Þingflokkur óháðra
Þingflokkur óháðra var stofnaður í september 1998 af þrem þingmönnum Alþýðubandalags og eins utan þingflokks, einkum til samstarfs og aukinna áhrifa þingmannanna innan þings, en ekki um sérstök málefni eða framboð. Þeir þrír þingmenn sem komu úr Alþýðubandalaginu gengu svo í Vinstrihreyfinguna - grænt framboð árið 1999.