, innviðaráðherra, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, utanríkisráðherra, heilbrigðisráðherra, dómsmálaráðherra og matvælaráðherra.

Lesa meira

5.6.2024 : Breytingar á starfsáætlun: Nefndadagur 7. júní

Forseti tilkynnti við upphaf þingfundar í dag um breytingar á starfsáætlun þannig að föstudagurinn 7. júní verður nefndadagur en ekki þingfundadagur.

Lesa meira

5.6.2024 : Sérstök umræða um nám í hamfarafræðum á háskólastigi fimmtudaginn 6. júní

AsmundurFrid_AslaugArnaSérstök umræða um nám í hamfarafræðum á háskólastigi verður fimmtudaginn 6. júní um kl. 11:00. Málshefjandi er Ásmundur Friðriksson og til andsvara verður háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Lesa meira

5.6.2024 : Varamenn taka sæti

Katrín Sif Árnadóttir tekur sæti á Alþingi miðvikudaginn 5. júní sem varamaður fyrir Jakob Frímann Magnússon. Þá tekur Lenya Rún Taha Karim sæti á Alþingi fimmtudaginn 6. júní sem varamaður fyrir Halldóru Mogensen.

Lesa meira

3.6.2024 : Nefndarferð utanríkismálanefndar til Tyrklands

Ferd-utanrikismalanefndar-til-Tyrklands-2024-05-31Utanríkismálanefnd Alþingis fór í þriggja daga heimsókn til Tyrklands 29.–31. maí. Tyrkland er aðildarríki NATO og hefur sótt um aðild að Evrópusambandinu. Markmiðið heimsóknarinnar var að efla tvíhliða samskipti þinganna, ræða stjórnmálastöðuna í Tyrklandi og hlutverk Tyrklands á alþjóðavettvangi m.a. gagnvart yfirstandandi átökum í Úkraínu annars vegar og Miðausturlöndum hins vegar.

Lesa meira

3.6.2024 : Varamaður tekur sæti

Elín Íris Fanndal tekur sæti á Alþingi mánudaginn 3. júní sem varamaður fyrir Ásthildi Lóu Þórsdóttur. Víkur þá Georg Eiður Arnarson af þingi.

Lesa meira

1.6.2024 : Útbýting utan þingfunda laugardaginn 1. júní 2024

Þingskjölum útbýtt utan þingfunda laugardaginn 1. júní kl. 17:20

Lesa meira

30.5.2024 : Óundirbúnar fyrirspurnir fimmtudaginn 6. júní

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða á dagskrá mánudaginn 6. júní kl. 10:30. Þá verða til svara fjármála- og efnahagsráðherra, mennta- og barnamálaráðherra, háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra og matvælaráðherra.

Lesa meira
Síða 2 af 3