Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. janúar 2015. Útgáfa 144a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um almannatryggingar
2007 nr. 100 11. maí
Upphaflega l. 117/1993. Tóku gildi 1. janúar 1994. Breytt með l. 148/1994 (tóku gildi 1. jan. 1995), l. 129/1995 (tóku gildi 19. des. 1995), l. 144/1995 (tóku gildi 1. jan. 1996; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 59. gr.), l. 95/1996 (tóku gildi 25. júní 1996), l. 100/1996 (tóku gildi 25. júní 1996), l. 153/1996 (tóku gildi 1. jan. 1997), l. 51/1997 (tóku gildi 29. maí 1997), l. 83/1997 (tóku gildi 6. júní 1997), l. 123/1997 (tóku gildi 1. jan. 1998), l. 130/1997 (tóku gildi 1. jan. 1998 nema 12. gr. sem tók gildi 30. des. 1997), l. 147/1997 (tóku gildi 30. des. 1997), l. 148/1997 (tóku gildi 30. des. 1997), l. 41/1998 (tóku gildi 27. maí 1998), l. 59/1998 (tóku gildi 1. júlí 1999 nema b-liður 3. gr. sem tók gildi 18. júní 1998), l. 82/1998 (tóku gildi 1. okt. 1998), l. 149/1998 (tóku gildi 1. jan. 1999), l. 60/1999 (tóku gildi 1. júlí 1999), l. 62/1999 (tóku gildi 1. sept. 1999), l. 61/2000 (tóku gildi 26. maí 2000), l. 95/2000 (tóku gildi 1. janúar 2001; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 36. gr.), l. 108/2000 (tóku gildi 6. júní 2000; áskilnaður skv. 22. gr. kom þó til framkvæmda skv. 33. gr.; EES-samningurinn: II. viðauki tilskipun 65/65/EBE, 75/319/EBE og 89/105/EBE, I. og II. viðauki tilskipun 92/25/EBE, II. viðauki tilskipun 92/28/EBE og I. viðauki tilskipun 93/41/EBE), l. 111/2000 (tóku gildi 1. jan. 2001), l. 3/2001 (tóku gildi 1. febr. 2001), l. 9/2001 (tóku gildi 1. apríl 2001), l. 93/2001 (tóku gildi 1. júlí 2001), l. 154/2001 (tóku gildi 31. des. 2001), l. 74/2002 (tóku gildi 17. maí 2002; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 36. gr.), l. 76/2002 (tóku gildi 17. maí 2002), l. 149/2002 (tóku gildi 1. jan. 2003), l. 76/2003 (tóku gildi 1. nóv. 2003), l. 89/2003 (tóku gildi 10. apríl 2003), l. 130/2003 (tóku gildi 1. jan. 2004), l. 78/2004 (tóku gildi 18. júní 2004), l. 83/2004 (tóku gildi 18. júní 2004), l. 91/2004 (tóku gildi 2. júlí 2004), l. 129/2004 (tóku gildi 31. des. 2005), l. 53/2005 (tóku gildi 30. maí 2005), l. 65/2006 (tóku gildi 27. júní 2006), l. 82/2006 (tóku gildi 30. júní 2006), l. 166/2006 (tóku gildi 1. jan. 2007) og l. 40/2007 (tóku gildi 1. sept. 2007).
Endurútgefin, sbr. l. 166/2006, 19. gr., sem l. 100/2007. Tóku gildi 30. maí 2007. Breytt með l. 105/2007 (tóku gildi 1. júlí 2007), l. 160/2007 (tóku gildi 1. jan. 2008), l. 17/2008 (tóku gildi 1. apríl 2008; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 11. gr.), l. 57/2008 (tóku gildi 10. júní 2008), l. 112/2008 (tóku gildi 1. okt. 2008 nema 12. tölul. 59. gr. sem tók gildi 25. sept. 2008; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 2. mgr. 56. gr.), l. 155/2008 (tóku gildi 31. des. 2008), l. 173/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 20. gr.), l. 55/2009 (tóku gildi 1. maí 2009), l. 70/2009 (tóku gildi 30. júní 2009 nema 1.–3. gr., 12.–26. gr. og brbákv. V og VI sem tóku gildi 1. júlí 2009, 4. gr. sem tók gildi 1. sept. 2009 og brbákv. IV sem tók gildi 16. júní 2009; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 29. gr., sbr. og l. 97/2009 (tóku gildi 3. sept. 2009)), l. 120/2009 (tóku gildi 1. jan. 2010), l. 136/2009 (tóku gildi 1. jan. 2010), l. 65/2010 (tóku gildi 27. júní 2010), l. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011), l. 164/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011 nema 2., 6., 22. og 26. gr. sem tóku gildi 31. des. 2010; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 29. gr.), l. 51/2011 (tóku gildi 27. maí 2011), l. 106/2011 (tóku gildi 13. sept. 2011), l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011), l. 178/2011 (tóku gildi 1. jan. 2012), l. 28/2012 (tóku gildi 1. júní 2012), l. 134/2012 (tóku gildi 1. jan. 2013), l. 86/2013 (tóku gildi 16. júlí 2013; komu til framkvæmda frá 1. júlí 2013), l. 107/2013 (tóku gildi 28. sept. 2013; komu til framkvæmda frá 1. júlí 2013), l. 140/2013 (tóku gildi 31. des. 2013 nema 1.–2., 4.–12., 16.–18., 23.–29., 31.–32., 34.–38. og 40.–48. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2014 og 21. gr. sem tekur gildi 1. jan. 2016; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 49. gr.), l. 8/2014 (tóku gildi 1. febr. 2014), l. 125/2014 (tóku gildi 31. des. 2014 nema 6., 8., 13.–18., 21.–25. og 29. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2015; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 30. gr.) og l. 137/2014 (tóku gildi 31. des. 2014).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við félags- og húsnæðismálaráðherra eða velferðarráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
I. kafli. Skipulag og stjórn.
1. gr. [Lög þessi taka til:
1. Lífeyristrygginga almannatrygginga.
2. Slysatrygginga almannatrygginga.
Um sjúkratryggingar almannatrygginga fer samkvæmt lögum um sjúkratryggingar.] 1)
1)L. 112/2008, 57. gr.
2. gr. [[Ráðherra] 1) fer með lífeyristryggingar, slysatryggingar og sjúkratryggingar, sbr. 1. gr., og yfirstjórn Tryggingastofnunar.
Tryggingastofnun annast framkvæmd lífeyristrygginga samkvæmt lögum þessum. Sjúkratryggingastofnunin, sbr. lög um sjúkratryggingar, annast framkvæmd slysatrygginga samkvæmt lögum þessum.] 2)
1)L. 126/2011, 471. gr. 2)L. 162/2010, 37. gr.
3. gr. Ráðherra skipar fimm menn í stjórn Tryggingastofnunar ríkisins … 1) og skal einn skipaður formaður stjórnar og annar varaformaður. Skipaðir skulu jafnmargir menn til vara. Formaður stjórnar boðar til stjórnarfunda og stýrir þeim og situr forstjóri fundi stjórnarinnar með málfrelsi og tillögurétti. Ráðherra setur stjórninni starfsreglur 2) og ákveður þóknun til stjórnarmanna sem skal greidd af rekstrarfé stofnunarinnar.
1)L. 160/2007, 2. gr. 2) Rgl. 880/2004.
4. gr. Stjórn Tryggingastofnunar ríkisins, sbr. 3. gr., skal staðfesta skipulag stofnunarinnar, árlega starfsáætlun og fjárhagsáætlun og marka stofnuninni langtímastefnu. Skal stjórnin hafa eftirlit með starfsemi Tryggingastofnunar ríkisins og að rekstur stofnunarinnar sé innan ramma fjárlaga á hverjum tíma. … 1)
Formaður stjórnar Tryggingastofnunar ríkisins skal reglulega gera ráðherra grein fyrir starfsemi stofnunarinnar og gera honum viðvart ef starfsemi og þjónusta er ekki í samræmi við ákvæði laga og ef rekstur stofnunarinnar er ekki í samræmi við fjárlög.
1)L. 160/2007, 3. gr.
5. gr. Ráðherra skipar forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins til fimm ára í senn að fenginni tillögu stjórnar stofnunarinnar.
6. gr. Forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins ræður aðra starfsmenn stofnunarinnar og annast daglegan rekstur hennar.
Ráðherra setur forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins erindisbréf þar sem tilgreind skulu helstu markmið í rekstri stofnunarinnar og verkefni hennar, bæði til lengri og skemmri tíma litið. Í erindisbréfi skal enn fremur kveðið á um samskipti forstjóra og stjórnar Tryggingastofnunar ríkisins.
Forstjóri ber ábyrgð á að Tryggingastofnun ríkisins starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf skv. 2. mgr. Forstjóri ber og ábyrgð á því að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma stofnunarinnar sé í samræmi við fjárlög og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt.
7. gr. [Rísi ágreiningur um grundvöll, skilyrði eða upphæð bóta eða greiðslna samkvæmt lögum þessum kveður sjálfstæð og óháð nefnd, úrskurðarnefnd almannatrygginga, upp úrskurð í málinu. Sama gildir um ágreining um endurkröfurétt, ofgreiðslur og innheimtu þeirra, sbr. 55. gr.] 1)
Ráðherra skipar þrjá menn í nefndina og jafnmarga til vara til sex ára í senn. Hæstiréttur tilnefnir tvo menn. Skal annar þeirra uppfylla skilyrði um embættisgengi héraðsdómara og vera formaður nefndarinnar en hinn skal vera læknir og varaformaður hennar. Einn nefndarmanna skal skipaður án tilnefningar. Varamenn skulu tilnefndir á sama hátt og uppfylla sömu hæfisskilyrði og aðalmenn.
Heimilt er að endurskipa nefndarmenn.
1)L. 120/2009, 1. gr.
8. gr. Kæra til úrskurðarnefndar almannatrygginga skal vera skrifleg og skal hún borin fram innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun. Á skrifstofu Tryggingastofnunar ríkisins og umboðsmanna hennar skulu liggja frammi eyðublöð í þessu skyni og skulu starfsmenn stofnunarinnar veita nauðsynlega aðstoð við útfyllingu þeirra.
Tryggingastofnun ríkisins [eða eftir atvikum sjúkratryggingastofnunin] 1) skal láta nefndinni í té öll gögn máls, svo og þær upplýsingar og skýringar er nefndin telur þörf á að afla frá stofnuninni.
Nefndinni skal heimilt að ráða sér starfsmenn til undirbúnings úrlausnum mála og til almennra skrifstofustarfa eftir nánari ákvörðun Alþingis á fjárlögum hverju sinni.
Nefndinni er heimilt að kveðja sér til ráðgjafar og aðstoðar sérfróða menn ef hún telur þörf á. Skulu þeir starfa með nefndinni við undirbúning og meðferð máls eftir ákvörðun formanns.
Nefndarmönnum, starfsmönnum og ráðgjöfum nefndarinnar er bannað að viðlagðri ábyrgð eftir ákvæðum almennra hegningarlaga um brot í opinberu starfi að skýra óviðkomandi aðilum frá persónuupplýsingum sem þeir komast að í starfi sínu og leynt eiga að fara. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.
Nefndin skal kveða upp úrskurð svo fljótt sem unnt er og eigi síðar en [þremur] 2) mánuðum eftir að henni berst mál.
[Stjórnsýslukæra frestar ekki réttaráhrifum ákvörðunar en stjórnsýslukæra frestar þó aðför á grundvelli ákvörðunar Tryggingastofnunar ríkisins um endurkröfu ofgreiddra bóta, sbr. 55. gr.] 2)
Formaður stýrir störfum nefndarinnar. Þegar nefndarmenn eru ekki sammála ræður meiri hluti niðurstöðu máls.
Um málsmeðferð nefndarinnar fer að öðru leyti samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga.
1)L. 112/2008, 57. gr. 2)L. 120/2009, 2. gr.
9. gr. Úrskurðarnefnd almannatrygginga er sjálfstæð í störfum sínum og verður úrskurðum hennar ekki skotið til annarra stjórnvalda.
[Úrskurðir nefndarinnar um endurkröfur ofgreiðslna skv. 1. mgr. 7. gr. eru aðfararhæfir.] 1)
Að kröfu málsaðila getur nefndin ákveðið að fresta réttaráhrifum úrskurðar telji hún ástæðu til þess. Krafa þess efnis skal gerð eigi síðar en 10 dögum frá birtingu úrskurðar. Skal frestun á réttaráhrifum úrskurðar vera bundin því skilyrði að málsaðili beri málið undir dómstóla innan 30 daga frá frestunarúrskurði og óski þá eftir að það hljóti flýtimeðferð. Frestun réttaráhrifa úrskurðar fellur úr gildi ef mál er ekki höfðað innan 30 daga. Sé mál höfðað vegna úrskurðar nefndarinnar er henni heimilt að fresta afgreiðslu sambærilegra mála, sem eru til meðferðar hjá henni, þar til dómur gengur í málinu.
Tryggingastofnun ríkisins [eða eftir atvikum sjúkratryggingastofnunin] 2) getur höfðað dómsmál til að fá hnekkt úrskurði úrskurðarnefndar almannatrygginga.
Nefndin skal birta helstu úrskurði sína með aðgengilegum og skipulegum hætti. Úrskurðirnir skulu birtir án nafna, kennitalna eða annarra persónugreinanlegra auðkenna.
Ráðherra ákveður þóknun nefndarmanna. Kostnaður vegna nefndarinnar greiðist úr ríkissjóði.
1)L. 120/2009, 3. gr. 2)L. 112/2008, 57. gr.
10. gr. Aðalskrifstofur Tryggingastofnunar ríkisins eru í Reykjavík.
Utan Reykjavíkur skal Tryggingastofnunin hafa umboðsskrifstofur og fer um staðarval, fyrirkomulag og rekstur eftir ákvörðun stofnunarinnar.
11. gr. Reikningar Tryggingastofnunar ríkisins fyrir sl. ár skulu jafnan fullgerðir eigi síðar en 1. júlí ár hvert. Skulu þeir endurskoðaðir á sama hátt og reikningar annarra ríkisstofnana.
Tryggingastofnunin skal með reglubundnum hætti birta glöggar upplýsingar um alla starfsemi stofnunarinnar.
Tryggingastofnunin skal kynna almenningi rétt sinn til bóta með upplýsingastarfsemi.
II. kafli. Tryggðir samkvæmt lögunum.
12. gr. Sá sem búsettur er hér á landi telst tryggður, sbr. þó 29. gr., að uppfylltum öðrum skilyrðum laganna, nema annað leiði af milliríkjasamningum.
Með búsetu skv. 1. mgr. er átt við lögheimili í skilningi lögheimilislaga.
Tryggingastofnun ríkisins [eða eftir atvikum sjúkratryggingastofnunin] 1) ákvarðar hvort einstaklingur telst tryggður hér á landi samkvæmt lögunum. Um málskot fer skv. 7.–9. gr.
1)L. 112/2008, 57. gr.
13. gr. Tryggingastofnun ríkisins [eða eftir atvikum sjúkratryggingastofnuninni] 1) er heimilt að ákveða samkvæmt umsókn að einstaklingur, sem tryggður er samkvæmt lögunum, sé áfram tryggður þótt hann uppfylli ekki skilyrði 12. gr., enda starfi viðkomandi erlendis fyrir aðila sem hafi aðsetur og starfsemi á Íslandi og tryggingagjald, sbr. lög um tryggingagjald, sé greitt hér á landi af launum hans. Sama gildir um maka hans og börn undir 18 ára aldri sem dveljast með honum.
Umsókn um tryggingu samkvæmt þessari grein skal berast Tryggingastofnun ríkisins [eða eftir atvikum sjúkratryggingastofnuninni] 1) eigi síðar en fjórum vikum fyrir brottför af landinu.
1)L. 112/2008, 57. gr.
14. gr. Tryggingastofnun ríkisins [eða eftir atvikum sjúkratryggingastofnuninni] 1) er heimilt að ákveða samkvæmt umsókn að einstaklingur, sem tryggður er samkvæmt lögunum, sé áfram tryggður þótt hann uppfylli ekki skilyrði 12. gr., enda dveljist hann erlendis við nám og sé ekki tryggður í almannatryggingum námslandsins. Sama gildir um maka hans sem var tryggður hér á landi við upphaf námsins og börn námsmannsins undir 18 ára aldri sem með honum dveljast.
Tryggingastofnun ríkisins [eða eftir atvikum sjúkratryggingastofnuninni] 1) er heimilt að ákveða samkvæmt umsókn að einstaklingur, sem tryggður er samkvæmt lögunum, sé áfram tryggður, sbr. þó 29. gr., í allt að eitt ár frá brottför af landinu þótt hann uppfylli ekki skilyrði 12. eða 13. gr., enda leiði milliríkjasamningar ekki til annars. Skilyrði þessa er að viðkomandi hafi haft samfellda fasta búsetu hér á landi eigi skemur en fimm ár fyrir brottför og að það sé ekki tilgangur farar að leita læknismeðferðar.
Umsókn um tryggingu samkvæmt þessari grein skal berast Tryggingastofnun ríkisins [eða eftir atvikum sjúkratryggingastofnuninni] 1) eigi síðar en fjórum vikum fyrir brottför af landinu.
1)L. 112/2008, 57. gr.
15. gr. Ráðherra setur reglugerð 1) um einstök atriði er varða framkvæmd þessa kafla, m.a. um skráningu Tryggingastofnunar ríkisins á tryggingaréttindum einstaklinga og hvað telja skuli viðurkennt nám erlendis.
1)Rg. 463/1999, sbr. 1158/2007.
III. kafli. Lífeyristryggingar.
A. Almenn ákvæði.
16. gr. Lífeyristryggingar taka til ellilífeyris, örorkulífeyris, aldurstengdrar örorkuuppbótar, tekjutryggingar, örorkustyrks og barnalífeyris.
Til tekna skv. III. kafla laga þessara teljast tekjur skv. II. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, að teknu tilliti til ákvæða 28. gr. sömu laga um hvað ekki telst til tekna og frádráttarliða skv. 1., 3., 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga og takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum. Þó skal eftirfarandi gilda við ákvörðun tekjugrundvallar:
a. [Tekjur umfram 90.000 kr. á ári skv. C-lið 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skulu [teljast til tekna] 1) við útreikning á elli- og örorkulífeyri, örorkustyrk, [aldurstengdri örorkuuppbót] 2) og tekjutryggingu skv. 17.–19. gr. og [21.–22. gr.] 2) þessara laga.] 3) Ef um hjón er að ræða skiptast tekjur skv. 1. málsl. til helminga milli hjóna við útreikning bótanna. Skiptir ekki máli hvort hjónanna er eigandi þeirra eigna sem mynda tekjurnar eða hvort um séreign eða hjúskapareign er að ræða.
b. [Tekjur lífeyrisþega af atvinnu skulu hafa áhrif við útreikning á fjárhæð tekjutryggingar skv. 22. gr., sbr. þó 4. mgr. [Ellilífeyrisþegi skal hafa [1.315.200 kr.] 4) frítekjumark vegna atvinnutekna við útreikning tekjutryggingar. Örorkulífeyrisþegi skal hafa 300.000 kr. frítekjumark vegna atvinnutekna við útreikning tekjutryggingar.] 2)] 3)
c. [Við útreikning á fjárhæð bóta skv. III. kafla laga þessara og vasapeninga skv. 48. gr. skal ekki reikna með tekjum maka, sbr. þó a-lið þessarar málsgreinar.] 3)
d. … 3)
[Þegar um er að ræða elli- og örorkulífeyri skv. 17. og 18. gr. teljast ekki til tekna þrátt fyrir 2. mgr. bætur samkvæmt lögum þessum og lögum um félagslega aðstoð, fjárhagsaðstoð sveitarfélaga, greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum, séreignarlífeyrissparnaði og viðbótartryggingavernd samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Sama á við um sambærilegar bætur frá ríkjum sem Ísland hefur gert samninga við skv. 68. gr.] 4)
[Þegar um er að ræða tekjutryggingu skv. 22. gr. teljast ekki til tekna þrátt fyrir 2. mgr. bætur samkvæmt lögum þessum og lögum um félagslega aðstoð, fjárhagsaðstoð sveitarfélaga, greiðslur úr séreignarlífeyrissparnaði og viðbótartryggingavernd samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Sama á við um sambærilegar bætur frá ríkjum sem Ísland hefur gert samninga við skv. 68. gr.] 4)
Til grundvallar bótaútreikningi hvers mánaðar skal leggja 1/ 12 af áætluðum tekjum bótagreiðsluársins. Bótagreiðsluár er almanaksár. Áætlun um tekjuupplýsingar skal byggjast á nýjustu upplýsingum frá þeim aðilum sem getið er um í [39. og 40. gr.] 5) Ef um nýja umsókn um bætur er að ræða skulu tekjur áætlaðar á grundvelli upplýsinga frá þeim aðilum sem getið er um í [39. og 40. gr.] 5) og bótaréttur reiknaður út frá þeim tekjum umsækjanda og eftir atvikum maka hans sem aflað er frá þeim tíma sem bótaréttur stofnaðist.
Tryggingastofnun ríkisins skal hafa eftirlit með því að áætlaðar tekjur séu í samræmi við upplýsingar sem stofnunin aflar úr staðgreiðsluskrá skattyfirvalda eða frá öðrum þeim aðilum sem getið er um í [40. gr.] 5)
Eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum skal Tryggingastofnun ríkisins endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna samkvæmt þessari grein. Við þann endurreikning er Tryggingastofnun heimilt að taka tillit til almennra breytinga á launum frá þeim tíma sem ætlaðar tekjur tilheyra til þess tíma sem endanlegar tekjur varða.
Komi í ljós við endurreikning bóta að bætur hafa verið vangreiddar eða ofgreiddar fer um það skv. 55. gr.
Tryggingastofnun ríkisins skal upplýsa umsækjanda eða bótaþega um forsendur bótaútreiknings og gefa honum kost á að koma að athugasemdum. Um upplýsingaskyldu varðandi tekjur og þagnarskyldu starfsmanna Tryggingastofnunar fer skv. [39., 40. og 46. gr.] 5)
Við útreikning örorkulífeyris og tekjutryggingar, sbr. 18. og 22. gr., er ráðherra heimilt að hækka tekjuviðmiðun þeirra lífeyrisþega sem fengið hafa eingreiðslu skaðabóta vegna örorku að frádregnum áætluðum örorkulífeyri og tekjutryggingu til framtíðar frá Tryggingastofnun ríkisins.
[Tryggingastofnun ríkisins er heimilt, að ósk lífeyrisþega, að dreifa eigin tekjum lífeyrisþegans sem stafa af fjármagnstekjum sem leystar hafa verið út í einu lagi á allt að 10 ár. Ekki er heimilt að dreifa slíkum tekjum oftar en einu sinni á hverju tímabili.] 3)
Heimilt er að setja reglugerð 6) um nánari framkvæmd þessarar greinar.
1)L. 173/2008, 14. gr. 2)L. 70/2009, 12. gr. 3)L. 17/2008, 1. gr. 4)L. 86/2013, 1. gr. 5)L. 8/2014, 1. gr. 6)Rg. 463/1999. Rg. 598/2009, sbr. 1056/2009 og 1118/2013. Rg. 661/2010.
B. Bætur.
17. gr. Ellilífeyrir.
Rétt til ellilífeyris eiga þeir sem eru 67 ára eða eldri og hafa verið búsettir hér á landi, sbr. II. kafla, a.m.k. þrjú almanaksár frá 16 til 67 ára aldurs. Fullur ellilífeyrir skal vera 297.972 kr. á ári og greiðist þeim einstaklingum sem hafa verið búsettir hér á landi, sbr. II. kafla, a.m.k. 40 almanaksár frá 16 til 67 ára aldurs, sbr. þó 2. mgr. Sé um skemmri tíma að ræða greiðist ellilífeyrir í hlutfalli við búsetutímann. Heimilt er þó að miða lífeyri beggja hjóna, sem bæði fá lífeyri, við búsetutíma þess sem á lengri réttindatíma.
[Ellilífeyri skal skerða ef tekjur ellilífeyrisþega skv. 2. og 3. mgr. 16. gr. eru hærri en 2.056.404 kr. á ári og um framkvæmd fer skv. 16. gr.] 1) Ef tekjur eru umfram umrædd mörk skal skerða ellilífeyri um [25%] 1) þeirra tekna sem umfram eru uns hann fellur niður. Skerðing samkvæmt þessari málsgrein skal þó aldrei ná til þess hluta ellilífeyris sem einstaklingur á rétt á vegna frestunar á töku ellilífeyris sem ákveðin var fyrir 1. janúar 1992.
Hver, sem stundað hefur sjómennsku í 25 ár eða lengur, skal eiga rétt á töku ellilífeyris frá og með 60 ára aldri, enda sé að öðru leyti fullnægt skilyrðum þessarar greinar. Starfsár sjómanna skal í þessu sambandi miðast við að sjómaður hafi verið lögskráður á íslenskt skip eða skip gert út af íslenskum aðilum eigi færri en 180 daga að meðaltali í 25 ár. Nánari ákvæði um framkvæmd skulu sett með reglugerð.
Nú hefur sjómaður stundað sjómennsku í 25 ár eða lengur að hluta eða öllu leyti á opnum báti eða þilfarsbáti undir 12 brl. eða af öðrum ástæðum ekki borið skylda til lögskráningar og er þá heimilt að úrskurða honum ellilífeyri frá og með 60 ára aldri, enda sé sannað að sú sjómennska hafi verið aðalstarf viðkomandi meðan á henni stóð.
1)L. 17/2008, 2. gr.
18. gr. Örorkulífeyrir.
Rétt til örorkulífeyris eiga þeir sem hafa verið búsettir á Íslandi, sbr. II. kafla, eru á aldrinum [18 til 67 ára] 1) og:
a. hafa verið búsettir á Íslandi a.m.k. þrjú síðustu árin áður en umsókn er lögð fram eða í sex mánuði ef starfsorka var óskert er þeir tóku hér búsetu,
b. eru metnir til a.m.k. 75% örorku til langframa vegna afleiðinga læknisfræðilega viðurkenndra sjúkdóma eða fötlunar.
Tryggingastofnun ríkisins metur örorku þeirra sem sækja um örorkulífeyri samkvæmt sérstökum örorkustaðli. Ráðherra setur reglugerð 2) um örorkustaðalinn að fengnum tillögum Tryggingastofnunar ríkisins. Heimilt er að setja það skilyrði að umsækjandi gangist undir sérhæft mat á möguleikum til endurhæfingar og viðeigandi endurhæfingu áður en til örorkumats kemur, sbr. 7. gr. laga um félagslega aðstoð.
Tryggingastofnun er heimilt að semja um kostnað … 3) vegna mats á möguleikum til endurhæfingar.
Fullur örorkulífeyrir skal vera 297.972 kr. á ári og greiðist hann eftir sömu reglum og ellilífeyrir, sbr. þó 5. mgr. Við ákvörðun búsetutíma, sbr. 1. mgr. 17. gr., skal reikna með tímann fram til 67 ára aldurs umsækjanda.
[Örorkulífeyri skal skerða ef tekjur örorkulífeyrisþega skv. 2. og 3. mgr. 16. gr. eru hærri en 2.095.501 kr. á ári og um framkvæmd fer skv. 16. gr.] 4) Ef tekjur eru umfram umrædd mörk skal skerða örorkulífeyri um 25% þeirra tekna sem umfram eru uns hann fellur niður.
1)L. 120/2009, 4. gr. 2)Rg. 379/1999. 3)L. 112/2008, 57. gr. 4)L. 17/2008, 3. gr.
19. gr. Örorkustyrkur.
Tryggingastofnun ríkisins skal veita einstaklingi á aldrinum 18–62 ára örorkustyrk að upphæð 18.184 kr. á mánuði ef örorka hans er metin a.m.k. 50% og hann uppfyllir búsetuskilyrði 1. mgr. 18. gr. Slíkan styrk skal enn fremur veita þeim sem uppfyllir skilyrði 1. málsl. þessarar málsgreinar og stundar fullt starf ef örorkan hefur í för með sér verulegan aukakostnað. Örorkustyrkurinn skerðist eftir sömu reglum og örorkulífeyrir skv. 18. gr. og um tekjur og framkvæmd tekjuútreiknings fer skv. 16. gr.
Greiða skal einstaklingi sem náð hefur 62 ára aldri, uppfyllir búsetuskilyrði 1. mgr. 18. gr. og er metinn a.m.k. 50% öryrki örorkustyrk sem skal svara til fulls örorkulífeyris skv. 18. gr., þ.e. grunnlífeyris án bóta tengdra honum. Örorkustyrkurinn skerðist eftir sömu reglum og örorkulífeyrir skv. 18. gr. og um tekjur og framkvæmd tekjuútreiknings fer skv. 16. gr.
Greiða skal viðbót við örorkustyrk til þeirra sem hafa börn innan 18 ára á framfæri sínu. Viðbótin má ekki vera hærri en 75% af barnalífeyri, sbr. 20. gr., fyrir hvert barn á framfæri.
Heimilt er að setja reglugerð um nánari framkvæmd ákvæðis þessa.
20. gr. Barnalífeyrir.
Barnalífeyrir er greiddur með börnum yngri en 18 ára, ef annað hvort foreldra er látið eða er örorkulífeyrisþegi, hafi annað hvort foreldra þess eða barnið sjálft búið hér á landi a.m.k. þrjú síðustu árin áður en umsókn er lögð fram. Séu báðir foreldrar látnir eða örorkulífeyrisþegar skal greiddur tvöfaldur barnalífeyrir. Hvorki skerðingarákvæði 2. mgr. 17. gr. né 5. mgr. 18. gr. takmarka rétt til barnalífeyris.
Sömu réttarstöðu hafa stjúpbörn og kjörbörn þegar eins stendur á. Þó skal ekki greiddur barnalífeyrir vegna fráfalls eða örorku stjúpforeldris ef barnið á framfærsluskylt foreldri á lífi.
Tryggingastofnun ríkisins getur ákveðið að greiða barnalífeyri með barni ellilífeyrisþega, svo og með barni manns sem sætir gæsluvist eða afplánar fangelsi, enda hafi vistin varað a.m.k. þrjá mánuði.
Tryggingastofnun ríkisins skal greiða barnalífeyri þegar skilríki liggja fyrir um að barn verði ekki feðrað.
Barnalífeyrir greiðist foreldrum barnanna, enda séu þau á framfæri þeirra, eða þeim öðrum er annast framfærslu þeirra að fullu, sbr. þó 4. mgr. 64. gr.
Árlegur barnalífeyrir með hverju barni skal vera 219.408 kr. Ekki skal greiða barnalífeyri vegna þeirra barna er njóta örorkulífeyris.
21. gr. Aldurstengd örorkuuppbót.
Aldurstengd örorkuuppbót greiðist þeim sem fá greiddan örorkulífeyri skv. 18. gr. eða fullan örorkulífeyri skv. 34. gr. Aldurstengd örorkuuppbót greiðist einnig þeim sem fá greiddan endurhæfingarlífeyri samkvæmt lögum um félagslega aðstoð. [Um uppbótina gilda ákvæði 1. mgr., sbr. 2. mgr., 2. málsl. 4. mgr. og 5. mgr. 18. gr. um búsetutíma, örorkumat og skerðingu vegna tekna.] 1) Fjárhæð uppbótar, sbr. 2. mgr., miðast við þann aldur sem einstaklingur var í fyrsta sinn metinn 75% öryrki skv. 1. og 2. mgr. 18. gr. og 34. gr. eða uppfyllir skilyrði 7. gr. laga um félagslega aðstoð.
[Fjárhæð mánaðarlegrar aldurstengdrar örorkuuppbótar, sbr. 1. mgr., skal vera hlutfall af óskertum mánaðarlegum örorkulífeyri skv. 18. gr. og miðast við fæðingardag, sbr. eftirfarandi:
18 til og með 24 ára | 100% | |
25 ára | 95% | |
26 ára | 90% | |
27 ára | 85% | |
28 og 29 ára | 75% | |
30 og 31 árs | 65% | |
32 og 33 ára | 55% | |
34 og 35 ára | 45% | |
36 og 37 ára | 35% | |
38 og 39 ára | 25% | |
40 til og með 45 ára | 15% | |
46 til og með 50 ára | 10% | |
51 til og með 55 ára | 7,5% | |
56 til og með 60 ára | 5% | |
61 til og með 66 ára | 2,5% | ]2) |
1)L. 70/2009, 13. gr. 2)L. 17/2008, 4. gr.
22. gr. Tekjutrygging.
Tryggingastofnun ríkisins skal greiða þeim tekjutryggingu sem fá greiddan elli-, örorku- eða slysalífeyri samkvæmt lögum þessum. Tekjutrygging greiðist einnig þeim sem fá greiddan endurhæfingarlífeyri samkvæmt lögum um félagslega aðstoð. Rétt til tekjutryggingar eiga þeir sem hafa verið búsettir hér á landi, sbr. II. kafla, sbr. og 1. mgr. 17. gr. og 1. mgr. og 2. málsl. 4. mgr. 18. gr. Um útreikning á tekjutryggingu gildir 16. gr., 1. mgr. 17. gr. og 4. mgr. 18. gr.
Greiða skal ellilífeyrisþega tekjutryggingu til viðbótar lífeyri hans að fjárhæð 942.504 kr. á ári. Hafi lífeyrisþegi tekjur skv. 2. og 4. mgr. 16. gr. skal skerða tekjutrygginguna um 38,35% þeirra tekna uns hún fellur niður. [Greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum undir 120.000 kr. á ári skulu þó ekki skerða tekjutryggingu samkvæmt þessari málsgrein.] 1)
Greiða skal örorku-, slysa- eða endurhæfingarlífeyrisþega tekjutryggingu til viðbótar lífeyri hans að fjárhæð 956.088 kr. á ári. Hafi lífeyrisþegi tekjur skv. 2. og 4. mgr. 16. gr. skal skerða tekjutrygginguna um 38,35% þeirra tekna uns hún fellur niður. [Greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum undir 300.000 kr. á ári skulu þó ekki skerða tekjutryggingu samkvæmt þessari málsgrein.] 2)
Samanlögð skerðing elli-, örorku-, slysa- eða endurhæfingarlífeyris og tekjutryggingar skal aldrei fara umfram 38,35% af tekjum. Komi samtímis til skerðingar þessara bóta skal lífeyrir fyrst skertur og samsvarandi dregið úr skerðingu tekjutryggingar. Ákvæði þessarar málsgreinar um skerðingu gilda ekki um heimilisuppbót skv. 8. gr. laga um félagslega aðstoð.
… 2)
Nú sinnir maður ekki lagaskyldu um greiðslu iðgjalda til lífeyrissjóðs samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Er þá heimilt að áætla honum tekjur sem koma til frádráttar greiðslu tekjutryggingar.
Heimilt er að setja reglugerð 3) um nánari framkvæmd þessarar greinar.
1)L. 70/2009, 14. gr. 2)L. 17/2008, 5. gr. 3)Rg. 808/1998, sbr. 691/2000 og 441/2001.
23. gr. Frestun á töku lífeyris.
Þeir sem eiga rétt á ellilífeyri skv. 17. gr. en hafa ekki lagt inn umsókn eða fengið greiddan ellilífeyri geta frestað töku lífeyris til 72 ára aldurs. Frestunin tekur til bóta skv. 17., 20. og 22. gr.
Eftir að bótaréttur hefur verið reiknaður út skal hækka ellilífeyri, tekjutryggingu og heimilisuppbót, sbr. 17. og 22. gr. laga þessara og 8. gr. laga um félagslega aðstoð, um 0,5% fyrir hvern frestunarmánuð fram til 72 ára aldurs eða að hámarki 30%.
Heimilt er að setja reglugerð um nánari framkvæmd þessarar greinar.
C. Tekjur.
24. gr. Kostnaður vegna lífeyristrygginga almannatrygginga greiðist úr ríkissjóði, m.a. af tekjum ríkissjóðs af tryggingagjaldi.
25. gr. Tryggingastofnun ríkisins skal ár hvert haga áætlanagerð sinni vegna útgjalda lífeyristrygginga fyrir næsta almanaksár í samræmi við reglur fjárlagagerðar og senda [ráðherra] 1) til frekari meðferðar.
Árleg heildarútgjöld lífeyristrygginga skulu vera í samræmi við ákvörðun Alþingis samkvæmt fjárlögum og fjáraukalögum hvers árs.
1)L. 160/2007, 4. gr.
26. gr. Framlag ríkissjóðs til lífeyristrygginganna skv. 24. og 25. gr. skal greitt Tryggingastofnuninni með jöfnum greiðslum í byrjun hvers mánaðar.
IV. kafli. Slysatryggingar.
A. Almenn ákvæði.
27. gr. Slysatryggingar taka til slysa við vinnu, iðnnám, björgunarstörf, hvers konar íþróttaæfingar, íþróttasýningar og íþróttakeppni, enda sé sá sem fyrir slysi verður tryggður samkvæmt ákvæðum 29. eða 30. gr. Með slysi er átt við skyndilegan utanaðkomandi atburð sem veldur meiðslum á líkama þess sem tryggður er og gerist án vilja hans.
Maður telst vera við vinnu:
a. Þegar hann er á vinnustað á þeim tíma sem honum er ætlað að vera að störfum, svo og í matar- og kaffitímum.
b. Í sendiferð í þágu atvinnurekstrar eða í nauðsynlegum ferðum til vinnu og frá, enda sé aðeins um að ræða ferðir sem farnar eru samdægurs milli vinnustaðar og heimilis eða matstaðar. Sama gildir um lengri ferðir af þessu tagi ef starfsmaður er á launum hjá vinnuveitanda í ferðinni.
Slys telst ekki verða við vinnu ef það hlýst af athöfnum slasaða sjálfs sem ekki standa í neinu sambandi við vinnuna. Tryggingin tekur þó til allra slysa á sjómanni sem verða um borð í skipi hans eða þegar hann ásamt skipinu er staddur utan heimahafnar skips eða útgerðarstaðar. Enn fremur tekur tryggingin til allra slysa sem verða á friðargæsluliðum íslenska ríkisins sem verða þegar þeir eru staddir erlendis vegna friðargæslustarfa.
[Trygging samkvæmt þessari grein gildir þó ekki ef bótaskylda er fyrir hendi samkvæmt lögboðinni ábyrgðartryggingu ökutækis eða slysatryggingu ökumanns og eiganda.] 1)
Til slysa teljast sjúkdómar er stafa af skaðlegum áhrifum efna, geislaorku eða öðru hliðstæðu sem ríkjandi eru í hæsta lagi fáeina daga og rekja verður til vinnunnar.
Ákveða skal með reglugerð að tilteknir atvinnusjúkdómar skuli teljast bótaskyldir samkvæmt þessum kafla.
1)L. 140/2013, 47. gr.
28. gr. Þegar að höndum ber slys, sem ætla má bótaskylt samkvæmt þessum kafla, skal atvinnurekandi eða hinn tryggði, ef ekki er um atvinnurekanda að ræða, tafarlaust senda tilkynningu um slysið í því formi, sem [sjúkratryggingastofnunin] 1) skipar fyrir um, til lögreglustjóra eða umboðsmanns hans (í Reykjavík til [sjúkratryggingastofnunarinnar] 1)). Lögreglustjóri sendir tilkynninguna til [sjúkratryggingastofnunarinnar] 1) ásamt nauðsynlegum upplýsingum. Hinum slasaða eða þeim öðrum, sem gera vilja kröfu til bóta vegna slyssins, ber að fylgjast með því að tilkynningarskyldunni sé fullnægt og geta þessir aðilar leitað aðstoðar lögreglustjóra ef atvinnurekandi vanrækir tilkynninguna. Ef atvik að slysinu eru óljós eða mál ekki nægilega upplýst eða ástæða til að ætla að slysið hafi orðið af hirðuleysi eða lélegum útbúnaði, svo og ef [sjúkratryggingastofnunin] 1) eða annar hvor aðila, atvinnurekandi eða hinn slasaði eða fyrirsvarsmaður hans óskar þess, skal lögreglustjóri rannsaka málið.
Ef sá sem átti að tilkynna slys hefur vanrækt það skal það eigi vera því til fyrirstöðu að sá sem fyrir slysi varð eða eftirlátnir vandamenn hans geti gert kröfu til bóta ef það er gert áður en ár er liðið frá því að slysið bar að höndum. Heimilt er þó að greiða bætur þótt liðið sé ár frá því að slys bar að höndum ef atvik eru svo ljós að drátturinn torveldar ekki gagnaöflun um atriði er máli skipta. Ráðherra setur reglugerð 2) um nánari framkvæmd ákvæðisins.
1)L. 112/2008, 57. gr. 2)Rg. 356/2005.
29. gr. Slysatryggðir samkvæmt þessum kafla eru:
a. Launþegar sem starfa hér á landi að undanskildum erlendum ríkisborgurum sem gegna embætti fyrir erlend ríki og erlendu starfsliði slíkra embættismanna. Starf um borð í íslensku skipi eða íslensku loftfari, eða skipi eða loftfari sem gert er út eða rekið af íslenskum aðilum, jafngildir starfi hér á landi samkvæmt þessum lið, enda séu laun greidd hér á landi.
b. Nemendur við iðnnám í löggiltum iðngreinum og nemar í starfsnámi sem stunda nám í heilbrigðisgreinum og raunvísindum og háskólanemar þegar þeir sinna verklegu námi.
c. Útgerðarmenn sem sjálfir eru skipverjar.
d. Þeir sem vinna að björgun manna úr lífsháska eða vörnum gegn yfirvofandi meiri háttar tjóni á verðmætum.
e. Íþróttafólk sem tekur þátt í íþróttaiðkunum, hvort heldur er æfingum, sýningum eða keppni og orðið er 16 ára. Með reglugerðarákvæði 1) má ákveða nánar gildissvið þessa ákvæðis.
f. Atvinnurekendur í landbúnaði sem vinna landbúnaðarstörf, makar þeirra og börn á aldrinum 13 til og með 17 ára.
g. Atvinnurekendur sem starfa að eigin atvinnurekstri í öðrum atvinnugreinum en um getur í f-lið.
Heimilt er að veita undanþágu frá slysatryggingu skv. a-lið 1. mgr. ef hlutaðeigandi er sannanlega tryggður samkvæmt erlendri slysatryggingalöggjöf.
Launþegi telst hver sá sem tekur að sér vinnu gegn endurgjaldi án þess að vera sjálfur atvinnurekandi í því sambandi, hvort sem um er að ræða tímakaup, föst laun, aflahlut eða greiðslu fyrir ákvæðisvinnu.
Maki atvinnurekanda og börn hans á aldrinum 13 til og með 17 ára, sbr. g-lið 1. mgr., teljast ekki launþegar samkvæmt þessari grein nema þau starfi við atvinnureksturinn og þiggi laun fyrir.
1)Rg. 245/2002.
30. gr. Þeir sem heimilisstörf stunda geta tryggt sér rétt til slysabóta við þau störf með því að skrá í skattframtal í byrjun hvers árs ósk þar að lútandi.
B. Bætur.
31. gr. Bætur slysatrygginga eru sjúkrahjálp, dagpeningar, örorkubætur og dánarbætur.
32. gr. Nú veldur bótaskylt slys sjúkleika og vinnutjóni í minnst 10 daga og skal þá greiða nauðsynlegan kostnað vegna lækningar hins slasaða og tjóns á gervilimum eða hjálpartækjum svo sem hér segir:
1. Að fullu skal greiða:
a. Læknishjálp sem samið hefur verið um [samkvæmt lögum um sjúkratryggingar]. 1)
b. Sjúkrahúsvist, svo lengi sem afleiðingar slyssins gera hana nauðsynlega, [sé hinn slasaði ekki sjúkratryggður samkvæmt lögum um sjúkratryggingar]. 1) … 1)
c. Lyf og umbúðir.
d. Viðgerð vegna brots eða löskunar á heilbrigðum tönnum eða vel viðgerðum. Greiðslu fyrir sams konar viðgerðir á lélegri tönnum má takmarka við kostnað sem ætla má að orðið hefði ef þær hefðu verið heilbrigðar.
e. Gervilimi eða svipað hjálpartæki, svo og viðgerð á þeim eða endurnýjun ef viðgerð telst ekki fullnægjandi. Sama gildir um gervitennur.
f. Sjúkraflutning með sjúkraflugvél eða sjúkrabíl fyrst eftir slys eða þegar ella verður nauðsynlegt að senda sjúkling með slíkum farartækjum til meðferðar hjá lækni eða í sjúkrahúsi, þó ekki fyrir einstakar ferðir þegar um stundun er að ræða. Sama gildir um flutning með skipi þegar öðrum farartækjum verður ekki við komið.
g. Sjúkraþjálfun og orkulækningar.
2. Að hluta skal greiða:
a. Að hálfu ferðakostnað til læknis með leigubíl, enda sé sjúklingur ekki fær um að ferðast með áætlunarbíl eða strætisvagni. Ekki skal þó greitt fyrir flutning með bifreið manns af sama heimili eða sama bæ né bifreið í eigu venslamanna hins slasaða.
b. Að 3/ 4 kostnað við sams konar ferðir með áætlunarbíl eða -skipi, enda sé um meira en 15 km vegalengd að ræða. Geti sjúklingur ekki ferðast með áætlunarbíl skal greiða ferð með áætlunarflugvél að 3/ 4 .
3. Heimilt er að greiða:
a. Hjúkrun í heimahúsum, veitta af vandalausum.
b. Styrk upp í kostnað vegna löskunar á tönnum þegar framkvæmdar hafa verið kostnaðarsamar aðgerðir á þeim sem ónýst hafa við slysið.
c. Ferðakostnað að 3/ 4 hlutum með áætlunarbíl eða strætisvagni eða samkvæmt kílómetragjaldi ef áætlunarferðir eða strætisvagnaferðir eru ekki fyrir hendi þegar sjúklingur þarfnast ítrekaðrar meðferðar hjá lækni á sjúkrahúsi eða sjúkrastofnun, svo sem í endurhæfingu eða sjúkraþjálfun, með eða án innlagningar, þótt vegalengd sé skemmri en 15 km, enda séu ferðir fleiri en 30 á sex mánaða tímabili.
Að svo miklu leyti sem samningar [samkvæmt lögum um sjúkratryggingar] 1) ná ekki til sjúkrahjálpar samkvæmt framansögðu getur ráðherra ákveðið endurgreiðslu að nokkru eða öllu leyti með reglugerð. 2)
Nú veldur slys ekki óvinnufærni í 10 daga, en hefur þó í för með sér kostnað sem um ræðir í grein þessari og má þá greiða hann að svo miklu leyti sem hann fæst ekki greiddur hjá sjúkratryggingum.
[Kostnaður vegna sjúkrahjálpar sem fellur til þegar liðin eru fimm ár eða meira frá slysdegi greiðist ekki. Þó er heimilt, ef alveg sérstaklega stendur á, að greiða kostnað sem fellur til í allt að tíu ár frá slysdegi enda séu skýr læknisfræðileg orsakatengsl milli slyssins og kostnaðarins.
Einungis skal greiða nauðsynlegan kostnað sem til fellur hér á landi nema annað leiði af milliríkjasamningum. Þó skal greiða óhjákvæmilega sjúkrahjálp sem til fellur erlendis ef slasaði er tryggður samkvæmt ákvæðum 1. mgr. 13. gr. eða 2. málsl. b-liðar 2. mgr. 27. gr.] 3)
1)L. 112/2008, 57. gr. 2)Rg. 541/2002, sbr. 335/2011. 3)L. 140/2013, 48. gr.
33. gr. Dagpeningar greiðast frá og með 8. degi eftir að slysið varð, enda hafi hinn slasaði verið óvinnufær í minnst 10 daga. Dagpeningar greiðast þangað til hinn slasaði verður vinnufær, úrskurður er felldur um varanlega örorku hans eða hann deyr, þó ekki lengur en 52 vikur.
[Sjúkratryggingastofnuninni] 1) er heimilt að ákveða að dagpeningar skuli greiddir lengur, einkum ef ekki er lokið lækningatilraunum og óvíst er hvort um varanlega örorku verður að ræða og líkur eru til að afstýra megi eða draga úr örorku með lengri bótagreiðslu.
Dagpeningar eru 1.184 kr. á dag fyrir hvern einstakling og 253 kr. fyrir hvert barn á framfæri, þar með talin börn utan heimilis sem hinn slasaði sannanlega greiðir með samkvæmt úrskurði stjórnvalds, staðfestu samkomulagi eða skilnaðarleyfisbréfi.
Greiðslur samkvæmt grein þessari mega ekki fara fram úr 3/ 4 af tekjum bótaþega, sbr. 16. gr., við þá atvinnu sem hann stundaði er slysið varð.
Nú greiðir vinnuveitandi hinum slasaða laun í slysaforföllum og renna þá dagpeningagreiðslur samkvæmt þessari grein til vinnuveitandans þann tíma, þó aldrei hærri greiðsla en sem nemur 3/ 4 hlutum launanna.
1)L. 112/2008, 57. gr.
34. gr. Ef slys veldur varanlegri örorku skal greiða þeim er fyrir því varð örorkulífeyri eftir reglum 4. mgr. 18. gr. eða örorkubætur í einu lagi [með þeirri undantekningu að réttur til örorkulífeyris reiknast frá 16 ára aldri]. 1)
Ef örorkan er 50% eða meiri greiðist hálfur örorkulífeyrir fyrir 50% örorku, hækkar síðan um 2% fyrir hvert örorkustig sem við bætist uns örorkan nemur 75%, þá greiðist fullur lífeyrir. Skerðingarákvæði 5. mgr. 18. gr. skulu ekki taka til örorkulífeyris samkvæmt þessari grein.
Nú er örorkan metin meiri en 50% og skal þá auk örorkulífeyris greiða lífeyri vegna maka og barna yngri en 18 ára, sem voru á framfæri bótaþega þegar slys bar að höndum, eftir reglum b- og c-liða 1. mgr. 35. gr.
Ef örorkan er 75% eða meiri skal greiða fullar bætur og gildir það bæði vegna barna sem voru á framfæri bótaþega þegar slys átti sér stað, svo og þeirra sem hann framfærir síðar. Sé orkutapið minna en 75% lækka bæturnar um 4% fyrir hvert 1% sem vantar á 75% örorku.
Ef orkutap er minna en 50% er [sjúkratryggingastofnuninni] 2) heimilt að greiða í einu lagi örorkubætur sem jafngilda lífeyri hlutaðeigandi um tiltekið árabil samkvæmt reglugerð 3) er ráðherra setur. Ella greiðist lífeyrir í hlutfalli við örorkuna.
Örorkubætur greiðast ekki ef orkutapið er metið minna en 10%.
1)L. 120/2009, 5. gr. 2)L. 112/2008, 57. gr. 3)Rg. 187/2005.
35. gr. Ef slys veldur dauða innan tveggja ára frá því er það bar að höndum skal greiða dánarbætur sem hér segir:
a. Ekkja eða ekkill, sem var samvistum við hinn látna eða á framfæri hans, hlýtur bætur, 27.429 kr. á mánuði í 8 ár frá dánardægri hins látna. Bætur samkvæmt þessum staflið falla ekki niður þótt ekkja eða ekkill stofni til hjúskapar á ný. Nú andast ekkja eða ekkill sem bóta hefur notið samkvæmt ákvæðum þessarar greinar áður en bætur hafa verið greiddar að fullu og skulu eftirstöðvar bótanna greiddar að jöfnu börnum hinna látnu eftir sömu reglum til loka tímabilsins ef á lífi eru, ella til dánarbús hans.
b. Barnalífeyri, 219.408 kr. á ári fyrir hvert barn, sbr. að öðru leyti 20. gr.
c. Barn eldra en 16 ára, sem var á framfæri hins látna vegna örorku þegar slysið bar að höndum, fær bætur, eigi minni en 342.775 kr. og allt að 1.028.326 kr., eftir því að hve miklu leyti það naut stuðnings hins látna við fráfall hans. Þó greiðast ekki bætur ef örorka er minni en 33%.
Bætur skv. a- og c-liðum 1. mgr. skulu eigi vera lægri en 479.890 kr. fyrir hvert slys. Nú lætur hinn látni ekki eftir sig aðstandendur sem rétt eiga til bóta samkvæmt þessum stafliðum og skal þá bæta slysið með 479.890 kr. sem skiptist að jöfnu milli barna hins látna ef á lífi eru, en ella til dánarbús hans.
Um fósturbörn og fósturforeldra gildir sama og um börn og foreldra.
Frá dánarbótum, sem greiddar eru vandamönnum, ber að draga þær örorkubætur er greiddar hafa verið í einu lagi skv. 5. mgr. 34. gr. vegna sama slyss.
C. Tekjur.
36. gr. Útgjöld slysatrygginga skulu borin af tekjum ríkissjóðs af tryggingagjaldi og iðgjöldum skv. 3. mgr. Þá skal árlega ákveða í fjárlögum framlag sem standa skal undir kostnaði af bótum vegna þeirra sem um getur í e-lið 1. mgr. 29. gr.
[Sjúkratryggingastofnunin] 1) skal ár hvert gera áætlun um bótagreiðslur og rekstrarkostnað slysatrygginga næsta almanaksár.
Iðgjöld útgerðarmanna fiskiskipa vegna slysatrygginga sjómanna skulu vera 0,65% af samanlögðum launum og aflahlut sjómanna sem hjá þeim starfa hverju sinni. Iðgjöld þessi skulu ásamt dagpeningum skv. 6. mgr. 67. gr. standa undir greiðslu launa og/eða aflahlutar skv. 2. mgr. 67. gr. og rekstrarkostnaði slysatrygginga vegna framkvæmdar [sjúkratryggingastofnunarinnar] 1) við tryggingu þessa. Iðgjöld þeirra sem heimilisstörf stunda skv. 30. gr. skulu ákveðin þannig að þau standi undir kostnaði við trygginguna og rekstrarkostnaði [sjúkratryggingastofnunarinnar] 1) vegna framkvæmdarinnar.
1)L. 112/2008, 57. gr.
V. kafli. [Leiðbeiningar- og upplýsingaskylda og eftirlitsheimildir.]1)
1)L. 8/2014, 2. gr.
[A. Leiðbeiningar- og rannsóknarskylda.]1)
1)L. 8/2014, 2. gr.
[37. gr. Leiðbeiningarskylda.
Tryggingastofnun ríkisins skal kynna sér aðstæður umsækjenda og greiðsluþega og gera þeim grein fyrir rétti þeirra samkvæmt lögum þessum og öðrum lögum er stofnunin starfar eftir, reglugerðum settum á grundvelli laganna og starfsreglum stofnunarinnar. Við meðferð máls skulu staða og réttindi umsækjanda eða greiðsluþega skoðuð heildstætt. Stofnunin skal leiðbeina umsækjanda um réttarstöðu hans, þau gögn sem þurfa að fylgja umsókn og um framhald málsins.
Tryggingastofnun skal upplýsa umsækjendur og greiðsluþega um heimildir stofnunarinnar til vinnslu persónuupplýsinga. Skal þar koma fram frá hverjum stofnuninni er heimilt að afla upplýsinga, um hvaða upplýsingar er að ræða og í hvaða tilgangi unnið er með þær.
Nú varðar erindi ekki starfssvið stofnunarinnar og skal það þá framsent á réttan stað svo fljótt sem auðið er og viðkomandi leiðbeint eftir því sem unnt er.] 1)
1)L. 8/2014, 2. gr.
[38. gr. Rannsóknarskylda.
Tryggingastofnun skal sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun um bótarétt er tekin, þar á meðal að öll nauðsynleg gögn og upplýsingar liggi fyrir.] 1)
1)L. 8/2014, 2. gr.
[B. Upplýsingaskylda og eftirlitsheimildir.]1)
1)L. 8/2014, 2. gr.
[39. gr. Upplýsingaskylda umsækjenda og greiðsluþega.
Umsækjanda eða greiðsluþega er rétt og skylt að taka þátt í meðferð málsins, m.a. með því að koma til viðtals og veita Tryggingastofnun þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru svo unnt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Þá er skylt að tilkynna um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á bætur eða greiðslur.
Ákvæði 1. mgr. eiga einnig við um maka umsækjanda eða greiðsluþega eftir því sem við getur átt.] 1)
1)L. 8/2014, 2. gr.
[40. gr. Upplýsingar um tekjur.
Tryggingastofnun ríkisins er heimilt, að fengnu skriflegu samþykki umsækjanda og greiðsluþega, að afla nauðsynlegra upplýsinga um tekjur umsækjanda og greiðsluþega hjá skattyfirvöldum og greiðslur hjá lífeyrissjóðum, Vinnumálastofnun og sambærilegum stofnunum erlendis þegar það á við með rafrænum hætti eða á annan hátt.
Þegar um hjón er að ræða er Tryggingastofnun heimilt, að fengnu skriflegu samþykki beggja, að afla upplýsinga um tekjur maka og greiðslur til hans hjá framangreindum aðilum ef þær gætu haft áhrif á fjárhæð bóta. Sama gildir um tekjur sambúðarfólks sem uppfyllir skilyrði fyrir samsköttun skv. 3. mgr. 62. gr. laga um tekjuskatt.
Telji umsækjandi, greiðsluþegi eða maki upplýsingar frá þessum aðilum ekki réttar skal hann leggja fram gögn því til staðfestingar.] 1)
1)L. 8/2014, 2. gr.
[41. gr. Skortur á upplýsingum.
Ef ekki reynist unnt að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra vegna skorts á nauðsynlegum upplýsingum sem rekja má til umsækjanda, greiðsluþega eða maka hans er Tryggingastofnun heimilt að fresta ákvörðun og greiðslu bóta þar til úr því er bætt. Tryggingastofnun skal tafarlaust gera viðkomandi viðvart ef til frestunar kemur, skora á hann að veita nauðsynlegar upplýsingar og gera honum grein fyrir afleiðingum þess ef áskorun um að veita upplýsingar er ekki sinnt.] 1)
1)L. 8/2014, 2. gr.
[42. gr. Upplýsingaskylda heilbrigðisstarfsmanna.
Þeim heilbrigðisstarfsmönnum sem bera ábyrgð á vörslu sjúkraskráa, sbr. lög um sjúkraskrár, er skylt að veita læknum og heilbrigðisstarfsmönnum Tryggingastofnunar þær upplýsingar og gögn sem stofnuninni eru nauðsynleg vegna ákvörðunar um greiðslu bóta og vegna eftirlitshlutverks hennar. Þá er læknum og heilbrigðisstarfsmönnum Tryggingastofnunar heimilt að skoða þann hluta sjúkraskrár sem nauðsynlegt er vegna eftirlits og reikningsgerð á hendur stofnuninni er byggð á. Skoðun skal fara fram á þeim stað þar sem sjúkraskrá er varðveitt.] 1)
1)L. 8/2014, 2. gr.
[43. gr. Upplýsingaskylda annarra aðila.
Skattyfirvöld, Vinnumálastofnun, Þjóðskrá Íslands, Innheimtustofnun sveitarfélaga, Fangelsismálastofnun, Útlendingastofnun, ríkislögreglustjóri, Samgöngustofa, lífeyrissjóðir, sjúkrastofnanir, dvalar- og hjúkrunarheimili, sveitarfélög, Lánasjóður íslenskra námsmanna, viðurkenndar menntastofnanir innan hins almenna menntakerfis og skólar á háskólastigi skulu láta Tryggingastofnun í té upplýsingar með rafrænum hætti eða á annan hátt að því marki sem slíkar upplýsingar eru nauðsynlegar til að unnt sé að framfylgja lögum þessum.
Þá skulu Tryggingastofnun og sjúkratryggingastofnunin á sama hátt skiptast á upplýsingum um mat á örorku og öðrum upplýsingum að því marki sem þær eru nauðsynlegar við framkvæmd laganna.] 1)
1)L. 8/2014, 2. gr.
[44. gr. Upplýsingaskylda án endurgjalds.
Upplýsingar og gögn sem Tryggingastofnun óskar eftir og unnt er að láta í té skulu veittar án endurgjalds, sbr. þó 20. gr. laga um þjóðskrá og almannaskráningu, og í því formi sem óskað er, enda liggi fyrir heimild um öflun þessara upplýsinga samkvæmt ákvæðum þessa kafla.] 1)
1)L. 8/2014, 2. gr.
[45. gr. Eftirlit og viðurlög.
Tryggingastofnun skal reglubundið sannreyna réttmæti bóta, greiðslna og upplýsinga sem ákvörðun um réttindi byggist á. Stofnuninni er heimilt í þágu eftirlits að óska eftir upplýsingum og gögnum frá þeim aðilum sem taldir eru upp í 43. gr. og nauðsynleg eru til að sannreyna réttmæti ákvarðana og greiðslna.
Grundvöll bótaréttar má endurskoða hvenær sem er og samræma bætur þeim breytingum sem orðið hafa á aðstæðum greiðsluþega.
Leiki rökstuddur grunur á að bótaréttur sé ekki fyrir hendi er heimilt að fresta greiðslum tímabundið meðan mál er rannsakað frekar og stöðva greiðslur komi í ljós að bótaréttur sé ekki fyrir hendi. Um ofgreiðslur og vangreiðslur fer skv. 55. gr.
Leiki rökstuddur grunur á að bætur séu greiddar á grundvelli rangra eða villandi upplýsinga frá greiðsluþega er heimilt að afla upplýsinga frá þriðja aðila sem ætla má að geti veitt upplýsingar er máli skipta í því skyni að leiðrétta bótagreiðslur.
Komi í ljós að rangar, villandi eða ófullnægjandi upplýsingar hafi vísvitandi verið veittar eða einstaklingur hafi látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar í því skyni að njóta tryggingar eða fá óréttmætar greiðslur skal greiðsluþegi endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi.] 1)
1)L. 8/2014, 2. gr.
[C. Vernd persónuupplýsinga.]1)
1)L. 8/2014, 2. gr.
[46. gr. Þagnarskylda og meðferð persónuupplýsinga.
Starfsfólki Tryggingastofnunar og umboðsskrifstofa hennar er óheimilt að viðlagðri ábyrgð eftir ákvæðum almennra hegningarlaga um brot í opinberu starfi að skýra frá upplýsingum sem það fær vitneskju um í starfi sínu og leynt eiga að fara. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.
Þagnarskyldan gildir einnig um stjórn Tryggingastofnunar og þá sem sinna verkefnum fyrir stofnunina en eru ekki starfsmenn hennar.
Við meðferð persónuupplýsinga sem aflað er skal Tryggingastofnun gæta þess að uppfyllt séu skilyrði laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Stofnunin skal tryggja að fyllsta öryggis sé gætt við sendingu og meðferð upplýsinga og setja skal öryggisstefnu, framkvæma áhættumat og gera aðrar öryggisráðstafanir til samræmis við lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og reglur sem settar hafa verið á grundvelli þeirra. Þá skal stofnunin jafnframt gæta ákvæða laga um sjúkraskrár eftir því sem við á.
Upplýsingar sem aflað er vegna eftirlits á grundvelli ákvæða þessa kafla skal ekki varðveita lengur en nauðsynlegt er og skal þeim eytt að lokinni tímabundinni vinnslu í þágu eftirlits.] 1)
1)L. 8/2014, 2. gr.
[47. gr. Ákvæði þessa kafla eiga við um sjúkratryggingastofnunina vegna framkvæmdar á IV. kafla laga þessara, eftir því sem við á.] 1)
1)L. 8/2014, 2. gr.
VI. kafli. Sameiginleg ákvæði.
A. Bætur.
48. gr. Bætur samkvæmt lögum þessum teljast bætur greiddar í peningum og hjálp til sjúkra og slasaðra sem veitt er á annan hátt.
Enginn getur samtímis notið nema einnar tegundar greiddra bóta samkvæmt lögum þessum. Saman mega þó fara:
a. Bætur til ekkju eða ekkils skv. a-lið 1. mgr. 35. gr. og allar aðrar bætur.
b. Barnalífeyrir og dagpeningar.
c. Slysadagpeningar og ellilífeyrir.
d. Aðrar bætur ef svo er fyrir mælt í lögunum.
Ef maður á rétt á fleiri tegundum bóta en einni sem ekki geta farið saman má hann taka hærri eða hæstu bæturnar. Nú nýtur umsækjandi um dagpeninga annarra lægri bóta sem veittar eru til langs tíma og skulu þá dagpeningar nema mismuninum.
… 1)
Ef elli- eða örorkulífeyrisþegi dvelst lengur en í mánuð samfellt á sjúkrahúsi sem er á föstum fjárlögum fellur lífeyrir hans og bætur honum tengdar niður ef [dvölin] 2) hefur varað lengur en sex mánuði undanfarna tólf mánuði. Ef ljóst er frá upphafi að um varanlega dvöl á hjúkrunarheimili eða í hjúkrunarrými öldrunarstofnunar er að ræða falla bætur niður frá fyrsta degi næsta mánaðar eftir upphaf dvalar. Heimilt er þó að víkja frá tímamörkum í 1. málsl. þessarar málsgreinar ef sérstaklega stendur á og skal við mat á framlengingu á greiðslu lífeyris og bótum honum tengdum höfð hliðsjón af tekjum skv. 16. gr.
[Ráðherra ákveður daggjöld dvalarheimila fyrir aldraða með reglugerð. 3) Tryggingastofnun ríkisins er heimilt að greiða dvalarheimili fyrir aldraða sem ekki er á föstum fjárlögum [dvalarframlag] 2) allt að því sem á vantar dvalarkostnað í samræmi við lög um málefni aldraðra. [Dvalarframlag] 2) skal þó aldrei nema hærri fjárhæð en nemur dvalarkostnaði [heimilismanns] 2) eins og hann er ákveðinn af ráðherra hverju sinni skv. 1. málsl.] 4)
Sjúkrahús og stofnanir skv. 5. og 6. mgr. skulu senda Tryggingastofnun mánaðarlega upplýsingar um [dvöl]. 2)
[Þegar lífeyrir og bætur honum tengdar falla niður skv. 5. mgr. er heimilt að greiða elli- og örorkulífeyrisþega sem dvelst á sjúkrahúsi hér á landi vasapeninga allt að 28.951 kr. á mánuði. Við útreikning á fjárhæð vasapeninga skulu tekjur skerða vasapeninga um 65%. Vasapeningar falla alveg niður við tekjur sem nema 641.146 kr. á ári. Með tekjum er átt við tekjur eins og þær eru skilgreindar í 16. gr. og um tekjuútreikning fer samkvæmt sömu grein. Ef tekjur hlutaðeigandi eru af vinnu á stofnuninni og telja má vinnuna þátt í endurhæfingu er heimilt að ákveða að tekjurnar hafi ekki skerðingaráhrif á vasapeningana svo framarlega sem þær fara ekki yfir 680.350 kr. á ári og sama gildir um tekjur í formi hlunninda og annarra greiðslna en peninga. Tekjur vegna vinnu á stofnun, sbr. 5. málsl. þessarar málsgreinar, umfram 680.350 kr. á ári skerða vasapeninga í samræmi við skerðingarhlutfall 2. málsl.] 5)
Nú dvelst lífeyrisþegi utan stofnunar nokkra daga í senn en útskrifast samt ekki og er þá heimilt að greiða honum dagpeninga sem eigi séu lægri en 1.931 kr. á dag þann tíma.
Heimilt er að setja reglugerð 6) um nánari framkvæmd ákvæðis þessa.
1)L. 112/2008, 57. gr. 2)L. 28/2012, 8. gr. 3) Rg. 1185/2014. 4)L. 160/2007, 6. gr. 5)L. 17/2008, 6. gr. 6) Rgl. 174/2000. Rg. 357/2005, sbr. 296/2008. Rg. 460/2013, sbr. 1218/2014. Rg. 1185/2014.
49. gr. [Sama rétt til bóta og hjón hafa samkvæmt lögum þessum einnig einstaklingar sem eru í óvígðri sambúð. Með óvígðri sambúð í lögum þessum er átt við sambúð tveggja einstaklinga, sem skráð er í þjóðskrá, enda eigi þeir barn saman eða von á barni saman eða hafi verið í sambúð samfleytt lengur en eitt ár. Sama gildir um bótarétt þess sem eftir lifir.] 1)
1)L. 65/2010, 37. gr.
50. gr. Tryggingastofnunin getur greitt öðrum en bótaþega eða framfærslumanni bætur ef ástæða er til að ætla að bæturnar séu notaðar á þann hátt að eigi samrýmist tilgangi laganna. Slíkar ráðstafanir skulu þó að jafnaði bornar undir hlutaðeigandi sveitarstjórn eða barnaverndarnefnd ef um er að ræða barnalífeyri.
51. gr. Bætur, sem ætlaðar eru bótaþegum sjálfum, greiðast ekki ef hlutaðeigandi vanrækir að fara að læknisráðum eða neitar að hlíta fyrirmælum um þátttöku í þjálfun eða starfsnámi sem bætt gæti afkomu hans eða búið hann undir nýtt starf.
52. gr. [Sækja skal um allar bætur og greiðslur samkvæmt lögum þessum. Þó þurfa þeir sem fá greiddan örorkulífeyri ekki að sækja sérstaklega um ellilífeyri skv. 17. gr. þegar þeir ná 67 ára aldri.
Umsóknir skulu vera á eyðublöðum Tryggingastofnunar eða sendar með rafrænum hætti sem stofnunin telur fullnægjandi. Við afgreiðslu umsóknar skal þess gætt að öll nauðsynleg gögn og upplýsingar liggi fyrir, sbr. 38. gr., svo unnt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum. Sérstaklega skal þess gætt að umsækjandi, sem áunnið hefur sér rétt hjá skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum, hafi lagt fram umsókn um áunnin réttindi hjá viðkomandi lífeyrissjóðum og er Tryggingastofnun heimilt að fresta ákvörðun og greiðslu bóta þar til upplýsingar um það liggja fyrir, sbr. 41. gr.
Við meðferð máls og afgreiðslu umsóknar er Tryggingastofnun heimilt að afla upplýsinga frá þeim aðilum sem tilgreindir eru í 43. gr. sem og skv. 4. mgr. 45. gr. sem nauðsynlegar eru til að unnt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum. Sama á við um nauðsynlegar upplýsingar hjá stofnunum erlendis þegar það á við.
Tryggingastofnun getur aflað upplýsinga skv. 3. mgr. með rafrænum hætti eða á annan hátt. Tryggja skal að upplýsingaöflun og úrvinnsla gangi ekki lengra en þörf krefur til að unnt sé að framkvæma lögin.
Ákvæði þessarar greinar eiga við um sjúkratryggingastofnunina eftir því sem við á.] 1)
1)L. 8/2014, 3. gr.
53. gr. Allar umsóknir skulu ákvarðaðar svo fljótt sem kostur er á og skulu bætur reiknaðar frá þeim degi sem umsækjandinn hefur uppfyllt skilyrðin til bótanna. Bætur skv. III. kafla, aðrar en lífeyrir skv. IV. kafla, reiknast þó frá fyrsta næsta mánaðar eftir að bótaréttur er fyrir hendi og falla niður í lok þess mánaðar er bótarétti lýkur.
Bætur, aðrar en slysalífeyrir …, 1) skulu aldrei ákvarðaðar lengra aftur í tímann en tvö ár frá því að umsókn og önnur gögn sem nauðsynleg eru til að unnt sé að taka ákvörðun um bótarétt og fjárhæð bóta berast stofnuninni. … 1)
… 2)
1)L. 112/2008, 57. gr. 2)L. 8/2014, 4. gr.
54. gr. Bætur skal greiða fyrsta dag hvers mánaðar. Þó má greiða sjúkrabætur og dagpeninga fyrir styttri tíma. [Þá er heimilt, að ósk umsækjanda eða bótaþega, að fresta greiðslu bóta og greiða bætur í einu lagi eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur umsækjanda eða bótaþega á bótagreiðsluárinu liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum.] 1)
Ákvarðaðar bætur falla niður ef þær eru ekki sóttar innan 12 mánaða, en ákvarða má bætur á ný ef rökstudd umsókn berst.
Tryggingastofnun ríkisins gefur út örorkuskírteini til þeirra sem uppfylla skilyrði 1. mgr. 18. gr. og eru jafnframt sjúkratryggðir hér á landi [samkvæmt lögum um sjúkratryggingar]. 2)
1)L. 120/2009, 6. gr. 2)L. 112/2008, 57. gr.
55. gr. Hafi Tryggingastofnun ríkisins eða umboð hennar [eða eftir atvikum sjúkratryggingastofnunin] 1) ofgreitt bótaþega bætur samkvæmt lögum þessum skal stofnunin draga ofgreiddar bætur frá bótum sem bótaþegi síðar kann að öðlast rétt til, sbr. þó 2. mgr. Einnig á Tryggingastofnun [eða eftir atvikum sjúkratryggingastofnunin] 1) endurkröfurétt á hendur bótaþega [eða dánarbúi hans] 2) samkvæmt almennum reglum.
Ef tekjutengdar bætur samkvæmt lögum þessum eru ofgreiddar af Tryggingastofnun eða umboðum hennar skal það sem er ofgreitt dregið frá öðrum tekjutengdum bótum sem bótaþegi síðar öðlast rétt til. Þetta á eingöngu við ef tekjur á ársgrundvelli eru hærri en lagt var til grundvallar við útreikning bóta og ofgreiðsla stafar af því að bótaþegi hefur ekki tilkynnt Tryggingastofnun um tekjuaukninguna [eða aðrar breyttar aðstæður], 2) sbr. [39. gr.] 3)
[Ofgreiddar bætur skal að jafnaði draga frá greiðslum til bótaþega á næstu 12 mánuðum eftir að krafa stofnast. Ekki er heimilt að draga frá bótum meira en 20% af mánaðarlegum greiðslum til bótaþega, nema samið sé um annað, þó aldrei lægri fjárhæð en 3.000 kr., uns ofgreiðsla er endurgreidd að fullu. Hafi endurkrafa vegna ofgreiddra bóta ekki verið greidd á 12 mánuðum frá því að krafa stofnaðist skal greiða 5,5% ársvexti á eftirstöðvar kröfunnar. Heimilt er að falla frá kröfu um vexti ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi eða ef samningur um endurgreiðslu ofgreiddra bóta liggur fyrir og viðkomandi stendur við greiðsluskyldu sína samkvæmt samningnum.] 2)
Hafi Tryggingastofnun ríkisins [eða eftir atvikum sjúkratryggingastofnunin] 1) vangreitt bótaþega bætur skal stofnunin greiða honum [eða dánarbúi hans] 2) það sem upp á vantar. Þegar bætur eru vangreiddar skal greiða bótaþega 5,5% ársvexti á þá bótafjárhæð sem vangreidd var og skulu þeir reiknast frá þeim degi sem skilyrði til bótanna eru uppfyllt, sbr. þó 53. gr. Sama á við þegar niðurstaða úrskurðarnefndar almannatrygginga, sbr. 7. gr., leiðir til þess að einstaklingur á rétt á bótum en hafði fengið synjun eða lægri bætur hjá Tryggingastofnun ríkisins [eða eftir atvikum sjúkratryggingastofnuninni], 1) sbr. þó 53. gr. Ef bætur eru vangreiddar vegna skorts á upplýsingum, sbr. [41. gr.], 3) falla vextir niður.
… 3)
[Ákvarðanir Tryggingastofnunar ríkisins um endurkröfu ofgreiddra bóta samkvæmt ákvæði þessu eru aðfararhæfar, sbr. þó 7. mgr. 8. gr.] 2)
Heimilt er að setja reglugerð 4) um nánari framkvæmd greinarinnar, t.d. um innheimtu á ofgreiddum bótum, undanþágur frá innheimtu ofgreiddra bóta og afskriftir krafna.
1)L. 112/2008, 57. gr. 2)L. 120/2009, 7. gr. 3)L. 8/2014, 5. gr. 4)Rg. 598/2009, sbr. 1056/2009 og 1118/2013.
56. gr. Ef bótaþegi er dæmdur til fangelsisvistar eða á annan hátt úrskurðaður til dvalar á einhverri stofnun skulu falla niður allar bætur til hans eftir fjögurra mánaða samfellda fangelsisvist eða dvöl. Þegar bætur hafa verið felldar niður er heimilt að greiða fanga vasapeninga í samræmi við 8. mgr. 48. gr. … 1)
Tryggingastofnunin [eða eftir atvikum sjúkratryggingastofnunin] 1) getur þó ákveðið að greiða bæturnar, eða hluta af þeim, maka hans og börnum eða einhverjum þriðja aðila sem sér um að bæturnar komi þeim að sem mestu gagni.
1)L. 112/2008, 57. gr.
57. gr. Óheimilt er að framselja eða veðsetja bótakröfur samkvæmt lögum þessum og ekki má leggja á þær löghald né gera í þeim fjárnám né halda bótafé til greiðslu opinberra gjalda, annarra en iðgjalda samkvæmt lögum þessum.
58. gr. Greiða skal bótaþegum, búsettum í þeim ríkjum sem ríkisstjórn gerir samninga við eða ráðherra hefur samið við með stoð í 68. gr., sömu bætur og viðkomandi hefði átt rétt á hefði hann verið búsettur hér á landi. 1)
… 2)
[Ráðherra] 3) getur með reglugerð 4) ákveðið að frá bótum, sem bótaþegi á rétt á hér á landi, dragist bætur sem hann fær samkvæmt erlendri löggjöf fyrir sama tímabil og bætur eru greiddar fyrir hér á landi.
1)Rg. 1076/2006. 2)L. 112/2008, 57. gr. 3)L. 160/2007, 7. gr. 4)Rg. 463/1999.
B. Um iðgjöld, innheimtu o.fl.
59. gr. Iðgjöld skv. 36. gr. skal [ríkisskattstjóri] 1) leggja á með tekjuskatti og færa þau á skattskrá, sbr. 98. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, og skulu ákvæði 99. gr. þeirra laga og ákvæði laga nr. 30/1992, um yfirskattanefnd, gilda um iðgjöld eftir því sem við á.
Ákvæði laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum, skulu eiga við um gjaldstofn, gjaldskyldu, greiðslutímabil, álagningu og innheimtu iðgjalds útgerðarmanna fiskiskipa vegna slysatrygginga sjómanna. Að tekjuári liðnu skal fara fram endanleg ákvörðun iðgjaldsins í samræmi við launaframtal og skal iðgjaldið sérgreint í álagningarskrá og skattskrá. Ríkisskattstjóri skal halda skrá yfir gjaldskylda aðila og skal eftir atvikum leita staðfestingar á iðgjaldi útgerðaraðila þegar greiðsluskylda [sjúkratryggingastofnunarinnar] 2) er ákvörðuð.
Gjalddagar iðgjalda skulu ákveðnir í reglugerð.
1)L. 136/2009, 110. gr. 2)L. 112/2008, 57. gr.
60. gr. Iðgjöld til slysatrygginga skulu innheimt af innheimtumönnum ríkissjóðs og sveitarsjóða eða sérstökum innheimtustofnunum. Ákvæði laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, þar á meðal um dráttarvexti og fjárnámsrétt, gilda um innheimtu iðgjalda.
61. gr. Iðgjöld útgerðarmanna fiskiskipa vegna slysatrygginga sjómanna skv. 36. gr. skulu hvíla sem lögveð á hlutaðeigandi skipum og ganga fyrir öllum öðrum veðum en lögveðum fyrir gjöldum ríkissjóðs.
C. Önnur ákvæði.
62. gr. Ráðherra er heimilt að fela Tryggingastofnun ríkisins að semja við atvinnufyrirtæki um að þau taki í vinnu öryrkja sem fá greiddan örorkulífeyri, örorkustyrk, endurhæfingarlífeyri samkvæmt lögum um félagslega aðstoð eða slysaörorkubætur undir 50% og hafa vinnugetu sem ekki hefur nýst á vinnumarkaði og ekki verulegar aðrar tekjur til lífsviðurværis en bætur almannatrygginga. Skerðing bóta á starfstímabilinu fer eftir almennum skerðingarreglum á hverjum tíma. Í reglugerð 1) skal kveða nánar á um öryrkjavinnu þessa.
1)Rg. 159/1995.
63. gr. Hver sá sem fær úrskurð stjórnvalds um meðlag með barni sem hann hefur á framfæri sínu, eða um aðrar greiðslur skv. IX. kafla barnalaga, nr. 76/2003, getur snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags eða annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama skal gilda þegar lagt er fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur skv. IX. kafla barnalaga. Fyrirframgreiðsla meðlags frá Tryggingastofnun skal ávallt vera innan þeirra marka sem 20. gr. laga þessara setur um fjárhæð greiðslna og aldur barna.
Á sama hátt skal barnsmóðir fá samkvæmt stjórnvaldsúrskurði eða staðfestu samkomulagi greitt hjá Tryggingastofnun ríkisins:
a. Framfærslulífeyri í allt að þrjá mánuði skv. 1. mgr. 25. gr. barnalaga.
b. Hjúkrunar- og framfærslustyrk í allt að níu mánuði skv. 2. mgr. 25. gr. barnalaga.
c. Kostnað vegna meðgöngu og fæðingar skv. 1. mgr. 26. gr. barnalaga.
Þegar eftir að sýslumaður hefur veitt viðtöku ósk frá móður um að aflað verði faðernisviðurkenningar hjá lýstum barnsföður getur hún fengið meðlag greitt með barninu innan þeirra marka er 20. gr. þessara laga setur.
Tryggingastofnuninni er heimilt að greiða meðlag aftur í tímann allt að 12 mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk móður um öflun faðernisviðurkenningar berst stofnuninni, enda eigi þá 4. mgr. 20. gr. ekki við.
Þeir sem annast framfærslu barns að foreldri látnu eða af öðrum lögmætum ástæðum, þar með talin sveitarstjórn í framfærslusveit barnsins hafi hún greitt fé til framfærslu þess, eiga sama rétt og foreldri eftir því sem við getur átt.
Heimilt er að setja reglugerð 1) um framkvæmd þessarar greinar þar sem m.a. er kveðið á um fyrirframgreiðslu meðlags þegar foreldri eða börn eru búsett erlendis og um hámarksgreiðslur sem Tryggingastofnun ríkisins innir af hendi.
1)Rg. 945/2009, sbr. 250/2012, 673/2012 og 1315/2013.
64. gr. Tryggingastofnunin skal senda Innheimtustofnun sveitarfélaga innan eins mánaðar tilkynningu um fyrstu greiðslu skv. 63. gr. Tilkynningunni skal fylgja afrit af yfirvaldsúrskurði eða staðfestum samningi.
Innheimtustofnun sveitarfélaga endurgreiðir Tryggingastofnuninni greiðslur skv. 1.–3. mgr. 63. gr. mánaðarlega eftir því sem innheimtist. Um skil vegna óinnheimtra skulda fer eftir ákvæðum laga um Innheimtustofnun sveitarfélaga.
Ríkissjóður endurgreiðir Tryggingastofnun ríkisins meðlög vegna barnsfeðra sem framfærslurétt eiga erlendis, svo og meðlög greidd skv. 4. mgr. 63. gr. þar til meðlagsúrskurður liggur fyrir.
Þegar svo háttar til að Tryggingastofnun hefur milligöngu um meðlagsgreiðslur með barni skv. 1. mgr. 63. gr. og hið meðlagsskylda foreldri öðlast rétt til barnalífeyris skv. 20. gr. vegna barnsins er stofnuninni þó heimilt að láta greiðslu barnalífeyris ganga til fyrirframgreiðslu meðlags vegna sama tímabils. Verður þá ekki um kröfu á hendur meðlagsskyldum aðila að ræða fyrir það tímabil.
65. gr. Tryggingastofnunin getur tekið að sér að annast reikningshald og daglega afgreiðslu fyrir einstaka lífeyrissjóði.
66. gr. Heimilt er Tryggingastofnuninni að taka að sér frjálsar slysatryggingar. Skal þá jafnan gefa út vátryggingarskírteini. Enn fremur getur stofnunin með samþykki ráðherra tekið að sér ábyrgðartryggingar.
Ráðherra ákveður með reglugerð nánari tilhögun á tryggingum samkvæmt þessari grein, þar á meðal að hve miklu leyti skuli endurtryggja þá áhættu sem Tryggingastofnunin tekur á sig.
67. gr. Útgerðarmenn fiskiskipa skulu tryggja áhættu vegna bótaskyldra slysa, sbr. IV. kafla laga þessara og 1. mgr. 36. gr. sjómannalaga, nr. 35/1985, hjá [sjúkratryggingastofnuninni]. 1)
[Sjúkratryggingastofnunin] 1) greiðir útgerðarmönnum fjárhæð sem svarar til fullra launa og/eða aflahlutar sjómanna í allt að tvo mánuði.
Útgerðarmenn skulu greiða iðgjald skv. 36. gr.
Útgerðarmenn sem þess óska geta sagt upp tryggingu, sbr. 1. mgr., fyrir 1. nóvember ár hvert vegna næsta árs á eftir. Tilkynning um uppsögn skal berast [sjúkratryggingastofnuninni]. 1) Eftir að uppsögn hefur öðlast gildi eiga útgerðarmenn ekki rétt á greiðslum vegna launa eða aflahlutar í forföllum vegna slysa en njóta slysatrygginga almennra launþega.
Halda skal tryggingum samkvæmt þessari grein reikningslega aðskildum frá annarri starfsemi [sjúkratryggingastofnunarinnar]. 1)
Dagpeningar skv. 33. … 1) gr. skulu renna til [sjúkratryggingastofnunarinnar] 1) þann tíma sem greiðslur launa og aflahlutar eiga sér stað.
1)L. 112/2008, 57. gr.
68. gr. Heimilt er ríkisstjórninni að semja við erlend ríki og [hlutaðeigandi ráðherra] 1) að semja við erlendar tryggingastofnanir um gagnkvæman rétt til þeirra hlunninda sem almannatryggingar veita. Í slíkum samningum má m.a. kveða svo á að búsetutímabil, atvinnutímabil eða tryggingatímabil í öðru samningsríki skuli talin jafngilda búsetutíma á Íslandi, hvort sem um er að ræða íslenska þegna eða þegna annarra samningsríkja. Enn fremur er heimilt að kveða þar á um rétt til bótagreiðslna samkvæmt almannatryggingalögum við búsetu í öðru samningsríki, sbr. 17. og 58. gr.
Í samningum skv. 1. mgr. er enn fremur heimilt að semja um fyrirframgreiðslu meðlags milli samningsríkja, sbr. 63. gr., eins og um bætur almannatrygginga væri að ræða.
1)L. 160/2007, 8. gr.
69. gr. Bætur almannatrygginga, svo og greiðslur skv. 63. gr. og fjárhæðir skv. 22. gr., skulu breytast árlega í samræmi við fjárlög hverju sinni. Ákvörðun þeirra skal taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs.
70. gr. [Ráðherra] 1) er heimilt í reglugerð 2) að kveða á um nánari framkvæmd laga þessara. Þá er [… 1) ráðherra] 3) heimilt að birta sem reglugerðir 4) almannatryggingareglur Evrópusambandsins með aðlögun vegna EES-samningsins og almannatryggingareglur stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu.
1)L. 162/2010, 37. gr. 2) Rgl. 374/1996. Rg. 660/1998, sbr. 137/2002. Rg. 808/1998, sbr. 691/2000 og 441/2001. Rg. 379/1999. Rg. 463/1999, sbr. 1158/2007. Rg. 471/2001. Rg. 245/2002. Rg. 576/2005, sbr. 350/2007 og 694/2007. Rg. 1076/2006. Rg. 1190/2008, sbr. 633/2009. Rg. 1191/2008. Rg. 170/2009, sbr. 1215/2014. Rg. 598/2009, sbr. 1056/2009 og 1118/2013. Rg. 945/2009, sbr. 250/2012, 673/2012 og 1315/2013. Rg. 1052/2009, sbr. 569/2011, 498/2012 og 1216/2013. Rg. 1055/2009. Rg. 1057/2009. Rg. 661/2010. Rg. 570/2011. Rg. 670/2012. Rg. 460/2013, sbr. 1218/2014. Rg. 1185/2014. Rg. 1212/2014. Rg. 1220/2014. Rg. 1221/2014. 3)L. 160/2007, 9. gr. 4)Rg. 442/2012. Rg. 860/2012. Rg. 617/2013. Rg. 1098/2013.
Ákvæði til bráðabirgða.
1. Þeir sem ákveðið hafa frestun ellilífeyris fyrir 1. janúar 1992, sbr. 11. gr. laga nr. 67/1971, um almannatryggingar, skulu halda rétti sínum. Tryggingastofnun ríkisins skal breyta fjárhæðum vegna frestunarinnar til samræmis við breytingar sem verða á fjárhæðum almannatrygginga hverju sinni. Nú andast maður, sem frestað hefur töku lífeyris fram yfir 67 ára aldur, fyrir 1. janúar 1992 og lætur eftir sig maka á lífi og skal þá hinn eftirlifandi maki til viðbótar eigin lífeyri eiga rétt á þeirri hækkun sem hinn látni átti rétt á vegna frestunar.
2. Ákvæði 1. gr. laga nr. 62/1999 gilda um þá einstaklinga sem metnir eru til örorku í fyrsta sinn eftir gildistöku þeirra en ekki um þá sem metnir höfðu verið til örorku samkvæmt ákvæðum eldri laga, nema þeir sæki sérstaklega um það.
3. Sjúklingar sem áttu rétt til bóta skv. f-lið 1. mgr. 24. gr. laga nr. 117/1993 fyrir 1. janúar 2001 skulu halda rétti sínum skv. III. kafla þeirra laga.
4. Í ákvæðum 3. málsl. b-liðar og d-liðar 2. mgr. 16. gr. laganna skulu hlutföllin 75% og 25% vera 65% og 35% á árinu 2007.
5. Þrátt fyrir ákvæði c-liðar 2. mgr. 16. gr. laganna skulu lífeyrisgreiðslur lífeyrisþega hafa 80% vægi og lífeyrisgreiðslur makans hafa 20% vægi við útreikning á fjárhæð tekjutryggingar á árinu 2007.
6. Þrátt fyrir ákvæði 2., 3. og 4. mgr. 22. gr. laganna skal skerðingarhlutfallið vera 39,95% á tímabilinu 1. janúar 2007 til og með 31. desember 2007.
7. Þrátt fyrir ákvæði 69. gr. laganna skulu elli- og örorkulífeyrir og tekjutrygging skv. 17., 18. og 22. gr. laganna hækka um 2,9% á árinu 2007 í samræmi við samkomulag ríkisstjórnarinnar við Landssamband eldri borgara frá 19. júlí 2006.
8. Á tímabilinu 1. janúar 2007 til og með 31. desember 2008 er hægt að óska eftir því hjá Tryggingastofnun ríkisins að gerður verði samanburður á útreikningi elli- og örorkulífeyris og tekjutryggingar fyrir og eftir gildistöku þessara laga. Ef samanburðurinn leiðir til hærri bóta samkvæmt eldri lögum skal stofnunin greiða hærri bæturnar á því tímabili.
[9. … 1)] 2)
[10. … 3)] 4)
[11. Þrátt fyrir ákvæði 3. málsl. b-liðar 2. mgr. 16. gr. laganna skal örorkulífeyrisþegi á tímabilinu 1. júlí 2009 til 1. janúar 2010 hafa 109.600 kr. frítekjumark á mánuði vegna atvinnutekna við útreikning tekjutryggingar.] 5)
[12. Þrátt fyrir ákvæði 2. málsl. 69. gr. laganna skulu bætur almannatrygginga, sem og greiðslur skv. 63. gr. og fjárhæðir skv. 22. gr., hækka um 9,6% á árinu 2009.] 3)
[13. Þrátt fyrir ákvæði 2., 3. og 4. mgr. 22. gr. laganna skal skerðingarhlutfallið vera 45% á tímabilinu 1. júlí 2009 til og með 31. desember 2013.] 6)
[14. Þrátt fyrir ákvæði 3. málsl. b-liðar 2. mgr. 16. gr. laganna skal örorkulífeyrisþegi á tímabilinu [1. janúar 2013 til og með 31. desember [2015] 7)] 8) hafa 1.315.200 kr. frítekjumark vegna atvinnutekna við útreikning tekjutryggingar.
15. Þrátt fyrir ákvæði 69. gr. laganna skulu bætur almannatrygginga, svo og greiðslur skv. 63. gr. og fjárhæðir skv. 22. gr., ekki breytast á árinu [2011]. 9) [Þó er ráðherra heimilt, að fengnu samþykki ríkisstjórnarinnar, að breyta þessum fjárhæðum til hækkunar ef verulegar breytingar verða á launaþróun og þjóðhagsforsendum frá afgreiðslu fjárlaga. Þegar áðurgreind skilyrði leiða til hækkunar skal ráðherra breyta þeim með reglugerð. 10)] 11)] 12)
[16. Þrátt fyrir ákvæði 16., 18., 19., 21. og 22. gr. skulu greiðslur örorkulífeyris, örorkustyrks, aldurstengdrar örorkuuppbótar og tekjutryggingar ekki lækka á tímabilinu 1. janúar 2011 til og með 31. desember 2013 vegna almennra hækkana á örorkulífeyri úr lífeyrissjóðum.] 13)
[17. Þrátt fyrir ákvæði 69. gr. laganna skulu bætur almannatrygginga, sem og greiðslur skv. 63. gr., hækka um 3,5% á árinu 2012. Fjárhæðir frítekjumarka skv. 16.–18. gr., 21.–22. gr. og 48. gr. skulu þó ekki breytast á árinu 2012.] 14)
[18. Við útreikning tekjutryggingar þeirra örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega sem fá greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum skal á tímabilinu 1. janúar 2014 til og með 31. desember 2014 gera samanburð á útreikningi tekjutryggingar annars vegar samkvæmt þeim reglum sem gilda á árinu 2014 og hins vegar þeim reglum sem voru í gildi á árinu 2013 auk 3,6% hækkunar og að teknu tilliti til þess tekjumarks sem myndast hefur við framkvæmd 16. tölul. ákvæðis þessa. Beita skal þeirri reglu sem leiðir til hærri greiðslna.] 15)
1)L. 112/2008, 57. gr. 2)L. 160/2007, 10. gr. 3)L. 173/2008, 15. gr. 4)L. 17/2008, 7. gr. 5)L. 70/2009, 15. gr. 6)L. 70/2009, brbákv. V. 7)L. 125/2014, 13. gr. 8)L. 107/2013, 1. gr. 9)L. 164/2010, 27. gr. 10)Rg. 1052/2009, sbr. 569/2011 og 1231/2011. Rg. 570/2011. Rg. 1232/2011. 11)L. 51/2011, 1. gr. 12)L. 120/2009, 8. gr. 13)L. 106/2011, 1. gr. 14)L. 178/2011, 2. gr. 15)L. 137/2014, 1. gr.